Morgunblaðið - 09.05.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.05.2009, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009 ENN EFLAST sveitarfélög landsins; næst gerist það með sameiningu Grímseyj- arhrepps og Akureyr- arkaupstaðar sem samþykkt var í báðum sveitarfélögunum á kosningadaginn. Sem ráðherra sveit- arstjórnarmála fagna ég þessu skrefi þeirra Norðlendinga og vil nota tækifærið til að fara yfir stöðu þessa verkefnis stjórnsýslunnar, að efla sveit- arfélögin með stækkun þeirra og um leið fækkun. Fleiri skref í sameiningarátt eru í sjónmáli. Fulltrúar Fljótsdalshér- aðs og Djúpavogshrepps hafa hafið formlegar viðræður og forráðamenn Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur hafa einnig lýst áhuga á að skoða tækifæri sem felast í sameiningu bæjarfélaga sinna. Allt eru þetta heillavænleg skref að mínu mati og þó að ég sem ráðherra sveit- arstjórnarmála hafi hvatt eindregið til frekari sameiningar undirstrika ég frumkvæði heimamanna í þess- um efnum. Vil ég þakka viðkomandi sveitarstjórnarmönnum fyrir að hafa sýnt áhuga sinn í verki. Samstaða um eflingu – spurning um aðferð Á liðnu hausti talaði ég um efl- ingu sveitarfélaganna á öllum aðal- fundum landshlutasamtaka sveitar- félaga. Lagði ég út frá þeirri hugmynd að lágmarksíbúafjöldi sveitarfélaga yrði framvegis ekki undir einu þúsundi, en eins og stað- an er í dag er meira en helmingur allra sveitarfélaga á Íslandi með færri en þúsund íbúa. Með því yrðu til stærri og öflugri rekstrarein- ingar sem staðið gætu fjárhagslega undir nauðsynlegri þjónustu í nú- tíma sveitarfélagi. Hugmyndinni um lágmarksfjöldann var víða vel tekið en vissulega mætti hún einnig andstöðu. Hygg ég raunar að allir séu sammála um eflingu sveitarfélaga, spurn- ingin er fremur um hvaða aðferðafræði verður unnt að beita. Í framhaldi af þess- ari kynningu í haust voru smíðuð drög að lagafrumvarpi um efl- ingu sveitarfélaga þar sem lágmarks- íbúafjöldinn var hafður sem leiðarljós. Í þeim er gert ráð fyrir góðum fresti til að- lögunar og raunar undantekningum frá íbúafjöldanum ef aðstæður krefjast. Skemmst er frá því að segja að frumvarpið var til umfjöll- unar í þingflokkum fyrri rík- isstjórnar seint í haust og varð að víkja þegar efnahagserfiðleikarnir yfirtóku allan starfskraftinn. Verkefnið um eflingu sveitarfé- laganna er hins vegar enn í fullu gildi og er í mínum huga enn brýnna að vinna að þessum málum nú þegar kreppir að. Til að draga úr vægi skilyrðisins um íbúafjölda hef ég sett fram hugmynd um aðra leið til sameiningar sem mér þykir einnig koma til greina og hef ég kynnt hana fyrir sveitarstjórn- armönnum. Hugmyndin felur í sér að í stað þess að reynt verði að ná fram sam- einingu með hækkun lágmarks- íbúafjölda verði farin sú leið að skoða hvert landsvæði fyrir sig og meta þá sameiningarkosti sem þar koma til greina. Til þessa verkefnis yrði settur starfshópur skipaður fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og ríkis sem auk sér- fræðinga myndi þannig meta hvern landshluta fyrir sig, setja fram til- lögur um raunhæfa sameining- arkosti sem ná markmiði um heild- stætt atvinnu- og þjónustusvæði og eru jafnframt liður í að styrkja og efla sveitarstjórnarstigið. Jafnframt yrði metið hvort og þá hvaða aðrar aðgerðir þyrftu að eiga sér stað sem stuðlað gætu enn frekar að samþættingu og eflingu viðkomandi byggðarlaga, svo sem á sviði sam- gangna, fjarskipta eða í byggðalegu tilliti. Íbúafjöldinn sem slíkur verð- ur þá í öðru sæti eða með öðrum orðum, ekki verður gengið út frá þúsund eða 500 íbúa lágmarki held- ur fyrst og fremst horft til áð- urnefndra atriða. Alþingi ákveði sveitarstjórnarskipanina Þegar tillögur starfshópsins liggja fyrir myndi ráðherra leggja málið fyrir Alþingi til frekari af- greiðslu, annað hvort í formi tillögu til þingsályktunar eða lagafrum- varps. Við meðferð Alþingis gæfist tækifæri til að eiga náið samráð við sveitarstjórnir. Það yrði því hlut- verk Alþingis, sem hins æðsta lýð- ræðislega kjörna valds, að ákveða hvernig háttað yrði stækkun og efl- ingu sveitarfélaga landsins, sem gæti gerst frá og með almennum sveitarstjórnarkosningum árið 2014. Þessi leið til sameiningar hefur ver- ið farin m.a. á Norðurlöndum, nú síðast í Grænlandi þar sem sveit- arfélögum er fækkað úr 18 í 4. Ég er sannfærður um að með þessari aðferð náum við þeim ár- angri sem nauðsynlegur er. Við þurfum nú sem aldrei fyrr að ná sem mestri hagkvæmni í öllum op- inberum rekstri og þjónustu. Með því getum við best varið velferð- arþjónustu og haldið áfram þrótt- mikilli uppbyggingu sveitarfélag- anna. Ríki og sveitarfélög þurfa að ganga sameiginlega í það verkefni. Eflum sveitarfélögin með sameiningu Eftir Kristján L. Möller » Verkefnið um eflingu sveitarfélaganna er hins vegar enn í fullu gildi og er í mínum huga enn brýnna að vinna að þessum málum nú þegar kreppir að. Kristján L. Möller Höfundur er samgöngu- og sveit- arstjórnarráðherra. Í GEGNUM tíðina hefur veiði dregist saman vegna breyt- inga í náttúrunni. Sjáv- arútvegsfyrirtæki sem ætluðu sér að tryggja framtíð sína í greininni og verkefnastöðu fyrir skip sín og stöðvar keyptu því aflaheim- ildir frá þeim aðilum sem vildu selja. Þeir sem keyptu aflaheimildir sáu fram á að geta staðið undir lántök- unni og geta gert út á hagkvæman hátt. Til þess að þeir gætu staðið undir skuldum var þeim brýnasta þörf að leita allra leiða til að skapa sem mest verðmæti úr hverju kílói. Á þennan hátt gera skipin og stöðv- arnar sem mestu verðmætin úr þeirri auðlind sem er eign þjóð- arinnar. Í framhaldi af því skapast mesti mögulegi gjaldeyrir til þjóð- arinnar og skatttekjur af auðlindinni eru því meiri fyrir vikið. Fyrirtækin búa yfir þekkingu, reynslu og hafa fjárfest í fram- leiðslutækjum. Hjá fyrirtækjunum vinnur fólk sem veit hvað það er að gera, það hefur áratuga reynslu í greininni. Fyrirtækin geta skapað gott vinnuumhverfi fyrir þetta fólk, því með því að vita hversu mikið af aflaheimildum þau mega veiða geta þau sniðið stakk eftir vexti og þann- ig keypt vélar eftir þörfum og endurnýjað skipakostinn. Ef aðilar í greininni vissu ekki hversu mikið þeir gætu hugsanlega veitt, hvernig skip ættu þeir þá að leggja út í að smíða? Nú er þjóðfélagsand- inn að verða sá að það ætti engin atvinnu- grein að standa undir sér og skila okkur tekjum í þjóðarbúið, því að öllum líkindum eru þetta allt glæpamenn eins og þessir frægu 30, líkt og talað er um, eru taldir vera. Því er talið eðlilegast af vinstri- flokkunum að leggja okkar arðbær- ustu atvinnugrein í rúst. Gera eigna- upptöku á aflaheimildum og þannig leggja fyrirtækin sem hafa stritað fyrir tilvist sinni síðustu árin í gjald- þrot. Bóndi án akurs er enginn bóndi, bóndi sem hefur keypt sér land á lánum fer rakleiðis á hausinn ef landinu væri skipt niður á 4 aðra bændur og hann héldi áfram að borga af láninu fyrir landið. Það sama mun eðlilega gerast fyr- ir sjávarútvegsfyrirtækin. Hver kaupir þá stöðvarnar og skipin? Verða nýlegu skipin þá væntanlega seld úr landi og gömlu útgerðirnar sem seldu kvótann sinn geta farið að gera út ryðdallana sína sem hafa beðið við bryggjuna allan þann tíma sem þeir voru á Spáni að eyða þeim pening sem þeir fengu fyrir söluna á kvótanum. Réttlætinu er fullnægt Þannig fengist líklega rosalega hátt afurðaverð með þessum eld- gömlu ryðdöllum og þjóðin væri þannig líklega að hafa gott út úr auð- lindinni. Af hverju ættu þeir að reyna að keppast við að halda verð- mætasköpuninni í hámarki, frekar en að reyna að veiða sem mest áður en fiskveiðiárið væri á enda eða út- gefinn afli veiddur? Annar möguleiki er að ríkið tæki við þrotabúum útgerðanna og hér á Íslandi væri allsherjar ríkisútgerð þar sem ríkið væri að ausa pen- ingum í ríkisútgerðina í stað þess að hagnast á auðlindinni. Ríkið myndi eflaust gera út á sem hagkvæmasta hátt líkt og bæjarútgerðirnar gerðu forðum daga. En það fór vægast sagt hræðilega illa. Arður þjóðarinnar af auðlindum sínum Eftir Harald Pálsson »Hvað viljum við fá út úr okkar auðlindum? Hagnað eða tap? Viljum við hætta að græða á sjávarútveginum, leggja hann í rúst og gera hann ríkisstyrktan? Haraldur Pálsson Höfundur er skipstjórnarnemi. ıwww.itr.is sími 411 5000 Góð hreyfing er lykillinn að góðri heilsu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.