Morgunblaðið - 11.03.2009, Page 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
Töffari, harðjaxl,
ljúfur frændi! Þannig
munum við systkinin
hann Barða, móður-
bróður okkar. Hann bjó með okkur á
Selvogsgötunni fyrstu árin eftir að
amma dó. Hann ungur sjóari á síðu-
togurum, flottur, heillaði stelpurnar
upp úr skónum og skemmti sér í
landlegum, stundum svo, að mömmu
þótti nóg um. Við krakkaormar, sem
fylgdumst með honum með stjörnur í
augum og þótti hann æðislegur.
Hann sigldi til annarra landa með
aflann og kom færandi hendi heim.
Hann færði okkur krökkunum leik-
föng og sælgæti en best munum við
þó eftir þegar hann keypti Bosch-ís-
skápinn fyrir pabba og mömmu í
Þýskalandi. Þvílíkur gripur, þvílík
breyting! Það var haustið sem mjólk-
in hætti að hanga í innkaupaneti út
um eldhúsgluggann.
Barði Guðmundsson
✝ Barði Guðmunds-son fæddist í
Hafnarfirði 1. júlí
1932. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 24. janúar
síðastliðinn og fór út-
för hans fram frá
Hafnarfjarðarkirkju
30. janúar.
Síðan róaðist töffar-
inn aðeins, kvæntist
henni Guðrúnu og þau
eignuðust dæturnar
þrjár. Þau bjuggu
lengst af á Vopnafirði,
svolítið langt í burtu
frá okkur, en þar undi
fjölskyldan hag sínum
vel. Með Steinþóru
eignaðist hann svo ný
heimkynni í Suður-
Afríku. Þá fékk flökku-
eðli hans að njóta sín á
ný. Þar nutu þau sín í
sól og hita hálft árið
með fjölskyldu hennar, en komu svo
eins og farfuglarnir til Íslands á vorin
og dvöldu fram á haustið.
Síðustu árin eftir að þau systkinin
Dóra, Unnur og Barði voru öll orðin
ein, reyndist Barði bílprófslausum
systrum sínum betri en enginn. Hann
var duglegur að heimsækja þær í
Fjörðinn og áttu þau systkinin marg-
ar góðar samverustundir. Þau þeystu
um allt land að heimsækja ættingja
og vini eða bara njóta náttúrunnar,
fóru í bíó og leikhús, á kaffihús og í
kirkjugarðinn til ömmu. Þessar
stundir voru þeim öllum mikils virði
og systurnar eru honum afar þakk-
látar fyrir umhyggjusemina. Það var
alltaf gaman að hitta Barða. Hann
var mikill sögumaður, róttækur, stóð
fast á sínu og þoldi hvorki vol né væl.
Hann fylgdist vel með okkur öllum
og þótti vænt um okkur eins og okkur
um hann. Nú er hann farinn, en við
eigum góðar minningar um töffar-
ann, harðjaxlinn og ljúfan frænda.
Eyjólfur, Sigrún og Sólveig
Reynisbörn.
Elsku afi okkar, þú varst sterkur
maður sem lifðir lífi þínu til fullnustu.
Við munum aldrei gleyma dögunum
sem við eyddum saman við leik í
sundlauginni. Á kvöldin þótti okkur
skemmtilegast að spila saman. Okk-
ur þótti yndislegt að fá okkur kex í
sólinni með þér og það var næstum
eins og þú kæmir alltaf með lífsbyrðir
af skemmtun í farteskinu þegar þú
komst í heimsókn til okkar í Suður-
Afríku. Hvað sem á dundi virtist þú
aldrei hafa áhyggjur eða skipta
skapi.
Elsku amma okkar, sem við sökn-
um svo mikið, við vonum að þú og afi
séuð saman núna að horfa niður til
okkar. Ekkert getur komið í staðinn
fyrir þá sex mánuði á ári sem þið
eydduð með okkur í Suður-Afríku.
Við söknum þess tíma svo rosalega
mikið. Þið voruð ljósið í lífi okkar og
þó það sé kominn tími til að kveðja
núna, þá biðjum við þess að við fáum
að hittast á himnum og leika okkur
saman eins og áður.
Við elskum þig, við söknum þín.
Tamarin, Tiffany, Steven og
Stephany Aubrey.
Vinur minn og
frændi Gunnar Kr.
Björnsson frá Kópaskeri hefur
kvatt okkur í síðasta sinn.
Gunna frænda, eins og hann var
alltaf kallaður í minni fjölskyldu, og
Lísu kynntist ég fyrst náið haustið
1963, þegar ég flutti til Reykjavíkur
til að hefja nám við Háskóla Íslands.
Árin þar á eftir var ég tíður gest-
ur í Hvassaleiti 79, en það hús höfðu
þau hjónin þá nýlega byggt og flutt
í. Síðar, eftir að ég gifti mig, vorum
við Hanna og börnin einnig tíðir
gestir í Hvassaleitinu. Þangað var
alltaf gott að koma, nánast eins og
að koma heim, slíkar voru móttök-
urnar og viðmót þeirra hjóna gagn-
vart okkur.
Leiðir okkar Gunna frænda lágu
víða saman, bæði í starfi og einka-
lífi.
Við störfuðum saman í hartnær
tvo áratugi hjá Berki hf., en hann
var einn aðal hvatamaðurinn að
stofnun fyrirtækisins árið 1963 og
starfaði þar, samhliða öðrum störf-
um, frá stofnun og fram til ársloka
1987 þegar það var selt.
Saman keyptum við fimm félagar
sumarbústaðalandið „Eyrar“ í Bisk-
upstungum árið 1976. Þar varð okk-
ar sameiginlega griðland frá hinu
daglega amstri.
Gunni frændi hafði mikið dálæti á
Gunnar Kristján
Björnsson
✝ Gunnar KristjánBjörnsson efna-
verkfræðingur fædd-
ist á Kópaskeri 20.
janúar 1924. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 26. febrúar síð-
astliðinn og var
jarðsunginn frá
Langholtskirkju 6.
mars.
veiðiskap, bæði
stangaveiði og skot-
veiði og undir hans
handarjaðri og tilsögn
hófst minn veiðiferill.
Minnisstæðar eru
ferðirnar í Miðfjarð-
ará í Bakkafirði sem
þau hjónin buðu mér
með sér í. Að hálfu á
móti honum, eignaðist
ég mína fyrstu hagla-
byssu og fórum við
gjarnan saman á
haustin til gæsa- og
rjúpnaveiða. Margar
þessara ferða eru mér í fersku
minni.
Gunni frændi var líka mjög barn-
góður og minnisstæðar eru stund-
irnar þegar hann brá sér í líki hvals-
ins í heita pottinum og ljónsins í
skóginum.
Þá var ungdómnum skemmt.
Hann var ákaflega bóngóður og
hjálpsamur og forkur duglegur.
Þetta kom fram í öllum hans dag-
legu störfum og gjörðum.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég góðan vin.
Við hjónin sendum Lísu og fjöl-
skyldunni allri okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Gunna
frænda.
Björn Ragnar.
Látinn er eftir erfið veikindi góð-
ur vinur og nágranni í áratugi,
Gunnar Björnsson frá Kópaskeri.
Hann var skólabróðir okkar í
Menntaskólanum á Akureyri og
varð stúdent þaðan 1944. Eftir
námsár hér og erlendis lágu leiðir
saman á ný þegar ráðist var í bygg-
ingu raðhúsalengju í Hvassaleiti 77-
85. Þar var athafnamaðurinn og
dugnaðarforkurinn á réttum stað,
stjórnaði verkinu og vann mikið við
að koma húsunum undir þak. Sumir
fluttu svo í hálfkláruð hús sín og
áfram var leitað til Gunnars um
hvernig standa skyldi að verki. Svo
fór börnunum að fjölga og í Hvassa-
leitinu skapaðist sérstakt og
ánægjulegt samfélag, öll börnin áttu
einhverja jafnaldra í næstu húsum,
léku sér saman, gengu saman í
skóla og samgangur var mikill milli
allra heimilanna.
Þegar jeppar komu til sögunnar
var haldið í tjaldútilegur og jafnvel
reyndi Gunnar að kenna sumum
okkar laxveiði sem var honum mikil
ástríða. Fórum við margar ánægju-
legar ferðir innan lands og utan og
alltaf var Gunnar fróðleiksfús og
áhugasamur um það sem fyrir augu
bar, ekki síst ef það tengdist tækni
og framkvæmdum. Við vorum líka
svo heppin að Gunnar og Lísa komu
sér upp sumarbústað í Biskupstung-
um og voru ólöt við að bjóða okkur
þangað. Sambýlisfólk þeirra þar tók
líka mjög vel á móti okkur og oftar
en ekki voru Hedda og Gunnar Bi-
ering með í för. Mál þróuðust þann-
ig að Gunnar leyfði okkur öllum að
taka þátt í kartöflurækt og áttum
við margar á ánægjustundir við þá
rækt og uppskeru.
Gunnar var tryggur vinur alla tíð
og með Lísu sér við hlið. Í ártuga
ára sambýli hefur aldrei borið
skugga á og eftir flutning okkar
fjögurra í vesturbæinn höfum við
ræktað vináttuna áfram. Seinasta
árið hefur verið erfitt fyrir Gunnar,
sérstaklega síðustu vikur og það var
ekki auðvelt fyrir sívinnandi mann
að sætta sig við þær takmarkanir
sem vaxandi hjartabilun hafði í för
með sér. Gunnar hafði alltaf mikinn
áhuga á mönnum og málefnum. Það
átti ekki við hann að geta ekki fylgst
með og hann var orðinn mjög
þreyttur á vanlíðan sinni. Finnst
okkur að hann hafi verið hvíldinni
feginn. Við eigum margar ógleym-
anlegar minningar með þeim hjón-
um og biðjum Lísu og fjölskyldum
þeirra Guðs blessunar.
Anna og Tómas Árni.
Meira: mbl.is/minningar
✝
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
HALLDÓRA ÁRNADÓTTIR,
Tjarnargötu 36,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala, Landakoti
þriðjudaginn 24. febrúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Leifur Sveinsson,
Bergljót Leifsdóttir Mensuali, Enrico Mensuali,
Linda Mensuali.
✝
Ástkær kona mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
BIRNA HERVARSDÓTTIR,
Hamraborg 18,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn
8. mars.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 16. mars kl. 13.00.
Guðmundur Maríasson,
Hafsteinn Gunnar Jakobsson, Þórunn Sif Björnsdóttir,
Svanhvít Jakobsdóttir, Stefán Jens Hjaltalín,
Jón Þorkell Jakobsson, Júlíana Harðardóttir,
Sóley Jakobsdóttir, Bjarni Sigurbjörnsson,
Guðmunda Jakobsdóttir, Hannes Ingi Jónasson
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæri
HÁKON AÐALSTEINSSON,
Húsum Fljótsdal,
síðast til heimilis
Bjarkaseli 2,
Egilsstöðum,
lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum að kvöldi föstu-
dagsins 6. mars.
Útförin mun fara fram í kyrrþey, blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Hákonar er bent á minningar-
sjóð Sjúkrahússins á Egilsstöðum.
Sigrún Benediktsdóttir,
Jóhann Hákonarson,
Aðalsteinn Hákonarson,
Inga Birna Hákonardóttir,
Þórveig Hákonardóttir,
Benedikt Bragason,
Nikulás Bragason,
Margrét Bragadóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
ÓSKAR GUÐJÓNSSON,
hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Lundi Hellu,
lést sunnudaginn 8. mars.
Sveinn Guðjónsson,
Bjarni Guðjónsson,
Gróa Guðjónsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HELGI SIGURÐUR JÓNASSON
frá Hlíð,
Langanesi,
lést föstudaginn 6. mars.
Minningarathöfn fer fram í Árbæjarkirkju föstudaginn
13. mars kl. 15.00.
Útförin fer fram frá Sauðaneskirkju laugardaginn
21. mars.
Þeim sem vilja minnast Helga Sigurðar er bent á Velunnarasjóð
hjúkrunarheimilisins Klausturhóla, Klaustri.
Vigdís Jóhannsdóttir,
Jónas A. Helgason, Sandra Þorbjörnsdóttir,
Jóhann H. Helgason, Þórunn Kristjánsdóttir,
Páll H. Helgason, Ingibjörg Hauksdóttir,
Þórir J. Helgason, Hulda J. Sigurðardóttir
og barnabörn.