Morgunblaðið - 26.05.2009, Blaðsíða 4
Flensan smitaðist ekki
SVÍNAFLENSAN hefur ekki breiðst á Íslandi, umfram
manninn sem hingað kom sýktur frá New York fyrir
helgi. Sýni sem tekin voru úr sex skyldmennum hans
reyndust vera neikvæð eða laus við H1N1-veiruna.
Að sögn Haralds Briem sóttvarnalæknis verður áfram
fylgst með sexmenningunum næstu daga en ekki ástæða
til að gera sérstakar ráðstafanir. Sóttvarnalæknir og al-
mannavarnadeild boðuðu í gær til sameiginlegs fundar
með lögreglustjórum af landinu öllu til að fjalla um við-
bragðsáætlanir vegna farsótta.
„Við erum bara að fínslípa þetta en við erum ekki með
miklar aðgerðir núna í sjálfu sér þótt inflúensan sé komin
inn í landið, einfaldlega vegna þess að þetta hefur þá
mynd á sér að vera eins og venjulegur inflúensufarald-
ur,“ segir Haraldur. Veikindi Íslendingsins sem sýktist
reyndust vera væg og er hann á batavegi án þess að þurfa
á meðferð eða lyfjagjöf að halda.
Að sögn Haralds er ekki hætta á því að veiran taki sig
upp aftur, heldur hafi líkami mannsins nú myndað mót-
efni gegn henni. Inflúensan er því í litlu frábrugðin
venjulegri flensu, sem er raunar enn á sveimi. „Það hafa
þrír stofnar verið í gangi í vetur, einn tekur við af öðrum,
en það er óvenjulegt hvað hún teygir úr sér. Kannski
vekur það athygli nú því við erum meira á verði, við höf-
um ekki tekið svona sýni í venjulegu árferði.“
gudni@mbl.is
Ættingjar mannsins sem veiktist af H1N1 reyndust ekki
hafa smitast Ekki alvarlegri en venjubundin inflúensa
Morgunblaðið/Kristinn
Flensulyf Íslendingurinn jafnaði sig án hjálpar lyfja.
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ÍSLENSK stjórnvöld ættu að við-
halda fjárfestingum í menntun á öll-
um skólastigum, endurskoða
mennta- og rannsóknakerfið og
sameina háskóla landsins, leggja
áherslu á nýsköpun, bæta og styrkja
stjórnsýslu rannsókna og nýsköp-
unar og ná samstöðu um skamm-
tímabreytingar og hrinda þeim síð-
an hratt í framkvæmd. Þetta eru
meginniðurstöður nefndar al-
þjóðlegra sérfræðinga sem skipuð
var í tíð ríkisstjórnar Samfylkingar
og Sjálfstæðisflokks og haft hefur
það að hlutverki frá upphafi árs að
fjalla um framtíð menntunar, rann-
sókna og nýsköpunar á Íslandi.
Nefndin skilaði niðurstöðum sínum í
gær og kynnti þær Katrínu Jak-
obsdóttur menntamálaráðherra,
Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráð-
herra og háskólarektorum landsins.
Einfalda ætti aðgang að
samkeppnisfé til rannsókna
Sérfræðinganefndin var skipuð
Christoffer Taxell, fyrrverandi ráð-
herra vísinda- og tæknimála og nú-
verandi kanslara Åbo Akademi há-
skólans í Finnlandi og formanni
nefndarinnar, Richard Yelland, for-
stöðumanni menntaáætlunar og
innviðadeildar hjá OECD, Iain
Gillespie, forstöðumanni vísinda- og
tæknistefnudeildar hjá OECD,
Markku Linna, fyrrverandi ráðu-
neytisstjóra menntamálaráðuneytis
Finnlands, og Arnold Verbeek, sér-
fræðingi á sviði vísinda, tækni og
nýsköpunar hjá ráðgjafafyrirtækinu
IDEA í Brussel.
Meðal þess sem nefndin leggur til
er að íslenska háskólakerfið verði
endurskipulagt eins fljótt og auðið
er með nýrri sýn á það hvernig megi
hámarka hugsanleg samlegðaráhrif
og hagræðingu. Telja sérfræðing-
arnir tveggja háskóla kerfi líklegast
til að tryggja langtíma árangur.
„Einn háskóli byggður á Háskól-
anum í Reykjavík, með Listahá-
skóla Íslands og Háskólanum á Bif-
röst, og annar háskóli byggður á
Háskóla Íslands með öllum rík-
isháskólunum. Til skamms tíma
þýðir það að hér verði einn einkahá-
skóli og einn ríkisháskóli, en þegar
til lengri tíma er litið leggjum við til
að þessi munur verði afmáður,“ seg-
ir m.a. í skýrslunni. Tekið er sér-
staklega fram að háskólanir tveir
ættu að halda í landsbyggðarútibúin
sem nauðsynlegan hluta starfsem-
innar.
Að mati nefndarmanna ætti að
setja upp einn rannsóknarnáms-
skóla að erlendri fyrirmynd. Slíkt
myndi hjálpa til við að brúa bilið
milli háskólanna tveggja og gera op-
inberum rannsóknarstofnunum og
atvinnulífinu auðveldara að þróa
sameiginleg rannsóknarverkefni
eða kennslu- og rannsóknastöður.
Jafnframt ætti að einfalda aðgang
að samkeppnisfé til rannsókna.
Nefndin mælir með því að stefnt
verði að gagnsærra fjármögn-
unarkerfi fyrir háskólana. „Þegar
mismunandi fjárstreymi er skoðað
þarf sérstaklega að huga að því að
fjármögnun rannsókna og inn-
heimta skólagjalda verði sambæri-
leg í öllu kerfinu. Hvað varðar skóla-
gjöld sérstaklega þá er nauðsynlegt
að skoða þau almennt og hugs-
anlega taka þau upp á stærri skala
en er gert í dag.“
Leggja ætti áherslu á þrjú svið
Sérfræðinefndin bendir á að hag-
kerfi Íslands sé of lítið til að landið
geti keppt alþjóðlega á öllum svið-
um vísinda, tækni og nýsköpunar.
Því leggur nefndin til að áhersla
verði lögð á tiltekin svið þar sem
möguleikar á vexti eru góðir. „Okk-
ur virðast þrjú fræðisvið sér-
staklega lofandi: Jarðhitavísindi, líf-
vísindi og skapandi
greinar/upplýsingatækni,“ segir
m.a. í skýrslunni. Tekið er fram að
heilbrigðisvísindi sé lofandi svið sem
ekki sé fullnýtt hérlendis. Jafnframt
ráðleggur nefndin ríkisstjórn Ís-
lands að beita sér sérstaklega á
skýran og gagnsæjan hátt fyrir því
að varðveita þekkingargrunninn
sem Íslensk erfðagreining hafi
byggt upp.
Morgunblaðið/Ómar
Háskóli Íslands Meðal þess sem sérfræðingarnir leggja til er að allir ríkisháskólar landsins verði sameinaðir undir merkjum eins skóla.
Tveggja háskóla kerfi
Nefnd erlendra sérfræðinga hvetur til þess að menntakerfið verði endur-
skipulagt og háskólar sameinaðir Sérfræðingar hvetja til áherslu á nýsköpun
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn-
ismála hefur staðfest niðurstöðu
Samkeppniseftirlitsins, að Bænda-
samtök Íslands (BÍ) hafi brotið
samkeppnislög. Nefndin segir m.a.
að verðlagning búvara sem ekki eru
verðlagðar á grundvelli búvörulaga
lúti „lögmálum hins frjálsa mark-
aðar og þar með ákvæðum sam-
keppnislaga eins og samkeppnisyf-
irvöld hafa staðfest hvað eftir
annað með úrskurðum þar að lút-
andi“.
Nefndin staðfesti einnig að BÍ
hefði brotið gegn samkeppnislögum
með aðgerðum sem miðuðu að því
að hækka verð á búvörum og taldi
nefndin að um óvefengjanlegt lög-
brot hefði verið að ræða, að því er
fram kemur á vef Samkeppniseft-
irlitsins.
Þar segir að áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála hafi talið hæfilegt að
lækka sekt BÍ í sjö og hálfa milljón
kr. Var í því sambandi vísað til þess
að um fyrsta brot BÍ væri að ræða
og að opinskáar umræður hefðu
lengi viðgengist á vettvangi BÍ án
afskipta. Áfrýjunarnefnd taldi fyr-
irmæli Samkeppniseftirlitsins til BÍ
um aðgerðir til að koma í veg fyrir
að samskonar brot yrðu endurtekin
of almenn og felldi þau úr gildi.
Bændur
brutu sam-
keppnislög
Áfrýjunarnefnd
lækkaði sektina
REKTORAR ís-
lensku háskól-
anna ætla að hitt-
ast síðar í vikunni
til að ræða
skýrslu erlendu
ráðgjafanna.
Einnig um
skýrslu íslenskr-
ar nefndar um
háskólastigið, en
hún mun ætla að
skila af sér í dag.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, sagði margar gagn-
legar ábendingar í skýrslu erlendu
ráðgjafanna. Þeir leggi áherslu á að
staðinn verði vörður um íslenska
menntakerfið á öllum stigum.
Hún benti m.a. á að í niðurstöðu
erlendu ráðgjafanna hefði ekki fylgt
hvaða sparnaður fælist í því að sam-
eina Háskóla Íslands og Háskólann
á Akureyri. Sjálf kvaðst hún ekki sjá
fjárhagslegan sparnað í því.
Kristín
Ingólfsdóttir
Háskólarekt-
orar ætla að
ræða málin
„ÞARNA eru ýmsar áhugaverðar hugmyndir, sumar
góðar við fyrstu sýn en aðrar þurfa frekari umræðu
og skoðun,“ segir Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra um skýrslu alþjóðlegu sérfræðing-
anna. Segist hún þegar vera búin að kalla saman
rýnihóp úr háskólasamfélaginu sem leggjast muni
yfir tillögurnar í sumar, auk þess sem tillögurnar
verði til umræðu hjá háskólarektorum landsins.
Undirstrikar hún að stjórnvöld hafi enn ekki tekið
efnislega afstöðu til breytinganna.
Spurð hvort til greina komi að taka upp skóla-
gjöld á stærra skala en gert er í dag, líkt og nefndin
leggur til, segir Katrín ljóst að sú tillaga hugnist sér ekki. Katrín bend-
ir á að hún hafi talað fyrir aukinni samvinnu háskóla landsins en tekur
fram að hún hafi ákveðnar efasemdir um að bein sameining þeirra sé
besta leiðin þar sem rekstrarform þeirra sé afar ólíkt. Segist hún þó
sammála því að mikilvægt sé að auka gagnsæið í fjármögnun þeirra.
Rýna þarf betur í hugmyndirnar í sumar
Katrín
Jakobsdóttir