Morgunblaðið - 11.03.2009, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
KÓR Akraneskirkju hefur verið
víðförull undanfarin ár, innan-
lands sem utan, en á morgun
sækir þessi vaski kór Guðríð-
arkirkju í Grafarholtssókn heim.
Kórinn, sem er rúmlega fimmtíu
manns, syngur allur við guðs-
þjónustur einu sinni í mánuði, en
hina sunnudagana syngur hann
hópaskiptur. Kórstjóri er Sveinn
Arnar Sæmundsson, og er hann
jafnframt organisti við kirkjuna.
Sveinn, sem fæddist á Sauð-
árkróki, hefur stýrt kórnum frá
árinu 2002 en áður starfaði hann
sem tónmenntakennari á Ak-
ureyri og afleysingarorganisti við
Akureyrarkirkju.
Vaxið mjög og dafnað
Sveinn segir kórfélaga vinna
fórnfúst og mikilvægt starf, kór-
inn hafi vaxið mjög og dafnað
undanfarin ár. Starfsemin sé með
öflugasta móti nú um stundir og
andinn í kórnum sé bæði gefandi
og skemmtilegur.
Á efnisskránni í kvöld verður
andleg sem veraldleg tónlist og
flytur kórinn m.a. sálma í útsetn-
ingu Gunnars Gunnarssonar.
Einnig verða flutt lög í útsetn-
ingum Magnúsar Ingimarssonar
auk þess sem flutt verður nýtt
lag eftir Akurnesinginn Baldur
Ketilsson. Með kórnum á tónleik-
unum leika þeir Gunnar Gunn-
arsson og Tómas R. Einarsson. Öflugt Sveinn Arnar Sæmundsson.
Skagamenn, skagamenn …
Þegar gestir á heimilinuganga niður stigann blasirfyrst við þeim brúnleiturflötur sem á er letrað í lág-
stöfum: aftur snúið. Fólk verður
skiljanlega hissa, en léttir sjálfsagt;
það á þá afturkvæmt upp. En þegar
stigið er niður í fyrstu tröppurnar
sést rauði flöturinn og á honum
stendur hinsvegar: ekki aftur snúið.
Þá vandast málið.
Myndlistarmaðurinn Birgir Andr-
ésson lést aðeins ári eftir að hann
vann verkið inn á þetta heimili.
Hann var ekki nema 52 ára gamall,
einn frumlegasti listamaður okkar.
Birgir átti ekki afturkvæmt úr sinni
síðustu ferð og vissulega hefur
hvarflað að mér, þegar ég geng um
stigann, hvort Birgir sé ekki að vísa
í lífsferðalagið. Við endum öll í ferð
sem við eigum ekki afturkvæmt úr.
Árið 2006 var yfirlitssýning áverkum Birgis í ListasafniÍslands. Eva Heisler ritar
grein í sýningarskrána er hún nefn-
ir Lestrarathafnir, en hún segir
lestur vera viðfangsefni sem ein-
kenndi allan feril Birgis. Enda ólst
hann upp á blindraheimili og var
vanur að lýsa heiminum fyrir for-
eldrum sínum. Þá hafði það áhrif á
feril Birgis að hann vann um skeið
sem grafískur hönnuður og óx auk
þess úr grasi þegar konseptlist,
byggð á textum, var farin að njóta
viðurkenningar.
„Birgir ranglar um útúrdúra
tungumálsins, sagnfræðina og
minningarnar, og verk hans þjarma
að hugmyndum áhorfandans um
hvað það merkir að lesa – lesa í
landslagið, lesa í persónuleika, lesa í
lit, lesa í fortíðina, lesa í nútíðina,“
skrifar Eva.
„Íslendingar hafa alltaf skilið
módernismann út frá náttúrunni og
það er fallegt,“ sagði Birgir í sam-
tali hér árið 2000. Sjálfur vann Birg-
ir út frá samspili náttúru og menn-
ingararfs. Hann prjónaði fána í
sauðalitum, grunnar torfbæja urðu
að táknum, hálfgerðu letri, hann
gerði ljósmyndaröð með húsum sem
sóttu heiti í borgir, gerði vandvirkn-
islegar blýantsteikningar eftir
gömlum ljósmyndum af íslenskri
náttúru, íslensk frímerki breyttust í
skápa og hann lýsti fólki í textum í
eftirminnilegum „portrettverkum“.
Síðustu árin urðu verkin í „ís-lenskum litum“ sífellt meiraáberandi í list hans. Í verk-
unum Black and White Classics in
Icelandic Colours eru málverk með
heitum klassískra kvikmynda á lita-
fleti. Á fyrrnefndri sýningu í Lista-
safninu þakti verkið Black-Out in
Icelandic Colours heilan vegg (í
svörtu), og þar var líka verkið Þjóð-
legt klám í íslenskum litum, á
gráum fleti. Það var sama ár og
Birgir vann þetta verk inn á heim-
ilið í Reykjavík.
Fólk mætti gera miklu meira af
því að fá listamenn til að vinna verk
inn á heimili. Það er í anda þess
hvernig margir listamenn vinna í
hefðbundnu sýningaumhverfi, og
þegar vel tekst til, eins og hér, verð-
ur útkoman æði eftirminnileg.
MYNDVERKIÐ
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
Þetta verk Birgis Andréssonar (1955 – 2007), aftur snú-
ið – ekki aftur snúið, er frá árinu 2006. Verkið vann
Birgir inn á heimili í Reykjavík, á veggina sinn hvorum
megin við stiga á milli hæða. Frá því á tíunda áratugn-
um vann Birgir textaverk í litum sem hann kallaði „ís-
lenska“; litablandan sem hann notar í stafina og flötinn
er gefin upp neðarlega á verkunum og því hægt að end-
urblanda litina. Litflöturinn í kringum „aftur snúið“ er
í brúnum litatón en hinn í rauðum. Birgir vann mikið
með þá liti sem hann kallaði „íslenska“, en litina, sem
hann kynnti í bókinni Litir/Colours; Nálægð/Nearness,
kvaðst hann endurskapa eftir litum á Þjóðminjasafni.
aftur snúið – ekki aftur snúið
Verk í þjóðlegum litum
Morgunblaðið/Einar Falur
Hart í bak (Stóra sviðið)
Þrettándakvöld (Stóra sviðið)
Skoppa og Skrítla í söng-leik (Kúlan)
Eterinn (Smíðaverkstæðið)
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Lau 14/3 kl. 20:00 aukas. U
Mið 18/3 kl. 20:00 U
Fös 13/3 kl. 20:00 frums. U
Fim 19/3 kl. 20:00 2.sýn. Ö
Fös 20/3 kl. 20:00 3.sýn. Ö
Lau 14/3 kl. 13:00 Ö
Lau 14/3 kl. 14.30 Ö
Mán16/3 kl. 21:00 fors. Ö
Þri 17/3 kl. 20:00 fors. Ö
Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Ö
Mið 1/4 kl. 20:00 aukas.
Fim 26/3 kl. 20:00 4.sýn.
Fös 27/3 kl. 20:00 5.sýn. Ö
Fös 3/4 kl. 20:00 6.sýn.
Lau 21/3 kl. 13:00 Ö
Lau 21/3 kl. 14:30 Ö
Fim 19/3 kl. 21:00 fors. Ö
Fös 20/4 kl. 21:00 frums. Ö
Fim 2/4 kl. 20:00 aukas.
Fim 16/4 kl. 20:00 7.sýn.
Lau 28/3 kl. 13:00 U
Lau 28/3 kl. 14:30 Ö
Ósóttar pantanir seldar þremur dögum fyrir sýningu
Aukasýningar í sölu, sýningum lýkur í apríl
Í samstarfi við Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands
Fim 26/3 kl. 21:00
Fös 27/3 kl. 21:00
Sun 29/3 kl. 14:00 U
Sun 29/3 kl. 17:00 U
Lau 4/4 kl. 14:00 U
Lau 4/4 kl. 14:00 U
Sun 5/4 kl. 17:00 U
Sun 5/4 kl. 17:00 U
Lau 18/4 kl. 14:00 U
Lau 18/4 kl. 17:00 U
Sun 19/4 kl. 14:00 U
Lau 14/3 kl. 14:00 U
Sun 15/3 kl. 14:00 U
Sun 15/3 kl. 17:00 U
Lau 21/3 kl. 14:00 U
Lau 21/3 kl. 17:00 U
Sun 22/3 kl. 14:00 U
Sun 22/3 kl. 17:00 U
Lau 28/3 kl. 14:00 U
Lau 28/3 kl. 17:00 U
Sun 19/4 kl. 17:00 U
Lau 25/4 kl. 14:00 U
Lau 25/4 kl. 17:00 U
Sun 26/4 kl. 14:00 U
Sun 26/4 kl. 17:00 U
Þri 28/4 kl. 18:00 aukas. U
Sun 3/5 kl. 14:00 U
Sun 3/5 kl. 17:00 U
Þri 5/5 kl. 18:00 U
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Örfáar aukasýningar með bestu vinkonum barnanna
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Lau 14/3 kl. 19.00
Sun 22/3 kl. 19.00
Lau 28/3 kl. 19.00
Lau 28/3 kl. 22.00
Lau 4/4 kl. 19.00
Fös 17/4 kl 19.00
Yfir 140 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008.
Fló á skinni (Stóra sviðið)
Lau 14/3 kl. 20.00
Ath! Bannað innan 16 ára. Ekki fyrir viðkvæma. Síðasta sýning 15. mars.
.
Fös 13/3 kl. 19.00
Fös 13/3 kl. 22.00
Lau 14/3 kl. 19.00
Lau 14/3 kl. 22.00
Lau 21/3 kl. 19.00
Lau 21/3 kl. 22.00
Fös 27/3 kl. 19.00 (Stóra sviðið)
Lau 28/3 kl. 19.00
Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla sviðið)
Lau 21/3 kl. 19.00
Sun 15/3 kl. 20.00 (síð.sýn.)
Lau 28/3 kl. 22.00
Mið 1/4 kl. 20.00
Fim 2/4 kl. 20.00
Mið 11/3 kl. 20.00 5kort
Fim 12/3 kl. 20.00 6kort
Sun 15/3 kl. 20.00 7kort
Fim 19/3 kl. 20.00 8kort
Fös 20/3 kl. 20.00 9kort
Fim 26/3 kl. 20.00 10kort
Sun. 29/3 kl. 20.00
Fim. 2/4 kl. 20.00
Fös. 3/4 kl. 19.00
Lau 18/4 kl. 19.00
Sun 19/4 kl. 20.00
Milljarðamærin snýr aftur (Stóra sviðið)
Æðisgengið leikrit um græðgi, hatur og ást.
Fim 12/3 kl. 20.00
Fös 13/3 kl. 20.00
Óskar og bleikklædda konan (Litla sviðið)
Mið 11/3 kl. 20.00 3. kort
Fim 12/3 kl. 20.00 4. kort
Sun 15/3 kl. 20.00 5. kort
Fös 20/3 kl. 19.00
Fim 26/3 kl. 20.00
Fös 27/3 kl. 19.00
Sun 29/3 kl. 20.00
Sun 5/4 kl. 20.00
Fös 13/3 kl. 19:00 aukas.
Fös 13/3 kl. 22:00 aukas.
Rachel Corrie (Litla sviðið)
Fim 19/3 kl 20.00 frums
Fös 20/3 kl. 22.00 2kort
Sun 22/3 kl. 16.00 3kort
Mið 25/3 kl. 20.00
Fös 27/3 kl. 20.00
Lau 4/4 kl. 20.00
Milljarðamærin snýr aftur. Krassandi leikhúsveisla
Í samstarfi við Ímagyn
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ Á morgun 12. mars kl. 19.30
Elfa Rún og Bringuier
Stjórnandi: Lionel Bringuier
Einleikari: Elfa Rún Kristinsdóttir
Esa-Pekka Salonen: Helix
Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 4
Sergej Prókofíev: Fiðlukonsert nr. 2
Elfa Rún hefur unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga.
Á tónleikunum flytur hún fiðlukonsert nr. 2 eftir Prókofíev,
sem er einn lagrænasti og vinsælasti fiðlukonsert 20.
aldarinnar. Hljómsveitarstjóri er hinn bráðungi og efnilegi
Lionel Bringuier, aðstoðarstjórnandi Esa-Pekka Salonen í
Los Angeles.
Örfá sæti laus.
■ 19. mars kl. 19.30
Atli Heimir sjötugur - afmælistónleikar
Stjórnandi: Baldur Brönnimann
Einleikari: Melkorka Ólafsdóttir
Atli Heimir Sveinsson: Hreinn Gallerí SÚM
Atli Heimir Sveinsson: Flautukonsert
Atli Heimir Sveinsson: Sinfónía nr. 6 (frumflutningur)
Fúlar á móti
Fim 12/3 kl. 20:00 9.kortas Fös 20/3 kl. 19:00 Sýning Lau 28/3 kl. 19:00 Sýning
Fös 13/3 kl. 19:00 10.kort Lau 21/3 kl. 19:00 Sýning Lau 28/3 kl. 21:30 Aukas
Fös 13/3 kl. 21:30 Aukas Lau 21/3 kl. 21:30 Aukas Fös 3/4 kl. 20:00 Sýning
Sun 15/3 kl. 20:00 11.kort Fim 26/3 kl. 20:00 Sýning Lau 4/4 kl. 19:00 Sýning
Fim 19/3 kl. 20:00 Sýning Fös 27/3 kl. 20:00 Sýning Lau 4/4 kl. 21:30 Aukas
Tenórinn
Lau 14/3 kl. 20:00 Gestas
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is