Morgunblaðið - 11.03.2009, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.03.2009, Qupperneq 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009 Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbli.s BETRI nýting á pappír og aukin hagsýni í mat- arinnkaupum er meðal þeirra sparnaðarliða sem flestir leikskólar horfa til í starfi sínu. Ólíklegt sé að farið verði út í dýr tækjakaup á næstunni og eins hafi fimmta starfsdeginum verið bætt við í stað þess að greiða sérstaklega fyrir starfs- mannafundi. Hjá Kópavogsbæ hafa menn farið út í samhæfðar sparnaðaraðgerðir, en í Reykjavík liggur enn ekki fyrir hve miklum sparnaði borg- aryfirvöld gera ráð fyrir í leikskólastarfi þetta ár- ið. Leikskólastjórnendur eru þó þegar farnir að leita allra leiða til að draga úr kostnaði. Daglegur rekstur er nú í skoðun á leikskólan- um Laufskálum í Grafarvogi, m.a. hvað varðar nýtingu á pappír og öðrum efnivið. Sömu sögu er að segja á Austurborg. „Það má segja að það fel- ist viss umhverfisvernd í sparnaðinum,“ segir Hrafnhildur Konný Hákonardóttir, leikskóla- stjóri á Austurborg. „Við reynum að vera vakandi og nýta það sem til er.“ Tölvutæknin sé t.d. nýtt í auknum mæli til að koma upplýsingum til for- eldra í stað þess að setja miða í hólf barnanna. Pappír sé þá jafnvel nýttur báðum megin sé þess kostur og pappírsgjafir fyrirtækja hafi komið sér vel. Enginn leikskólaforsvarsmannanna sem rætt var við taldi sparnaðinn líklegan til að koma niður á starfi barnanna, t.d. föndri. Leikskólar væru í eðli sínu nægjusamar stofnanir sem gerðu mikið af því að nýta það sem til félli. Á Austurborg eru börnin m.a. farin að nota náttúrulegan efnivið í meira mæli en áður og búa jafnvel til útilistaverk. Erfiðara getur verið að spara í matarinnkaup- um og á Laufásborg fengust þau svör að sparn- aðurinn mæddi líklega mest á matráðnum. Á Austurborg segir Hrafnhildur Konný sparnaðinn vissulega hafa áhrif á matarúrval, en ekki holl- ustu. Hætt hafi t.d. verið að bjóða upp á bæði morgunkorn og hafragraut og ekki sé boðið upp á margar tegundir ávaxta í einu. „Þá kaupum við minna af tilbúnum mat og erum farin að baka okkar eigin brauð sem er varla slæmur kostur.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Í leik Spara þarf í leikskólastarfi eins og annars staðar. Leita allra sparnaðarleiða  Umhverfisvernd í sparnaðinum  Hollusta í mat þó að dragi úr úrvali Múrarameistarafélag Reykjavíkur hefur sagt sig úr Samtökum iðn- aðarins. Sigurður Heimir Sigurðs- son, formaður félagsins, segir að þetta sé fyrst og fremst gert í sparnaðarskyni. „Þegar kreppir að vilja menn skera niður kostnað,“ segir Sigurður Heimir. Hann segir að það sé áhugi á því að félagið sjálft sé aðili að SI en ekki hver og einn félagsmaður líkt og hafi verið. Sigurður segir að fé- lögum í Múrarameistarafélagi Reykjavíkur finnist þeir ekki nýta þá þjónustu sem sé í boði hjá SI. „Þeim finnst þeir ekki vera að nýta þetta og þá finnst þeim, að þeir þurfi ekki að borga þetta,“ segir hann. Aðildargjöldin eru tekju- tengd og greiddi hver félagi 0,07% af veltu til SI að sögn Sigurðar. Ákvörðunin var tekin á fé- lagafundi nýverið og var samþykkt með 30 atkvæðum á móti 1. „Þetta er það sem meirihluti félagsmanna vill,“ segir hann. jonpetur@mbl.is Sögðu sig úr Samtökum iðnaðarins DREGIÐ hefur úr fjölgun atvinnu- lausra í þessum mánuði samanborið við sama tíma í febrúar. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherra kynnti nýjar upplýsingar um at- vinnuástandið í ríkisstjórn í gær- morgun. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra segir að nú liggi fyrir að fjölgun atvinnulausra fyrstu dag- ana í marsmánuði er nálægt helm- ingi minni en á fyrstu dögum febr- úarmánaðar. ,,Þetta er afar jákvætt. Hreyfingin á heildar- atvinnuleysi á milli febrúar og mars er 0,2%. Sem betur fer eru það já- kvæð teikn sem við sjáum þarna,“ sagði Jóhanna á fréttamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Jákvæð teikn um atvinnu „ÉG er stolt af því að geta boð- ið öllum ung- lingum í 8., 9. og 10. bekk í Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður um- hverfis- og samgönguráðs Reykja- víkurborgar. Áfram verður tekið á móti öllum nemendum sem skrá sig í Vinnuskólann en vinnutími nem- enda verður styttur. Í vetur eru 4.500 nemendur skráðir í 8., 9. og 10. bekk grunn- skóla í Reykjavík. Búist er við að 80-90% þeirra skrái sig í Vinnuskól- ann, eða nær 4.000. Síðasta sumar voru 2.400 nemendur skráðir. Komast öll í vinnuskóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.