Morgunblaðið - 09.05.2009, Síða 1
L A U G A R D A G U R 9. M A Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
124. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
,venær sem er
95
ára
mbl.is
«FJALLA- OG NÁTTÚRUSKÓLI Í BÍGERÐ
SKÓLI VIÐ RÆTUR
VATNAJÖKULS
«SPÁÐ Í ÚRSLIT EVRÓVISJÓN
GOOGLE SPÁIR
TYRKLANDI SIGRI
LÍTIÐ minnti á sumarið fyrir norðan og austan í gær. Jörð var hvít þegar
fólk fór á fætur, örlítið létti til yfir miðjan daginn en síðan hófst ofankom-
an aftur og snjóaði fram eftir kvöldi. Aftakaveður var sums staðar, til
dæmis á Holtavörðuheiði þar sem björgunarsveitarmenn aðstoðuðu veg-
farendur og var heiðinni lokað um tíma. Skömmu eftir helgi kemur sum-
arið úr felum á ný, að minnsta kosti norðaustanlands því þar er spáð allt að
17 stiga hita og sólskini. Akureyringarnir Aron, Björgvin og Reynir skut-
ust út í búð um kvöldmatarleytið og viðruðu tíkina Líf í leiðinni.
Víða vetrarlegt í sumarbyrjun
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
„EF spá Seðlabankans [um gengi
krónunnar innsk. blm.] gengur eftir
er það auðvitað mjög alvarlegt fyrir
sveitarfélögin. Það má segja að hún
komi eins og blaut tuska framan í
þau, þar sem menn höfðu vonast eft-
ir því að krónan styrktist allveru-
lega. Það eina sem við getum vonað
er að útflutningstekjur verði sem
allra mestar og bæti þannig stöð-
una,“ segir Halldór Halldórsson,
formaður Sambands íslenskra sveit-
arfélaga.
Í Peningamálum Seðlabankans,
sem komu út á miðvikudag, kemur
fram að gengi krónunnar gagnvart
evru muni ekki styrkjast eins mikið
og áður hafði verið talið, samkvæmt
spá bankans. Er meðal annars talið
að evran muni ekki kosta minna en
145 krónur en hún kostar nú 168
krónur. Skuldir sveitarfélaga, og þá
einkum dótturfyrirtækja þeirra s.s.
orkuveitna og hafnarsjóða, eru að
stórum hluta í erlendri mynt og því
hefur veiking krónunnar haft veru-
leg áhrif á efnahag þeirra. Það sama
má segja um fjölmörg fyrirtæki og
heimili sem eru með skuldir í er-
lendri mynt en tekjur í krónum.
Þórarinn G. Pétursson, aðalhag-
fræðingur Seðlabanka Íslands, segir
viðvörunarorð Seðlabankans varð-
andi skuldsetningu í erlendri mynt
hafa verið hundsuð. „Það hefur ým-
islegt verið sagt um Seðlabanka Ís-
lands í umræðu um efnahagsmál en
það er ekki hægt að segja að Seðla-
bankinn hafi ekki varað við lántök-
um í erlendri mynt á meðan tekj-
urnar eru í krónum. Það hafa
forsvarsmenn bankans gert við ýmis
tilefni undanfarin ár,“ sagði Þórar-
inn.
„Eins og blaut tuska“
Áframhaldandi þungur róður sveitarfé-
laga gangi ný gengisspá Seðlabanka eftir
Krónan styrkist lítið | 20
FRIÐRIK J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, og Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri SA,
ræddu í gær við Jóhönnu Sigurð-
ardóttur og Steingrím J. Sigfússon.
„Við lýstum áhyggjum okkar af
hugmyndunum um að aflaheimildir
yrðu gerðar upptækar og þær settar
á uppboð. Þetta yrði stórskaðlegt
fyrir íslenskan sjávarútveg og þar
með þjóðarbúskapinn,“ sagði Frið-
rik um fundinn. „En við lýstum vilja
okkar til að fara í endurskoðun á
fiskveiðistjórnarlögunum, sér-
staklega varðandi það að útgerðir
veiddu sjálfar sína kvóta, væru ekki
með svokallað leiguframsal.“
SA skoruðu fyrr í gær á stjórnina
að hverfa frá fyrningarhugmynd-
unum. „Samtök atvinnulífsins eru
reiðubúin til þess að eiga gott sam-
starf við nýja ríkisstjórn en þær að-
ferðir sem kynntar hafa verið gagn-
vart sjávarútvegi og afleiðingar
þeirra tefla óhjákvæmilega slíku
samstarfi í tvísýnu.“ kjon@mbl.is
Áhyggjur
af fyrningar-
leiðinni
Atgangur Golþorskar í netunum.
Talsmenn LÍÚ og SA
hittu ráðherra að máli
Grafarvogssöfnuður
skuldar enn um hálf-
an milljarð vegna
byggingar Graf-
arvogskirkju sem
vígð var fyrir níu ár-
um.
Vegna lækkunar sóknargjalda og
hækkunar skulda gengur verr hjá
skuldugum söfnuðum að láta enda
ná saman. Víða er verið að spara og
búast má við að draga þurfi saman
seglin í safnaðarstarfi sumra
kirkna í haust, þegar vetrarstarfið
verður skipulagt. | 6
Grafarvogssöfn-
uður skuldar
hálfan milljarð
Auk þess að gefa okkur innsýn í
umburðarlyndari heim hefur hug-
myndaflug höfunda Star Trek veitt
mannkyninu innblástur að alls kyns
tækninýjungum.
LESBÓK
Draumur um betri
heim í Star Trek
Ef við heimfærum Grettis sögu upp
á nútímann getum við vel séð ýmsar
hliðstæður í örlögum Grettis og
ýmissa nútímamanna sem vilja ber-
ast mikið á.
Víðfræg glíma
Grettis við Glám
Söngkonan sem gerði grín að öllu
havaríinu og gerði myndskeið um
litla svarta kjólinn sem varð valdur
að brottrekstri hennar frá Kon-
unglegu óperunni.
Syngur ekki
leiðindaskjóður
Íþrótta- og sýningarhöllinni
í Laugardal 8.-10. maí 2009
Frábært tækifæri fyrir alla fjölskylduna
til að skipuleggja sumarið!
Kynntu þér fjölbreytta dagskrá
www.ferdalogogfristundir.is
Framkvæmd: Samstarfsaðilar: