Morgunblaðið - 26.05.2009, Síða 2
HREFNUVEIÐIMENN voru í gær í Njarðvík að
gera Jóhönnu ÁR 206 klára til hrefnuveiða. Þeir
voru að smíða pall sem skyttunni er ætlað að
standa á og dytta að ýmsu öðru um borð.
Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmda-
stjóri Félags hrefnuveiðimanna, sagði að Jó-
hanna ÁR byrjaði veiðarnar en tveir aðrir bátar
mundu einnig veiða hrefnu í sumar.
Jóhanna ÁR er stórt og vel búið skip. Gunnar
sagði að á henni væri hægt að sækja lengra og
fleiri dýr í einu en á minni bátum. Þá er um borð
krapakerfi sem gerir kleift að kæla kjötið strax.
GERA KLÁRT FYRIR HREFNUVEIÐAR Í DAG
Morgunblaðið/RAX
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Kastað til höndunum
Ríkisstjórninni falið að sækja um ESB-aðild samkvæmt stjórnartillögu á þingi
Munum ekki veita þetta opna umboð að óbreyttu, segir Þorgerður Katrín
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
SAMKVÆMT tillögunni verður ríkisstjórninni fal-
ið að sækja um aðild að Evrópusambandinu, ESB.
Að loknum viðræðum við sambandið verður haldin
þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildar-
samning. „Við munum ekki veita þeim þetta opna
umboð að óbreyttu. Mér finnst að það hafi verið
kastað til höndunum,“ segir Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
og bætir því við að þingmenn flokksins muni tjá sig
frekar um tillöguna í þingumræðum.
Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismála-
nefndar og þingmaður Vinstri grænna, segir að
væntanlega muni þingmenn flokksins greiða at-
kvæði með mismunandi hætti. „Það eru skiptar
skoðanir um málið hjá okkur.“
Árni telur að þingmenn Vinstri grænna muni
ekki reyna að tefja málið. „Við munum hins vegar
tryggja vandaða umfjöllun og málsmeðferð í
þinginu.“
Í tillögudrögunum segir að stjórnvöld áskilji sér
rétt til að mæla með eða leggjast gegn samningnum
þegar hann liggur fyrir enda séu settir margvísleg-
ir fyrirvarar við hugsanlegan stuðning við málið. Í
sjálfri tillögunni, sem lögð var fram á Alþingi í gær,
hefur orðinu stjórnvöld í framangreindri setningu
verið breytt í málsaðilar. „Stjórnvöld eru í mínum
huga framkvæmdavaldið. Það koma fleiri að málinu
og orðið málsaðilar er almennara. Það nær vænt-
anlega til allra stjórnmálaflokkanna og hugsanlega
samtaka hagsmunaaðila,“ segir Árni Þór.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, segir tillöguna enn ekki hafa
verið rædda í þingflokknum.
„Ég get þó sagt að ég hefði átt von á að sjá meiri
breytingar. Þarna er bara verið að fela ríkisstjórn
umboð til aðildarviðræðna og þá væntanlega bara
helmingi ríkisstjórnarinnar, það er Samfylking-
unni, því að Vinstri græn hafa lýst því yfir að þau
séu ekki hlynnt aðildarviðræðum á þessum tíma-
punkti,“ segir Sigmundur Davíð.
Stjórnartillaga um aðildarumsókn að Evrópu-
sambandinu var lögð fyrir Alþingi í gær. Til-
lagan er nánast samhljóða drögum sem utan-
ríkisráðuneytið kynnti um miðjan maí.
Eftir Bergþóru Njálu
Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
BÆJARSTJÓRN Akraneskaup-
staðar mun ákveða í dag að láta mál-
efni Byggðasafnsins í Görðum og
Listasetursins Kirkjuhvols „liggja að
sinni“, að sögn Gísla S. Einarssonar
bæjarstjóra. Til stóð að Vættir ehf.
tækju yfir rekstur safnanna í þessum
mánuði en áformin mættu harðri
andstöðu Safnaráðs, þjóðminjavarð-
ar og bæjarbúa.
Afgreiðslunni var frestað í síðasta
mánuði meðan beðið var eftir um-
sögn Safnaráðs og þjóðminjavarðar
um málið. Hún var tilbúin í síðustu
viku og var lögð fram í bæjarráði á
dögunum en verður tekin fyrir í bæj-
arstjórn í dag. „Að sinni verður ekk-
ert gert í málinu, heldur látum við
það liggja, “ segir Gísli. „Reksturinn
verður bara áfram eins og hann er.
Mér finnst ótrúlegt að við förum af
stað í sumar, enda er að koma að
leyfum bæjarstjórnar og mér sýnist
sem þessi mál séu af þeim toga að
það gerist ekkert í þessu fram að
því.“
Í umsögn sinni leggst Safnaráð
sterklega gegn áformunum. „Það eru
afar þung orð látin falla í þessari um-
sögn og ég reikna með að menn þurfi
að fá að skoða mjög vel hver ástæðan
er fyrir henni. Okkur liggur ekkert á
í málinu,“ segir Gísli. Hann bætir því
við að umsögnin sé m.a. ástæða þess
að beðið verði með málið. „Einnig
þessi mikla andstaða og að mínu mati
umfjöllun í Morgunblaðinu um Forn-
leifastofnun Íslands (FSÍ).“ Þar kom
m.a. fram að Framkvæmdasýsla rík-
isins teldi FSÍ beita siðferðilega og
lagalega hæpnum aðferðum til að
viðhalda markaðsráðandi stöðu sinni
á sviði fornleifagraftar á Íslandi.
Adolf Friðriksson fornleifafræð-
ingur, sem er í forsvari fyrir Vætti, á
einnig sæti í stjórn FSÍ.
Bæjarstjórn frestar einka-
rekstri byggðasafnsins
Ástæðan er hörð andstaða og umfjöllun um Fornleifastofnun
Morgunblaðið/Ásdís
Byggðasafn Kútter Sigurfari og
bátarnir í Görðum á Akranesi.
HREIÐUR með
fjórum heiðlóu-
eggjum fannst í
hálfgrónu hrauni
á suðurhluta
Surtseyjar þegar
leiðangur var
farinn til eyj-
arinnar í síðustu
viku til að setja
upp sjálfvirka
veðurstöð. Hafði
lóan gert sér hreiður í melgres-
istoppi. Fram kemur á vef Nátt-
úrufræðistofnunar, að heiðlóa sé
fyrsti vaðfuglinn sem verpir í Surts-
ey. Hún sé jafnframt fimmtánda
tegundin sem verpir þar og sjötti
landfuglinn.
Heiðlóan í
Surtsey
Lóa Hefur numið
land í Surtsey.
LÍÐAN níu ára drengs, sem slas-
aðist í umferðarslysi á uppstigning-
ardag, er óbreytt frá því sem verið
hefur undanfarna daga, að sögn
vakthafandi læknis. Drengurinn er á
gjörgæsludeild á Landspítalanum
og í öndunarvél.
Drengurinn varð fyrir bíl í
Steinási í Garðabæ. Meiðsl hans
voru talin minniháttar í fyrstu.
Líðan drengs-
ins óbreytt
Í drögunum að tillögunni um að-
ildarumsókn að ESB segir að
„stjórnvöld“ áskilji sér rétt til
að mæla með eða leggjast gegn
samningnum. Þar segir einnig
að Alþingi „meti“ hvort setja
skuli sérstaka Evrópunefnd Al-
þingis.
Eftir
Í tillögunni hefur orðinu stjórn-
völd verið breytt í „málsaðilar“.
Jafnframt segir að „stefnt“ sé
að því að Alþingi setji á fót sér-
staka Evrópunefnd Alþingis en
ekki að Alþingi meti hvort setja
skuli nefndina á fót. Eftirfarandi
hefur verið bætt við grundvall-
arhagsmunina: Náð verði fram
hagstæðu og vaxtarhvetjandi
samkeppnis- og starfsumhverfi
fyrir atvinnulíf á Íslandi um leið
og sérstöðu vegna sérstakra
aðstæðna er gætt.
Fyrir