Morgunblaðið - 26.05.2009, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 26.05.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009 Fréttir um yfirvofandi verkfallflugvirkja eru eins og draugur úr fortíðinni. Í maí 2009, í rústum efnahagslífsins, boða flugvirkjar tímabundið þriggja daga verkfall dagana 8.-10. júní og allsherjarverk- fall 22. júní. Slík verkföll, án tillits til almenns ástands í efnahagsmálum, hafa reyndar lengi einkennt flug- stéttirnar.     Flugvirkjar eruþó ekki alveg heillum horfnir. Þeir virðast gera sér grein fyrir, að ekki þýðir að krefj- ast kauphækkana, eftir að fallið var frá að þeir tækju á sig skerðingu taxta. Hins vegar snúast viðræð- urnar um að tryggja atvinnuöryggi flugvirkja hjá Icelandair Technical Services, ITS. Það eru 150-200 flug- virkjar, sem starfa hjá Icelandair og Flugfélagi Íslands.     Ekki er hægt að skilja fréttir afkröfugerð flugvirkja á annan veg en svo, að þeir vilji festa störf sín í sessi. Það er ósköp skiljanleg löng- un, nú þegar uppsagnir eru á flest- um sviðum. En telja flugvirkjar virkilega raunhæft að setja fram kröfur og ætla sér að þvinga þær fram með verkfalli? Halda þeir að þeir hafi samúð landa sinna, á þess- um síðustu og verstu tímum?     Vonandi halda sem flestir flug-virkjar starfi sínu áfram. Í því felst nefnilega, að flugfélögin sem þeir þjóna geta haldið óbreyttum rekstri. Enginn gerir sér að leik að segja starfsfólki upp störfum. Komi til slíks er það neyðarúrræði, sem þó getur skipt sköpum um hvort fyrir- tæki ná að berjast áfram gegnum erf- iðleikana og rísa upp sterkari á eftir.     Hafi fyrirtæki engan sveigjanleikatil að bregðast við breyttum að- stæðum er hætt við að rekstur þeirra stöðvist með öllu. Þá skiptir engu máli hversu mörg verkföllin verða eða hversu lengi þau standa. Flugvirkjar án jarðsambands? Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ féllst ekki á beiðni Kortaþjónustunnar um að beita íslenska kortaútgefendur bráðabirgðaákvæði sem hefði gert þeim skylt að innheimta sömu milli- gjöld fyrir íslenskar debetkorta- færslur á Íslandi óháð færsluhirði eða því hvort færslurnar eru gerðar upp í innlendum eða erlendum greiðslumiðlunarkerfum. Eftirlitið lofaði þó að hraða meðferð málsins, segir Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónust- unnar. Of flókið hafi þótt að bregð- ast við með bráðabirgðaákvæði. Kortaþjónustan sér um að taka saman kortaupplýsingar og greiðsluupplýsingar og senda þær til útgefanda debet- eða kreditkorta viðskiptavinar. Hún vænir alla kortaútgefendur landsins, sem eru bankar og sparisjóðir, um samráð og kvartaði til Samkeppniseftirlitsins í byrjun apríl. Hún fer fram á hæstu mögulega sekt, 10% af veltu þeirra, þar sem þeir rukki Kortaþjónustuna um hærri gjöld við kortanotkun við- skiptavina á Íslandi en þeir gera hjá keppinautum hennar, dótturfélögum sínum. Stærstu bankarnir hafa sent svör sín við ásökununum til eftirlits- ins sem hefur aftur gefið þjónust- unni tíma til 30. júní til að bregðast við þeim svörum. Samkeppniseftirlitið lofar að vinna hraðar Samkeppniseftirlitið neitaði að beita bráðabirgðaákvæði á kortaútgefendur Morgunblaðið/Golli Jóhannes Ingi Krefst aðgerða. Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 9 léttskýjað Lúxemborg 22 heiðskírt Algarve 21 léttskýjað Bolungarvík 4 alskýjað Brussel 22 skýjað Madríd 15 léttskýjað Akureyri 11 skýjað Dublin 13 léttskýjað Barcelona 22 léttskýjað Egilsstaðir 10 léttskýjað Glasgow 13 skýjað Mallorca 27 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 7 hagl London 20 heiðskírt Róm 29 heiðskírt Nuuk 13 heiðskírt París 22 heiðskírt Aþena 27 heiðskírt Þórshöfn 9 skúrir Amsterdam 20 léttskýjað Winnipeg 11 heiðskírt Ósló 19 skýjað Hamborg 17 heiðskírt Montreal 16 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Berlín 19 heiðskírt New York 21 heiðskírt Stokkhólmur 17 léttskýjað Vín 23 léttskýjað Chicago 22 skýjað Helsinki 15 skýjað Moskva 17 skýjað Orlando 24 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 26. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 1.22 0,2 7.26 3,7 13.33 0,2 19.48 4,2 3:38 23:13 ÍSAFJÖRÐUR 3.34 0,1 9.28 2,0 15.42 0,1 21.46 2,4 3:06 23:55 SIGLUFJÖRÐUR 5.40 -0,0 12.08 1,2 17.50 0,2 2:47 23:39 DJÚPIVOGUR 4.29 2,0 10.38 0,3 17.01 2,4 23.21 0,4 2:59 22:51 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á miðvikudag Hæg norðvestlæg eða breytileg átt. Minnkandi skúrir eða slydduél norðantil en skýjað með köflum og þurrt að mestu syðra. Hiti 2 til 10 stig, mildast S-lands. Á fimmtudag Suðaustanátt og rigning, eink- um sunnan- og vestanlands. Hlýnandi veður. Á föstudag, laugardag og sunnudag Suðlæg átt og vætusamt S- og V-lands, en úrkomulítið og bjart með köflum á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast norðaustantil. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða hægviðri og sums staðar hafgola. Norðaustan 8-13 á Vestfjörðum og dregur smám saman úr úrkomu. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast í innsveitum. ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 46 31 1 05 /0 9 • Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is Fugla- skoðun Í dag verður farin fuglaskoðunarferð. Leiðsögumaður er Hafsteinn Björgvinsson. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sjónauka. Mæting er kl. 19:30 við Minjasafnið í Elliðaárdal og tekur gangan rúma tvo tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.