Morgunblaðið - 09.05.2009, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 09.05.2009, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is „ÉG er bara nokkuð slakur. Það er ekki mikil pressa á mér,“ segir Börkur Hrafn Birgisson, stundum kenndur við Jagúar, bjartri röddu þegar Morg- unblaðið slær á hann úti í Moskvu. Hann er staddur í íslenska sendi- ráðinu ásamt Evróvisjónmeðreið- arsveinum og -meyjum og leyfir lífinu að leika við sig. „Þetta er eiginlega meira eins og kærkomið frí,“ segir hann. Tónlistin í aukahlutverki Börkur segir að það sé mun minni móðursýki í kringum keppnina en hann hefði búist við. „Lagið okkar er einfalt og ég geri ekki mikið á sviðinu. Ja, nema mæma, en það er í fyrsta skipti sem ég geri slíkt á ferlinum. Ég neita því ekki að það er dálítið skrítið fyrir svona tón- listarsnobbara eins og mig (hlær). En Evróvisjón snýst meira um „sjó“ og umgjörð en sjálfa tónlistina, alveg eins og í allri markaðs- og popptónlist. En þetta er alveg bráðskemmtilegt allt saman, það er ekki það.“ Börkur viðurkennir að hann sé pínu utangátta þarna, eins og herberg- isfélagi hans, sellóleikarinn Hall- grímur J. Jensson. „Við komum dálítið úr öðrum geira. Við höfum t.a.m. aldrei kíkt á hinn vin- sæla Evróvisjónklúbb!“ Börkur treystir sér ekki til að segja fyrir um gengi lagsins. „Þetta er samt býsna gott lag, svona einföld og saklaus poppballaða. Við hljótum að komast áfram ef tónlist- argyðjan er í sanngjörnu skapi. Þessir veðbankar hérna vita svo náttúrlega ekki neitt. Þeir eru jafntraustir og greiningardeildir bankanna eða stjörnuspár.“ Bjóst við meiri móðursýki Sannur Börkur slær á létta strengi á blaðamannafundi í fyrradag.  Börkur Hrafn Birgisson gítarleikari ætlar að mæma í fyrsta skipti á ferlinum  Evróvisjón snýst lítið um tónlist SPENNAN í garð söngvakeppn- innar sem allir hata að elska og allir elska að hata fer nú stigvax- andi með degi hverjum. Nú er endalaust skrafað og skeggrætt um það hver hljóti nú hnossið og hefur hið framsækna fyrirtæki Google – að sjálfsögðu – reynt að tækla þessa óvissu með vísinda- legum hætti. Forritarar þar hafa nú hannað síðu eða veftól sem segir fyrir um sigurvegara með því að safna saman leitartölum á bak við hvern og einn keppanda. Þarfaþingið má nálgast á: www.- google.com/eurovision. Eins og staðan er akkúrat núna er það hin þokkafulla Ha- dise frá Tyrklandi sem yrði sig- urvegari en tiltölulega fast á hæla henni kemur Norðmaðurinn Alexander Rybak sem hefur auk vefleitar alla helstu veðbankana og fræðinga á bak við sig. Grikk- inn olíuborni, Sakis, er svo í þriðja sæti. Tólið þarf þó að taka með drjúgum fyrirvara samkvæmt Evróvisjóngreininingardeild Morgunblaðsins. Athuga ber að helmingsvægi stiga í úrslitunum liggur hjá dómnefndum og Go- ogle getur eðlilega ekki spáð um slíkt, eins og reyndar er tekið fram á síðunni. Gæti þessi góða spá fyrir Tyrkland líka mögulega stafað af því að Tyrkir séu óvenjuáhugasamir og liggi því á netinu nótt sem dag? Samkvæmt spánni er Ísland líka í 35. sæti sem er auðvitað nóg til að lýsa algjöru frati á veftólið. Tyrkland sigrar í Evró- visjón samkvæmt Google Sigurvegari? Hadise frá Tyrklandi er heit og mun kannski sigra í ár. Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 750kr. 750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA Boat that rocked kl. 3 (500 kr.) - 6 - 9 B.i.12 ára X Men Origins: Wolverine kl. 4 (500 kr.) - 6:30 - 9 B.i.14 ára Múmínálfarnir kl. 4 (500 kr.) LEYFÐ STÆ RST A OP NU NIN Á Á RIN U ....ERTU NÓGU MIKILL MAÐUR TIL AÐ SEGJA ÞAÐ? “ÞESSI MYND HÉLT MÉR ANNAÐ HVORT GLOTTANDI EÐA SKELLI- HLÆJANDI ÚT ALLA LENGDINA. MÆLI VEL MEÐ HENNI.” TOMMI - KVIKMYNDIR.IS ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA KNOCKED UP OG FORGETTING SARAH MARSHALL 750k r. JASON STATHAM ER MÆTTUR AFTUR Í HLUTVERKI HINS ÓDREPANLEGA CHEV CHELIOS GEÐVEIKIN STOPPAR ALDREI, OG VIRÐIST ÞEIM FÉLÖGUM, LEIKSTJÓRUNUM NEVELDINE OG TAYLOR FÁTT VERA ÓMÖGULEGT. - V.J.V., - TOPP5.IS SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI HÖRKUSPENNANDI MYND FRÁ LEIKSTJÓRA THE LAST KING OF SCOTLAND 750k r. 750k r. State of Play kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára I love you man kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Fast and Furious kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Crank kl. 3:30 - 5:50 - 8 -10:10 B.i. 16 ára Mall Cop kl. 3:30 LEYFÐ SÝND Í SMÁRABÍÓI Draumalandið kl. 3:30 - 6 - 8 -10 LEYFÐ I love you man kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i.12 VINSÆLASTA MYNDIN Í HEIMINUM Í DAG! HÖRKU HASAR! HÖRKU HASAR! GEÐVEIKIN STOPPAR ALDREI, OG VIRÐIST ÞEIM FÉLÖGUM, LEIKSTJÓRUNUM NEVELDINE OG TAYLOR FÁTT VERA ÓMÖGULEGT. - V.J.V., - TOPP5.IS SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Nú eru Múminálfarnir komnir með sína fyrstu bíómynd sem segir frá stærsta ævintýrinu sem þeir hafa nokkurn tíma lent í. 650 kr. VINSÆL ASTA MY NDIN Í HEIMIN UM Í DA G! JASON STATHAM ER MÆTTUR AFTUR Í HLUTVERKI HINS ÓDREPANLEGA CHEV CHELIOS 750k r. Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú b X-Men Origins: Wolverine kl. 4 - 8 - 10 B.i.16 ára Boat that rocked kl. 8 - 10:10 B.i.12 ára Draumalandið kl. 6 LEYFÐ Múmínálfarnir kl. 4 - 6 LEYFÐ HVER SEGIR AÐ ÞÚ SÉRT BARA UNGUR EINU SINNI? BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND SEM KEMUR ÖLLUM TIL AÐ HLÆGJA SÝND Í SMÁRABÍÓI Bráðskemmtileg mynd fyrir alla fjölskylduna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.