Morgunblaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 1. M A R S 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 68. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is DAGLEGTLÍF VÉLHJÓLADELLA, ÚR OG MYNDIR ÚR LEIR SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN EINLEIKUR Á FIÐLU Í STUÐKONSERT www.illugi.is ILLUGI GUNNARSSON 1. SÆTI ENDURREISN BANKAKERFISINS FUNDUR UM EFNAHAGSMÁL. Staður: Askja - Náttúrufræðahús Háskóla Íslands (stóri salur) Sturlugötu 7. Kl. 20.00 MIKILL eldur blossaði upp á þaki Síðumúla 34 um miðjan dag í gær. Engan sakaði í eldsvoðanum sem rekja má til þess að við- gerðarmenn voru að bræða dúk á þakið. Vegfarendum var nokkur hætta búin vegna gaskúta sem voru á þakinu. Þeir sprungu og kom einn þeirra fljúgandi ofan af þakinu. Á þriðju hæð hússins er Íslensk tónverkamiðstöð til húsa. Þar eru átta þúsund tónverk sem voru í stórhættu, helst vegna vatnsskemda. Betur fór en á horfðist og var það ekki síst að þakka slökkviliðsmönnum sem breiddu plast yfir möppurnar. Unnið var að þurrkun í gærkvöldi. Á efstu hæð hússins var íbúð sem fór hvað verst út úr eld- inum. Karlmaður á þrítugsaldri hafði búið í íbúðinni í rúman mánuð og missti hann allt sitt í eldsvoðanum. Í gærkvöldi var verið að setja spónaplötur fyrir glugga sem sprungið höfðu í hit- anum. | 2 Missti allt í eldi í Síðumúla  Verið var að bræða dúk á þakið og kviknaði í út frá verkinu  Átta þúsund tónverk á nótum voru í stórhættu vegna brunans  Íbúð ungs karlmanns var á efstu hæð og gjöreyðilagðist Ljósmynd/Sveinbjörn Halldórsson Ljósmynd/Ágúst Bjarmi Símonarson Morgunblaðið/Árni Sæberg Eftir Önund Pál Ragnarsson og Kristján Jónsson „HANN ætti að vera algerlega sjálf- stæður,“ segir Eva Joly, nýráðinn ráðgjafi vegna rannsókna á efna- hagsbrotum sem tengjast banka- hruninu, um embætti sérstaks sak- sóknara. „Það ættu alls ekki að vera nein inngrip í störf hans. Það er mjög freistandi að reyna að hafa áhrif, beina rannsókninni í aðra átt þegar hún er farin að nálgast einhvern sem er náinn manni sjálfum.“ Joly segir það brandara að saksóknarinn hafi fjóra menn sér til aðstoðar við rann- sóknir mála. Embættinu er ætlað að vaxa með umfangi mála. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir ljóst að fjórir menn dugi afskaplega skammt í þá vinnu sem framundan sé. Nú sé komið að því að fjölga. Hann ræður til sín einn lögreglumann úr efnahagsbrotadeild næsta mánudag og gefur á næstunni út áætlun um mannaflaþörf út 2009. Embættinu eru ætlaðar 50 milljónir króna á fjárlögum þessa árs og núverandi húsnæði þess ger- ir ráð fyrir tólf starfsmönnum. „Ég held ekki að hægt sé að gera þessa rannsókn með færri en 20 manns,“ segir Joly. Brýnt að hlusta á Evu Joly „Ég tel brýnt að við hlustum á það sem Eva segir, að það þurfi fleiri að starfa að rannsóknum hjá hinum sér- staka saksóknara,“ segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Hvað varðar stöðu sérstaks saksóknara gagnvart ríkissaksóknara, þá skipi þeir hvor sitt stjórnsýslustigið. Skýrt sé að ríkissaksóknari sé æðsti hand- hafi ákæruvalds á Íslandi, en sé hann vanhæfur í máli skuli hann víkja sæti. „Hafi Eva Joly ákveðnar hugmyndir um breytingar á þessu fyrirkomulagi verða þær vitaskuld skoðaðar mjög vel,“ segir Ragna. Ólafur Þór segist ekki hafa lent í hindrunum vegna skorts á sjálfstæði. Hingað til hafi verið brugðist við ósk- um hans í dómsmálaráðuneytinu og frá byrjun legið fyrir þar að saksókn- ari fengi að gera það sem þyrfti að gera. Ekki hafi heldur orðið afskipti af hendi ríkissaksóknara. Algert sjálfstæði frá ríkissaksóknara segir Ólafur að yrði undantekning frá því að tvö stjórnsýslustig séu í hverju máli. Ekki sé aðeins hægt að skjóta ákvörðun um ákæru til æðra stjórn- valds heldur líka ákvörðun um nið- urfellingu máls. Hann segir ráð Evu Joly vel þegin en geldur varhug við því að taka upp þannig fyrirkomulag að hafa franskan rannsóknardómara.  Traustið skiptir mestu | 16 Sjálfstæðari saksóknara Sérstakur saksóknari þarf margfalt fleira starfsfólk en hann hefur í dag Eva Joly Í HNOTSKURN »Björn Bjarnason, fyrrver-andi dómsmálaráðherra, segist alltaf hafa gert ráð fyrir að fjórir væri lágmarks- fjöldi til að ýta embættinu úr vör. »Ef í ljós komi, eftir aðembættið hefur störf og að ráði erlendra sérfræðinga, að grípa þurfi til sérstakra umfangsmikilla aðgerða, beri að taka ákvarðanir í því ljósi.  Greiðsluþátt- taka fólks á öldr- unarstofnunum á enn eftir að aukast á næstu árum eftir því sem lífeyrissjóða- og vaxtatekjur fólks aukast. Það er mat Gísla Páls Pálssonar, framkvæmdastjóra í Ási í Hveragerði. Hann telur að það eigi við um öll öldrunarheimili landsins. Greiðsluþátttaka nú getur hæst orð- ið rúmlega 262 þúsund krónur á mánuði. »8 Fólk á eftir að greiða meira fyrir vist á elliheimilum  ENGAR líkur eru á því að kynja- hlutfallið verði jafnt á þingi eftir kosningar. Það er mat stjórmála- fræðinga sem Morgunblaðið ræddi við. Allnokkrar líkur eru þó á því að hlutfall kynjanna jafnist aðeins í komandi kosningum og verði 40/60 körlum í vil, í stað 30/70 eins og nú er. »6 Á Alþingi Útlit er fyrir að karlmenn verði áfram fleiri á þingi en konur. Karlar halda meirihluta HEITT vatn sprautaðist upp úr 300 metra djúpri borholu við tjaldstæðið í Skaftafelli í fyrrinótt. Skaftafell hef- ur fram til þessa flokkast sem kalt svæði í jarðfræðilegum skilningi, en áður höfðu verið boraðar tvær holur niður á 200 metra dýpi sem ekkert gáfu. Vatnajökulsþjóðgarður stóð að boruninni ásamt sveitarfélaginu Höfn í Hornafirði sem styrkti hana sér- staklega, en Jarðboranir sáu um framkvæmd verksins. Vatnið var 43 gráður við yfirborð jarðar en 47 gráða heitt neðst í holunni. Þrýstingurinn var mikill að sögn þeirra sem voru viðstaddir þegar vatnið fannst. Ætlunin er að nota vatnið í þjóðgarðinum, en sem dæmi má nefna að húsin í Skaftafelli hafa hingað til verið hituð með gas- og rafmagnskyndingu. onundur@mbl.is Heitt vatn í Skaftafelli Morgunblaðið/RAX Vatn Við tjaldstæðið í Skaftafelli.  Alls þrjátíu þúsund heimili eru með neikvæða eiginfjárstöðu eða á leiðinni í þá stöðu. Um fjórtán þús- und heimili, eða 18% þeirra skulda meira en þau eiga. Tæplega 21% þeirra eru með eiginfjárstöðu á bilinu núll til fimm milljónir króna, samkvæmt ríkisstjórninni. »4 Fjórtán þúsund heimili skulda meira en þau eiga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.