Morgunblaðið - 11.03.2009, Síða 14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
GUÐMUND KJARTANSSON
HAGFRÆÐING
Í 3-4 SÆTI Í REYKJAVÍK!
SJÁFSTÆÐISMENN!
Sameinumst um sterkan lista!
Ég býð mig fram í 3-4 sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu
í Reykjavík 13-14 mars.
Helstu áherslur og greinaskrif
mín er að finna á www.xd.is eða
www.profkjor.is/gudmundur.
Ég hef tekið þátt í opinberri
umræðu um stjórnmál og efna-
hagsmál m.a. á Útvarpi Sögu FM
99.4, þar sem ég verð á nk.
fimmtudag, 12 mars kl. 16:30.
Getum við
aðstoðað?
Í dag, miðvikudag, sitja ráðgjafar
okkar lengur við símann.
Ráðgjafar Eignastýringar, Almenna lífeyrissjóðsins
og Fjármögnunar svara spurningum ásamt ráðgjöfum
Íslandsbanka.
Hringdu í okkur á milli
kl. 17 og 21 í síma 440 4000.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-2
2
5
4
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
NÝLEGUR dómur Hæstaréttar í
máli Ásgeirs Þórs Davíðssonar, sem
kenndur er við nektarstaðinn Gold-
finger, gegn blaðamanni og ritstjóra
Vikunnar vekur ýmsar spurningar
um stöðu blaðamanna. Í málinu var
sannað að ummæli sem
blaðamaðurinn hafði
eftir viðmælanda sín-
um voru efnislega rétt
höfð eftir en engu að
síður dæmdi Hæsti-
réttur blaðamanninn
til að greiða bætur fyrir
ummælin. Þar með
sneri Hæstiréttur við
niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur sem hafði
hafnað öllum kröfum Ás-
geirs.
Málið snýst um viðtal
við Lovísu Sigmunds-
dóttur, fyrrum nekt-
ardansara á Goldfinger,
sem birtist í Vikunni 23.
ágúst 2007. Þar eru höfð eftir henni,
innan gæsalappa, ýmis ummæli um
Ásgeir og starfsemina á Goldfinger,
m.a. um að þar væri stundað vændi
og Ásgeir vildi geta stjórnað vændinu
sjálfur til að tryggja að hann fengi
þannig hluta af þóknun stúlknanna. Í
kjölfarið höfðaði Ásgeir mál gegn
Lovísu og einnig gegn blaðamann-
inum, Björk Eiðsdóttur, og ritstjóra
vikunnar, Elínu Arnar.
Engar efnislegar breytingar
Blaðamaðurinn Björk Eiðsdóttir
hljóðritaði viðtalið við Lovísu og í nið-
urstöðum Héraðsdóms Reykjavíkur
segir að Björk hafi unnið upp úr
hljóðupptökunni á þann veg að
óformleg samræða, án efnislegra
breytinga, hefði verið orðuð þannig
að úr yrði frambærilegt ritmál. Síðan
hefðu farið tölvupóstar á milli Bjark-
ar og Lovísu sem sýndu að Lovísa
samþykkti birtingu samtalsins í end-
anlegri mynd.
Undir rekstri málsins gerði Ásgeir
dómsátt við Lovísu, greiddi henni
150.000 krónur í málskostnað og
felldi málið gegn henni niður. Að sögn
lögmanns Ásgeirs, Sveins Andra
Sveinssonar, er ástæðan sú að þegar í
ljós hafi komið að ummælin voru ekki
höfð orðrétt eftir Lovísu, hefði ekki
lengur verið grundvöllur fyrir mál-
sókn gegn henni, hún hefði einfald-
lega ekki viðhaft þau ummæli sem
málið snerist um. Hvort sem ummæl-
in voru höfð orðrétt eftir henni eða
ekki, hefði eftir sem áður verið hægt
að höfða mál gegn blaðamanninum.
Ekki innan stjórnarskrár
Héraðsdómur komst að þeirri nið-
urstöðu að Lovísa bæri ábyrð á um-
mælunum en þar sem fallið hefði ver-
ið frá málsókn á hendur henni bæri
blaðamaðurinn ekki ábyrgð sem „höf-
undur greinarinnar“ og því var ekki
fallist á kröfur Ásgeirs.
Hæstiréttur taldi hins vegar að
blaðamaðurinn bæri ábyrgð á
ummælunum sem höfundur
greinarinnar, samkvæmt ákvæð-
um prentlaga. Engu breytti þó
viðmælandi hennar kynni einnig
að geta talist höfundur hennar. Með
sumum ummælunum hefði Ásgeiri
verið borin á brýn refsiverð háttsemi.
Ummælin fælu ekki í sér lýsingu á
skoðunum eða gildismat, heldur full-
yrðingar um staðreyndir sem rúm-
uðust ekki innan ákvæða stjórn-
arskrárinnar um tjáningarfrelsi.
Þórður Bogason hrl., lögmaður
Bjarkar Eiðsdóttur, segir að dómur
Hæstaréttar hafi sannarlega komið á
óvart enda var sýknudómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur hrundið. Svo virð-
ist sem Hæstiréttur sé að senda þau
skilaboð að menn geti ráðið því hvort
þeir höfði mál gegn viðmælendum
eða blaðamönnum. Dómur Hæsta-
réttar sé að ýmsu leyti ekki nægilega
afdráttarlaus, t.d. varðandi túlkun á
því hver teljist höfundur efnis og
hvaða ábyrgð felist í því. Björk hafi
staðfest að hún sé höfundur viðtalsins
að svo miklu leyti sem hún bjó talmál
í skriflegan texta. Hæstiréttur virðist
leggja mikið upp úr því atriði en það
sé óljóst hver staða hennar hefði ver-
ið, hefði hún neitað að vera höfundur.
Blaðamaður ábyrgur
sem höfundur greinar
Málið gegn viðmælandanum var fellt niður með dómsátt
Björk Eiðsdóttir, blaðamaður á
Vikunni, segir að Lovísa Sig-
mundsdóttir hafi haft samband
við Vikuna að fyrra bragði í kjölfar
umfjöllunar um nektardans sem
birtist í Vikunni 2. ágúst 2007. Í
því tölublaði var viðtal við þrjár er-
lendar nektardansmeyjar á Gold-
finger sem allar báru staðnum vel
söguna og sögðu að umræða um
nektardans væri lituð af fordóm-
um. Í sama tölublaði var viðtal við
tvær fyrrverandi nektardans-
meyjar sem lýstu allt öðrum veru-
leika og að vændi væri stundað í
tengslum við staðina. Í hvorugu
tilfellinu er tekið fram á hvaða
nektarstöðum konurnar störfuðu.
Í samtali við Morgunblaðið
sagði Björk að Lovísa hefði haft
samband að eigin frumkvæði. Hún
hefði sent tölvupóst og sagt
að þessar stúlkur
myndu aldrei segja
sannleikann meðan þær
störfuðu hjá honum. Hún
væri hins vegar til í að
koma fram undir nafni og
mynd. Viðtalið sem dæmt
var fyrir hefði verið efn-
islega rétt haft eftir, þó
hún hefði lagað til málfar
og þess háttar.
Hafði samband við Vikuna að fyrra bragði
Hitamál Sumarið 2007 voru
greinar um nektardans og vændi og
eiturlyfjaneyslu sem tengdust því til
umfjöllunnar í Vikunni.
ARNA Schram, formaður Blaða-
mannafélags Íslands, segir að
stjórn félagsins sé að íhuga mjög al-
varlega hvort dómi Hæstaréttar
gegn Björk Eiðsdóttur, blaðamanni
Vikunnar, verði skotið til Mannrétt-
indadómstóls Evrópu.
„Mér finnst þessi dómur mjög al-
varlegur fyrir blaðamannastéttina
og ef hann stendur getur hann haft
neikvæð áhrif á hina lýðræðislegu
umræðu.“
Arna sagði að með dómnum hefði
Hæstiréttur skotið sendiboðann og
að dómurinn gæti orðið til þess að
blaðamenn veigruðu sér við að fjalla
um viðkvæm mál og blaðamenn
gætu jafnvel tekið upp á því að rit-
skoða viðmælendur sína og það
væri slæm þróun. Blaðamenn yrðu
að sjálfsögðu að meta trúverð-
ugleika viðmælenda sinna en þeir
gætu ekki haldið aftur af þeim og
sagt þeim hvað þeir mættu segja og
hvað ekki af ótta við málsókn, sér-
staklega ekki þegar verið væri að
fjalla um við-
kvæm og um-
deild mál líkt og
vændi. „Ég lít
svo á að verið sé
að þrengja að
starfsumhverfi
blaðamanna.“
Björk var
dæmd til að
greiða alls
900.000 krónur í bætur og máls-
kostnað. Arna sagði að á flestum
fjölmiðlum væri í gildi einhvers
konar samkomulag um að útgáfu-
félagið bæri málskostnað sem félli á
blaðamenn vegna dómsmála. Und-
anfarið hefðu bætur í málum sem
þessum hækkað og tilefni væri til
að Blaðamannafélagið skoðaði hvort
setja þyrfti ákvæði um þessar
greiðslur inn í kjarasaminga. Málið
væri hins vegar snúið því blaða-
menn vildu halda í höfundarrétt
sinn og ráða því sjálfir hvað þeir
settu á prent.
Alvarlegur dómur
fyrir blaðamenn
Neikvætt fyrir lýðræðislega umræðu
Arna Schram
BJÖRK Eiðs-
dóttir, blaðamað-
ur á Vikunni,
hefur ákveðið að
höfða mál gegn
ritstjóra Frétta-
blaðsins og Ás-
geiri Þór Davíðs-
syni á Goldfinger
vegna ummæla
sem voru höfð
eftir Ásgeiri í Fréttablaðinu 6. mars
sl. Ummælin voru eftirfarandi:
„Það er ekki hægt að leyfa óheið-
arlegum blaðamönnum á borð við
þennan, sem eru stétt sinni til
skammar, að komast upp með
dylgjur og óþverrahátt. Mest kem-
ur mér á óvart að Vikan, þetta
kvenna-dægurmálablað, hafi þarna
umturnast í eitthvert sorptímarit.“
Fréttin var ekki merkt blaðamanni
Fréttablaðsins en undir henni stóð
„jbg“ og í samtali við Morgunblaðið
sagði Björk að þar með væri blaða-
maðurinn stikkfrí, samkvæmt
dómafordæmum. Stefnan er tilbúin
hjá lögmanni Bjarkar og verður
væntanlega birt fljótlega.
Í mál gegn
Fréttablaðinu
og Ásgeiri
Björk Eiðsdóttir