Morgunblaðið - 26.05.2009, Side 34
34 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009
Ég spjallaði aðeins
við Paris eftir
uppákomuna, hún er
mjög sérstök stúlka... 36
»
MICHAEL Hardt og
Antonio Negri halda
opna fyrirlestra í sal
102 á Háskólatorgi í
kvöld kl. 20. Negri og
Hardt eru heimsþekktir
fyrir metsölubókina
Empire, sem gagnrýn-
andi New York Times
kallaði „Kommúnistaávarp 21. aldarinnar“. Þeir
eru þekktir sem helstu kenningasmiðir róttækra
andófshreyfinga í samtímanum. Í fyrirlestrum
sínum fjalla Hardt og Negri um möguleikann á
því að byggja upp endurnýjaðan, lýðræðislegan
skilning á kommúnisma sem leið út úr kreppum,
fátækt og lýðræðishalla kapítalismans.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Hugvísindi
Kenningasmiðir nú-
tíma róttækni tala
Hardt og Negri.
SÝNING Kristínar Blöndal
myndlistarmanns stendur nú
yfir í Listasal Iðu í Lækjar-
götu. Myndlist Kristínar snýst
um tilraunir, þar sem hún leit-
ast við að gera huglæga, ómeð-
vitaða ramma fólks sýnilega og
hefur hún fundið farveg fyrir
tjáningu sína í ýmsum miðlum,
hingað til þó aðallega í mál-
verki. Innsetning með gamla
ramma og fígúrur og gjörn-
ingur tekinn á myndband er það sem Kristín gerir
tilraunir með á þessari sýningu.
Verk hennar hafa verið sýnd í einka- og opin-
berum listasölum á Íslandi, í Osló, Lübeck, Barce-
lona og New York.
Myndlist
Huglægir rammar
verða sýnilegir
Kristín Blöndal
Lýðveldisleikhúsið
frumsýnir nýtt ís-
lenskt leikverk fyrir
börn í dag kl. 17 í
Gerðubergi. Þetta er
dans- og söngleikur
sem ber nafnið Út í
kött! og fjallar um
tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu- og ævin-
týraheima. Þessi ævintýraleikur er fyrir börn á
aldrinum fjögurra til tólf ára en fullorðnir ættu
líka að hafa gaman af, að því er segir í frétt frá
leikhúsinu. Leikin atriði mynda skemmtilega um-
gjörð utan um söng- og dansatriði þar sem ævin-
týrapersónur í litríkum búningum bregða á leik.
Þar birtast Rauðhetta, Öskubuska, prins, úlfar og
grísir. Sjá nánar á vefnum www.this.is/great.
Leiklist
Ævintýraleikur
með dansi og söng
Úr ævintýraleiknum Út í kött!
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
SÝNING Listahátíðar á óperunni Í óðamansgarði eftir Sun-
leif Rasmussen var samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og
Tjóðpallsins, sem er þjóðleikhús Færeyinga. Leikhússtjóri
þar er Jenny C. Petersen.
Tjóðpallurin var formlega stofnaður árið 2003 og er því
ungt leikhús, þótt leikhúshefð eigi sér mun lengri sögu í Fær-
eyjum. Tjóðpallurin er sprottinn úr starfsemi eldri leik-
félaga.
„Þetta hefur gengið hægt, en það gengur,“ segir Jenny um
starfsemi Tjóðpallsins unga. „Árleg fjárveiting okkar er 3,8
milljónir danskra króna [um 90,4 milljónir íslenskra króna]
sem eiga að duga fyrir allan reksturinn. Húsnæði Tjóðpalls-
ins er gamalt mjólkurbú sem sveitarfélagið lét okkur í té, og
fyrir það þurfum við ekki að greiða leigu. En það er alls ekki
nógu gott fyrir þjóðleikhús. Eftir heimsókn okkar í Þjóðleik-
húsið veit ég ekki hvort ég fæ leikarana okkar til að koma aft-
ur heim,“ segir Jenny og hlær. „Aðbúnaðurinn fyrir leik-
arana er svo miklu, miku betri á Íslandi. Jú, það gengur
hægar hjá okkur að koma hlutunum í almennilegt horf.“
Fyrstu árin leikin í leku mjólkurbúi
Jenny segir að í Tjóðpallinum séu tvær stórar sýningar á
ári og þrjár til fjórar minni og gestafjöldi yfir árið er á bilinu
átta til tíu þúsund manns. „Í fyrra komu um átta þúsund
manns en fyrsta árið okkar komu tólf þúsund gestir. Fyrstu
árin okkar í mjólkurbúinu stríddum við við vatnsleka og það
tók tíma að laga hann vegna þess að húsnæðið er á ábyrgð
sveitarfélagsins, ekki okkar. Þannig erum við stundum milli
tveggja elda.“
Samstarfi þjóðleikhúsa Færeyja og Íslands verður fram
haldið að sögn Jennýjar, vilji til þess var samþykktur á fundi
leikhússtjóranna um helgina. „Það hefur verið mjög spenn-
andi fyrir okkur að vera hér á Íslandi og ég er mjög ánægð
með þessa sameiginlegu sýningu okkar. Ég vona að í Þjóð-
leikhúsinu sé jafnmikil ánægja með samstarfið og okkar
megin. Þó hefur alltaf verið mikið samstarf milli þjóðanna í
leiklist, bæði meðal áhuga- og atvinnuleikfélaga og íslenskt
leikhúsfólk hefur oft komið og unnið með okkur í Færeyjum.
Þetta samstarf þarf að efla, því við getum lært hvert af öðru.“
Samstarfið þarf að efla
Leikhússstjóri Tjóðpallsins ánægður með samstarf við Þjóðleikhúsið
Tjóðpallurin býr við erfiðar aðstæður og sýnir í gömlu mjólkurbúi
Morgunblaðið/Eggert
Jenny C. Petersen „Eftir heimsókn okkar í Þjóðleikhúsið veit ég ekki hvort ég fæ leikarana
okkar til að koma aftur heim,“ segir Tjóðpallsstjórinn færeyski eftir dvöl sína á Íslandi.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
TRÍÓ Nordica leikur á tónleikum Listahátíðar
í Reykjavík í Listasafni Íslands í kvöld kl. 20.
Á efnisskrá þeirra Auðar Hafsteinsdóttur,
Bryndísar Höllu Gylfadóttur og Monu Kontra
verður norræn tónlist, auk ástsæls píanótríós
nr. 1 eftir Mendelssohn.
Norrænu verkin eru Allegro í D-dúr eftir
Sibelius, rómantískt píanótríó eftir Toivo
Kuula, ópus 7, og glænýtt verk, Scherzo, eftir
Þórð Magnússon sem verður frumflutt á tón-
leikunum.
Upphaflega er scherzo hraður og glaðlegur
þáttur í stærra verki, eins og í sinfóníu eða
kammerverki. En scherzoið hefur líka öðlast
sjálfstætt líf, og mörg scherzo hafa verið samin
sem sjálfstæð verk, án tengsla við stærri verk,
en þó oft í stíl hins klassíska scherzos. Það á
við um Scherzo Þórðar, sem hann segir sverja
sig að formi til í ætt hins klassíska scherzos.
„Það er meðalhratt, hressilegt og dans-
kennt. Það er í rondóformi eins og scherzoin
voru gjarnan.
Ég er að leika mér með íslensku rímnalögin,
þótt þau heyrist ef til vill ekki. Þeir sem eru
þeim mun betur að sér í rímnalögunum gætu
þó þekkt þau – bæði í laglínum og rytma.“
Þórður segir rytmann í nýja verkinu klass-
ískan. „Þetta er fyrsta verkið sem ég sem, sem
er allt í sömu takttegund, – ég held að það hafi
aldrei gerst áður.“ Því fer fjarri að Scherzoið
sé fyrsta verk Þórðar með tengsl við þjóðlegan
tónlistararf.
„Ég hef verið að leika mér með hann í flest-
um verkum mínum síðustu árin, því ég vil
reyna að ná tengingu við það að vera Íslend-
ingur. Ég segi eins og arkitektinn Jean Nou-
vel, að á tímum alþjóðavæðingar verði fólk að
líta í eigin barm og skoða hvað það hefur sjálft
fram að færa. Mér finnst það jákvæð þjóðern-
iskennd. Þegar hann var beðinn að teikna tón-
listarhús í Reykjavík, þá teiknaði hann torf-
hús. Það sama gildir um mig; mér finnst það
skylda mín sem Íslendings að draga fram það
íslenska í verkunum sem ég vinn að,“ segir
tónskáldið Þórður Magnússon.
Skylda Íslendingsins
Tríó Nordica frumflytur Scherzo eftir Þórð Magn-
ússon á tónleikum í Listasafni Íslands í kvöld kl. 20
Morgunblaðið/Heiddi
Þórður Magnússon „Ég vil reyna að ná tengingu við það að vera Íslendingur.“
KONUNGLEGI ballettinn í Lund-
únum ræðst í sína fyrstu dansför til
Kúbu í júlímánuði. Í sýningum Kon-
unglega ballettsins þar verður kúb-
anska ballerínan Alicia Alonso heiðr-
uð sérstaklega. Alonso er frægasti
dansari Kúbu, fædd 1920, og er ekki
bara ballerína, því hún ber æðsta tit-
il kvendansara í klassískum ballett;
prima ballerina assoluta, auk þess að
hafa samið hundruð dansa á löngum
ferli sem dansari og danshöfundur.
Hún var alþjóðleg stjarna, dansaði
bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu.
Í frétt frá Konunglega ballett-
inum segir að leyfi hafi fengist frá
stjórnvöldum á Kúbu fyrir heim-
sókninni, og segir Kevin O’Hare,
framkvæmdastjóri flokksins, að
ákveðið hafi verið að ráðast í ferðina
vegna þess að aðalgestadansari
flokksins, Carlos Acosta, sé Kúbu-
maður, og að samlandar hans heima
á Kúbu séu farnir að þrá heitt að sjá
hann dansa. Svo vill til að aðalkenn-
ari Acostas á mótunarárum hans í
dansinsum var einmitt Alicia Alonso.
Alls fara 96 dansarar Konunglega
ballettsins í ferðina, og halda fjórar
sýningar í Havana frá 14.-18. júlí.
Heiðra
Aliciu Alonso
Konunglegi ballett-
inn í Lundúnum
dansar á Kúbu
Alonso Prima ballerina assoluta.
Tjóðpallur Færeyja var stofnaður með
lagasetningu á Lögþingi Færeyja í maí
2003. Tjóðpallurin leysti þá af hólmi
Leikpallin, sem stofnaður var 1989 til
undirbúnings stofnun þjóðleikhúss, og
leikfélagið Grímu, sem hóf starfsemi
1975.
Markmið Tjóðpallsins lögum sam-
kvæmt eru þau að sýna færeysk verk í
besta gæðaflokki, en einnig alþjóðleg
sígild verk og ný verk; að gefa Fær-
eyingum um allt landið tækifæri til að
sjá breitt úrval leikverka, sem og verk í
öðrum greinum sviðslista; að gefa fær-
eysku sviðslistafólki atvinnumöguleika í
sinni grein; að efla og taka þátt í starf-
semi áhugaleikhúsanna í landinu.
Á vef Tjóðpallsins er mottó leikhúss-
ins, en það er haft eftir rúmenska leik-
skáldinu Eugéne Ionesco:
„Ein stór succés í einum lítlum leik-
húsi er betri enn ein lítil succés í einum
stórum leikhúsi og nógv betri enn ein
lítil succés í einum lítlum leikhúsi.“
Stór succés í einum lítlum leikhúsi
GESTIR á Broadway hafa sagt sitt,
þeir kusu söngleikinn Billy Elliot
besta nýja verkið á Breiðvangsárinu.
Söngleikurinn Hárið fékk verðlaun
sem besta enduruppfærslan.
Margir muna eftir Billy úr mynd-
inni sem um hann var gerð og
draumi hans um að verða dansari.
Billy Elliot vann