Morgunblaðið - 06.04.2009, Síða 12
Morgunblaðið/Kristinn
Ræðumaðurinn Björn Bjarnason flutti aðalræðuna á NATO-fundinum.
SAMTÖK um vestræna samvinnu
og Varðberg buðu til hátíðardag-
skrár í Þjóðmenningarhúsinu á laug-
ardaginn í tilefni af því að nú eru lið-
in 60 ár síðan Bjarni Benediktsson,
utanríkisráðherra, skrifaði undir
Atlantshafssáttmálann.
Aðalræðumaður hátíðarfundarins
var Björn Bjarnason, alþingismaður,
og fulltrúar þriggja stjórnmála-
flokka fluttu ávörp; Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, Eygló Harðardóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins, og
Árni Páll Árnason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar. VG var líka boðið að
senda fulltrúa, en gerði það ekki.
Þá fluttu erindi Gréta Gunn-
arsdóttir, sendiherra, og Svanhildur
Bogadóttir, forstöðumaður Borg-
arskjalasafns.
Á fundinum var Guðmundur H.
Garðarsson heiðraður en hann var
fyrsti formaður Varðbergs.
VG sendi ekki full-
trúa á NATO-hátíð
Guðmundur H. Garðarsson heiðraður
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009
MJÓLKURSAMSALAN er að setja
á markað nýja heildstæða matar-
gerðarlínu sem nefnist Gott í mat-
inn. Magnús Ólafsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, afhenti Stein-
grími J. Sigfússyni vörur úr línunni
Gott í matinn ásamt nýju tímariti
sem dreift verður til allra lands-
manna á næstu dögum.
Í línunni eru 13 vörur, bæði vörur
sem neytendur þekkja vel sem og
nýjungar á borð við gríska jógúrt.
Á vefnum www.ms.is/gottimatinn
er hægt er að nálgast nýjar upp-
skriftir með vörum úr línunni.
Ný vörulína frá MS
NÝTT samstarfs-
ráð um al-
þjóðlega þróun-
arsamvinnu
hefur tekið til
starfa. Ráðið hef-
ur ráðgefandi
hlutverk við
stefnumótun í
þróunarmálum
og fjallar um
áætlun um al-
þjóðlega þróunarsamvinnu. Það
gefur ráð um forgangsröðun og val
á samstarfslöndum. Valgerður
Sverrisdóttir, fyrrverandi utanrík-
isráðherra, er formaður ráðsins. Í
ráðinu situr fólk með fjölþætta
reynslu úr mannúðar- og þróun-
arstarfi auk fjölbreyttrar þekk-
ingar á þróunarmálum.
Nýtt ráð um
þróunarsamvinnu
Valgerður
Sverrisdóttir
UM 12.000 manns hafa nú tekið
þátt í hjónanámskeiðum sr. Þór-
halls Heimissonar. Námskeiðin
hafa verið haldin óslitið frá árinu
1996 og eru orðin fastur liður í
starfi Hafnarfjarðarkirkju auk þess
að hafa verið haldin í ölllum stærri
sveitarfélögum. Námskeiðin hefjast
á ný í Hafnarfjarðarkirkju í haust.
Hjónanámskeið
Eftir Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður | Kvarnir, áhuga-
hópur um framtíðina á Snæfellsnesi,
hafa í samvinnu við ráðgjafarfyr-
irtækið Ildi í Grundarfirði staðið fyr-
ir íbúafundum vítt og breitt um
Snæfellsnesið en markmið þessara
fundarhalda er að sögn Sigurborgar
Kr. Hannesdóttur hjá Ildi að bjóða
fólki upp á vettvang til að ræða sam-
an um hvaðeina sem varðar tilvist og
tilveru íbúa á Snæfellsnesi en
áherslan er þó á að ræða um allt það
sem íbúar telja að við getum gert til
að láta hamingjuna blómstra á nes-
inu, þrátt fyrir umrót í þjóðfélaginu.
Nú þegar hafa verið haldnir fund-
ir í Snæfellsbæ, í Grundarfirði og á
Breiðabliki í Miklaholtshreppi en
lokafundurinn var í Stykkishólmi sl.
fimmtudag. Að sögn Sigurborgar er
það vilji þeirra sem standa að þess-
ari vinnu með íbúunum að halda
áfram með þetta verkefni í frekara
vinnsluferli og meiningin er að
sækja um hjá Vaxtarsamningi Vest-
urlands í því skyni.
Blómstrandi hamingja
á Snæfellsnesi
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Hamingja Á fundunum er m.a. rætt um það sem getur bætt mannlífið.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
VIÐRÆÐUR milli Íslands og
Kína um fríverslunarsamning milli
landanna tveggja ganga vel, sam-
kvæmt upplýsingum frá utanrík-
isráðuneytinu. Takist að semja
verður þetta annar tvíhliða frí-
verslunarsamningurinn sem Ísland
gerir við annað land. Hinn fríversl-
unarsamningurinn var gerður við
Færeyjar og tók gildi árið 2006,
samkvæmt upplýsingum frá utan-
ríkisráðuneytinu.
Ísland hefur sem aðili að EFTA
gert fríverslunarsamninga við
fjölda ríkja, eins og sjá má á með-
fylgjandi korti. Mikilvægasti
fríverslunarsamningurinn er þó
samningurinn um EES, en sá
samningur er auðvitað mun víð-
tækari en svo að hann taki ein-
ungis til fríverslunar.
Krefst mikillar vinnu
Íslandi er frjálst að leita samn-
inga við önnur ríki og við-
skiptablokkir um fríversl-
unarsamninga. En hvers vegna
skyldi Ísland ekki hafa gert fleiri
tvíhliða fríverslunarsamninga, líkt
og þegar hefur verið gerður við
Færeyjar og þann sem verið er að
ræða um að gera við Kína?
Einar Gunnarsson, sem stýrir
skrifstofu viðskiptasamninga hjá
utanríkisráðuneytinu, segir að ef
nokkur kostur sé á, reyni Ísland
að beina viðræðum um fríversl-
unarsamninga inn á vettvang
EFTA. Ástæðan sé sú að EFTA-
ríkin sem heild séu mun álitlegri
samningsaðili en einstök ríki. Auk
þess eru fríverslunarviðræður
gríðarlega viðamikið verkefni og
það valdi margföldu álagi á ís-
lensku stjórnsýsluna þegar Ísland
semur eitt, í samanburði við samn-
ingaviðræður í samfloti með
EFTA. Sendinefndir á samn-
ingafundum séu fjölmennar, oft
um 50-60 manns og samningarnir
geti hlaupið á nokkur hundruð
blaðsíðum. Hjá EFTA starfi um
tylft sérfræðinga í milliríkjasamn-
ingum auk þess sem EFTA-ríkin
leggi öll til mannskap.
Fáir með viðameira net
Einar segir að með aðildinni að
EFTA hafi Ísland aðild að svo víð-
tæku neti fríverslunarsamninga að
jafna megi við það besta sem ger-
ist. Aðeins Evrópusambandið gæti
hugsanlega státað af viðameiri frí-
verslunarsamningum.
Mörg ríki hafa verið treg til að
gera tvíhliða viðskiptasamninga og
heldur viljað reiða sig á alþjóða-
viðskiptakerfið. Bandaríkin, Ástr-
alía og Nýja Sjáland hafa verið í
þessum hópi auk þess sem erfitt
hefur verið að semja við þau vegna
stífra krafna um markaðsaðgang
fyrir landbúnaðarafurðir. Ísland
hefur þó gert samning um reglu-
bundið viðskiptasamráð við Banda-
ríkin. Ef Ísland gengur í Evrópu-
sambandið fær það sjálfkrafa aðild
að öllum fríverslunar- og við-
skiptasamningum þess, en á móti
kemur að EFTA-samningarnir og
tvíhliða samningar falla niður.
Ekki hlaupið að því að
semja um fríverslun
Fríverslunarsamningar EFTA og ESB
Ef Ísland gengur í ESB mun Ísland tilheyra tollabandalagi ESB. Viðskiptasamningar sem ESB gerir við
ríki utan bandalagsins munu gilda fyrir Ísland og Ísland getur ekki gert sérstaka viðskiptasamninga. Að
ofan er samanburður EFTA á fríverslunarsamningum EFTA annars vegar og ESB hins vegar.
Ríki sem hafa bæði gert fríverslunarsamning við EFTA og ESB (14 ríki)
• Króatía
• Færeyjar
• Makedónía
• Egyptaland
• Ísrael
• Jórdanía
• Líbanon
• Marokkó
• Palestínska heimastjórnin
• Túnis
• Tyrkland
• Chile
• Mexíkó
• Suður Afríka
Ríki sem hafa gert fríverslunarsamning við EFTA en ekki ESB (8 ríki)
• Botswana
• Kanada
• Suður-Kórea
• Lesotho
• Namibía
• Singapore
• Swaziland
• Kólumbía
Ríki sem hafa gert fríverslunarsamning við ESB en ekki EFTA (5 ríki)
• Albanía
• Algería
• Andorra
• San Marino
• Sýrland
Samningaviðræður EFTA um fríverslunarsamninga (12 ríki)
• Algería
• (Persa-)Flóaráðið (4 ríki)
• Indland
• Perú
• Taíland
• Úkraína*
• Albanía*
• Serbía*
• Rússland**
Samningaviðræður ESB um fríverslunarsamninga (33 ríki)
• Samtök Suðaustur-Asíuríkja (10 ríki)
• Bosnía og Herzegóvína
• Mið-Ameríka (6 ríki)
• Indland
• Írak
• Suður-Kórea
• MERCOSUR (4 ríki)
• Svartfjallaland
• Serbía
• Úkraína
* Viðræður hefjast á næstu mánuðum ** Rússar vonast eftir viðræðum á þessu ári
Heimild: EFTA og utanríkisráðuneytið, apríl 2008
Náist fríverslunarsamningur við
Kína verður Ísland eitt af fyrstu
vestrænu ríkjunum sem nær
slíkum samningi. Einar Gunn-
arsson, skrifstofustjóri hjá ut-
anríkisráðuneytinu, segir að
með honum myndu tollar lækka
á sjávarafurðum og fleiri vörum
sem fluttar eru héðan auk þess
sem fríverslunarsamningar
virka almennt sem hvati til
aukinna viðskipta. Þá gæti
samningurinn aukið möguleika
Íslands á samstarfi við fyr-
irtæki frá öðrum ríkjum sem
hefðu áhuga á Kínamarkaði.
Fleiri í undirbúningi
Nú standa yfir viðræður EFTA-
ríkjanna við Indland og brátt
hefjast viðræður við Úkraínu,
Serbíu og Albaníu. Auk þess er
EFTA nú í könnunarviðræðum
við Rússland, Indónesíu og
Malasíu svo nokkur ríki séu
nefnd.
Mikill hagur
af fríverslun
við Kína
Viðræður milli
Íslands og Kína
ganga vel