Morgunblaðið - 11.03.2009, Síða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
SÍMINN og Míla skrifuðu nýverið
undir samning um áframhaldandi
fjarskiptaþjónustu í stofnlínuneti
Mílu. Með samningnum er verið að
ramma inn það þjónustustig sem
Míla hyggst veita Símanum í fram-
tíðinni, segir í tilkynningu, en öll
fjarskipti í landinu fara um stofn-
línunetið, hvort sem um er að ræða
talsíma, farsíma, gagnaflutninga
eða sjónvarp.
Undir samninginn rituðu (f.v.)
Eva Magnúsdóttir, forstöðumaður
sölu hjá Mílu, Þór Jes Þórisson,
framkvæmdastjóri hjá Símanum,
Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri
Mílu, og Sævar Freyr Þráinsson,
forstjóri Símans.
Síminn og Míla semja um fjarskipti
Ljósmynd/Sigurður Salomon Gear
ÁRLEG stofnmæling botnfiska á Ís-
landsmiðum, eða togararall eins og
verkefnið er kallað, hófst í síðustu
viku. Fimm skip taka þátt í verkefn-
inu: togararnir Bjartur NK, Ljósa-
fell SU og Páll Pálsson ÍS og rann-
sóknarskipin Bjarni Sæmundsson og
Árni Friðriksson.
Vorrallið hefur farið fram árlega
síðan 1985. Helstu markmið eru að
fylgjast með breytingum á stofn-
stærðum, aldurssamsetningu, fæðu,
ástandi og útbreiðslu helstu fiskteg-
unda við landið, og hitastigi sjávar.
Allar tegundir fiska sem veiðast
eru lengdarmældar og margar teg-
undir auk þess vigtaðar, kyn- og
kynþroskagreindar og kvörnum
safnað til aldursgreininga. Þá er
fæða þorsks og ýsu greind úti á sjó.
Auk mælinga á afla eru skráðar upp-
lýsingar um opnun vörpunnar, veð-
urfar og sjávarhita við yfirborð og
botn. Ennfremur er safnað sýnum
vegna ýmissa rannsókna, t.d. á
mengandi efnum í sjávarfangi, að því
er fram kemur á heimasíðu Hafró.
Rannsóknasvæðið nær yfir allt
landgrunnið niður á 500 m dýpi – alls
tæplega 600 togstöðvar. aij@mbl.is
Fimm skip taka þátt
í árlegu vorralli Hafró