Morgunblaðið - 11.03.2009, Síða 6
urstöður prófkjaranna, því setja
verði úrslitin í samhengi við fylgi
flokkanna í hverju kjördæmi. Bendir
hún í því samhengi á að þótt konur
hafi hlotið góða kosningu hjá Fram-
sóknarflokknum í Suðvest-
urkjördæmi, séu litlar líkur til að
flokkurinn nái nema einum manni
inn í þing, miðað við núverandi fylgi.
Segir hún einnig ljóst að miðað við
núverandi fylgi flokkanna megi ljóst
vera að stór hluti karla sé í öruggum
sætum meðan konurnar séu í líkleg-
um varaþingmannssætum.
Aðeins horft til mannkosta
Nokkur munur
er á milli flokka
m.t.t. hlutfalls
kynja á fram-
boðslistum. Tveir
flokkar fara þá
leið að vera ekki
með neinn kynjakvóta. Það eru
Frjálslyndi flokkurinn og Sjálfstæð-
isflokkurinn. Hjá Magnúsi Reyni
Guðmundssyni, framkvæmdastjóra
Frjálslynda flokksins, fengust þær
upplýsingar að einvörðungu yrði
horft til mannkosta frambjóðenda
þegar stillt yrði upp á lista kjördæm-
anna. Uppröðunin er í höndum
stjórna kjördæmisfélaganna, sem
bera listana undir félagsfund til
samþykktar.
Stjórn Landssambands sjálfstæð-
iskvenna sendi nýverið frá sér álykt-
un þar sem allir
sjálfstæðismenn
voru minntir á
„að vanda vel til
verka við val sitt
á lista í þeim
prófkjörum sem framundan eru“ á
vegum flokksins. Landssambandið
FRÉTTASKÝRING
Eftir Silju Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
ALLNOKKRAR líkur eru á því
að hlutfall kynjanna jafnist aðeins á
Alþingi í komandi kosningum og
verði 40/60 körlum í hag, í stað þess
að vera um 30/70 eins og er í dag.
Engar líkur eru hins vegar á því að
kynjahlutfallið verði 50/50 eftir kom-
andi þingkosningar, sama hver út-
koman verður í þeim prófkjörum
sem eftir eru á næstu dögum. Þetta
er mat þeirra stjórnmálafræðinga
sem Morgunblaðið ræddi við.
Góð kosning kvenna í prófkjörum
hjá annars vegar Vinstrihreyfing-
unni – grænu framboði í Reykjavík-
urkjördæmunum og hins vegar hjá
Framsóknarflokknum í SV-
kjördæmi hefur vakið töluverða at-
hygli að undanförnu. Vakti það ekki
síst athygli að karlar nutu góðs af
kynjakvótum hjá Framsókn-
arflokknum þar sem konur lentu í
fimm efstu sætunum. Velta sumir
fyrir sér hvort áratugalöng jafnrétt-
isbarátta sé núna loksins að skila
konum lengra í prófkjörum. Aðrir
spyrja sig hvort skýra megi aukinn
framgang kvenna með kröfunni um
uppstokkun eftir kerfishrunið.
„Ég sé ekki að konum sé almennt
að ganga miklum mun betur í próf-
kjörum á landsvísu en oft áður að
þessum tveimur dæmum und-
anskildum,“ segir Auður Styrk-
ársdóttir stjórnmálafræðingur og
bendir á að ekki megi einblína á nið-
hefur í þessu skyni hrint af stað
átakinu „2+2 sterkari listi“ sem vís-
ar til þess að í fjórum efstu sætunum
á hverjum framboðslita séu tvær
konur og tveir karlar. Stjórnin árétt-
ar þó að hún telji „ekki tilefni vald-
boða í þessum efnum svo sem með
kynjakvótum eða fléttulistum“.
Ýmsar leiðir farnar
Hinir flokkarnir þrír hafa kynja-
sjónarmið að leiðarljósi í prófkjörum
sínum. Að sögn Sigfúsar Inga Sig-
fússonar, framkvæmdastjóra Fram-
sóknarflokks-
ins, er í öllum
prófkjörum
farið eftir
ákvæði í lögum flokksins þess efnis
að við val á frambjóðendum eigi
hvort kynið ekki að vera með lægra
hlutfall en 40%. Hjá Samfylkingunni
og VG er það í höndum kjördæm-
isráðanna að ákveða hvort gripið
verði til aðgerða á borð við kynja-
kvóta eða fléttulista til að tryggja
jöfnuð milli kynja á framboðslistum
kjördæmanna. Í lögum beggja
flokka er kveðið á um, að við skipan
á framboðslistum skuli gæta jafn-
aðar milli kynjanna.
Samkvæmt upplýs-
ingum frá Sigrúnu
Jónsdóttur, fram-
kvæmdastjóra
Samfylkingarinnar,
er ólíkum leiðum
beitt í kjördæmunum.
Þannig var skýr fléttul-
isti kynjanna í SV-kjördæmi en í
NV-kjördæmi gilti að við röðun á
lista var parað í sex efstu sætin
þannig að ávallt yrði karl og kona í
tveimur sætum raðað eftir at-
kvæðamagni í prófkjöri. Í Reykjavík
gildir að uppstillingarnefnd er
frjálst að færa þá frambjóðendur til í
efstu átta sætum eftir þörfum sem
ekki fá bindandi kosningu, þ.e. 50%
gildra atkvæða í viðkomandi sæti. Í
reglum prófkjörsins kemur fram að
uppstillingarnefnd muni við frágang
framboðslista líta til kvenfrelsis-
sjónarmiða og nauðsynjar þess að
fjölga konum á þingi. Það getur þýtt
að hrókerað verði þeim frambjóð-
endum sem ekki hljóta bindandi
kosningu í sæti
sín.
Hjá Drífu
Snædal, fram-
kvæmdastýru
VG, fengust þær
upplýsingar að
það væri í hönd-
um kjördæmisráða VG að útfæra
ákvæði flokkslaga þannig að kynja-
jöfnuður næðist. Það hefði t.d. leitt
til fléttulista í S-kjördæmi og NA-
kjördæmi. Ekki væri enn ljóst
hvernig listinn í Reykjavík yrði út-
færður.
Jafnrétti ekki í höfn
Engar líkur taldar á því að hlutfall kynjanna verði algjörlega jafnt á Alþingi eftir
næstu þingkosningar sama hver útkoman verður í komandi prófkjörum um helgina
Í HNOTSKURN
»Allir stjórnmálaflokkarnema Frjálslyndi flokk-
urinn verða með prófkjör fyr-
ir komandi þingkosningar.
»Alls verða 313 ein-staklingar í framboði í
prófkjörum, þar af eru 118
konur sem eru 37,7%.
»Þetta er sama hlutfall og íprófkjörum fyrir þing-
kosningar 1999.
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
BJÖRGUNARSVEITIR úr Árborg,
Þorlákshöfn og Hveragerði sóttu í
gærkvöldi stúlku í Reykjadal ofan
Hveragerðis. Stúlkan meiddist á
göngu og talið er að hún hafi mjaðm-
arbrotnað. Stúlkan var stödd langt
inni í dal þar sem bratt er þegar hún
slasaðist. Þar var snjór yfir öllu og
erfitt yfirferðar, en þyrla Landhelg-
isgæslunnar sótti hana og var lent
við Landspítalann í Fossvogi um
klukkan hálfsjö í gærkvöldi.
Aðeins nokkrir dagar eru síðan fé-
lagar í björgunarsveitunum þremur
komu fótbrotinni konu til aðstoðar á
svipuðum slóðum. onundur@mbl.is
Bjargað í
Reykjadal
Beinbrotnaði í ferð
um snjóþungt svæði
Björgun Stúlkunni var komið á bör-
ur og reynt að halda hita á henni.
VART hefur orðið við svartfugls-
dauða að undanförnu, líkt og und-
anfarna vetur. Þorsteinn Sæmunds-
son jarðfræðingur við Náttúrustofu
Norðurlands vestra tilkynnti í gær-
morgun um tugi dauðra svartfugla
austan við Sauðárkrók. Í stuttri ferð
um svokallaðan Borgarsand fundust
fjörutíu dauðir fuglar, sem höfðu
legið mislengi í fjörunni.
Allt frá því veturinn 2002 hefur
fæðuskortur hjá svartfugli verið
vandamál á veturna, en þann vetur
drápust tugir ef ekki hundruð þús-
unda svartfugla úr hor vestur, norð-
ur og austur af landinu. Fyrst og
fremst var um tvær tegundir að
ræða, langvíu og stuttnefju.
Ólafur K. Nielsen hjá Náttúru-
fræðistofnun segir aðeins þessa einu
tilkynningu hafa borist stofnuninni
vegna svartfuglsdauða í vetur. Ekki
sé því hægt að fullyrða mikið um
ástandið. Ólafur hvetur hins vegar
alla sem verða varir við sjórekin
svartfuglshræ að láta vita af þeim.
onundur@mbl.is
Hungurdauði
hjá svartfugli
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÚTDRÁTTUR gærdagsins í Happdrætti Háskóla Ís-
lands var sannarlega sögulegur. Þá voru 75 ár frá því að í
fyrsta skipti var dregið og af því tilefni var Ingigerður
Jónsdóttir fengin til verksins en hún sá um fyrsta út-
dráttinn, 10. mars 1934.
Ingigerður, sem var þrettán ára árið 1934, var ásamt
Jónasi Guðbrandssyni valin af forstöðukonu barnaheim-
ilisins Vorblómsins til að draga út vinningsnúmerin í
happdrættinu. Þau sinntu og verkinu í heilt ár og þáðu
laun fyrir. Í þá daga fór drátturinn fram í Iðnó og var
troðfullt út úr dyrum á meðan á honum stóð. Ingigerður
hefur alla tíð síðan átt miða í HHÍ.
Afmælisdrátturinn fór fram í Iðnó að gömlum sið og
sneri Ingigerður stokknum með teningunum í sem töl-
urnar eru lesnar af. Að sögn viðstaddra þótti hún engu
hafa gleymt þótt langt væri um liðið frá síðasta drætti.
Að sögn Hans J. Þórðarsonar, markaðs- og kynning-
arstjóra HHÍ, er þetta ekki fyrsta uppákoman til að
fagna tímamótunum. Í desember sl. var opnuð afmæl-
issýning í Smáralind þar sem gestir og gangandi gátu
skoðað ýmislegt fróðlegt og skemmtilegt tengt langri og
viðburðaríkri sögu happdrættisins. Lokahnykkurinn er
svo í desember næsta. Þá verður dregið um sannkallaðan
stórvinning, 75 milljónir á einn miða. Til þess að vera með
í útdrættinum um þann stóra, í desember 2009, er nóg að
eiga miða í þeim mánuði. En í hvert skipti sem miðinn er
endurnýjaður á árinu fer hann í pott fyrir útdráttinn.
75 ár frá fyrsta drætti
Ingigerður Jónsdóttir sem dró út vinningsnúmerin í Happ-
drætti Háskóla Íslands 10. mars 1934 endurtók leikinn
Ljósmynd/Kristinn
treystum grunninn – tryggjum velferð
Kæru sjálfstæðismenn
Það er til fyrirmyndar hvernig við höfum tekið
höndum saman í borgarstjórn Reykjavíkur
undanfarna mánuði við lausn þeirra erfiðu
verkefna sem við erum að takast á við. Ég vil
flytja þá reynslu með mér yfir í landsmálin.
Kosningaskrifstofa Glæsibæ, sími 618 4469
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13.-14. mars www.jorunn.is
Jórunn Frímannsdóttir
2. sæti
@