Morgunblaðið - 26.05.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.05.2009, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ásafninu, semreist var íHiroshima til minningar um það þegar kjarn- orkusprengjunni var varpað á borgina, er veggur þakinn bréfum. Bréfin hafa borgarstjórar Hiroshima skrif- að í áranna rás í hvert skipti, sem einhvers staðar í heiminum hafa verið gerðar kjarnorku- tilraunir. Í bréfunum eru stjórn- völd í viðkomandi landi beðin um að minnast skelfilegra afleiðinga þess að kjarnorkusprengjum var varpað á Hiroshima og Nagasaki og skorað á þau að vinna að útrýmingu kjarn- orkuvopna í stað þess að tefla framtíð mannkyns í tvísýnu. Bréfin eru nú orðin nokkur hundruð og í gær bættist borg- arstjóranum í Hiroshima enn eitt tilefni til að senda bréf. Norður-Kóreumenn kváðust í gær hafa sprengt kjarnorku- sprengju neðanjarðar í tilrauna- skyni og mættu harkalegri gagnrýni um allan heim. Til- raunin í gær sýnir þann vanda, sem alþjóðasamfélagið stendur frammi fyrir, þegar óútreikn- anleg ríki eiga í hlut. Reynt hef- ur verið að nálgast stjórnvöld í Norður-Kóreu með ýmsum hætti til að fá þau til að hverfa frá kjarnorkuvopnaáætlun sinni. Hvorki fagurgali né refsiaðgerð- ir hafa haft áhrif. Bandaríkjamenn, sem gert hafa flestar kjarnorkutilraunir allra og hafa einir þjóða notað kjarnorkuvopn í stríði, leggja nú aukna áherslu á að hefta út- breiðslu þeirra. Stjórn Obama beitir nú þau ríki, sem eru komin með kjarnorkuvopn, en hafa ekki skuldbundið sig til að lúta sátt- málanum um að hefta útbreiðslu þeirra, sérstökum þrýstingi og var tek- ið eftir því að í ný- legri ræðu hjá Sam- einuðu þjóðunum nefndi hann Ísrael til sögunnar, en hingað til hafa Bandaríkjamenn látið sem kjarnorkuvopnabúr þeirra væri ekki til. Þykir þetta bera alvöru Bandaríkjamanna vitni. Þeir gera sér grein fyrir því að vilji þeir koma í veg fyrir að Íranar komi sér upp kjarnavopnum geti þeir ekki haldið hlífiskildi yfir Ísraelum í þessum efnum. Eins og Össur Skarphéð- insson utanríkisráðherra benti á þegar hann fordæmdi kjarn- orktilraunina búa íbúar Norð- ur-Kóreu við verulegan skort og stjórnvöld landsins hafa ým- islegt þarfara við peningana að gera en að sprengja kjarna- vopn. Að auki reka þau milljón manna her og sennilega er hvergi jafn mikinn vígbúnað að finna og á landamærum Norð- ur- og Suður-Kóreu. Heimurinn þarf ekki á því að halda að þar sem mest spenna ríkir í heiminum sé einnig hætta á að kjarnorkustyrjöld brjótist út, hvort sem Norður- og Suð- ur-Kórea eiga í hlut, Pakistan og Indland eða Íran og Ísrael. Ríki, sem þegar eru komin með kjarnorkuvopn, verða ekki knúin til hlýðni með valdi. Inn- rás í Íran myndi hrinda af stað atburðarás, sem ógerningur gæti orðið að vinda ofan af. Því þarf að fara samningaleiðina. Eigi hún að bera árangur verð- ur að vera ljóst að allir sitji við sama borð og lúti sömu reglum án tillits til þess hverjir banda- menn þeirra eru. Kjarnorkutilraun Norður-Kóreu hefur vakið hörð viðbrögð } Ógn kjarnorkunnar Jóhanna Sigurð-ardóttir for- sætisráðherra hef- ur í gegnum tíðina sjaldnast verið tals- maður lækkunar ríkisútgjalda. Nú horfist hún hins vegar í augu við alvöru málsins. Í ræðu Jóhönnu á Alþingi í gær, er hún flutti þingheimi skýrslu sína um efnahagsmál, kom skýrt fram að forsætisráð- herra er reiðubúinn að taka erf- iðar ákvarðanir. Hún sagði að erfitt yrði að ná fram þeirri lækkun stýrivaxta, sem skiptir fyrirtæki og heimili miklu máli, „nema einnig verði á sama tíma gripið til róttækra og sárs- aukafullra aðgerða í rík- isrekstrinum, með niðurskurði útgjalda og skattabreytingum.“ Jóhanna sagði að stæðust áætlanir um aukinn hagvöxt frá lokum næsta árs, myndi hann skila ríkinu um 70 milljörðum króna upp í 170 milljarða halla, sem eyða verður fram til ársins 2013. Vonandi hefur rík- isstjórnin í huga að erfitt verð- ur að ná fram hag- vexti ef lagðir verða á skattar, sem íþyngja bæði atvinnulífi og heim- ilum. Megináherzlan hlýtur að vera á lækkun ríkisútgjaldanna. Jó- hanna boðaði að það viðfangs- efni myndi fela „án efa í sér erf- iðustu ákvarðanir sem ég hef þurft að taka á öllum mínum pólitíska ferli.“ Hún hnykkti líka réttilega á því að ekki væri verið að takast á við hallarekstur ríkissjóðs til að þóknast Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum eða erlendum lán- ardrottnum. Jafnvægi í rík- isrekstrinum er einfaldlega nauðsynlegt til þess að hægt verði að tryggja hér almanna- þjónustu til framtíðar, jafnvel þótt sú almannaþjónusta verði eitthvað umfangsminni en hún hefur verið í góðæri síðustu ára. Þetta horfist forsætisráð- herrann í augu við og vonandi líka bæði aðrir stjórnmálamenn og kjósendur, sem fólu þeim erfitt verkefni. Íþyngjandi skattar munu draga úr hagvextinum} Jóhanna sker niður É g fékk um daginn bréf frá banka sem telur sig vera bankann minn, þótt ég hafi hvorki talað þar við nokkurn mann né stigið þar inn fæti. Tilefnið var það að tilkynna mér að nú væri kominn tími á að end- urnýja greiðsluþjónustusamninginn. Jú, gott og vel, ég sit í sömu súpu og flestir aðrir, að bankinn minn var þjóðnýttur og sjálfkrafa er ég komin í viðskipti við annan banka, án þess að hafa verið spurð. Mér þótti tillagan sem fylgdi í póstinum, að nýjum greiðsluþjónustusamningi, satt að segja skelfileg, því heildarhækkun á mánaðargjöldunum er áætluð um 22,5 prósent. Ekki dettur mér í hug að vorkenna sjálfri mér þess vegna, ég skulda sjálfsagt minna en gengur og gerist, – gamalt húsnæðislán, náms- lán og lífeyrissjóðslán – engin myntkörfulán eða önnur háskalán, og svo bara þetta hversdagslega, af- notagjöldin, Orkuveitan, síminn og það allt. Jú, að vísu gufaði þriðjungur sparnaðarins míns í peningabréfasjóði Landsbankans upp í haust. Ég tóri þó. En mér finnst nú samt nóg um, því ég veit að mjög margir glíma við enn stærri og flóknari vanda og þrátt fyrir fögur fyrirheit stjórnvalda sjá þeir ekki hvort þeim skýtur á endanum upp úr kafinu, eða þeir drukkna í skuldafeninu. Á meðan við troðum marvaðann hvert í kapp við annað við að reyna að þrauka, þrasa alþingismenn um bindi og betri herbergin og virðast ekki kunna að skammast sín fyrir að bera sig að slíkum hégóma. Það kann að vera ein- hverjum gleymt í dag, að það var einmitt um- ræða af slíkum toga sem kveikti eldana við þingsetninguna á Austurvelli í janúar. En nóg um það. Ég geri mér ekki miklar vonir um að tekjur mínar aukist um þau 22,5 prósent sem mánaðarleg útgjöld mín munu hækka nú í sumar. Það er erfitt að geta sér til um hverju kjaraviðræður sem nú standa yfir munu skila, þegar peningar eru ekki til. Mér heyrðist á forsvarsmönnum vinnuveit- enda um daginn að það væri lítið svigrúm til launahækkana. Það hefur svosem aldrei verið neitt, þannig að það er ekki ný frétt. En eitt ætla ég að leggja til og vona að sú fróma ósk mín fái einhvers staðar hljómgrunn. Hvenær, ef ekki núna, er tækifærið til að semja um styttingu vinnuvikunnar og aukinn orlofsrétt? Það eru sannarlega laun, þótt eng- ar peningagreiðslur fáist fyrir. Vissulega þýðir það aukin útgjöld fyrir vinnuveitendur, sem þyrftu að ráða mann- skap til að bæta vinnutapið sem af hlytist. En um leið og vinnutími almennings styttist, kæmi tækifærið til að veita fleirum atvinnu, og á því þurfum við sannarlega að halda nú. Með meiri tíma utan vinnu hefði þjóðin betri tíma til að takast á við líf sitt og langanir, dansa í sig lífsgleði eða jafnvel pota niður nokkrum kartöfluspírum í búið, að ég tali nú ekki um að gefa sig að börnum sínum og foreldrum. Styttri vinnutími og lengra orlof myndi án nokkurs vafa gera Ísland betra land og það er kjarabót, sem líka kæmi þeim að gagni sem í dag mæla göturnar. begga@mbl.is Bergþóra Jónsdóttir Pistill Kjarabót í dansi og kartöflum Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is M eð þeirri ákvörðun að hefja tilraunir með kjarnavopn að nýju hafa stjórnvöld í Norður-Kóreu aftur skipað sér á bekk kjarnorkuvelda. Nokkurra missera hléi þar sem útlit var fyrir að stjórnin myndi falla frá kjarnorkuáætluninni gegn til- slökunum og umbun af hálfu ríkjanna í sex ríkja viðræðunum svo- kölluðu er því lokið. Þrátt fyrir að kjarnorkuáætlunin hvíli á brauðfótum blásnauðs ríkis þar sem stór hluti íbúanna býr við vannæringu og vöruskort – þjóð- artekjur eru undir 300.000 krónum á mann á ári – eru áhyggjur ná- grannaríkjanna skiljanlegar. Ástæðan er ekki síst sú að leyni- þjónustur telja að verkfræðingar kommúnistastjórnarinnar séu komnir á það stig að geta smíðað smáa en öfluga kjarnaodda sem koma megi fyrir í meðaldrægum eld- flaugum sem beina má að millj- ónaborgum S-Kóreu og Japans. Drægnin dugar þó skammt ef kjarnaoddana skortir. Framleiddu allt að 50 kíló af plútóni Siegfried S. Hecker, verkfræði- prófessor og annar stjórnenda alþjóðastofnunar um öryggismál við Stanford-háskóla, hefur fært rök fyrir því að Norður-Kóreustjórn hafi verið búin að framleiða allt að 40 til 50 kíló af plútóni þegar hún féllst ár- ið 2007 á að hefja niðurrif kjarnorku- innviða sinna í sex ríkja viðræðunum svokölluðu, afvopnunarviðræðum Kínverja, Rússa, Suður-Kóreu- manna, Bandaríkjamanna, Japana og N-Kóreumanna. Til samanburðar segir hann að stjórnin hafi þá gefið upp að hún hafi framleitt og einangrað umtalsvert minna magn eða alls 26 kíló. Sé því gengið út frá því að sex kíló þurfi í smíði hvers kjarnaodds hafi stjórnin því haft úr nógu plútóni að spila fyrir fjórar til átta sprengjur. Áætlun Heckers telst áreiðanleg en hann hefur að eigin sögn fengið á síðustu fimm árum greiðan aðgang að kjarnakljúfinum í Yongbyon og vísindamönnunum sem þar starfa. Gátu hafið framleiðslu á ný Hann segir 10 af 12 skrefum niðurrifsins hafa verið lokið þegar hann heimsótti kjarnorkumiðstöðina í Yongbyon í fyrra. Þá hafi engu að síður verið hægt að gangsetja á ný þrjá lykilþætti miðstöðvarinnar, líkt og stjórnin ákvað að gera í apríllok. Í vor voru 8.000 stangir af kjarn- orkuúrgangi í miðstöðinni sem Hec- ker telur raunhæft að vinna megi úr allt að um 8 kíló af plútóni. Svo þurfi að bíða í a.m.k. þrjú ár áður en hægt sé að hefja ferlið á ný. Reynist þetta rétt hafði stjórnin úr að spila á milli 34 og 44 kílóum af plútóni fyrir tilraunasprenginguna í gær, að viðbættum kílóunum 8 sem má vinna úr kjarnorkuúrganginum. Að því gefnu að 6 kíló hafi farið í sprengjuna í gær ættu að vera eftir 42 til 50 kíló af plútóni, magn sem út frá ofangreindum forsendum dugir í 7 til 8 kjarnaodda. AP Reiði í Seoul Suður-kóreskir mótmælendur hrópa slagorð gegn Kim Jong- il, leiðtoga kommúnistastjórnarinnar í Norður-Kóreu, vegna tilraunanna. Kjarnorkuveldi á brauðfótum Bandarískur sérfræðingur sem hefur fylgst með niðurrifi kjarn- orkuinnviða Norður-Kóreu áætlar að plútónbirgðir landsins dugi í allt að átta kjarnaodda. Þar með er ekki öll sagan sögð. Hver er tilgangurinn? Leiddar eru líkur að því í frétta- skýringu New York Times að til- raunasprengingin sé til marks um þá óvissu sem ríki í Norður-Kóreu um arftaka Kim Jong-il. Hver tekur þá við? Kim Jong-il er talinn hafa fengið heilablóðfall í ágúst sl. og hefur sonur hans Kim Jong-un verið nefndur sem mögulegur arftaki. Hvað með herinn? Blaðið rekur tvær kenningar um tilgang sprengingarinnar. Annars vegar hafi markmiðið verið að sýna samstöðu með hernum áður en til valdaskiptanna kemur. Hins vegar hafi Kim Jong-il verið að setja á svið sýningu til að efla þegnum sínum stolt vegna tækni- kunnáttu stjórnarinnar. Hvenær tekur annar við? New York Times hefur það eftir Kim Sung-han, prófessor við Kór- eu-háskóla í Seoul, að talið sé að sökum ungs aldurs muni Jang Seong-taek, mágur Kim Jong-il, taka við af honum, þar til sonur hans, Kim Jong-un, sem er á þrí- tugsaldri, hefur náð þeim aldri sem hæfa þykir leiðtoga landsins. S&S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.