Morgunblaðið - 26.05.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009
HIN tvítuga Elín Ásta Ólafsdóttir út-
skrifaðist á laugardag með glæsileg-
asta námsárangur sem sést hefur í
Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hún
setti bæði einkunnamet og einingamet
– 9,93 í meðaleinkunn og einingafjölda
225, en dagskólastúdentar þurfa 140
einingar til að klára nám af bóknáms-
braut.
„Ég tók 180 einingar í bóklega hlut-
anum og síðan fékk ég 45 fyrir tónlist-
arnám,“ segir Elín en þrátt fyrir
þessa aukaáfanga lengdist námstím-
inn ekki. „Síðasta önnin var eiginlega
auka. Ég kláraði alla kjarnaáfanga um
jólin og hefði getað útskrifast en
ákvað að vera til vors. Ég tók
skemmtilega valáfanga, því ég vissi
ekki hvað tæki við,“ segir hún.
Elín spilar á fiðlu og píanó og nem-
ur við Tónlistarskóla Kópavogs. Hún
byrjaði tónlistarnámið í Fossvogs-
skóla í upphafi skólagöngunnar en
bætti píanónáminu við um níu ára ald-
ur og fiðlunni ári seinna. „Núna er ég
á síðari hluta framhaldsnáms á bæði
hljóðfærin.“
Elín gerir þessa dagana upp við sig
hvort hún hefur háskólanám í haust,
og þá í raungreinum, eða gefur tón-
listinni einni eitt ár: „Enn er allt opið
og ég hugsa málið.“
Ekki er samkeppni milli vinanna og
hún tók því með jafnaðargeði þegar
hún fékk níu fjórum sinnum á náms-
leiðinni. „Ég fann þó að á síðustu önn
var ég svona svolítið að reyna að
standa mig vel til að fara ekki að
skemma einkunnina,“ segir hún í
gamansömum tóni og fullyrðir að
hún hafi ekki legið yfir bókunum
þessi fjögur ár. „Þetta snýst um
skipulag og að hafa áhuga á því sem
maður er að gera og velja sér grein-
ar sem maður hefur gaman af. Ég
hef alltaf reynt að gera mitt besta í
öllu sem ég tek mér fyrir hendur.“
Alls brautskráðust 153 stúdentar í
hátíðarsal Menntaskólans, 93 konur
og 60 karlar, á laugardaginn síðasta.
gag@mbl.is
Með glæsileg-
asta árangurinn
Elín Ásta Ólafsdóttir lauk 225 einingum
á fjórum árum með meðaleinkunn 9,93
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Dúx Elín Ásta Ólafsdóttir lauk stúd-
entsprófi með glæsilegum árangri.
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
VIÐSKIPTI Kópavogsbæjar við
fyrirtækið Frjálsa miðlun, sem er í
eigu dóttur Gunnars I. Birgissonar
bæjarstjóra, eru nú til rannsóknar
hjá löggiltum endurskoðendum bæj-
arins og í biðstöðu þar til úttekt
þeirra liggur fyrir.
Gunnar er sakaður um að hafa
staðið fyrir óeðlilega háum
greiðslum, um 50 milljónum króna,
til fyrirtækis dóttur sinnar vegna
verkefna sem bærinn fól því á tíma-
bilinu 2003-2008. Að sögn Gunn-
steins Sigurðssonar, bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, kom til um-
ræðu í bæjarráði hvort réttara og
eðlilegra væri að fela utanaðkom-
andi aðilum rannsókn málsins.
Engin tortryggni vakni
„Það sem farið er fram á er nokk-
urs konar innri endurskoðun og þá
hafa sumir haldið því fram, og ég get
alveg skilið það, að ekki sé endilega
eðlilegt að fela það sömu endurskoð-
unarskrifstofunni og fer með endur-
skoðun hjá bænum.“
Fullkomin sátt hafi hins vegar
náðst um þá niðurstöðu fyrir helgi
að fela Ómari Stefánssyni, formanni
bæjarráðs, að hafa umsjón með
vinnu endurskoðendanna og taka
ákvörðun um framhaldið. „Meg-
inmálið var að við vildum vanda okk-
ur og standa þannig að málum að
það vekti enga tortryggni.“
Ómar Stefánsson, formaður bæj-
arráðs og fulltrúi Framsókn-
arflokksins, vildi ekki tjá sig um
hvort hann teldi tryggt að málið
hlyti hlutlausa afgreiðslu hjá endur-
skoðendum Kópavogsbæjar.
Framsóknarmenn í Kópavogi
funduðu vegna greiðslnanna fyrir
helgi og komu meirihlutaslit til tals
en ákveðið var að bíða niðurstöðu
rannsóknarinnar áður en ákvörðun
yrði tekin um framhaldið. Búist er
við að rannsóknin taki stuttan tíma
þar sem einungis þetta eina fyr-
irtæki er til skoðunar.
Á sama tíma er einnig beðið nið-
urstöðu Ríkisendurskoðunar á
greiðslum til sama fyrirækis frá
Lánasjóði íslenskra námsmanna,
sem námu um 11 milljónum króna, á
meðan Gunnar Birgisson sat þar í
stjórn. Stjórn LÍN taldi eðlilegast að
utanaðkomandi rannsökuðu málið.
Greiðslur Gunnars
skoðaðar í kjölinn
Viðskipti við dóttur Gunnars I. Birgissonar á borði endur-
skoðenda Vafi um hlutlausa meðferð hjá Kópavogsbæ
Ómar
Stefánsson
Gunnsteinn
Sigurðsson
Um hvað snýst málið?
Bæjarfulltrúar Samfylkingar lögðu
í apríl fram fyrirspurn um alls tæp-
lega 50 milljóna króna greiðslur bæj-
arins til fyrirtækis í eigu dóttur
Gunnars Birgissonar. Greiðslurnar
þykja óeðlilegar vegna tengslanna,
einkum þar sem fyrirtækið hafi feng-
ið verkefni án útboðs og sum þeirra
aldrei verið kláruð. Í kjölfarið kom
einnig fram að Frjáls miðlun hafi átt
sambærileg viðskipti við LÍN á með-
an Gunnar Birgisson sat þar í stjórn.
Hvernig stendur málið nú?
Gunnar Birgisson hefur sagt að fé-
lag dóttur hans hafi boðið lægst í
umrædd verk og viðskiptin því ekki
verið óeðlileg. Endurskoðendur fara
nú yfir hvort um eðlilega við-
skiptahætti hafi verið að ræða.
S&S