Morgunblaðið - 26.05.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009
Lægri lagerkostnaður
Eimskip býður fyrirtækjum að geyma
ótollafgreidda vöru eins lengi og óskað er.
EIMSKIP TOLLVÖRUGEYMSLA
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 525 7600 eða sendið fyrirspurnir á netfangið fzo@eimskip.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
0
2
9
6
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
MEIRIHLUTI stjórnar VR ákvað á
fundi í gær að skipta út þremur af
fjórum fulltrúum VR í stjórn Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna. Kristinn
Örn Jóhannesson, formaður VR,
greindi frá þessu á ársfundi lífeyr-
issjóðsins, sem haldinn var í gær.
Nýir fulltrúar VR í stjórn Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna eru Ragnar
Önundarson, Ásta Rut Jónasdóttir
og Stefanía Magnúsdóttir. Benedikt
Vilhjálmsson sem hefur setið í stjórn
lífeyrissjóðsins fyrir stjórn VR verð-
ur þar áfram. Gunnar Páll Pálsson,
fyrrverandi formaður VR, sem
Kristinn Örn felldi í formannskjöri í
marsmánuði síðatliðnum, hefur því
vikið úr stjórn lífeyrissjóðsins.
Kristinn Örn sagði í samtali við
blaðamann skömmu áður en árs-
fundi Lífeyrissjóðs verslunarmanna
lauk í gær, að í ljósi aðstæðna í sam-
félaginu og í lífeyrissjóðnum væri
eðlilegt að menn skiptust á skoð-
unum, og það hefði verið gert á árs-
fundinum í gær. Fundurinn hafi þó
ekki verið átakafundur. „Það urðu
breytingar í stjórn VR og það er
ekkert nema eðlilegt að þær breyt-
ingar endurspeglist inni í stjórn líf-
eyrissjóðsins á þessum tíma,“ sagði
Kristinn Örn. Þá sagðist hann binda
miklar vonir við að nú myndu þeir
sem hefðu verið að spyrja spurninga
um málefni lífeyrissjóðsins fá svör
við þeim. „Þetta snýst fyrst og
fremst um trúverðugleika. Trúverð-
ugleikinn hefur verið helsta vanda-
málið að undanförnu,“ sagði Krist-
inn Örn.
Samkvæmt heimildum blaða-
manns var ekki einhugur innan
stjórnar VR um þær mannabreyt-
ingar sem samþykktar voru á fundi
stjórnarinnar í gær. Af fimmtán
stjórnarmönnum munu níu hafa
samþykkt þá fjóra sem Kristinn Örn
gerði tillögu um til setu í stjórn líf-
eyrissjóðsins, og sem tilkynnt var
um á stjórnarfundi lífeyrissjóðsins.
Ragnar nýr formaður
Samkomulag hefur verið um það
milli stjórnar VR og atvinnurek-
enda, að formaður lífeyrissjóðsins
komi til skiptis frá hvorum aðila fyr-
ir sig. Tími fulltrúa VR er ekki liðinn
og mun stjórn VR gera ráð fyrir að
Ragnar Öndundarson, viðskipta-
fræðingur og bankamaður til
margra ára, verði nýr formaður
stjórnar lífeyrissjóðsins.
Ragnar segir að sér lítist vel á að
setjast í stjórn lífeyrissjóðsins. „Það
þarf að horfast í augu við raunveru-
leikann og stilla hlutina af og svo
þarf að endurheimta það sem tap-
aðist. Ég hef fjölþætta reynslu úr
bankakerfinu, og er spenntur að tak-
ast á við stjórnun lífeyrissjóðs og
vona að reynsla mín nýtist. Ég tek
hins vegar fram að ég er af gamla
skólanum og legg áherslu á gömul
gildi og hefðir og siði,“ segir Ragnar
Þremur af fjórum
fulltrúum VR skipt út
Morgunblaðið/Golli
Árfundur Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR, tilkynnti um breytingu
á fulltrúm VR í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna á ársfundinum.
Nýlegar breytingar í stjórn VR endurspeglast í stjórn
Lífeyrissjóðs verslunarmanna á miðju kjörtímabili
Í HNOTSKURN
» Í stjórn Lífeyrissjóðsverslunarmanna sitja 8
menn, 4 tilnefndir af stjórn VR
og 4 af samtökum atvinnurek-
enda sem að sjóðnum standa.
» Formaður stjórnar lífeyr-issjóðsins er til skiptis frá
VR og frá atvinnurekendum.
Góð mæting var á ársfundi Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna í gær.
Nokkuð var tekist á, samkvæmt
viðtölum blaðamanns við fund-
argesti, en fundurinn var lokaður
fréttamönnum.
EIGENDUR ríkisskuldabréfa sem
eru á lokagjalddaga hinn 12. júní
næstkomandi hafa í ljósi gjaldeyr-
ishaftanna engan annan kost en að
endurfjárfesta það sem þeir fá
greitt hér innanlands.
Um er að ræða lokagjalddaga
ríkisbréfaflokksins RIKB 09 0612.
Flokkurinn er tæpur 71 milljarður
að stærð og er að mestu leyti í eigu
útlendinga samkvæmt markaðs-
upplýsingum Seðlabanka frá mars-
lokum.
Þegar hefur verið tilkynnt um
ríkisbréfaútboð hinn 9. júní næst-
komandi og er því ætlað að koma til
móts við ofan-
greindan gjald-
daga, a.m.k að
hluta. Rík-
issjóður átti í lok
apríl ríflega 194
milljarða króna á
reikningum í
Seðlabankanum
og ætti því að
hafa bolmagn til að greiða út höf-
uðstól og vexti af ríkisskuldabréf-
um í næsta mánuði án þess að þurfa
að standa í nýrri útgáfu til að mæta
högginu.
thorbjorn@mbl.is
Blóðtaka hjá ríkissjóði