Morgunblaðið - 12.07.2009, Síða 4
4 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009
Stórafmælisferð til
Marmaris í haust
með Kjartani Trausta
Sími 585 4000 www.urvalutsyn.is
Brottför: 19. sept - 10 okt 2009
99.900kr.*
miðað við mann í tvíbýli á Club Aida eða í minni íbúðunum
á Forum. Möguleiki á að fá hálft fæði með gistingu.
Úrvalsfólk 60+
komið með og fagnið með Kjartani Trausta.
Takmarkað sætaframboð, fyrstir koma fyrstir fá!
Hafið samband í síma 585-4000 eða kíkið við á skrifstofu
Úrvals Útsýnir í Lágmúla 4 og spjallið við Kjartan.
VERÐ FRÁ:
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
S
tjórn Breiðavíkursamtakanna leggur til
að bætur til vistmanna á Breiðavík-
urheimilinu á árunum 1952-1979 verði
engar upp í allt að 16 milljónir króna.
Samkvæmt fyrstu frumvarpsdrögum
ríkisstjórnarinnar, sem opinberuð voru í fyrra-
haust, var gert ráð fyrir að bætur yrðu frá 347.500
krónum upp í 2.085.000 kr. miðað við vísitölu
neysluverðs í mars 2008. Í nýjasta útspili for-
sætisráðherra er boðið upp á sáttalausn, sem
rúmast innan núverandi fjárlagaheimilda, um 800
þúsund krónur að meðaltali á mann, með þeim
fyrirvara að fyrrverandi vistmenn í Breiðavík af-
sali sér ekki rétti vegna fyrirhugaðrar lagasetn-
ingar.
Himinn og haf á milli
Þegar frumvarpsdrögin voru kynnt fyrir
Breiðavíkursamtökunum fyrir tæplega ári höfn-
uðu þau nefndum bótahugmyndum en lögðu þess í
stað til að greitt yrði fyrir vinnuframlag á vist-
unartíma. Meðalvistunartími hafi verið 21 mán-
uður og samkvæmt 12 stunda vinnudegi sex daga
vikunnar og styttri vinnudegi á sunnudögum ætti
ríkið að greiða 10 til 25 milljónir króna til hvers
einstaklings. Í fjáraukalögum fyrir árið 2008 var
hins vegar gert ráð fyrir 125 milljónum kr. í bætur
vegna misgjörða á vistheimilum fyrir börn eða um
800 þúsund kr. að meðaltali á hvert barn í Breiða-
vík, en þar voru samtals 158 börn á umræddu
tímabili. Þetta er sú upphæð sem stjórnvöld bjóða
nú sem sáttalausn og segir í bréfi til samtakanna
að „við núverandi aðstæður í efnahagsmálum
verður erfiðara en fyrr að afla fjárheimilda til
starfrækslu bótanefndar“.
Í bréfi forsætisráðuneytisins kemur jafnframt
fram að á komandi haustþingi sé stefnt að því að
leggja fram frumvarp til laga um sanngirnisbætur
vegna misgjörða gagnvart börnum á vistheim-
ilum. Annars vegar leggur ráðuneytið til almenn-
ar bætur og hins vegar heimild til að hækka bæt-
urnar allt að þrefalt.
Bárður Ragnar Jónsson, formaður Breiðavík-
ursamtakanna, segir að frá því í fyrrahaust hafi
verið unnið að því að breyta og bæta nefnd drög.
Samtökin hafi alfarið hafnað samanlögðum bótum
upp á 125 milljónir og segir Bárður að hann hafi
tilkynnt í vetur á fyrsta fundi með fulltrúum nú-
verandi valdhafa að upphæðin væri ekki einn tí-
undi hluti þeirra bóta sem ættu að renna til
Breiðavíkurbarna. Því hafi verið svarað með þeim
orðum að peningar væru ekki til fyrir kröfunum.
Breiðavík fordæmi
„Viðhorf mitt hefur alltaf verið það að það
þyrfti að bæta þetta á einhvern hátt og samfélagið
getur ekki gert það öðruvísi en að sómi sé að því,
sjálfs sín vegna,“ segir Bárður. Hann segir aug-
ljóst að yfirvöld vilji lágmarka tjónið, því Breiða-
vík verði ákveðið fordæmi fyrir mál sem Breiða-
víkurnefndin sé að rannsaka og tengjast
Vistheimilinu Kumbaravogi, Heyrnleysingjaskól-
anum, stúlknaheimilinu Bjargi, vistheimilinu
Reykjahlíð og heimavistarskólanum Jaðri. Fram-
lagðar hugmyndir samtakanna taki reyndar mið
af þessu og gera megi því skóna að margir vist-
menn í Breiðavík færu í efsta bótaflokk. Auk þess
hangi fleira á spýtunni vistmönnum til handa.
Morgunblaðið/Ómar
Sómi samfélagsins
Stjórnvöld til viðræðu um sáttalausn Stjórn Breiðavíkursamtakanna vill allt að 16
milljónir í bætur á mann og er allt annað en ánægð með útspil forsætisráðuneytisins
Ofbeldi Niðurstöður rannsóknar á
starfsemi Breiðavíkurheimilisins
komu mörgum illilega á óvart og
sýndu að þar var heldur betur
maðkur í mysunni.
Engar fjárhæðir eru tilgreindar í
svari forsætisráðuneytisins til
stjórnar Breiðavíkursamtakanna
vegna erindis þeirra í fyrra mán-
uði, en forsætisráðuneytið svar-
aði nýjustu tillögum stjórnar
Breiðavíkursamtakanna sl. mið-
vikudag.
Páll Þórhallsson, lögfræðingur
í forsætisráðuneytinu, segir að í
svarinu sé brugðist við tillögum
samtakanna og sett fram sýn
ráðuneytisins á áframhaldandi
vinnu að frumvarpi og breyt-
ingum á fyrirliggjandi frumvarps-
drögum frá því í fyrra. Lögð sé
áhersla á að ná sátt um aðferða-
fræðina við að ákveða bætur
með þeim útgangspunkti að lög-
in nái til allra heimila sem vist-
heimilisnefndin komi til með að
skoða.
Eins og fram kemur annars
staðar á síðunni hafa Breiðavík-
ursamtökin lagt til að bótaupp-
hæðir miðist við ákveðna tveggja
ása flokkaskiptingu. Ráðuneytið
tekur undir það að með slíkri
flokkun mætti ná vel utan um
heimilin og séreinkenni þeirra en
erfitt gæti verið að framkvæma
hana.
Páll Þórhallsson segir að ráðu-
neytið vilji einfalda nálgunina
miðað við tillögur Breiðavík-
ursamtakanna og byggja sem
mest á skýrslu vistheim-
ilisnefndar og gagna hennar við
ákvörðun bóta. Skoðun á of
mörgum sjónarmiðum kalli á
flókna og nýja rannsókn.
Fyrir tæpu ári fór málið í hnút,
fyrst og fremst vegna ágreinings
stjórnvalda og samtakanna um
upphæð bóta. Páll segir að þess
vegna telji forsætisráðuneytið
heppilegast að ná fyrst saman
um aðferðafræðina við að ákveða
bætur og fylla síðan inn í eyður
varðandi fjárhæðir. Þá þurfi að
taka tillit til þess hvað Alþingi
sé reiðubúið að leggja mikla fjár-
muni í heildarbætur.
Í frumvarpi til laga um sann-
girnisbætur vegna misgjörða við
vistun eða dvöl á stofnunum eða
heimilum sem falla undir lög nr.
26/2007 (lög um skipan nefndar
til að kanna starfsemi vist- og
meðferðarheimila fyrir börn)
segir meðal annars að bætur
skuli ákveðnar á grundvelli mats
á stigum, frá fimm til allt að 30
stigum. Fyrir hvert stig verði
greiddar 69.500 krónur og skuli
fjárhæðin breytast til samræmis
við breytingar á vísitölu neyslu-
verðs frá mars 2008 til ákvörð-
unardags bótagreiðslu. Jafn-
framt kemur fram að krafan
erfist og að ekki greiðist tekju-
skattur af sanngirnisbótunum.
Hugsanlega skulda einhverjir
fyrrverandi vistmanna opinber
gjöld eða önnur gjöld sem þeir
hafa ekki getað greitt. Spurður
hvort bætur yrðu látnar renna
upp í slík gjöld sagði Páll að
þetta atriði hafi ekki komið upp
en kæmi til þess yrði það tekið
fyrir.
Ráðuneytið tilgreinir ekki fjárhæðir
Stjórn Breiðavíkursamtakanna
leggur til að bætur til fyrrverandi
vistmanna í Breiðavík verði mis-
munandi háar og gerir tillögu um
tveggja ása flokkaskiptingu, þar
sem óháð nefnd raðar þolendum í
flokka eftir nánar tilgreindum við-
miðunum.
Í bréfi til forsætisráðherra dag-
sett 4. júní sl. er lagt til að matið
taki fyrst og fremst mið af beinum
ætluðum lögbrotum eða mannrétt-
indabrotum og í öðru lagi af ýmsum
félagslegum og heilsufarslegum at-
riðum.
Í fyrrnefnda flokknum verði tekið
tillit til líkamlegs ofbeldis af hálfu
starfsmanna og/eða eldri vistbarna
(ekkert, lítið, nokkurt, mikið, mjög
mikið), andlegs ofbeldis af hálfu
starfsmanna og/eða eldri vistbarna
(ekkert, lítið, nokkurt, mikið, mjög
mikið), annars andlegs og líkamlegs
álags, vinnuþrælkunar/ólaunaðrar
barnavinnu, missi skólagöngu/
menntunarsviptingar, skorts á hvers
kyns læknisþjónustu, veikinda og
slysa á vistunarstað, ónógra þrifa
og ónógs matar, skjóllítils fatnaðar
barna gegn vondu veðri og skorts á
eftirfylgni/liðveislu eftir vist.
Í félagslega flokknum verði meðal
annars tekið tillit til lengdar dval-
artíma (t.d. undir einu ári, 1-2 ár, 2-3
ár, 3-4 ár, 4-5 ár og svo framvegis),
eineltis, einangrunar, ástæðulausr-
ar/tilefnislausrar vistunar, órétt-
mæts aðskilnaðar við foreldra, sam-
bandsleysis/sambandsbanns við
foreldra/ættingja, vistar frá mjög
ungum aldri, harðneskju – skorts á
hlýju, afleiðinga vistunar, ótíma-
bærs dauðdaga/langtíma heilsu-
brests og sviptingar tómstunda/
barnagamans.
Tveggja ása
flokkaskipting
Kostnaður vegna rannsókna
Breiðavíkurnefndarinnar svokölluðu
er kominn í um 58,8 milljónir króna
en hún á enn töluvert starf fyrir
höndum vegna annarra heimila og
gerir ráð fyrir að ljúka störfum ekki
síðar en 2011. Lög um skipan nefnd-
ar til að kanna starfsemi vist- og
meðferðarheimila fyrir börn tóku
gildi 29. mars 2007 og skilaði
nefndin af sér „svartri“ skýrslu um
starfsemi Breiðavíkurheimilisins í
febrúar 2008.
58,8 milljónir
Breiðavíkurmálið