Morgunblaðið - 26.05.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið í Galleríi Fold virka daga 10–18, laugardaga 11–14, lokað sunnudaga
Listmunauppboð
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Erum að taka á móti verkum
á næsta listmunauppboð
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
RANNSÓKNARNEFND flugslysa
bíður eftur gögnum um flugatvik
við Sandskeið um næstsíðustu
helgi. Maður sveif á svifvæng í yfir
3.000 feta hæð yfir æfingasvæðinu
þegar þota í aðflugi flaug hjá. Hann
var ofan við skíðalyftur Bláfjalla.
Þorkell Ágústsson, forstöðumað-
ur rannsóknarnefndarinnar (RNF),
býst við að gögnin berist í dag.
„Þetta atvik fer í frekari skoðun.“
Samkvæmt upplýsingum Flug-
málastjórnar Íslands er ekki hægt
að fullyrða neitt um alvarleika flug-
atviksins og bíður því Flug-
málastjórn átekta á meðan gagna-
söfnun rannsóknarnefndarinnar
fer fram. „Það fer síðan eftir því
hvort RNF rannsakar málið áfram
hvað Flugmálastjórn gerir,“ segir
Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Flugmálastjórnar.
Flugmenn þotunnar tilkynntu um
atvikið en svifvængsmaðurinn sótti
ekki um leyfi áður en hann fór yfir
3000 fetin, eins og þarf á þessu
svæði, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Þorkell segir erfitt að svo stöddu
að tjá sig um hvort svifvængur geti
grandað þotum. Það fari eftir stærð
og hvar hann lendi á vélinni.
Ágúst Guðmundsson, formaður
Fisfélags Reykjavíkur, segir atvikið
einstakt í sögu félagsins. Maðurinn
sem mætti þotunni sé þaulvanur.
Margir hafi flogið þennan dag en
þessi hafi verið einn á sínu svæði.
Farið verði nánar yfir atvikið.
Einstakt flugatvik
til rannsóknar
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„ÉG vil undirstrika það hér að Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn ræður ekki
ferðinni,“ sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra þegar hún
flutti Alþingi skýrslu um efnahags-
horfurnar í gær. „Það eru íslensk
stjórnvöld og íslenski Seðlabankinn
sem ráða för enda þótt unnið sé af
fullum heilindum á grundvelli efna-
hagsstefnu íslenskra stjórnvalda og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.“
Allir leggi sitt af mörkum
Forystumenn stjórnarandstöðu-
flokkanna gagnrýndu ríkisstjórnina
harðlega við umræðurnar og sögðu
engar lausnir boðaðar.
Forsætisráðherra sagði að endur-
reisn hagkerfisins myndi kosta
mikla vinnu og afturhvarf til sam-
hjálpar og samheldni sem einkennt
hefði íslenska þjóð „Hagspár Seðla-
bankans og fjármálaráðuneytisins
gera ráð fyrir rúmlega 10% sam-
drætti landsframleiðslu í ár og lík-
lega mun efnahagslífið ekki taka að
vaxa á nýjan leik fyrr en í lok ársins
2010. Gangi þessar spár eftir verður
landsframleiðsla á mann árið 2011
álíka mikil og á árunum 2004 til 2005.
Hagkerfið ætti frá þeim tímapunkti
að geta vaxið á nýjan leik og gefið
viðspyrnu inn í framtíðina en til þess
að svo geti orðið verða allir að leggja
sitt af mörkum,“ sagði Jóhanna.
Hún fjallaði einnig um vandann í
ríkisfjármálum og sagði að ná þyrfti
niður halla fram til ársins 2013. „Þar
stendur valið nánast eingöngu á milli
margra slæmra kosta. Það verður
viðfangsefni sem mun taka á hjá öll-
um og felur án efa í sér erfiðustu
ákvarðanir sem ég hef þurft að taka
á öllum mínum pólitíska ferli.“
Vantar skýra stefnu
Bjarni Benediktsson sagði for-
sætisráðherra einungis flytja gamlar
fréttir um hve ástandið væri alvar-
legt. Greinilegt væri að samstarfið
við AGS gengi ekki vel.
Sagðist Bjarni hafa alvarlegar
áhyggjur af að ekki væri enn búið að
ganga frá greiðslu annars hluta af
láni sjóðsins til Íslands. Vísaði hann
og fleiri til fregna af því að sænski
sérfræðingurinn Mats Josefsson
hefði ætlað að hætta störfum fyrir
ríkið vegna óánægju með hversu
hægt miðaði við endurreisn banka-
kerfisins. Trúverðugleiki væri í húfi.
Bjarni sagði brýnt að fram kæmi
skýr stefna um hvernig ætti að taka
á halla ríkissjóðs.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði að endurreisn
bankakerfisins hefði reynst miklum
mun flóknara og erfiðara verkefni en
menn ætluðu. Þá stefndi nú í a.m.k.
20 milljarða viðbótarhalla á ríkis-
sjóði á þessu ári. „Ef við ætlum að ná
aftur landi nálægt því sem lagt var
upp með um áramótin, þá þurfum við
aðgerðir í formi tekjuöflunar og
sparnaðar á þessu ári af stærðar-
gráðunni 20 milljarðar kr.“ Síðan
yrði að taka mjög stórt skref á næsta
ári, stærðargráða hallans gæti orðið
45-55 milljarðar kr. og einir 10 til 20
milljarðar á árunum þar á eftir.
„Þess vegna er það algerlega úrslita-
slagur sem við stöndum frammi fyrir
núna og á næsta ári að ná þessu nið-
ur þannig að vaxtakostnaðurinn og
uppsafnaður halli hlaðist ekki upp.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sagði engar líkur á að hér yrði nokk-
ur hagvöxtur ef ekki yrði gripið inn í.
Verðbólgan færi jú minnkandi en „af
hverju er það? Það er hætt að blæða
vegna þess að blóðið er allt búið. Það
er allt að þorna upp í hagkerfi Ís-
lands“.
Þór Saari, Borgarahreyfingunni,
sagði að nú væri enn og aftur komin í
gang peningamaskína fjármála-
manna sem lékju sér að íslensku
hagkerfi. Eigendur jöklabréfa seldu
sínar vaxtatekjur fyrir evrur sem
þeir færu með úr landi, keyptu þær
hér á 175 kr. og seldu þær á gengi
Evrópska seðlabankans og fengju
220-230 kr. fyrir hverja evru.
Úrslitaslagurinn núna
Fjármálaráðherra segir stefna í 20 milljarða viðbótarhalla í ár Stjórnarand-
staðan gagnrýnir aðgerðaleysi Forsætisráðherra segir AGS ekki ráða för
Morgunblaðið/Golli
Dökkt útlit Það var alvöruþrungið andrúmsloft í þingsal í gær þegar þingmenn og ráðherrar ræddu alvarlega
stöðu efnahagsmála. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra flutti þinginu skýrslu um horfurnar og sagði sárs-
aukafullar aðgerðir óhjákvæmilegar. „Þetta er áskorun sem enginn stjórnmálaflokkur getur skorast undan.“
Í HNOTSKURN
»Umræður stóðu yfir í tværklukkustundir á Alþingi í
gær þegar forsætisráðherra
flutti munnlega skýrslu um
horfur í efnahagslífinu.
Skýrslan var flutt að beiðni
þingflokks sjálfstæðismanna.
»15 þingmenn og ráðherrarúr öllum flokkum tóku
þátt í umræðunni.
» Í dag fer fram fyrsta um-ræða um frumvarp um
strandveiðar.
Orðrétt á þingi
’ Lækki vextir ekki á næstunni verð-ur ríkisstjórnin einfaldlega að af-þakka efnahagsráðgjöf Alþjóðagjaldeyr-issjóðsins til að forða þjóðinni frágjaldþroti.
LILJA MÓSESDÓTTIR
’ Þó að endurreisnin gangi hægt, þágengur hún í rétta átt og það erfurðulegt að formaður Sjálfstæð-isflokksins skuli hér reyna að slökkvavon hjá fólki og grafa undan trúverð-
ugleika samstarfs okkar við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn.
HELGI HJÖRVAR
’Ég held að við þurfum að sannfæraAlþjóðagjaldeyrissjóðinn og aðraum það að háir stýrivextir eru ekkert aðhalda þessum krónubréfum á Íslandi.Stíflan lekur bara.
PÉTUR H. BLÖNDAL
’ Fyrst þarf að leysa ríkisfjármálin.Svo þarf að endurreisa bankakerfiðog þá þýðir ekki að vera með eitthvaðhálfkák og óljósar hugmyndir um hvern-ig það eigi að gera.
BJARNI BENEDIKTSSON
’ Að öllu óbreyttu stefnir í að28.500 heimili verði komin ígreiðsluþrot undir árslok. Ef við tökummið af vísitölufjölskyldunni, þá mun þaðsnerta rúmlega 100 þúsund Íslendinga.
BIRKIR JÓN JÓNSSON
’ Það eru þeir sem verst standasem við þurfum að hafa áhyggj-urnar af því að hinir pluma sig sennilegalifandi í gegnum kreppuna.
ÞRÁINN BERTELSSON
’ Eftir á að hyggja má það teljast lání óláni hversu lítil veðhæfni eignaer víða á landsbyggðinni ef horft er tilþess hve mikil ásókn bankastofnana vará síðustu árum í að bjóða fólki lán með
ýmsum gylliboðum og helltu þar með
olíu á eldinn í einkaneyslunni.
LILJA RAFNEY MAGNÚSDÓTTIR
JÓHANNA Sigurðardóttir for-
sætisráðherra staðfesti á Alþingi í
gær að sænski bankasérfræðing-
urinn Mats Josefsson hefði haft
áform um að hætta störfum fyrir
ríkisstjórnina. „Mats Josefsson
lagði áherslu á að allri vinnu við
endurskipulagningu á bönkunum
yrði hraðað. Honum fannst hún
ganga of hægt og ég get að mörgu
leyti tekið undir það,“ sagði Jó-
hanna.
Kom þetta fram í svari við
spurningu Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur, varaformanns
Sjálfstæðisflokksins, sem vísaði
til fréttar Morgunblaðsins um að
Josefsson hefði hótað að hætta.
Spurði hún hvort þetta væri rétt
og hvort hann hefði sett skilyrði
fyrir að halda áfram störfum.
„Mats Josefsson taldi t.d. að
vinna hefði átt hraðar í end-
urskipulagningu á bankakerfinu en
margvíslegar ástæður eru fyrir því
að ekki hefur tekist að vinna hrað-
ar en raun ber vitni,“ svaraði Jó-
hanna. „Mat á bönkunum varð
miklu flóknara en menn gerðu ráð
fyrir og þar af leiðandi samninga-
viðræður við kröfuhafana einnig.
Það er líka staðreynd að ágrein-
ingur var í þinginu, t.d. um af-
greiðslu á eignaumsýslufélagi sem
Mats Josefsson lagði mikla
áherslu á. Það var ekki afgreitt á
síðasta þingi, m.a. vegna andstöðu
sjálfstæðismanna og framsókn-
armanna,“ sagði Jóhanna. Vonir
standa til að úr þessu máli leysist
og þetta eignaumsýslufélag verði
m.a. afgreitt á þessu þingi.“
Tók undir gagnrýni Josefssons á hægagang
JÓHANNA Sig-
urðardóttir for-
sætisráðherra
sagði á Alþingi í
gær stefnt að því
að annar hluti af
láni Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins yrði
afgreiddur í júlí.
Hún efaðist um
að það hefði áhrif
á gengið þó lánið
yrði ekki afgreitt fyrr. Lánin frá
AGS og Norðurlöndunum væru
geymd á bók. „Ef við hefðum fengið
þetta fyrr þá hefðum við fyrr þurft
að byrja að greiða vexti af þessu og
svo framvegis.“
AGS-lánið
afgreitt í júlí
Jóhanna
Sigurðardóttir