Morgunblaðið - 26.05.2009, Side 21

Morgunblaðið - 26.05.2009, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009 Betra líf? Þráinn Bertelsson, Borgarahreyfingunni, í þungum þönkum í þingsalnum í gær. Spurning hvort þarna hafi fæðst hugmynd að nýrri kvikmynd, eða þingstarfið bara svona þreytandi. Golli Hrafn Andrés Harðarson | 25. maí Skáldaþing á Biskops Arnö Var að koma heim frá vel heppnuðu skáldamóti á Biskops Arnö í Svíþjóð. Þar var rætt um Eystra- saltið hans Tomasar Tranströmers sem er al- veg magnað ljóð. Vatnið og hafið var þema mótsins og voru mætt skáld frá Norðurlöndunum, Eystrasaltslöndunum (nema Litháen), Þýskalandi, Póllandi og Rússlandi, auk Íslands og Færeyja. Aldr- ei þessu vant var tungumál þessa móts enska og var það léttir bæði mér og öðr- um sem ekki hafa norrænt mál á valdi sínu. Þarna sátum við sem sagt við sama borð og Skandinavarnir, sem ekki gátu nú haft forskotið eins og nánast alltaf með að tala móður/föðurmálið sitt. Þessi limra varð til að loknu skemmti- legu móti: Poetry Seminar on Biskops Arnö: There once was a poetry party both pompous, postmodern and arty, they all read aloud their poems so proud but some of it sounded a bit farty! Meira: hrafnandres.blog.is AK-72 | 24. maí Hvar er sómatilfinningin? Ég ætla þó ekki að dæma ríkisstjórnina út af borð- inu strax því stuttur tími er liðinn og hún hefur lít- inn tíma haft til að koma með alvöru lausnir, auk þess sem þar er margt gott fólk sem ég vona að valdi félagshyggjuhjarta mínu ekki vonbrigðum. Aftur á móti við stuðn- ingsmenn ríkisstjórnarinnar og Smugu- penna sem haga sér svona með orðfari háðs og níðs í garð fólks sem er að berj- ast fyrir réttindum og réttlæti, fólks sem stóð með þeim í vetur og barði trommur, fólks sem sýndi samstöðu gegn sinnu- leysi, aðgerðarleysi og valdhroka þáver- andi ríkisstjórnar, þá vil ég taka mér söguleg orð öldungadeildarþingmanns- ins Joseph Welch mér í munn og beina til þeirra: „Hafið þér enga sómatilfinningu? Haf- ið þér glatað endanlega allri sómatilfinn- ingu?“ Meira: ak72.blog.is Lára Hanna Einarsdóttir | 25. maí Gullkorn mannanna Eini tónlistarmaðurinn sem hefur komist nálægt því að vera tónlistarlegt átrúnaðargoð í lífi mínu er Ómar Ragnarsson. Þá var ég um 10 ára og Ómar að hefja feril sinn. Cliff Richard komst ekki með tærnar þar sem Ómar hafði hælana á þeim tíma nema hvað mér hef- ur líklega fundist Cliff sætari en Ómar. Meira: larahanna.blog.is „NYTJASTOFNAR á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóð- arinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiði- heimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eign- arrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“ Svo hljóðar 1. grein laga um stjórn fiskveiða. Miðað við þróun núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis – kvótakerf- isins – þarf ekki að undra að lítil sátt hafi verið um nýtingu þessarar sam- eiginlegu auðlindar þjóðarinnar á umliðnum árum ef markmið laganna eru höfð til hliðsjónar. Mikill ófriður hefur verið um kvótakerfið og m.a. hefur Morgunblaðið lengi verið í far- arbroddi þeirra sem hafa gagnrýnt það. Hvað verndun og uppbyggingu fiskistofnanna varðar þá er ljóst að þau markmið hafa ekki gengið eftir. Nægir þar að nefna nýlegan nið- urskurð á aflaheimildum í þorski sem hafði slæm áhrif á mörg sjáv- arútvegsfyrirtæki og sveitarfélög. Fara verður yfir það hvers vegna ekki hefur náðst betri árangur í verndun og uppbyggingu fiskistofn- anna með samstarfi fræðimanna og þeirra sem starfa í sjávarútvegi. Mismunandi reynsla af núverandi kerfi Skiptar skoðanir eru meðal lands- manna um hvort það markmið að „tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu“, hafi gengið eftir. Íbúar sveitarfélaga um allt land, þar sem kvótastaðan hefur versnað vegna sölu aflaheimilda, segja þetta mark- mið ekki hafa náðst. Erfið nýliðun í greininni bætir svo ekki stöðu þess- ara sveitarfélaga heldur. Íbúar ann- arra sveitarfélaga, þar sem kvóta- staðan hefur batnað vegna kaupa á aflaheimildum, segja e.t.v. að þetta markmið hafi náðst. En óvissan plag- ar þá líka. Þeir vita ekki hvort þeirra bíða sömu örlög – að kvótinn verði seldur úr byggðarlaginu. Nið- urstaðan hlýtur því að vera sú að þetta markmið laganna hafi ekki náðst. Þótt innstreymi aflaheimilda hafi styrkt stöðu einhverra sveitarfé- laga, þá hvílir sú styrking ekki á nægilega traustum stoðum vegna þess að útstreymið getur hafist hve- nær sem er án þess að sveitarstjórnir eða íbúar fái neitt við ráðið. Kjarni vandans? Önnur ástæða fyrir því að ekki hef- ur ríkt sátt um núverandi fisk- veiðistjórnunarkerfi má tengja síð- ustu málsgrein 1. greinar laganna; „Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eign- arrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“ Þrátt fyrir þennan skýra vilja lög- gjafans hefur það verið tilfinning fólks að framkvæmd laganna hafi þróast í þveröfuga átt – að einstakir aðilar hafi eignast þessa sameig- inlegu auðlind þjóðarinnar. Þessi sjónarmið þarf að koma til móts við til þess að skapa sátt um þessa und- irstöðuatvinnugrein landsmanna. Ef menn vilja á annað borð taka mark á 1. grein laganna þá er ljóst að um tímabundinn nýtingarrétt er að ræða en ekki eignarkvóta. Það er óvið- unandi að útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtæki, starfsfólk, sveitarfélög og íbúar þeirra séu í uppnámi fyrir hverjar kosningar vegna átaka um fiskveiðistjórnunarkerfið. Sjávar- útvegur verður, eins og aðrar at- vinnugreinar, að búa við stöðugleika og það er hagur allra að koma í veg fyrir upplausnarástand. Kannski felst lausnin í því að ráðast að þeim hluta vandans, sem hægt er kalla eign- arhalds- og framsalsvanda, án þess að skerða veiðiréttindi. Mörg störf í húfi Undirrituð eiga það sameiginlegt að stýra sveitarfélögum sem að stærstum hluta byggja afkomu sína á veiðum og vinnslu. Hugmyndir nýrr- ar ríkisstjórnar um fyrningarleið hafa valdið töluverðum óróa. Útgerðin fullyrðir að sú leið valdi fjöldagjald- þroti í greininni og það vekur bæj- arbúum ugg í brjósti um lífsafkomu sína. Á Hornafirði og í Grindavík má segja að helmingur starfandi fólks komi að sjávarútveginum beint eða óbeint. Áhyggjur undirritaðra lúta þess vegna fyrst og fremst að framtíð þessara starfa í byggðalögunum. Munu aðgerðir stjórnvalda verða til þess að störfum í sjávarútvegi fækki? Mun nýtt kerfi virka þannig að afla- heimildir færist úr einu sveitarfélagi í annað? Þessum spurningum og fleiri verður að svara áður en stórar ákvarðanir eru teknar um framtíð ís- lensks sjávarútvegs – og þar með byggðanna. Áhyggjur okkar lúta ekki að því hvaða fiskveiðistjórnunarkerfi verði stuðst við í sjávarútvegi, þær snúast um atvinnustigið í sveit- arfélögunum. Réttlætið breytist ekki í nýtt ranglæti Í ljósi ófriðarins sem staðið hefur um kvótakerfið má öllum vera ljóst að nauðsynlegt er að hefja heildarend- urskoðun á fiskveiðistjórnunarkerf- inun þar sem markmiðið er að skapa sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið og stöðugleika fyrir íslenskan sjávar- útveg til framtíðar. Undirrituð hvetja stjórnvöld til að íhuga gaumgæfilega allar ákvarðanir sem teknar verða og vera fullviss um hvaða áhrif eða af- leiðingar ákvarðanir þeirra kunna að hafa. Ef núverandi hugmyndir um fyrningarleið og endurúthlutun skapa ekki grundvöll til sátta og ef réttlætið sem þeim er ætlað að skapa breytist í nýtt ranglæti, ber að endurskoða þær – ekki síst í ljósi óvissunnar í efna- hagsmálum þjóðarinnar. Eftir Árna Rúnar Þorvaldsson og Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur »Mikilvægt er að hefja heildarend- urskoðun á fiskveiði- stjórnunarkerfinu þar sem markmiðið er að skapa sátt og stöð- ugleika fyrir íslenskan sjávarútveg. Árni er formaður bæjarráðs Horna- fjarðar og Jóna er bæjarstjóri Grindavíkurbæjar og eru oddvitar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn. Sátt og stöðugleiki í sjávarútvegi Árni Rúnar Þorvaldsson Jóna Kristín Þorvaldsdóttir BLOG.IS Viðar Ingvason | 25. maí Fréttaflensa Fréttamenn róast ekkert þrátt fyrir að landlæknir hafi sprautað þá niður. Ég er mun hræddari við nið- urskurð í heilbrigðiskerf- inu en skaðlitlar flensu- veirur. Óskynjanlegt er hvers vegna fréttamiðlar flestir ná ekki fókusnum af þessari flensu. Meira: v-ingvason.blog.isÁgúst Valves Jóhannesson | 25. maí 2009 Halda þingmenn að þeir séu í 9-4 vinnu? Ég verð nú að segja að þetta er versta stjórn- arandstaða sem hefur verið síðan ég byrjaði að fylgjast með Alþingi. Þarna koma menn í ræðustól og tala í upp- hrópunum, dylgjum og með hreinum ósköpum ómálefnalega. Ég verð að segja að þegar Steingrímur J. Sigfússon var í stjórnarandstöðu þá fór hann í pontu og sagði mönnum til syndanna á málefna- legan hátt þar sem stefna flokks hans var í fyrirrúmi. Það er þá helst hægt að hrósa Þór Saari fyrir mjög góða ræðu þar sem hann fór yfir það sem þyrfti að gera og að hans mati væri best til að koma til móts við þjóðina. Meira: agustvalves.blog.is Sigurður Sigurðarson | 25. maí 2009 Ekkert hefur breyst, allt í frosti Greinilegt er að vaxandi óþreyju gætir meðal þing- manna ríkisstjórnarinnar vegna aðgerðaleysis hennar. Ástæðan er ein- föld. Stýrivextir eru ennþá 13,5% og ekki útlit fyrir frekari lækkun. Meira en 18.000 manns eru atvinnulausir og nýju bank- arnir eru gjörsamlega máttlausir og duga engan veginn atvinnulífinu. Þjóðin er búin að gefa þessari rík- isstjórn fjóra mánuði. Ríkisstjórnin hreykir sér af hinu og þessu en þegar á hólminn er kominn stendur allt fast. Atvinnulífið vantar súrefni. Meira: sigsig.blog.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.