Morgunblaðið - 26.05.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009
Á MORGUN,
miðvikudag,
heldur Thorvald
Stoltenberg,
fyrrverandi ut-
anríkisráðherra
Noregs, fyrir-
lestur um skýrslu
sína „Nordic Co-
operation on
Foreign and
Security Policy“.
Fyrirlesturinn fer fram kl. 12:15 til
13:30 í hátíðarsal Háskóla Íslands.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku og
er öllum opin. Fundarstjóri er Bogi
Ágústsson fréttamaður.
Stoltenberg talar
í Háskólanum
Thorvald
Stoltenberg
NÝ stjórn var kjörin á aðalfundi Fé-
lags forstöðumanna ríkisstofnana,
þann 11. maí sl. Í ályktun fundarins
var varað við hugmyndum í nefnd-
aráliti fjárlaganefndar um að ónot-
aðar fjárheimildir í árslok verði
felldar niður og lögð áhersla á að
ónotaðar fjárheimildir muni áfram
flytjast yfir á næsta ár.
Fjárheimildir
AFHENDING styrkja úr Húsvernd-
arsjóði Reykjavíkur fór fram á
fimmtudag síðastliðinn. Hæsta
styrkinn fékk Kirkjutorg 4 og nem-
ur styrkurinn 1.650.000 krónum.
Einnig voru veittir styrkir til
þriggja húsa sem öll eiga það sam-
eiginlegt að vera timburhús sem
hafa verið „forsköluð“, þ.e. að upp-
runalegri klæðningu þeirra hefur
verið skipt út fyrir múrhúðun og
verður klæðning þeirra nú færð til
upprunalegs horfs. Þessi hús eru
Veltusund 3B (1,1 milljón), Kára-
stígur 3 (700 þúsund) og Ránargata
24 (800 þúsund). Einnig fær Þing-
holtsstræti 8 og 8A styrk upp á 750
þúsund.
Morgunblaðið/Jim Smart
Húsavernd Hús við Kirkjutorg.
Úthlutað úr
húsverndarsjóði
ADOLF Guðmundsson hlaut í síð-
ustu viku Hvatningarverðlaun Þró-
unarfélags Austurlands.
Adolf hefur lengi verið fram-
kvæmdastjóri útgerðarfélagsins
Gullbergs ehf. á Seyðisfirði auk
þess að vera stjórnarformaður fisk-
vinnslufyrirtækisins Brimbergs
ehf.
„Adolf hefur haft forgöngu um
að styðja ötullega við samfélagið á
margan hátt, s.s. í íþrótta- og æsku-
lýðsmálum og ýmsum velferð-
armálum og má þar nefna til dæmis
sjúkrahúsið,“ segir í tilkynningu.
Verðlaun Adolf Guðmundsson, fyrir
miðju, með viðurkenninguna.
Hvatningarverðlaun
á Austurlandi
STUTT
„ÞAÐ er frábært að allir tóku mjög
vel í að skrifa fyrir okkur, hvort sem
það var forsetinn, klæðskerinn eða
verkamaðurinn,“ segir Guðjón Sig-
urðsson, formaður MND-félagsins,
sem gefið hefur út nýja hljóðbók.
Bókin hefur að geyma upplestur á
greinum eftir 49 höfunda, þar á
meðal Ólaf Ragnar Grímsson, for-
seta Íslands, sem tók við fyrsta ein-
takinu í gær, eins og myndin til hlið-
ar ber með sér. Umfjöllunarefni
greinanna eru af ýmsum toga að
sögn Guðjóns en í gegnum þær ligg-
ur þó rauður þráður. „Allt á þetta
sameiginlegt að vekja jákvæðni og
von hjá fólki, þetta er okkar leikur í
þeirri skák.“ Hljóðbókin fæst á
heimasíðu félagsins, www.mnd.is,
en verður einnig seld í símasölu.
MND-félagið gefur út nýja hljóðbók
Boða jákvæðni
og von hjá fólki
Morgunblaðið/Heiddi
Landsbanki Íslands hf.
Slitastjórn | Winding-Up Board
INNKÖLLUN
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum þann 3. mars 2009 var heimild Landsbanka Íslands hf.,
kt. 540291-2259, Austurstræti 16, 101 Reykjavík til greiðslustöðvunar, sem upphaflega var veitt þann 5. desember
2008, framlengd til fimmtudagsins 26. nóvember 2009. Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 44/2009
um breytingu á lögum nr. 161/2002 hefur Héraðsdómur Reykjavíkur skipað bankanum slitastjórn sem hefur meðal
annars með höndum meðferð krafna á hendur bankanum meðan á greiðslustöðvun stendur og eftir að slitameðferð
hefst að lokinni greiðslustöðvun.
Frestdagur er 15. nóvember 2008. Upphafsdagur kröfumeðferðar miðast við gildistöku laga nr. 44/2009 og er
22. apríl 2009, sbr. nánar 1. mgr. og 2. málsliður 3. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002, sbr. 6. gr. laga nr. 44/2009.
Hér með er skorað á alla þá, sem telja til hvers kyns skulda eða annarra réttinda á hendur Landsbanka Íslands hf.
eða eigna í umráðum bankans, að lýsa kröfum sínum fyrir slitastjórn bankans innan sex mánaða frá fyrri birtingu
innköllunar þessarar hinn 30. apríl 2009. Samkvæmt því er síðasti dagur til þess að lýsa kröfu hinn 30. október 2009.
Kröfulýsingar skulu sendar bréflega til slitastjórnar bankans að Austurstræti 16, 101 Reykjavík og skal efni þeirra
vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991. Vegna áðurnefndra
ákvæða 1. mgr. og 2. málsliðar 3. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002, sbr. 6. gr. laga nr. 44/2009, er því beint til kröfu-
hafa að í kröfulýsingu komi fram staða kröfu þann 22. apríl 2009.
Kröfum í erlendri mynt skal lýst í viðkomandi mynt. Kröfuhöfum frá aðildarlöndum Evrópska efnahagssvæðisins eða
Fríverslunarsamtaka Evrópu er heimilt að lýsa kröfum á tungumáli heimalands síns. Slíkum kröfulýsingum skal fylgja
íslensk þýðing en þó er heimilt að lýsa kröfu á ensku án þess að þýðing fylgi. Aðrir kröfuhafar geta lýst kröfum sínum
á íslensku eða ensku.
Sé kröfu ekki lýst innan framangreinds frests gilda um það sömu réttaráhrif og um vanlýsingu kröfu skv. 118. gr. laga
um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 og telst hún því fallin niður gagnvart Landsbanka Íslands hf. nema undan-
tekningar í 1.–6. tölulið lagaákvæðisins eigi við.
Sérstaklega er áréttað að með því að lýsa kröfu sinni telst kröfuhafi hafa fallist á brottfall þagnarskyldu
(bankaleyndar) að því er varðar viðkomandi kröfu.
Kröfuhafafundur mun haldinn mánudaginn 23. nóvember 2009, kl. 09:00, að Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlands-
braut 2, Reykjavík. Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem lýst hafa kröfu á hendur bankanum. Á fundinum verður
fjallað um skrá um lýstar kröfur og afstöðu slitastjórnar að því leyti sem hún liggur þá fyrir. Skrá um lýstar kröfur
verður aðgengileg þeim sem lýst hafa kröfum á hendur bankanum að minnsta kosti viku fyrir framangreindan fund.
Framangreindur fundur er jafnframt haldinn til umfjöllunar um greiðslustöðvun Landsbanka Íslands hf. í samræmi
við ákvæði III. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991. Samkvæmt framangreindum úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur mun umfjöllun um greiðslustöðvun bankans tekin fyrir í dóminum að nýju þann 26. nóvember 2009
kl. 13:30 í dómsal 102.
Nánari upplýsingar um kröfulýsingar og meðferð krafna munu gerðar aðgengilegar á heimasíðu bankans,
www.lbi.is. Beinir slitastjórn þeim tilmælum til kröfuhafa að upplýsa um tölvupóstfang sitt eða umboðsmanns síns
í kröfulýsingu til að auðvelda miðlun upplýsinga.
Reykjavík 30. apríl 2009.
Slitastjórn Landsbanka Íslands hf.
Kristinn Bjarnason hrl.
Halldór H. Backman hrl.
Herdís Hallmarsdóttir hrl.