Morgunblaðið - 09.05.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÖSSUR Skarphéðinsson, utanrík-
isráðherra, segist ánægður með það
sem kemur fram í yfirlýsingu frá
breska forsætisráðuneytinu sem send
var út í gærkvöldi. Þar er viðurkennd
ábyrgð breska fjármálaráðuneytisins
á Kaupthing Singer and Friedlander-
bankanum auk þess sem fram kemur
stuðningur við samkomulag íslenskra
stjórnvalda við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn. Hann segir þann stuðning
koma á góðum tíma.
Össur bar í gær fram formlega
kvörtun vegna ummæla Gordons
Browns, forsætisráðherra Bretlands,
í fyrirspurnatíma breska þingsins.
Össur kallaði á fund sinn Emmu Dav-
is, staðgengil sendiherra Breta á Ís-
landi. Fundur þeirra var stuttur og
eftir hann sagði Össur að Davis hefði
samviskusamlega tekið niður um-
mæli sín og sagst ætla að koma þeim
á framfæri. „Ég mótmælti með hrein-
skiptnum hætti þessum yfirlýsingum
Browns og gat þess að þetta væri
ekki í fyrsta skipti sem hann tæki
svona til orða um Íslendinga.“
Brown lýsti því m.a. yfir í fyr-
irspurnatímanum að bresk yfirvöld
ættu í samningaviðræðum við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) um
hversu hratt Íslendingar endur-
greiddu lán vegna greiðslna til
breskra innistæðueigenda. Össur
sagði að ríkisstjórnin myndi ganga á
eftir því að fá tvímælalausa yfirlýs-
ingu frá IMF um að slíkar viðræður
hefðu ekki átt sér stað.
Hafa afl og aðstöðu
„[Við] erum […] í viðræðum við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn og aðrar
stofnanir um það á hvaða hraða ís-
lensk yfirvöld geti endurgreitt það
tap sem þau bera ábyrgð á,“ sagði
Brown orðrétt í fyrirspurnatímanum.
Í yfirlýsingu frá breska forsætisráðu-
neytinu í gærkvöldi segir hins vegar
að Brown hafi verið að vísa í sam-
komulag íslenskra stjórnvalda við
IMF. Engar frekari skýringar voru
gefnar.
Össur sagði í gær – áður en yfirlýs-
ingin barst – að það væri klárt að
Bretar hefðu aðstöðu og afl innan
IMF og myndu væntanlega reyna að
tryggja sína hagsmuni þar. Því hafi
þeir hins vegar neitað. Í bréfi sem
sendiherra Íslands í Lundúnum af-
henti utanríkismálaráðgjafa Browns í
gær er spurt út í hvaða viðræður for-
sætisráðherrann átti við.
Brown hélt því einnig fram að
bresk stjórnvöld væru ekki eftirlits-
aðili Singer and Friedlander-
bankans, dótturfélags Kaupþings. Í
yfirlýsingunni er hins vegar við-
urkennt að Singer and Friedlander
sé breskur banki og heyri undir
breska fjármálaeftirlitið.
Ánægður með svör
Í yfirlýsingu frá breska forsætisráðuneytinu segir að
Gordon Brown hafi vísað til samkomulags Íslendinga við IMF
„VIÐ eigum ekki í samningaviðræðum við Bretland eða Ísland vegna Ice-
save-skulda. Það er tvíhliða mál milli Íslands og Bretlands,“ sagði Franek
Rozwadowski, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi. Rozwa-
dowski segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn blandi sér almennt ekki í
samningaviðræður milli aðildarlanda sjóðsins um skuldir. Sjóðurinn fylgist
með slíkum viðræðum en hann taki ekki þátt í þeim.
Aðspurður hvort Bretar geti mögulega verið að beita áhrifum sínum inn-
an Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að seinka útgreiðslu láns til Íslands sagði
Rozwadowski það vera vangaveltur og hann vildi ekki taka þátt í þeim.
Hann kvaðst ekki sjá nein merki um slíkt.
Engin merki um áhrif Breta
Morgunblaðið/Golli
Svarar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra gaf sér góðan tíma til að ræða við fjölmiðlafólk að fundi loknum.
Morgunblaðið/Golli
Orðlaus Emma Davis, staðgengill
sendiherra Breta, flýr fréttamenn.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
ÁTTA gönguskíðamenn, sem lentu í
vandræðum vegna aftakaveðurs á
Vatnajökli, biðu enn um miðnætti
eftir aðstoð björgunarsveitarmanna.
Reiknað var með að aðstoðin bærist
snemma í nótt.
Sex Spánverjar eru þarna á ferð,
einn þeirra fararstjóri, og tveir ís-
lenskir fararstjórar frá fyrirtækinu
Íslenskir fjallaleiðsögumenn. Hópur-
inn hafði beðið í tjöldum í um það bil
tvo sólarhringa eftir því að veðrinu
slotaði þegar gripið var til þess ráðs
að leita aðstoðar Landsbjargar eftir
hádegið í gær. Fólkið hefur þurft að
moka snjó linnulítið síðan það áði til
þess að tjöldin fennti ekki í kaf.
Hópurinn hafði verið á göngu í
nokkra daga og stefndi austur í
Öræfasveit. Áð var í Grímsvötnum á
miðvikudaginn og haldið áfram að
morgni fimmtudags. Veður versnaði
þá mjög og hópurinn sló upp tjöldum
miðja vegu á milli Grímsvatna og
Öræfajökuls og hugðist bíða af sér
veðrið. Þegar útséð var um að létti til
á næstunni var haft samband við
Landsbjörg. Vindhæð var mun meiri
á þessum slóðum en reiknað hafði
verið með.
Alls fóru 30 björgunarsveitar-
menn á vegum Landsbjargar af stað
í gær; snjóbílar fóru bæði frá Hellu
og höfuðborgarsvæðinu, alls fjórir,
og frá Höfn í Hornafirði fóru Lands-
bjargarmenn á vélsleðum.
Þegar Hornfirðingarnir áttu um
það bil átta átta kílómetra eftir að
tjöldum ferðafólksins í gærkvöldi
var þeim snúið við „því veðrið á jökli
er kolvitlaust, blindbylur og skyggni
afar lítið“, eins og sagði á heimasíðu
Landsbjargar seint í gærkvöldi.
Snjóbílarnir héldu hins vegar áfram
og var vonast til þess að komið yrði
að ferðalöngunum snemma í nótt.
Fólkið á jöklinum er sagt við góða
heilsu miðað við aðstæður, og ekkert
ami að því í raun annað en þreyta.
Biðu björgunar
í aftakaveðri
á miðjum jökli
Voru á leið
gangandi austur
í Öræfasveit
!
" #$%# $!$
Kuldaboli fór á jökul
ÞETTA er öflugasti snjóbíll landsins, Boli, en hann er í eigu Hjálparsveitar
skáta í Reykjavík. Boli er einn fjögurra bíla sem fóru á vegum Landsbjargar
upp á Vatnajökul í gærdag til bjargar áttmenningunum sem þar biðu.
Til sölu úr þrotabúi
BT verslana ehf.
Til sölu úr þrotabúi BT verslana ehf. er lager og rekstur
verslana BT. Um er að ræða rekstur tveggja verslana, í
Smáralind og á Akureyri ásamt lager af tölvum, tölvu-
leikjum, sjónvarpstækjum, hljómflutningstækjum,
myndavélum o.fl.
Tilboðum skal skila til LEX ehf., Borgartúni 26,
Reykjavík, fyrir 18. maí nk. kl. 17.00.
Skiptastjóri áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Allar nánari upplýsingar veitir
Helgi Jóhannesson, hrl., skiptastjóri, helgi@lex.is
og Dagmar Arnardóttir hdl., dagmar@lex.is,
sími 590 2600.
Eftir Andra Karl
og Þröst Emilsson
NÆSTUM því allt er klappað og
klárt fyrir morgundaginn þegar
kynnt verður ný ríkisstjórn Sam-
fylkingarinnar og Vinstri grænna og
um leið stjórnarsáttamáli. Í dag
ganga þingmenn á fund formanna
sinna sem hlusta á gagnrýni, kröfur
eða óskir þeirra. Formennirnir halda
spilunum þétt að sér bæði hvað varð-
ar ráðherraskipan og nefndasetur.
Telja má víst að umfangsmiklar
breytingar bíði til loka árs og verði
gerðar í tengslum við fjárlagagerð
næsta árs. Þá gæti orðið frekari upp-
stokkun í ráðherraliðinu og jafnvel
frekari samþætting ráðuneyta. Þar
horfa menn helst til heilbrigðis-, fé-
lags- og tryggingamála.
Þó er líklegt að ráðuneytum verði
fækkað um eitt í upphafi, verkefni
verði færð á milli ráðuneyta og tveir
eða þrír nýir ráðherrar taki sæti í
ríkisstjórninni. Nokkur óvissa ríkir
um ráðherraskipan ríkisstjórn-
arinnar en þó hafa sum nöfn heyrst
oftar en önnur.
Í kjölfar þess leggja þeir ráð-
herrakapalinn á borðið, hvor í sínu
lagi, fyrir æðstu stofnanir flokka
sinna. Þingflokkar stjórnarflokk-
anna koma saman til fundar á morg-
un. Hjá Samfylkingunni trúlega í há-
deginu og í kjölfarið kemur
flokksstjórnin saman á Hótel Sögu
þar sem lokaumræðan fer fram. Hjá
VG er boðað til fundar hjá flokksráði
á Grand Hóteli kl. 9 í fyrramálið og í
kjölfarið þingar þingflokkurinn og
blessar eða fellir hinn nýja sátta-
mála.
Þingmenn ganga á fund
formanna hver á fætur öðrum
Morgunblaðið/Ómar
Sáttmáli Ný ríkisstjórn verður að
öllum líkindum kynnt á morgun.
Hlusta á kröfur
þingmanna eða
óskir í allan dag