Morgunblaðið - 09.05.2009, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 09.05.2009, Qupperneq 22
22 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009 HANN bar sig fimlega, dýrahirðirinn í kín- versku borginni Nanning, þegar hann fóðraði nátthegraunga á agnarsmáu síli. Unginn kom í heiminn eftir klak í útungunarvél og virðist sprækur og óhræddur við að þiggja veitingar mannfólksins. Unginn hefur vakið mikla athygli enda eru nátthegrar taldir í hópi þeirra dýra sem eru í hvað mestri útrýmingarhættu. baldura@mbl.is Nátthegri á mjúkum beði Reuters Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is SKÖMMU eftir að Tony Blair til- kynnti að hann myndi víkja sæti sem formaður breska Verkamannaflokks- ins og um leið fela eftirmanni sínum að taka við embætti forsætisráðherra lét arftaki hans Gordon Brown skrá fast- eign sína á Skotlandi sem annað heim- ili sitt. Ákvörðunin var úthugsuð því með þessu tryggði Brown að ríkið myndi greiða fyrir við- hald og endurbætur á fasteigninni og standa straum af öðrum kostnaði, svo sem launum garðyrkjumanns og ræstingakonu. Og ekki nóg með það. Forsætisráð- herrann borgaði reikning fyrir bróður sinn, Andrew, vegna sameiginlegrar ræstingaþjónustu hjá bræðrunum að andvirði 1,3 milljóna króna og sendi síðan ríkinu reikninginn. Málið kom í ljós eftir viðamikla uppljóstrun dagblaðsins The Daily Telegraph en þar kemur einnig fram að hinn umdeildi Mandelson lávarður lét ríkið greiða fyrir viðgerðir á húsi sínu fyrir um 600.000 krónur innan við viku eftir að hann greindi frá því að hann hygðist láta af þingmennsku. Hann seldi síðar húsið með um 26 milljón króna hagnaði. Þá sendi Caroline Flint, Evrópu- málaráðherra Verkamannaflokksins, ríkinu reikning upp á um 2,8 milljónir króna vegna íbúðarkaupa. Af öðrum útgjöldum má nefna að Margaret Beckett, húsnæðis- og skipulagsmálaráðherra, rukkaði ríkið um 100.000 krónur vegna blómaplantna og sexfalt meira fyr- ir nýjan vatnshitunarbúnað á öðru heimili sínu í Derby. Á sama tíma bjó hún frítt í íbúð í Lundúnum og gat því leigt út íbúð sína þar í borg. Sendu skattborgurum reikning fyrir lúxusnum Margaret BeckettGordon Brown Fríðindahneyksli skekur ríkisstjórn Gordons Browns VLADÍMÍR Pútín, forsætisráð- herra Rússlands, sýndi á sér nýja og óvænta hlið fyrir helgi þegar hann kom ungri, taugaóstyrkri söngkonu til bjargar, þar sem hún stóð felmtri slegin á sviði skóla nokkurs í Moskvu sem er ætlaður dætrum hermanna. Það vildi þannig til að stúlkan, sem heitir Katja Kazakova, fékk það hlutverk að syngja ættjarðarlag fyr- ir forsætisráðherrann en brást hins vegar kjarkur og þar með röddin þegar á hólminn var komið. Pútín skynjaði hvað var að gerast og vatt sér upp á sviðið þar sem hann söng dúett með söngkonunni ungu. Þótti söngur Pútíns einkenn- ast af mýkt og flutningurinn bera góðu tóneyra vitni. baldura@mbl.is Pútín kemur til bjargar Reuters Ha, ég? Grínistinn Pútín með söng- konunni ungu og kennara hennar. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is BENEDIKT 16. páfi hóf ferð sína til Mið-Austurlanda í gær og var Jórdanía fyrsti viðkomustaðurinn en þaðan fer hann til Ísraels og Vesturbakkans. Abdullah kon- ungur tók á móti páfa á flugvellinum í Amman og lagði páfi í ávarpi sínu áherslu á virðingu sína fyrir íslam. En hann ræddi einnig um trúfrelsi sem mjög skorti á að sé haldið uppi í flestum ríkjum íslams. „Trúfrelsi er að sjálfsögðu grundvallarmannréttindi og það er áköf von mín og bæn að ómótmælanleg réttindi og virðing sérhvers karls og konu verði varin af meira kappi, ekki aðeins í Mið-Austurlöndum heldur um allan heim.“ Eitt af markmiðum páfa er að hvetja litla, kristna minnihlutahópa, sem víða eiga undir högg að sækja í Mið- Austurlöndum, til dáða og bæta samskiptin við múslíma og gyðinga. Sumir talsmenn bæði múslíma og gyðinga hafa gagnrýnt harkalega ýmislegt sem páfi hefur sagt og gert á síðustu þrem árum, talið að hann sýndi ekki þess- um trúarbrögðum næga virðingu. Benedikt hefur harm- að gagnrýnina og sagt að um miskilning sé að ræða. Nú vill hann reyna að draga úr misklíðinni. Móðgaði páfi múslíma með því að vitna í keisara? Eitt af því sem múslímar setja fyrir sig er að páfi vitn- aði eitt sinn í ræðu sem kristinn keisari í Konstantínópel hélt fyrir mörgum öldum um að Múhameð spámaður hefði fært heiminum ofbeldi. Flokksleiðtogi í Jórdaníu hefur krafist þess að páfi biðjist afsökunar á ræðunni, ella sé hann ekki velkominn í landinu. Að sögn fréttamanns BBC hvöttu nafnlaus samtök of- stækisfullra múslíma til þess að páfi yrði myrtur í Jórd- aníu og sögðu að hann væri „óvinur íslams“. Miklar ráð- stafanir hafa verið gerðar til að vernda líf páfa og er sagt að alls muni um 80.000 manns taka þátt í öryggisgæslu í ferðinni sem taka á fimm daga. Víða er mikill hiti í fólki í Arabalöndum, ekki síst vegna ástandsins á Gaza. En páfi, sem er 82 ára gamall, mun hafa verið harðákveðinn í að fara í ferðina þrátt fyrir ástandið á svæðinu. Trúfrelsi verði virt  Benedikt páfi heimsækir Mið-Austurlönd og friðmælist við múslíma og gyðinga  Markmiðið einnig að hvetja kristna minnihlutahópa í löndunum til dáða Í HNOTSKURN »Páfi mun meðal annarsfara til Betlehem. Búist er við að hann muni þar hvetja til friðar milli Ísraela og Palest- ínumanna, einnig að Palest- ínumenn fái að stofna sitt eig- ið ríki. »Gyðingar tortryggja sumirÞjóðverjann Benedikt sem vill að Píus 12., páfi í seinna stríði, verði gerður að dýr- lingi. Deilt er um það hvort Píus hafi gert nóg til að reyna að verja gyðinga fyrir ofsókn- um Hitlers. MEÐAL þeirra sem fá hæstu nið- urgreiðslurnar frá landbúnaðar- sjóðum Evrópusambandsins eru banki í Mílanó, kjúklingarisi í Frakklandi og írskt fyrirtæki, Greencore, sem framleiðir tilbúna rétti og búðinga, segir í frétt The New York Times. Alls er landbúnaður í sambandinu styrktur með um 50 milljörðum evra á ári, að sögn samtakanna Farmsub- sidy.org. Stærsta styrkinn, 140 milljónir evra, fær sykurfyrirtækið Zucchera á Ítalíu. Harald von Witzke, prófessor í matvælaviðskiptum og hagþróun við Humboldt-háskólann í Berlín, segir ekki hægt að réttlæta þessar stóru greiðslur. Þær þjóni engu félagslegu hlutverki og sé markmiðið að bæta bændum upp fórnir vegna umhverf- isverndarmála sé um allt of háar greiðslur að ræða. kjon@mbl.is Stórfyrir- tækin hirða mest ESB styrkir land- búnað af miklum móð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.