Morgunblaðið - 28.02.2009, Page 33
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2009
✝ Pálína Halldórs-dóttir fæddist í
Ólafsvík 13. sept-
ember 1930. Hún lést
á dvalarheimilinu
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 20. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Halldór Jónsson og
Matthildur Kristjáns-
dóttir og var Pálína
ein af tíu systkinum.
Pálína giftist Sig-
urði Ríkharði Þor-
steinssyni, d. 28. sept-
ember 1998. Þau eignuðust fimm
börn, Sigrúnu, Halldór, Steinar,
Ragnar Matthías og Má. Barna-
börnin eru fjórtán og barna-
barnabörnin fjögur.
Heimilið var starfsvettvangur
Pálínu en auk þess að sinna upp-
eldi barna og heimili
vann hún ávallt utan
heimilis störf sem
tengdust sjávar-
útvegi. Söngur var
Pálínu mjög hugleik-
inn og mest yndi
hafði hún af óperu-
og kórsöng. Hún
byrjaði ung að
syngja í Kirkjukór
Ólafsvíkur og söng
þar í áratugi. Pálina
var mikil útivist-
arkona og á hún ófá
sporin inn að Hvarfi,
upp Fossárdalinn, yfir Tæpitung-
una, fram Geitnholtið, út Bæj-
armýrina, niður Markúsarganginn
og heim.
Útför Pálínu fer fram frá Ólafs-
víkurkirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
Hún Pálína tengdamóðir mín
hefur kvatt þennan heim og er lögð
upp í langferð til æðri veraldar.
Með okkur Pálínu var ætíð hlýtt og
gott samband.
Þegar ég fór að venja komur
mínar á Grundarbrautina í Ólafsvík
sem væntanleg tengdadóttir tóku
Pálína og Sigurður mér opnum
örmum. Notalegt andrúmsloft ein-
kenndi heimilisbraginn og var
tengdamóðir mín iðulega að dunda
sér í eldhúsinu og rólyndisbragur
yfir tengdapabba, í sjónvarpsholinu
eftir langan vinnudag. Pálína hafði
unun af því að elda og baka enda
var hún snilldar kokkur. Eldhúsið
var vistlegt og stóð tengdamamma
iðulega um miðnættið og straujaði
því „þá slakaði hún svo vel á.“ Oft
sátum við í eldhúsinu og spjölluðum
saman enda höfðum við sönginn og
útivistina að sameiginlegu áhuga-
máli. Pálína söng í áratugi með
Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju og gaf
það henni mikla lífsfyllingu sem
hún minntist með bros á vör. Pálína
hafði gaman af að fara í „menn-
inguna“ í Reykjavík. Ófáar ferð-
irnar fórum við saman í Óperuna.
Það voru ógleymanlegar ferðir því
Pálína hafði mikið yndi af góðum
söng.
Pálína sagði mér frá æskuárum
sínum í Stakkholtinu en hún ólst
upp í stórum systkinahópi á mann-
mörgu heimili og var þar mjög
gestkvæmt. Pálína byrjaði ung að
hjálpa til á heimilinu og lá leið
hennar síðan í Húsmæðraskólann á
Staðarfelli. Hugur Pálínu stefndi til
frekari mennta en störfin á heim-
ilinu gengu fyrir. Það var henni því
mikils virði að börnin hennar gengu
menntaveginn og studdu þau hjón-
in börnin sín með ráðum og dáð.
Pálína var mikil fjölskyldukona
og var stolt af hópnum sínum.
Henni fannst barnabörnin efnileg,
hún fylgdist vel með þeim og gladd-
ist yfir sigrum þeirra. Hjá henni
áttu þau dyggan stuðningsmann.
Hún naut þess að hafa þau í kring-
um sig og gaukaði iðulega að þeim
góðgæti. Það var mikil kátína á
heimilinu okkar í Eyjahrauninu
þegar von var á tösku frá ömmu
með rútunni frá Ólafsvík. En í tösk-
unni var skúffukaka, formkökur,
hafrakex, brúnterta, eplalengja og
sódakaka með súkkulaði, svo eitt-
hvað sé nefnt. Þvílík veisla, en
tengdamamma minnkaði ekkert
baksturinn þó að allir ungarnir
væru flognir úr hreiðrinu.
Það voru tengdamóður minni erf-
ið spor þegar hún fluttist frá Ólafs-
vík vegna veikinda en hugurinn var
samt alltaf bundinn heimahögunum
enda þekkti hún hverja þúfu í
kringum bæinn. Pálína var mikill
göngugarpur og náttúruunnandi og
voru gönguferðirnar oft í marga
klukkutíma. Hún veigraði sér ekki
við að ganga á fjöll og gekk hún
iðulega um hálend svæði í nágrenni
Ólafsvíkur. Ég mun geyma minn-
ingar um Pálínu tengdamóður
mína, minningar sem ég og fjöl-
skylda mín munum gleðjast yfir á
ókomnum árum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson.)
Jóhanna M. Hjartardóttir.
Kveðja til ömmu
Í Víkinni báran sængina breiðir,
blíðlegt er vinarhót.
Að Stakkholti lágu margra leiðir,
þar lék sér glaðleg snót.
Vinnusöm ætíð og vönduð kona,
verndari sinna nú.
Móðir stúlkubarns og sona,
stolt, gjafmild og trú.
Í Ólafsvíkur faðmi fjalla,
forðum áttir þitt bú.
Æskustöðvarnar ætíð kalla,
elskan mín, komdu nú.
Er ástvinir þjást í okkar heimi,
erfið er leiðin þeim.
Ég bið, þig fagra drauma dreymi,
í dag, ertu komin heim.
Með ástarkveðju og þökkum fyr-
ir allt og allt.
Þín nafna,
Pálína.
Elsku amma, það er okkur þung-
bært að kveðja þig í hinsta sinn þó
að við vitum að hvíldin hafi verið
þér kærkomin. Barátta þín síðustu
árin var farin að taka sinn toll og
eins og sagði í málshættinum þín-
um síðustu páska þá hefur allt sinn
tíma og þinn var kominn.
Síðustu daga höfum við rifjað
upp þær minningar sem við eigum
um þig. Okkur fannst alltaf jafn
gott að koma til Ólafsvíkur, þið afi
tókuð svo vel á móti okkur og
Grundabrautin var eini staðurinn á
landinu þar sem við máttum fá
kökur í morgunmat. Við geymum í
hjörtum okkar þær stundir sem við
áttum með þér eftir að við fluttum
til Reykjavíkur og þú fórst að
venja komur þínar til okkar í Hlað-
hamrana. Þú komst alltaf færandi
hendi með fulla tösku af kökum.
Enginn bakaði jafn góðar form-
kökur og við dýrkuðum nýbakaða
fladdarana með osti og gúrku.
Okkur fannst alltaf jafn notalegt að
hafa þig heima þegar við komum
úr skólanum. Oftar en ekki sastu
með kaffi og mola í eldhúsinu eða
varst að ljúka við að setja upp and-
litið og tryggja hárgreiðsluna með
góðum skammti af hárlakki áður
en þú skelltir þér í bæjarleiðangur.
Það sást mjög vel síðustu dagana
hve heitt þú varst elskuð og dáð af
fjölskyldunni þinni og við verðum
ævinlega þakklát fyrir að hafa
fengið að vera með þér síðustu
dagana. Þín verður sárt saknað en
minningin um einstaka manneskju
mun lifa í hjörtum okkar um
ókomna tíð.
Farðu nú í heimsreisuna með
þeim sem bíða þín hinum megin og
hvíl í friði.
Ástarkveðja,
Sigurður R. og Þórey.
Pálína
Halldórsdóttir
✝ Fanney Á. Greene(Runólfsdóttir)
fæddist í Reykjavík
26. mars 1924. Hún
lést á sjúkrahúsi í
Georgíufylki í Banda-
ríkjunum hinn 8. febr-
úar síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Elka Jónsdóttir, f.
10.4. 1888, d. 14.11.
1982, og Runólfur
Jónsson, , f. 6.1. 1870,
d. 11.10. 1932. Systk-
ini Fanneyjar eru
Geir Runólfsson, f.
2.10. 1926, og Guðrún Rebekka
Runólfsdóttir, f. 27.2. 1917, d. 15.8.
1985.
Fanney kvæntist Dr. Mark R.
Greene 1946 og fluttist til Banda-
ríkjanna þar sem hún bjó alla ævi.
Börn þeirra eru: 1) Irving Greene,
f. 1948. Kona hans er Gisela og börn
Bjorn og Fiona. 2) Robert Greene, f.
1953. Kona hans er Nadia og börn
Grainger, Maxwell og
Laura. 3) Erik
Greene, f. 1955. Kona
hans er Jenifer og
dóttir Virginia.
Fanney og Mark
bjuggu lengst af í Eu-
gene, Oregon. Þau
fluttu til Athens,
Georgíu 1971 þar sem
Mark fékk prófess-
orsstöðu við Univers-
ity of Georgia í
áhættustýringu og
tryggingafræðum.
Þegar þau fóru á eft-
irlaun fluttu þau til Bradenton í
Flórída. Fanney spilaði mikið tenn-
is og tilheyrði ýmsum klúbbum og
tennissamtökum. Hún hafði einnig
gaman af að spila bridge og mála
landslagsmyndir. Í mörg ár, var
Fanney sjálfboðaliði við St.Mary’s
spítalann í Athens.
Minningarathöfn um Fanneyju
fer fram í dag í Athens í Georgíu.
Hinn 8. febrúar lést Fanney
Greene móðursystir mín í Bandaríkj-
unum eftir stutta sjúkdómslegu.
Fanney hafði fyrir ári síðan flust
ásamt manni sínum aftur til Athens í
Georgíu eftir að hafa búið síðustu 20
árin í Flórída.
Fanney ólst upp í Reykjavík en á
stríðsárunum kynntist hún eftirlif-
andi manni sínum Dr. Mark R.
Greene sem gegndi herþjónustu hér á
landi. Fanney og Mark trúlofuðust og
fluttust í stríðslok til Bandaríkjanna.
Þau gengu í hjónaband á gamlársdag
1946 og settust að í Eugene í Oregon.
Mark hélt áfram námi við háskólann í
Oregon og lauk þaðan námi í við-
skiptafræðum. Síðar varð hann pró-
fessor við sama skóla. Samhliða
kennslunni hélt Mark áfram námi og
vísindaiðkunum og hlaut doktors-
gráðu í fræðigreinum sínum. Mark
hefur skrifað margar kennslubækur í
trygginga-og viðskiptafræðum sem
náð hafa miklum vinsældum og haldið
fyrirlestra víða.
Á árunum í Oregon eignuðust
Mark og Fanney þrjá syni, Irving,
Róbert og Erik. Árið 1971 fluttist fjöl-
skyldan til Athens í Georgíu þar sem
Mark varð prófessor við University of
Georgia. Mark og Fanney ferðuðust
mikið í sambandi við fyrirlestrana
bæði innan Bandaríkjanna og utan.
Ásdís systir mín og Pétur, maður-
inn hennar, hafa búið í Flórída um
árabil og þegar Mark og Fanney
bjuggu í Bradenton var stutt að fara
og heimsóknir tíðar. Þeim fannst gott
að hafa Ásdísi og Pétur svona nálægt
sér og var alltaf kært á milli þeirra.
Alltaf þegar við fjölskyldan vorum
á ferð í Bandaríkjunum gerðum við
okkur far um að koma við hjá Fann-
eyju og Mark. Þar var alltaf vel tekið
á móti okkur enda Fanney meistara-
kokkur sem hafði gaman af að taka á
móti gestum.
Sérstaklega er okkur hjónum
minnisstætt þegar við vorum við nám
í eitt ár í Flórída. Þá hittumst við oft
og eitt sinn fórum við í viðburðaríka
siglingu með skemmtiferðaskipi til
Bahamaeyja. Í þeirri ferð reyndi svo
sannarlega á þolrifin í stórfjölskyld-
unni þar sem bíllinn bilaði og lá við að
við misstum af skipinu. En sem betur
fer beið skipið eftir okkur enda vorum
við 12 saman og vorum síðustu far-
þegararnir um borð. Síðast þegar við
heimsóttum þau var það í sumarbú-
stað þeirra uppi í fjöllum Georgíu.
Það var sumarið 2006. Mark og Fann-
ey voru samrýmd hjón. Þau spiluðu
brids og tennis og Fanney var frí-
stundamálari um árabil. Einnig tók
hún þátt í sjálfboðaliðastörfum við
sjúkrahús. Ég vil senda Mark og fjöl-
skyldunni mínar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Kristín Ármannsdóttir.
Elsku Fanney frænka. Ekki átti ég
von á því að þú færir svona snöggt án
þess að ég fengi færi á því að kveðja
þig, en lífið spyr víst ekki að því hvort
maður sé tilbúinn eða ekki. Mér
fannst ósköp erfitt að vera svona
langt í burtu og geta ekki kvatt þig
áður en þú fórst. Ég var að skoða
möguleikann á því að koma og kveðja
þig en þá kom fréttin um að þú værir
farin.
Þú varst í miklu uppáhaldi hjá mér,
glöð, glæsileg og alltaf fjör í kringum
þig. Ég man þegar ég var yngri, þeg-
ar þú komst til Íslands, þá var eins og
jólin væru komin hjá mér. Ég var sem
föst við ykkur Mark, ég elskaði að
vera nálægt þér. Það var greinilegt að
það var gott hjónabandið þitt, mikill
húmor í ykkur.
Og þau skipti sem ég kom í heim-
sókn til þín til Ameríku, fyrst til
Georgíu og síðar til Flórída fyrir
nokkrum árum með pabba, Sigrúnu,
Kristínu og Fanney yngri, það voru
mjög skemmtilegar ferðir sem ég
gleymi aldrei.
Mamma mín talaði alltaf svo vel um
þig, henni fannst þú svo skemmtileg,
enda hlóguð þið mjög mikið saman.
Henni fannst líka eins og mér Fanney
vera fallegasta nafn í heimi, enda ekki
skrítið að ég skildi skíra í höfuðið á
þér, elsku frænka mín. Vona að dóttir
mín, Fanney yngri, verði eins glað-
lynd og þú varst,
elsku Fanney.
Kveðja
Ingibjörg frænka.
Elsku Fanney frænka
Ég trúi ekki að þú sért farin, það er
svo stutt síðan ég kom að heimsækja
þig til Flórída. Það var mjög
skemmtileg og alveg ógleymanleg
ferð. Ég er búin að vera að suða í
mömmu síðan þá um að fara aftur að
heimsækja þig.
Ég er mjög ánægð með það að hafa
fengið að kynnast þér og er stolt að
bera nafnið þitt.
Svanir fljúga hratt til heiða,
huga minn til fjalla seiða.
Vill mér nokkur götu greiða?
– Glóir sól um höf og lönd.
Viltu ekki, löngun, leiða
litla barnið þér við hönd?
(Stefán frá Hvítadal.)
Kveðja
Fanney.
Fanney Á. Greene
(Runólfsdóttir)
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug í veikindum, við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR EINARSSONAR
frá Hvalnesi í Lóni,
Ásvallagötu 17,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Guðný Egilsdóttir,
dætur, tengdasynir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
BÁRU SIGFÚSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
Víðihlíðar á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri fyrir
góða umönnun og hlýhug.
Sigfús Jónasson, Jantee Sopab,
Guðrún Jónasdóttir,
Björgvin Jónasson, Sigríður Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, amma
og langamma,
JÓNÍNA ÓSK JÓNSDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 25. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 6. mars kl. 15.00.
Guðjón Rögnvaldsson,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Kristín Bj. Óskarsdóttir, Jóhann Gísli Hermannsson,
Dagbjört Ósk Óskarsdóttir, Rögnvaldur Jónsson,
Arnar Þór Óskarsson, Hólmfríður L. Stefánsdóttir,
Helena Rós Hafsteinsdóttir, Þorleifur Reynisson,
ömmubörn og langömmubarn.