Morgunblaðið - 12.07.2009, Side 1
1 2. J Ú L Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
187. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
GENGISVÍSITALA
SKÍTAMÓRALS
XAVIER R.GALLEGO:KRÍSA
KRUGMANS
ÍSLENDINGAR SEGJA
VOÐAMIKIÐ JÆJA
HOLLYWOOD
Skúrkarnir
fá makleg
málagjöld
SUNNUDAGUR
FEÐGARNIR og listamennirnir Bragi Ás-
geirsson og Fjölnir Geir Bragason hafa
verið áberandi hvor á sinn hátt. Myndlistin
hefur átt hug og hjarta Braga og Fjölnir
ólst upp í henni en hefur einbeitt sér að
tattúi.
Fjölnir ætlaði að verða myndhöggvari en
segir að tattúið hafi kveikt í sér vegna þess
að það hafi verið nýtt, ferskt og spennandi.
Hann segist líka hafa óttast að fetaði hann í
fótspor föður síns yrði hann alltaf borinn
saman við hann og hefði staðið í skugg-
anum af honum enda alltaf setið við fótskör
hans. „Í seinni tíð hef ég hins vegar áttað
mig á hvers virði það hefur verið. Hann er
vitinn í myrkrinu, ljósið sem vísar veginn.
Því valdi ég ekki listina heldur valdi listin
mig.“
Bragi missti heyrnina þegar hann var níu
ára. Fjölnir segir að hann hafi þurft að
berjast við ýmsa fordóma og fyrir vikið hafi
hann ákveðið hungur til þess að sanna sig,
hungur, sem heyrendur þekki ekki. „Vel að
merkja get ég litið í eigin barm um óþol-
inmæði og fljótfærni á árum áður, en ég
vann bug á hvorutveggja þegar ég glímdi
við akademísk vinnubrögð í Kaupmanna-
höfn,“ segir Bragi.
Vinnan hefur alltaf skipt feðgana miklu
máli og þeir eru báðir miklir vinnuþjarkar.
Þeir hafa líka mikla reynslu af sannkölluðu
bóhemlífi. „Það hefur eflaust verið jafn erf-
itt fyrir hann og það var fyrir mig sem barn
þegar hann lifði sjálfur slíku lífi,“ rifjar
Fjölnir upp í viðtali við þá feðga. Hann seg-
ir að svona líferni taki á alla, ekki síst þá
sem næst standi. „Samt átti ég ótrúlega
skemmtilega æsku í bóhemlífi pabba sem
einkenndist af sýningum og samvinnu við
aðra listamenn.“ | 14Listamenn Feðgarnir Fjölnir Geir Bragason og Bragi Ásgeirsson í vinnustofu Braga í Reykjavík.
Morgunblaðið/Golli
Vinnusamir og afkastamiklir feðgar
Bragi Ásgeirsson og Fjölnir Geir Bragason hafa farið ólíkar leiðir í listinni
TENNIS»6 STJÓRNMÁL»9 BÆTUR»4
Forsætisráðuneytið er tilbúið að koma til móts við hugmyndir
stjórnar Breiðavíkursamtakanna um útfærslu frumvarps til
laga um sanngirnisbætur vegna misgjörða gagnvart börnum á
vistheimilum en enn ber mikið í milli í sambandi við skiptingu
þolenda í bótaflokka og bótagreiðslur.
Stjórn Breiðavíkursamtakanna leggur til að bætur til fyrrver-
andi vistmanna í Breiðavík verði frá því að vera engar upp í allt
að 16 milljónir króna á mann. Bárður Ragnar Jónsson, formað-
ur samtakanna, segir að miðað við hugmyndir samtakanna um
röðun í bótaflokka megi gera ráð fyrir að margir vistmenn í
Breiðavík fari í efsta bótaflokk.
Forsætisráðuneytið leggur til að unnið verði í að ná sátt um
aðferðafræðina við að ákveða bætur og síðan verði rætt um
fjárhæðir. Það vill byggja á almennum bótum og heimild til að hækka þær allt að
þrefalt. Auk þess bíður ráðuneytið sáttalausn, sem rúmast innan núverandi fjár-
lagaheimilda, en um er að ræða samtals 125 milljónir króna fyrir 158 þolendur.
Breiðavíkurmálið í brennidepli
Formaður Bárður
R. Jónsson hjá sam-
tökunum.
Hillary Clinton, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, er ekki fyrirferðarmikil í
stjórn Baracks Obama Bandaríkja-
forseta. Bendir ýmislegt til þess að
Obama sniðgangi utanríkisráðuneytið í
stefnumótun og fari framhjá því í mik-
ilvægum málum með því að fela umsjón
mikilvægra mála mönnum sem starfa
utan þess. Ekki ríki friður á milli Clinton
og Obama, heldur vopnahlé.
Á hinn bóginn er Clinton hrósað fyrir
að hafa sýnt mikla stjórnunarhæfileika
og hafa verið himnasending fyrir stjórn
Obama.
Lítið ber á
Hillary Clinton
Svissneski tennis-
leikarinn Roger
Federer skráði sig
á spjöld sögunnar
um liðna helgi þeg-
ar hann vann sinn
fimmtánda sigur á
stórmóti. Margir
telja hann besta
tennisleikara sem
uppi hefur verið.
Federer kveðst
hvergi nærri hættur keppni og stefnir á
enn fleiri titla.
Fjaðurmagn-
aður Federer
Sigursæll Roger
Federer frá Sviss.
SAMNINGANEFNDIR Breta og
Hollendinga sem komu til landsins
eftir að bankakerfið hrundi í október
voru afar vel undirbúnar og komu ís-
lenskum embættismönnum í opna
skjöldu, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Íslendingar undirrituðu vilja-
yfirlýsingu ásamt Hollendingum um
lán á 6,7% vöxtum eftir að samn-
inganefnd þeirra hafði skírskotað til
útreikninga Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins, sem kvæðu á um að Íslendingar
gætu borið slíka vexti.
Þegar útreikningarnir voru bornir
undir starfsmenn AGS voru þeir afar
ósáttir við að sjóðnum hefði verið
beitt með þessum hætti og komu þeir
andmælum sínum á framfæri við
Breta og Hollendinga.
AGS hafði notað þessa vexti í út-
reikningum, en það hafði ekki verið
hugsað sem innlegg eða útgangs-
punktur í samningaviðræðum, og
samkvæmt heimildum tjáðu starfs-
menn sjóðsins fulltrúum íslenskra
stjórnvalda í einkasamtölum að þeir
teldu vextina fráleita, enda væru þeir
langt fyrir ofan markaðsvexti. Ekki
mætti blanda skuldatryggingarálagi
inn í jöfnuna, þegar lánveitingin sner-
ist fyrst og fremst um að bjarga land-
inu úr erfiðleikum.
Daginn eftir að viljayfirlýsingin var
undirrituð með Hollendingum, var
sest að samningaborðinu með Bret-
um. En þá þegar höfðu íslensk stjórn-
völd gert sér ljóst að þau hefðu samið
af sér gegn Hollendingum og leik-
urinn var ekki endurtekinn með Bret-
um. Íslensk stjórnvöld tilkynntu svo
hollenskum stjórnvöldum að ekki
yrði gerður samningur sem byggðist
á viljayfirlýsingunni.
pebl@mbl.is, agnes@mbl.is
Er Ísland ekki fullvalda jafningi? | 12
Starfsmenn
AGS mót-
mæltu
Þjóðarrétti verið
kastað fyrir róða?
Höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn í Washington DC.