Morgunblaðið - 09.05.2009, Blaðsíða 43
Menning 43FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009
NÝ sýning pólska líffærafræðings-
ins Gunthers von Hagens í Þýska-
landi hefur vakið sterk viðbrögð.
Von Hagens sýnir nái, sem hann
hefur flegið og verkað með silikoni
á sérstakan hátt.
Gunther von Hagens hefur sýnt
lík af ýmsum toga áður, en það fór
sérstaklega illa í einhverja í þetta
sinn, að hann sýnir þau í kynlífs-
stellingum.
Sýningin, sem opnuð var á
fimmtudag, ber yfirskriftina Hring-
rás lífsins og í fréttatilkynningu
sem von Hagens sendi frá sér segir
að með sýningunni vilja hann gefa
innsýn í líffræði æxlunar og eðli
kynlífs. „Þetta er botninn á smekk-
leysu von Hagens,“ sagði Michael
Braun, talsmaður kristilega demó-
krataflokksins í samtali við frétta-
stofu AFP
Sýning von Hagens undir yfir-
skriftinni Líkamar – sýning, sem
fór um Bandaríkin fyrir nokkru,
vakti mikla athygli og umtal, og
spurningar vöknuðu um það hvar
Gunther von Hagens fengi líkin í
verk sín.
Á vef líffærafræðingsins kemur
fram að um níu þúsund manns hafi
þegar ánafnað rannsóknarstöð
hans líkama sinn eftir andlátið.
Lík í kynlífs-
stellingum
vekja umtal
Botn smekkleysunnar,
segja kristilegir
Lík Von Hagens sýnir mannslíkam-
ann í ólíkustu kringumstæðum.
RAGNAR Bjarnason syngur
við undirleik þeirra Kjartans
Valdemarssonar, Gunnars
Hrafnssonar og Benedikts
Brynleifssonar á tveimur stór-
skemmtunum Selkórsins í fé-
lagsheimili Seltjarnarness í
dag, laugardag, klukkan 17.00
og 20.30.
Fluttar verða syrpur úr vin-
sælum söngleikjum og kvik-
myndum og tónlist frá tíma-
bilinu 1940 - 1960. Þá koma ýmsir Selkórsfélagar
fram auk annarra uppákomna.
„Sveitaball“ verður að loknum seinni tónleik-
unum.
Tónlist
Raggi Bjarna á
stórskemmtun
Ragnar Bjarnason
YFIR 100 börn og unglingar
koma fram, spila og syngja, á
tónleikum í Grafarvogskirkju á
morgun, sunnudaginn 10. maí,
kl. 15:00.
Þátttakendur eru úr
Strengjasveitum Tónlistar-
skóla Grafarvogs, Skóla-
hljómsveit Grafarvogs, Ung-
lingakór og Barnakórum
Grafarvogskirkju.
Í lok tónleikanna verða seld-
ar vöfflur á vægu verði og rennur ágóðinn í ferða-
sjóð Barnakóra Grafarvogskirkju. Graf-
arvogsbúar og aðrir eru hvattir til að koma og
hlýða á dagskrána. Aðgangur er ókeypis.
Tónlist
Yfir 100 ungmenni
koma fram
Grafarvogskirkja
ELEKTRA Ensamble heldur
sína aðra tónleika í tónleikaröð
á Kjarvalsstöðum á morgun,
sunnudagskvöld, klukkan 20.
Tónleikarnir eru kenndir við
„gömlu meistarana.“ Á efnis-
skránni eru Flautukvartett í
D-dúr eftir Mozart, Klarín-
ettutríó í B-dúr eftir Beetho-
ven og Píanókvartett í c-moll
eftir Brahms.
Elektra Ensamble skipa
Ástríður Alda Sigurðardóttir, Emilía Rós Sigfús-
dóttir, Helga Björg Arnardóttir, Helga Þóra
Björgvinsdóttir og Margrét Árnadóttir. Gestur
verður Þórarinn Már Baldursson víóluleikari.
Tónlist
Leika verk eftir
gamla meistara
Elektra Ensamble
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÞAÐ er eins og að taka sjálfa tónlist-
arsöguna tali að spjalla við banda-
ríska píanóleikarann Frank Glazer.
94 ára er hann hingað kominn til að
spila tónleika í Salnum á sunnudags-
kvöld; merkilega ungur í sinni og
fasi. Og hvar á að byrja þegar talað
er við mann sem lærði hjá Arthur
Schnabel, fór í tíma hjá Arnold
Schönberg, spilaði fyrir André Joli-
vet og Kurt Weill og hefur leikið
undir stjórn frægustu hljómsveit-
arstjóra síðustu aldar. Hann var
óvenju hæfileikaríkur sem barn, og í
október 1932 styrktu listelskir efna-
menn hann til náms í Berlín hjá
austurríska píanósnillingnum Arth-
ur Schnabel. Glazer var þá 17 ára.
Flúði með Schnabel til Ítalíu
„Þrem mánuðum síðar, í janúar
1933 komst Hitler til valda. Ég átti
að vera tvö ár í Berlín, en eftir átta
mánuði þar fannst Schnabel orðið of
hættulegt að dvelja þar lengur; nas-
istar voru um allt að grandskoða fólk
og hýbýli þess, og Schnabel hafði
tvennt gegn sér, hann var gyðingur,
og var mjög andsnúinn nasistum.
Hann flúði til Comovatnsins á Ítalíu
og ég fór með og lauk fyrra árinu hjá
honum þar. Þetta voru óvissutímar;
ég fór heim til Cambridge í Massa-
chussetts, en tveim árum síðar fór
ég aftur til hans í nám. Við hittumst
svo oft í New York og hann kom og
hlustaði á mig og ég á hann.
Lífið í Berlín var hörmung, fólk
var drepið, og ég skildi ekki af
hverju ég hafði verið sendur á þenn-
an stað svona aleinn og ungur. Ég
velti því þá oft fyrir mér hvort ég
myndi nokkurn tíma hafa það af að
verða píanóleikari.“
En Frank Glazer varð píanóleik-
ari og fullnuma skipaði hann sér
fljótt í fremstu röð. Ferill hans hefur
verið óslitinn allt frá því hann kom
fyrst fram í Ráðhúsinu í New York
árið 1936. Hann fagnaði 70 ára leik-
afmæli sínu 2006 með því að leika
sama prógramm og hann gerði þá.
Schönberg reyndist of dýr
Í Berlín langaði Glazer líka að
læra tónsmíðar, og það var í þeim til-
gangi sem hann bankaði uppá hjá
Schönberg. Tónskáldið tók honum
vel, en þegar til átti að taka tók
Schönberg hærra verð fyrir tímann
en Glazer hafði ráð á, en Schönberg
bauð honum þá að sækja tíma hjá
nemanda sínum, en fara sjálfur yfir
verkefnin. Síðan þá hefur Glazer
samið fjölda verka af ýmsu tagi.
Hann hefur sjálfur verið ötull við að
spila nýja tónlist annarra tónskálda.
Hér spilar hann Tokkötu í D-dúr
eftir Bach, Rondó í a-moll eftir Moz-
art, Sónötu op. 111 eftir Beethoven,
Valses nobles et sentimentales eftir
Ravel og tvær etýður og Polonaise
brilliante eftir Chopin.
Frank Glazer heldur einleikstónleika í Salnum á sunnudag kl. 20, 94 ára gamall
Flúði nasistana
með Schnabel
Morgunblaðið/Golli
Frank Glazer „Stofnanir setja fólk á eftirlaun, ekki listin,“ segir píanóleik-
arinn. Hér lék hann síðast árið 1959 með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
SÝNINGIN Minjar – myndlist í
náttúru / náttúra í myndlist opnar í
Náttúrufræðistofu Kópavogs í dag,
laugardag, klukkan 15.30.
Á sýningunni eru verk sem flest
eru unnin sérstaklega fyrir húsa-
kynni Náttúrufræðistofunnar.
„Á Íslandi hefur oft verið áhugi á
að sýna myndlist í óhefðbundum
rýmum en sjaldnar þar sem annars-
konar sýning er fyrir. Það er mikill
áhugi meðal myndlistarmanna á
náttúru og því sem kallað er arkiver-
íng, skjalasöfnun og flokkun, og við
fundum hóp af listamönnum sem
voru áhugasamir og hafa verið að
vinna með þessi svið,“ segir Ingunn
Fjóla Ingþórsdóttir sem er sýning-
arstjóri ásamt Þórdísi Jóhannes-
dóttur. „Þeim fannst áhugavert að fá
að vinna innan safnsins og fá að búa
til samtal við gripina sem fyrir eru.
Okkur var tekið mjög vel í Nátt-
úrufræðistofunni og höfum fengið að
gera nánast hvað sem er.“
Tengsl náttúru og myndlistar eru
hér í brennipunkti, en einnig fléttast
inn í vangaveltur um söfn og hvaða
hlutverki þau hafa að gegna.
Listamennirnir sem eiga verk á
sýningunni eru Anna Líndal, Bjarki
Bragason, Eygló Harðardóttir,
Harpa Árnadóttir, Harpa Dögg
Kjartansdóttir, Hekla Dögg Jóns-
dóttir, Helga Arnalds, Hildigunnur
Birgisdóttir, Hugsteypan, Hildur
Bjarnadóttir, Ingibjörg Jónsdóttir,
Jeannette Castioni, Magnea Ás-
mundsdóttir, Pétur Thomsen, Rósa
Sigrún Jónsdóttir, Sigurrós Svava
Ólafsdóttir og Unnar Örn Jónsson
Auðarson. Sýningarstjórar eru Ing-
unn Fjóla Ingþórsdóttir og Þórdís
Jóhannesdóttir.
Hópur myndlistarmanna sýnir í Náttúrufræðistofu Kópavogs
Tengsl myndlistar og
náttúru í brennipunkti
Ljósmynd/Pétur Thomsen
Lítil saga Verk eftir Hörpu Árna-
dóttur á sýningunni í Kópavogi.
GUÐNÝ Einarsdóttir organisti við
Fella- og Hólakirkju í Reykjavík
kemur fram á tónleikum Listavina-
félags Langholtskirkju annað
kvöld, sunnudag, klukkan 20.
„Það stóð fyrst til að tónleikarnir
yrðu í haust sem leið en þá eign-
aðist ég barn,“ segir Guðný þegar
hún er innt eftir efnisskránni.
„Ég leik verk eftir Bach, Arvo
Pärt, Böhm og Þorkel Sigurbjörns-
son. Ég leik einnig kafla úr „Messu
fyrir klaustrin“ eftir Couperin.
Nokkrir félagar úr Voces Thules
munu syngja munkasöng með mess-
unni.
Þegar ég setti efnisskrána saman
var afi minn, Sigurbjörn Einarsson
biskup, mér ofarlega í huga. Eitt
verkanna tengist honum beint,
„Passacaglia í c-moll“ eftir J.S.
Bach, sem var eftirlætisverk hans.
Ég skrúfaði prógrammið eiginlega
saman út frá því. Þetta eru ekki
beint minningartónleikar en þegar
ég setti efnisskrána saman í haust
var andlát hans mér ofarlega í
huga.“
Guðrún er fædd árið 1978. Hún
stundaði píanónám frá unga aldri
og lauk prófi frá tónmenntadeild
Tónlistarskólans í Reykjavík og
orgelnámi frá Tónskóla Þjóðkirkj-
unnar, þar sem aðalkennari hennar
var Marteinn H. Friðriksson.
Vorið 2006 lauk Guðný kirkju-
tónlistarnámi frá Kaupmannahöfn
og hún hefur einnig sótt námskeið
hjá mörgum kunnum tónlistar-
mönnum.
Guðný hefur haldið tónleika bæði
hér heima og erlendis og komið
fram við ýmis tilefni, sem einleik-
ari, meðleikari og kórstjóri.
Afi Guðnýjar var
henni ofarlega í huga
Guðný Einarsdóttir organisti leikur á
tónleikum í Langholtskirkju á morgun
Þessir veðbankar
hérna vita svo nátt-
úrlega ekki neitt. Þeir eru
jafntraustir og greining-
ardeildir bankanna eða
stjörnuspár … 48
»