Morgunblaðið - 09.05.2009, Page 44
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009
Hugtakið „fullt út úr dyrum“ átti
afar vel við á fimmtudagskvöldið
þegar þeir Ari Eldjárn, Bergur
Ebbi úr Sprengjuhöllinni, Árni Vil-
hjálmsson úr FM Belfast og Dóri
DNA stóðu fyrir uppistandi á Ka-
ramba. Færri komust að en vildu og
þurftu fjölmargir frá að hverfa
vegna plássleysis. Félagarnir, sem
þóttu annars fara á kostum, hafa
lofað að endurtaka leikinn á stærri
stað áður en langt um líður.
Troðfullt hús á uppi-
standi á Karamba
Fólk
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Mjöðmin er skipað helstu merk-
isberum íslensks nýbylgjurokks. Leikmannalisti Mjaðmarinnar
er eins og nokkurs konar nýbylgjurokkaratal. Örvar í múm,
sem er fyrirliði, Númi Tómasson (Andhéri), Siggi Finns og Ein-
ar Sonic (Singapore Sling), Bjössi Borko, Högni og Guðmundur
Óskar úr Hjaltalín og Benni Hemm Hemm. Einnig leikur Daní-
el Bjarnason með liðinu svo og leikararnir Sveinn Ólafur
Gunnarsson og Jörundur Ragnarsson. Loji Höskuldsson,
úr vonarstjörnunum Sudden Weather Change er líka ný-
farinn að mæta og formaður félagsins er Steinþór Helgi
Aðalsteinsson, umboðsmaður Hjaltalín.
Liðið er skráð í áhugamannadeild, Carlsbergdeild-
ina, en þar gilda sömu reglur og í opinberu deildunum,
stilla þarf upp ellefu manna liði, keppnisbúningar
verða að vera os.fr.v. Mjöðmin keppti sinn fyrsta leik á þessu
tímabili í vikunni og vann frækilegan sigur á liðinu Cowboys
from Hell, 3-0. Er þetta reyndar í fyrsta skipti sem Mjöðmin fer
með sigur af hólmi síðan hún gekk í Carlsbergdeildina. Örvar í
múm og Högni Hjaltalín voru á meðal markaskorara en Örvar,
sem er varnarmaður, setti boltann glæsilega inn með stang-
arskoti.
Sindri Már Sigfússon, kenndur við Seabear, var
einn þeirra sem tóku þátt í þessum sögulega
leik.
„Við fögnuðum eins og við værum búnir að
vinna HM. Þetta er alltaf að verða betra og
betra hjá okkur. Ég sé fram á góða uppskeru í
sumar.“
Hin rússneska Tinatin sem er ein
þriggja höfunda Evróvisjón-
framlags okkar í ár bloggar um
keppnina á heimasíðu sinni (tinat-
inmusic.wordpress.com) og þar má
lesa um margt sem drífur á hennar
daga með íslenska hópnum. Til
dæmis segir hún frá því að flestar
konurnar í íslenska hópnum hafi
verið sársvekktar yfir því að gríski
flytjandinn Sakis Rouvas sem þyk-
ir líkastur grískum guði, hafi ekki
mætt til Evróvisjón-partísins sem
haldið var í vikunni. Segir Tinatin
það vel mögulegt að Rouvas sé of
fallegur fyrir fyrirsætubransann.
Of fallegur fyrir fyrir-
sætubransann
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA leggst rosalega vel í mig.
Þetta er frábært handrit þannig að
ég er afskaplega spenntur, enda á ís-
lenska þjóðin rétt á að fá að sjá þetta
stykki,“ segir Jóhannes Haukur Jó-
hannesson leikari sem mun fara með
titilhlutverkið í nýrri uppfærslu af
Hellisbúanum sem frumsýnd verður
í Íslensku óperunni hinn 4. sept-
ember næstkomandi. Verkið var
fyrst sýnt hér á landi fyrir rúmum
áratug og fór Bjarni Haukur Þórs-
son þá með hlutverk Hellisbúans.
Uppsetningin sló rækilega í gegn, en
frá frumsýningu árið 1998 til síðustu
sýningar árið 2001 sáu um 80.000
manns verkið. Að sögn aðstandenda
uppfærslunnar nú er það mesta að-
sókn á einleik á Íslandi fyrr og síðar.
Þeir stefna þó að því að gera enn
betur.
Í stuttu máli má segja að
Hellisbúinn fjalli um samskipti
kynjanna. „En verkið segir okkur
líka hvers vegna við erum eins og við
erum,“ segir Jóhannes. „Þetta er
náttúrlega rosalega skemmtilegt og
fyndið, en mér finnst maður líka
geta lært af þessu verki. Hellisbúinn
vitnar svolítið í fornöld, veiðimenn,
safnara og svo framvegis. Þetta
fjallar um hvernig það er innbyggt í
okkur og hefur fylgt okkur til nú-
tímans. Og þótt við séum ólík ættum
við að geta bætt hvert annað upp.“
Sá verkið 19 ára
Að sögn Jóhannesar byggist upp-
færslan nú á útgáfu sem sýnd er við
miklar vinsældir í Bretlandi um
þessar mundir. „Þar fer Mark nokk-
ur Little með hlutverk Hellisbúans,
en hann er hvað þekktastur fyrir
hlutverk sitt í Nágrönnum. Það er
handrit sem hefur fengið að þróast
og hann er búinn að gera mjög góða
hluti með. Við eigum hins vegar eftir
að fara vel yfir þetta og við þrír
munum sitja vel yfir þessu,“ segir
Jóhannes, en í þeim hópi fer Sig-
urjón Kjartansson fremstur í flokki.
„Hann þýðir þetta en svo er líka
ýmislegt sem þarf að breyta, það er
til dæmis talað um hafnabolta og
stöðvaflakk á sjónvarpinu. Það á
kannski ekki alveg við hérna, ég er
til dæmis bara með RÚV og Skjá
einn,“ segir Jóhannes og hlær.
Hellisbúinn er eftir Bandaríkja-
manninn Rob Becker og var frum-
sýnt í San Francisco árið 1991.
Verkið hefur verið sýnt víða um
heim við miklar vinsældir, en ís-
lenska fyrirtækið Theater Mogul
Productions á réttinn að því í dag.
Aðspurður segist Jóhannes hafa
séð verkið þegar það var fyrst sett
upp hér á landi. „Ég var 19 ára gam-
all þegar ég sá það. Ég man að mér
fannst rosalega gaman en mundi lít-
ið eftir því hvernig það nákvæmlega
var. Þannig að það kom mér
skemmtilega á óvart þegar ég las
það núna með augum fullorðins
manns hversu gott það er.“
Jóhannes Haukur Hellisbúi
Jóhannes Haukur Jóhannesson leikur Hellisbúann í nýrri uppfærslu í haust
Rúnar Freyr Gíslason leikstýrir og Sigurjón Kjartansson skrifar handrit
Morgunblaðið/Heiddi
Þrír góðir Rúnar, Jóhannes og Sigurjón færa okkur nýjan Hellisbúa.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„FÓLK man ennþá eftir þessum
auglýsingum, og ég hélt að ég gæti
ekki notað appelsínugult það sem
eftir er. En ég er nýbyrjuð að
kaupa mér appelsínugular flíkur
aftur,“ segir fyrirsætan Anna Rak-
el Róbertsdóttir sem prýðir aug-
lýsingar frá símafyrirtækinu Tali
um þessar mundir.
Margir muna eflaust eftir um
það bil tíu ára gömlum auglýs-
ingum frá Tali þar sem Anna Rak-
el var einnig í aðalhlutverkinu, en
þær vöktu á sínum tíma mikla at-
hygli á henni sem fyrirsætu.
„Enda voru þær mjög flottar og
vel unnar þannig að eðlilega vöktu
þær mikla athygli,“ segir fyr-
irsætan sem sagði já um leið og
leitað var til hennar að þessu sinni.
„Auglýsingastofan Vatíkanið vinn-
ur þessar auglýsingar núna, ég
þekki þá alla þannig að ég sagði já
um leið.“
Auglýsingarnar nú minna um
margt á þær sem gerðar voru fyrir
áratug, eru einfaldar og stíl-
hreinar, og hvergi sést í síma.
„Þetta eru bara skýr skilaboð,“
segir Anna Rakel sem er annars að
læra grafíska hönnun við Listahá-
skóla Íslands um þessar mundir,
og á eitt ár eftir.
Situr fyrir hjá Tali
á tíu ára fresti
Sæt Anna Rakel í auglýsingunni.
Hestar og vísindi
Nám í hestafræðum nýtur sívaxandi vinsælda. LbhÍ býður
upp á sérhæft nám sem miðar meðal annars að rekstri
hrossabúa, sérhæfðri þjónustu, ráðgjöf og hverskyns
miðlun þekkingar við hrossaræktendur og hestamenn.
Einnig er möguleiki á frekara rannsóknanámi á þessu sviði
til doktorsgráðu.
Kynntu þér nám í hestafræðum
á heimasíðu skólans: www.lbhi.is
A
U
Ð
L
IN
D
A
D
E
IL
D
P
L
Á
N
E
T
A
N
Uppávið Sindri Seabear er í Mjöðminni.
Mjöðmin sigraði Cow boys from Hell