Morgunblaðið - 06.04.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
EF FRAM heldur sem horfir mun eitt þingsæti færast
frá Norðvesturkjördæmi yfir í Suðvesturkjördæmi í
kosningunum sem áætlaðar eru eftir fjögur ár. Þá
munu verða 13 þingsæti í Suðvesturkjördæmi og 8 í
Norðvesturkjördæmi.
Í 31. gr. stjórnarskrárinnar og í 9. gr. laga um kosn-
ingar til Alþingis segir að ef kjósendur á kjörskrá að
baki hverju þingsæti, að meðtöldum jöfnunarsætum,
séu eftir alþingiskosningar helmingi færri í einu kjör-
dæmi en í einhverju öðru skuli landskjörstjórn breyta
fjölda þingsæta í kjördæmum í því skyni að draga úr
þeim mun.
Samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni eru 58.203
á kjörskrá í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi kosn-
ingar til Alþingis og 21.294 í Norðvesturkjördæmi
Í Suðvesturkjördæmi eru nú 12 þingsæti og að baki
hverju og einu þeirra eru því um 4.850 atkvæði. Á hinn
bóginn eru aðeins 2.366 atkvæði að baki hverju þeirra 9
þingsæta sem eru í Norðvesturkjördæmi.
Hið sama var uppi á teningnum í kosningum árið
2007 er þingsætum var fækkað í 9 í Norðvesturkjör-
dæmi og fjölgað í 12 í Suðvesturkjördæmi.
Fær Kraginn þrettánda þingsætið?
Morgunblaðið/Eyþór
Kosningar Atkvæði hafa mis-
mikið vægi milli kjördæma.
Um helmingi færri atkvæði eru að baki hverju þingsæti í Norðvesturkjördæmi
en í Suðvesturkjördæmi Lögum samkvæmt ber að draga úr þeim mun
Í HNOTSKURN
»Um 4.000 fleiri eru nú á kjörskrá íKraganum en fyrir kosningar árið
2007. Í Norðvesturkjördæmi eru hins veg-
ar álíka margir á kjörskrá og fyrir tveimur
árum.
»Í kosningunum árið 2007 hlaut KristinnH. Gunnarsson, sem þá var í Frjáls-
lynda flokknum, 9. sætið í Norðvest-
urkjördæmi. Ef fram heldur sem horfir
mun það sæti færast yfir í Kragann fyrir
kosningar sem áætlaðar eru eftir fjögur ár.
ÞORVALDUR Jón Ottósson málar hér bátinn
Þorra VE 50 á Grandagarði. Þorri VE er 63
brúttótonna togbátur, smíðaður í Neskaupstað
árið 1960. Hann mun hafa borið nafnið Gnýfari
SH í upphafi en seinna nöfnin Haraldur EA,
Ágústa Haraldsdóttir VE og Narfi VE.
Morgunblaðið/Kristinn
Þorri gerður upp í höfninni
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
ENN er allt óljóst um þinglok; þing-
forseti bindur vonir við að þingi ljúki
fyrir páska, en þingflokksformaður
Samfylkingar segir meiri líkur en
minni á áframhaldandi þingstörfum
eftir páskana. Formaður Sjálfstæð-
isflokksins vill engu spá um fram-
haldið næstu daga.
Þingmenn sátu á löngum og
ströngum fundum fram á nætur í síð-
ustu viku. Þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins fluttu þá margar og lang-
ar ræður meðan þingmenn
stjórnarflokkanna létu lítið fyrir sér
fara í aðalmálinu, þar sem málflutn-
ingur sjálfstæðismanna fer gegn
stjórnskipunarfrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar. Sjálfstæðismenn telja marga
annmarka á málinu og málsmeðferð-
inni og vilja helzt fá það af dagskrá
þingsins. Slíkt hefur Jóhanna Sigurð-
ardóttir, forsætisráðherra, sagt ekki
koma til greina, enda stjórnlagaþing-
ið, sem er hluti frumvarpsins, eitt af
skilyrðum Framsóknarflokksins fyr-
ir hlífiskildi hans yfir ríkisstjórninni.
Eins og staðan var í vikulokin var
samkomulag ekki í augsýn og þinglok
fyrir páska ólíkleg.
Guðbjartur Hannesson, forseti Al-
þingis, segir, að forsætisnefnd þings-
ins komi saman á mánudagsmorgun
og síðan er fundur með þingflokks-
formönnunum um dagskrá Alþingis.
Guðbjartur segist þrátt fyrir allt
binda vonir við að þinghaldinu ljúki
fyrir páska. Það sé hins vegar ekki
gefið að svo geti orðið, en ef menn
ganga til samkomulags í dag, ættu
þrír dagar að duga að hans mati.
Þegar Guðbjartur var spurður
hvernig hann mæti stöðuna á því að
þinglok verði fyrir páska, sagðist
hann telja helmingslíkur þar á.
Fyrir helgi hættu menn í miðri
umræðu um stjórnskipunarlögin og
verður þeirri umræðu haldið áfram í
dag, mánudag. Þar er enn á þriðja
tug manna á mælendaskrá og játar
Guðbjartur því að það séu alfarið
þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Rök sjálfstæðismanna hunsuð
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, segir ekki tíma-
bært að segja fyrir um þinglok. Það
sé hinsvegar hægt að ljúka þing-
störfum á tveimur dögum ef menn
nái sátt í stjórnskipunarmálinu. En
ekki sé hlustað á rök sjálfstæð-
ismanna í því máli og vilji meirihlut-
ans standi enn til þess að þvinga mál-
ið í gegn í fyrsta skipti í aldar-
fjórðung sem stjórnskipunarlög yrðu
afgreidd án fullrar samstöðu á Al-
þingi.
„Eins og staðan er í dag, þá er
margt sem bendir til þess að þing-
haldið fari fram yfir páska og ég tel
líkurnar á því meiri en minni,“ segir
Lúðvík Bergvinsson, þingflokks-
formaður Samfylkingarinnar. „Það
er eldhúsdagur á þriðjudaginn svo
við verðum að hætta snemma þá, það
verður bara hálfur dagur hjá okkur,
og aðrir dagar fyrir páskana ekki
margir.“
Þing líklega eftir páska
Hlífiskjöldur Framsóknarflokksins yfir ríkisstjórninni heldur hnífnum í kúnni
Bjarni Benediktsson segir unnt að ljúka þingi á tveimur dögum náist sátt
„Það eru ein tíu mál sem brýnt er
að þingið klári. Þar af eru 6, 7 kom-
in á dagskrá, en von er á 2-3 til við-
bótar, þar á meðal frumvarpi um
greiðsluaðlögun fyrir heimilin.
Þessi mál verður þingið að af-
greiða. Það ríkir sátt að mestu um
þau, en þau hafa samt tekið 6-8
tíma í umræðum af því að menn
eru alltaf með augun á stjórnskip-
uninni. Þessi mál yrðu samt fljót-
afgreidd, ef samkomulag tekst um
stjórnskipunarfrumvarpið,“ segir
Guðbjartur Hannesson.
Lúðvík Bergvinsson segir stefna
í langa umræðu um stjórnarskrár-
málið og eftir það fer málið til
nefndar. Í þessu máli stæði hníf-
urinn í kúnni, því sæmileg sátt
væri um flest önnur mál sem þing-
ið þarf að afgreiða og honum væri
til efs að samkomulagi í þeim yrði
vandnáð.
„Það eru til lausnir á öllum mál-
um ef menn vilja finna fjölina sína
til þess,“ segir Lúðvík, en neitar að
hugsa upphátt um þá leið sem
hann sér til lausnar deilunni um
stjórnarskrármálið og þá loka
þingsins.
Tugur mála sem sæmileg sátt er um
GISTINÆTUR á
hótelum í febrúar
síðastliðnum voru
72.900 en voru
77.600 í sama
mánuði árið 2008.
Gistinóttum fækk-
aði þó einungis á
höfuðborgarsvæð-
inu og á Austur-
landi en fjölgaði í öðrum lands-
hlutum. Þess má geta að gistinætur
í febrúar árið 2007 voru samtals
65.645 og árið þar á undan 55.885.
Þannig að ef undan er skilið árið
2008 hafa aldrei eins margir gist
hér á hótelum í febrúar, þrátt fyrir
fækkun milli ára.
Gistinóttum
fækkar heldur
Þó fleiri en á sama
tíma 2006-2007
„VIÐ höfum aldr-
ei áður séð færri
nýskráningar
fólks í atvinnu-
leit. Þær eru um
50 prósentum
færri en fyrir
ári,“ segir Gunn-
ar Haugen, fram-
kvæmdastjóri
Capacent ráðn-
inga. Færri sæki
um hvert laust starf. „Kannski eru
ekki margir hæfir í sum starfanna.
Það kann líka að vera að þeir einu
sem sæki um séu þeir sem eru án
vinnu. Á undanförnum árum hefur
mat okkar verið að 50 til 60 þúsund
hafi verið tilbúin til þess að skoða
aðra vinnu á hverjum tíma. Nú virð-
ist sem fólk sé hrætt við að breyta til.
Það heldur í það sem það hefur.“
Capacent leitar nú að fólki í 50 til
60 störf. Frá áramótum hefur fyr-
irtækið haft milligöngu um ráðn-
ingar í 100 störf.
Gunnar kveðst telja að fleiri séu
reiðubúnir að fara út á land að vinna
en áður vegna aukins atvinnuleysis.
Færri sækja
um laus störf
Gunnar
Haugen
ÞYRLUR Landhelgisgæslunnar
voru settar í viðbragðsstöðu vegna
tilkynningar um reyk í flugstjórn-
arklefa Boeing 777 farþegaþotu
bandaríska flugfélagsins United
Airlines yfir Atlantshafi á öðrum
tímanum í gærdag. Á þriðja
hundrað manns voru um borð.
Þotan lenti heilu og höldnu á
Keflavíkurflugvelli um klukkan
þrjú.
Ekki var um eld að ræða og
mátti rekja reykinn til papp-
írsþurrku sem skilin var eftir á
kaffihellu flugmannanna.
andri@mbl.is
Reykur vegna
pappírsþurrku