Morgunblaðið - 09.05.2009, Side 42

Morgunblaðið - 09.05.2009, Side 42
42 Velvakandi MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ÆTLA AÐ SLEPPA ÖLLU OG GERA EKKI NEITT Í DAG HVAÐ FINNST ÞÉR? FLOTT... VERTU VELKOMINN. LETILÍFIÐ ER ÆÐISLEGT STUNDUM LANGAR MIG AÐ KOMA MÉR HÉÐAN GAMLA SKÁLIN MÍN!MIG LANGAR BARA AÐ FARA EITTHVERT ANNAÐ OG KYNNAST NÝJU FÓLKI EN ÞAÐ ER EITTHVAÐ SEM HELDUR MÉR HEIMA... LÆTUR MIG HALDA KYRRU FYRIR ÉG ER LOKSINS TILBÚIN. VIÐ GETUM FARIÐ Í VEISLUNA HVAR ER PABBI ÞINN? HONUM LEIDDIST BIÐIN... ÉG ÁTTI AÐ SKILA TIL ÞÍN AÐ HANN MYNDI HITTA ÞIG Í VEISLUNNI DÖMUR MÍNAR OG HERRAR... KÖTTURINN ER KOMINN ÚR SEKKNUM... OG FÓR BEINA LEIÐ Í DÓSINA ÉG ÆTLA ALDREI AÐ BORÐA KARTÖFLUFLÖGUR FRAMAR FANNSTU ALLA KASSANA FYRIR LJÓSAHÁTÍÐINA? JÁ, HÉRNA ER SÁ FYRSTI ÉG FANN SILFUR- KERTASTJAKANN ÞINN... OG LÍKA ÞENNAN HÉRNA Ó... ÞESSI HMM... ERTU AÐ SEGJA MÉR AÐ ÞÚ VILJIR EKKI FARA ÚT AÐ BORÐA MEÐ SIMON KRANDIS... ...ÚT AF ÞESSUM AULA?!? MAÐURINN MINN ER ENGINN AULI! ÉG GÆTI PAKKAÐ HONUM SAMAN, EN ÞÁ KÆMIST HANN AÐ ÞVÍ HVER ÉG ER ÉG SÁ KARLINN Í TUNGLINU Í KVÖLD MM ÉG VISSI EKKI AÐ HANN KYNNI AÐ GRETTA SIG EN FRÁBÆRT Grandakaffi á sér eflaust þónokkra trausta fastagesti. Tveir félagar sátu í síðdegisblíðunni og röbbuðu um málefni líðandi stundar og nutu fé- lagsskaparins fyrir utan veitingastaðinn góðkunna. Morgunblaðið/Ómar Vinarþel við Grandakaffi Rafabelti og höfuðkinn UNDANFARNA daga hafa verið birt ýmis afbrigði þulunnar um rafabelti og höfuðkinn. Þulur sem þessi eru síbreytilegar og ógerningur að fullyrða að eitt sé réttara en annað. Í þessu tilviki eru helstu tilbrigðin í upphafinu. Elsta prentaða dæmi þessarar þulu er í Þulum og þjóð- kvæðum sem Ólafur Davíðsson gaf út 1898-1903. Þar er upphafið svona: „Við skulum róa rambinn rétt út á kambinn …“ (bls. 263) Neðanmáls er síðan tilgreint af- brigðið: „Faðir minn er róinn lángt út á sjóinn.“ Önnur tilbrigði eru í bók Einars Ól. Sveinssonar Fagrar heyrði ég raddirnar 1942, bls. 224, og í 3. bindi Íslenskra sjávarhátta Lúðvíks Kristjánssonar, 1983, bls. 256. Þekktasta gerðin mun þó vera í Vísnabókinni sem Símon Jóh. Ágústsson gaf fyrst út 1946, bls. 71. Auk þess hefur fjöldi afbrigða verið til í munnlegri geymd. Árni Björnsson. LÍN – R- og G-lán LÍN er dásamleg stofnun sem ég stend í ævarandi skuld við (bók- staflega). Það kostar mikla peninga að elta draumana sína en LÍN gerði mér, og fleirum, kleift að elta drauminn, og læra það sem ég vildi læra. Þótt róðurinn hafi stundum verið erfiður hef ég ekki séð eftir peningunum sem fara í afborganir af námslánunum, þótt mig svíði vissulega undan verðtryggingunni sem tryggir það að mér mun ekki duga ævin til að borga mína skuld. Mig langar að vita hvort mennta- málaráðuneytið geti að einhverju leyti beitt sér í því að gefa þeim sem þáðu R-lánaflokk námslána möguleika á því að breyta sínum lánum í G-lánaflokk eins og boðið var upp á árið 2005? Þetta myndi létta greiðslubyrði R-lántekenda sem voru ekki nógu séðir árið 2005 að breyta sínum lánum og töldu sig búa við nægi- legt launa- og atvinnu- öryggi til að tryggja afborganir af lánunum m.v. hærri endur- greiðsluprósentu. Þær forsendur eru nú brostnar enda hafa laun almennt lækkað – en mest vegur lækkun kaupmáttar þeirra launa. Nú er svo kom- ið að mig, og fleiri, munar um hverja krónu og fengi ég að greiða 3,75% af mín- um tekjum til LÍN í stað 4,75% myndi ég spara 45.000 krónur á ári. Mig munar um minna. Hannes Pálsson. Góð þjónusta hjá Suzuki MIG langar til að koma á framfæri góðri þjónustu hjá verkstæði Suz- uki-umboðsins. Starfsmennirnir Ár- mann og Sigurgeir reyndust mér afar vel í sambandi við viðgerð á bílnum mínum og alla hjálp sem þeir veittu mér vegna bílsins. Guðný Úlla Ingólfsdóttir. Seðlabankinn og Landspítalinn Í HVERT skipti sem skera á niður í ríkisrekstri er niðurskurð- arhnífnum beint að heilbrigðiskerf- inu. Hvernig væri nú að beina hon- um að Seðlabankanum? Þar vinna fleiri hundruð manns, hálaunafólk sem að hluta til borðar á kostnað skattgreiðenda. Kunnugir hafa sagt mér að fyrir nokkrum tugum ára hafi Seðlabankinn aðeins verið skúffa í Landsbankanum. Ég veit hvað fólk er að fást við á Landspít- ala en ég veit ekki hvað allt þetta fólk er að gera í Seðlabankanum - telja peninga sem ekki eru til? Spyr sá sem ekki veit. Svar óskast. Hrönn Jónsdóttir. Myndavél glataðist SVÖRT Casio EX-Z150-myndavél (eða 155) tapaðist í Garðabæ 18. apríl. Finnandi vinsamlegast hafi samband í s. 898-4099. Fundarlaun.      Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Bólstaðarhlíð 43 | Vorfagnaður verður á fimmtudaginn 14. maí kl. 17. Ragnar Bjarnarson og Þorvaldur Halldórsson sjá um stuðið: söngur, grín og dans. Veislu- matur frá Lárusi Loftssyni. Skráning í s. 535-2760 fyrir 12. maí. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skvettuball í félagsheimilinu Gullsmára kl. 20. Þorvaldur Halldórsson spilar og syngur fyrir dansi. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Bossíahópur FEBK verður með boðsmót í Gjábakka kl. 13, stjórnandi Garðar Alfonsson. Gestir frá Garðabæ, Vitatorgi og Ársölum. Félagsstarf Gerðubergi | Fegr- unardagar í Breiðholti í dag og á morg- un. Á morgun kl. 11 eru sorppokar og áhöld afhent til afnota á morgun kl. 11. Uppl. á breidholt.is Hraunsel | Vorsýning félaga eldri borg- ara Hafnarfirði opin kl. 13-16.30. Gafl- arakórinn heldur tónleika í Víðistaða- kirkju ásamt Garðakór miðvikudaginn 13. maí kl. 17 og 16. maí heldur Gafl- arakórinn tónleika í Víðistaðakirkju, ásamt 3 kórum utan af landi. Hæðargarður 31 | Myndlistarsýning Erlu Þorleifsdóttur og Stefán Bjarnason opin virka daga kl. 9-16. Skapandi skrif, hláturjóga, framsögn/framkoma, bar- áttuhópur um bætt veðurfar, hljóðbók- arhópur, bókmenntahópur, tai chi, þegar amma var ung, tölvuleiðbeiningar, World Class, morgunandakt, Qi gong o.fl. S. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snælands- skóla v/Víðigrund kl. 9.30. Uppl. í síma 564-1490, 554-5330 og 554-2780.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.