Morgunblaðið - 06.04.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009
Kristján Möller samgöngu-ráðherra vill taka upp á ný rík-
isstyrktar strandsiglingar.
Í hádegisfréttum RÚV í gær sagðiforveri hans, Sturla Böðvarsson,
slík áform óraunhæf. Landflutn-
ingar kynnu að verða óhagkvæmir
vegna þess að ríkisstyrktir sjóflutn-
ingar tækju til sín hluta flutnings-
magnsins.
Kristján erharður á
sínu. Hann segir
að enginn muni
fara í strandsigl-
ingar á markaðs-
legum for-
sendum. „Þó að
við borgum einhverja peninga með
strandsiglingum, þá fáum við þá
margfalt til baka í minna vegasliti,
færri umferðarslysum, að ég tali
ekki um umhverfisþáttinn,“ sagði
Kristján í fréttum RÚV.
Ákveðin grundvallaratriði virðastfara framhjá bæði núverandi
og fyrrverandi samgönguráðherra.
Ástæðan fyrir því að þungaflutn-ingar, sem ættu að vera hag-
kvæmari með skipum, hafa færzt
yfir á vegina, er að ríkið nið-
urgreiðir þá í raun. Gjaldtaka af
landflutningafyrirtækjum stendur
aðeins undir broti af þeim kostnaði,
sem þau valda skattgreiðendum
vegna vegaslits, slysa og meng-
unar. Talið er að einn stór flutn-
ingabíll með aftanívagn slíti veg-
unum eins og tíu þúsund fólksbílar.
Þessi niðurgreiðsla skekkir sam-keppnina milli landflutninga og
sjóflutninga.
Leiðin til að gera sjóflutningasamkeppnishæfa á ný er ekki að
bæta við nýjum niðurgreiðslum,
heldur að láta landflutningafyr-
irtækin greiða raunverð fyrir afnot
sín af vegunum.
Kristján Möller
Nýjar niðurgreiðslur?
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 7 skýjað Lúxemborg 3 heiðskírt Algarve 8 heiðskírt
Bolungarvík -1 snjókoma Brussel 3 heiðskírt Madríd 4 léttskýjað
Akureyri 2 alskýjað Dublin 9 heiðskírt Barcelona 10 súld
Egilsstaðir 3 skýjað Glasgow 8 léttskýjað Mallorca 9 skýjað
Kirkjubæjarkl. 7 heiðskírt London 9 alskýjað Róm 12 skýjað
Nuuk -9 skýjað París 1 heiðskírt Aþena 14 skýjað
Þórshöfn 3 alskýjað Amsterdam 0 þoka Winnipeg -5 alskýjað
Ósló 0 skýjað Hamborg 2 léttskýjað Montreal 2 skýjað
Kaupmannahöfn 6 skýjað Berlín 1 heiðskírt New York 5 léttskýjað
Stokkhólmur 5 heiðskírt Vín 4 heiðskírt Chicago 5 alskýjað
Helsinki 3 skýjað Moskva 2 þoka Orlando 16 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
6. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.01 3,5 10.27 0,7 16.36 3,4 22.43 0,6 6:27 20:34
ÍSAFJÖRÐUR 5.58 1,9 12.34 0,2 18.42 1,7 6:26 20:45
SIGLUFJÖRÐUR 1.51 0,4 8.07 1,2 14.30 0,1 20.50 1,2 6:09 20:28
DJÚPIVOGUR 1.19 1,9 7.32 0,6 13.40 1,8 19.46 0,4 5:55 20:05
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á þriðjudag
Norðlæg átt, 8-13 m/s norð-
vestan til, annars hægari. Úr-
komulítið vestanlands, snjó-
koma eða slydda norðan til en
rigning eða súld sunnan- og
austanlands. Hiti 1 til 6 stig en
kringum frostmark norð-
anlands.
Á miðvikudag
Norðan og norðvestanátt, yfir-
leitt 5-10 m/s. Snjókoma norð-
vestanlands, annars bjartviðri
að mestu en stöku él suðvestan
til. Fremur kalt í veðri.
Á fimmtudag og föstudag
Stíf austan- og norðaustanátt
með vætu víða um land og
hlýnandi veður.
Á laugardag
Kólnar aftur með norðan- og
norðvestanátt og snjókomu um
landið norðanvert en úrkomu-
lítið syðra.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Austan- og norðaustanátt og
rigning eða slydda víða um land
seinni part dags, fyrst suðaust-
anlands. Hiti 0 til 8 stig að deg-
inum, svalast norðvestan til.
Eftir Ólaf Bernódusson
Skagaströnd | Þrettán nemendur í
fjölmiðlatækni í Flensborgarskóla í
Hafnarfirði hafa undanfarna daga
dvalið á Skagaströnd ásamt kennara
sínum, Halldóri Árna Sveinssyni. Er
hér um að ræða eiginlegt lokaverk-
efni hópsins en eftir þriggja anna
grunnnám og yfirstandandi önn í
fjölmiðlatækni munu þau útskrifast
sem fjölmiðlatæknar nú í vor.
Hópurinn tekur upp efni á Skaga-
strönd og í nágrenninu og sendir
daglega út tveggja tíma dagskrá í
Kántrýútvarpinu og einnig senda
þau út 30-40 mínútna frétta- og
skemmtiþátt í kapalkerfi Skaga-
strandar þessa daga sem þau dvelja
hér. Hafa nemendurnir farið víða um
bæinn þessa daga og fátt látið sér
óviðkomandi.
Halldór Árni segir að þetta sé í
fyrsta sinn sem svona tilraun er
gerð, þ.e.a.s. að fara með nemendur
og allan útbúnað út á land. Telur
hann að þetta sé afar mikilsverð
reynsla fyrir nemana þar sem þau
verða að fást við raunverulegar að-
stæður og þurfa að útvega efni bæði
fyrir útvarpið og sjónvarpsútsend-
ingarnar. Allt þarf þetta að vera
tilbúið á réttum tíma fyrir útsend-
ingu líkt og gerist í hinum harða
heimi samkeppnisfjölmiðlanna. Þá
hafa nemarnir líka spreytt sig á bein-
um útsendingum þannig að segja má
að þau komist í kynni við „allan
pakkann“ í þessari heimsókn sinni.
Halldór segir að aðstæður til að
framkvæma þetta séu einstakar hér
á Skagaströnd þar sem bæði er rekin
útvarpsstöð og kapalkerfi sem getur
sent út efni sem framleitt er á staðn-
um. Hlustun og áhorf á efni sem
nemarnir hafa boðið upp á hefur ver-
ið mikið ef marka má umræður
manna á meðal þessa daga. Hafa
margir haft á orði að ónýtt tækifæri
væru fyrir Skagaströnd til að skapa
sér enn frekari sérstöðu en nú er.
Guðmundur Ólafsson, tæknimaður
hjá Kapalkerfinu, hefur verið hópn-
um innan handar með tæknimál.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Nám Fjölmiðlanemarnir á fullu við að undirbúa sjónvarpsútsendingu.
Læra saman fjölmiðla-
tækni á Skagaströnd