Morgunblaðið - 12.07.2009, Side 8
8 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009
Það er ósköp skiljanlegt að Ós-valdur Knudsen, talsmaður
fyrrverandi starfsmanna SPRON,
trúi því ekki að ráðamenn ætli að
sitja með hendur í skauti og hafast
ekki að, á meðan starfsmennirnir fá
ekki laun sín greidd á uppsagn-
arfresti og sitja þar með ekki við
sama borð og aðrir fyrrverandi
bankastarfsmenn sem fá sínar
launagreiðslur á uppsagnarfresti.
Ósvaldur sagðihér í Morg-
unblaðinu í gær
að slitastjórn
SPRON hefði
komið fram af
nokkurri hörku
og túlkað flest
vafaatriði starfs-
mönnum í óhag.
En fyrir liggjayfirlýsingar
frá Gylfa Magn-
ússyni við-
skiptaráðherra
og Álfheiði Inga-
dóttur, formanni
viðskiptanefndar,
í þá veru að þess-
ir fyrrverandi
starfsmenn eigi
að fá launagreiðslur út uppsagn-
arfrestinn eins og aðrir.
Það ættu því að vera hæg heim-antökin hjá ráðherranum og
þingmanninum að drífa þá laga-
breytingu í gegnum Alþingi, sem
þarf til, a.m.k. að mati slitanefnd-
arinnar, til þess að hægt sé að greiða
starfsmönnunum launin sín.
Raunar er það svo lítið mál, að þaðsætir furðu að ekki skuli þegar
hafa verið drifið í slíkri breytingu.
Erfitt er að sjá það gerast, að um
slíkt smámál, sem jafnframt er mik-
ið réttlætismál fyrir viðkomandi
starfsmenn, yrði hart tekizt á þingi.
Alþingi á að höggva á þennan
vandræðalega hnút og gera það
fljótt og vel og í þverpólitískri sam-
stöðu.
Gylfi Magnússon
Alþingi höggvi á hnútinn
Álfheiður
Ingadóttir
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 11 skýjað Lúxemborg 12 heiðskírt Algarve 19 heiðskírt
Bolungarvík 10 léttskýjað Brussel 14 léttskýjað Madríd 21 heiðskírt
Akureyri 8 heiðskírt Dublin 13 þoka Barcelona 21 skýjað
Egilsstaðir 7 alskýjað Glasgow 9 heiðskírt Mallorca 22 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 skýjað London 16 skýjað Róm 17 heiðskírt
Nuuk 7 léttskýjað París 15 skýjað Aþena 29 heiðskírt
Þórshöfn 9 skýjað Amsterdam 14 léttskýjað Winnipeg 10 léttskýjað
Ósló 12 skýjað Hamborg 13 skýjað Montreal 18 léttskýjað
Kaupmannahöfn 15 skýjað Berlín 13 léttskýjað New York 18 heiðskírt
Stokkhólmur 16 heiðskírt Vín 16 skýjað Chicago 24 þoka
Helsinki 18 heiðskírt Moskva 13 þoka Orlando 22 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
STAKSTEINAR
VEÐUR
12. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.18 0,7 9.19 3,4 15.21 0,8 21.34 3,5 3:34 23:34
ÍSAFJÖRÐUR 5.20 0,4 11.06 1,9 17.16 0,6 23.20 2,0 2:55 24:23
SIGLUFJÖRÐUR 1.28 1,2 7.41 0,2 13.59 1,1 19.41 0,4 2:36 24:08
DJÚPIVOGUR 0.25 0,6 6.21 1,9 12.29 0,6 18.39 2,0 2:54 23:13
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á mánudag
Fremur hæg norðanátt og dálít-
il súld norðan- og austanlands,
en líkur síðdegisskúrum á Suð-
vesturlandi. Hiti 12 til 17 stig
sunnanlands, en annars 7 til 10.
Á þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag
Norðan 5-10 m/s og rigning
með köflum norðan- og aust-
anlands, en annars úrkomulítið.
Hiti 6 til 15 stig, hlýjast suð-
vestanlands.
Á föstudag og laugardag
Hæg norðlæg eða breytileg átt
og skýjað með köflum, en skúr-
ir á stöku stað. Áfram hlýtt
sunnanlands, en svalara fyrir
norðan.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Austlæg átt, 3-10 m/s eða haf-
gola. Skýjað að mestu SA- og
A-lands og þokuloft við strönd-
ina, en léttir til í innsveitum þar
í dag. Annars víða léttskýjað
eða bjartviðri. Hiti 9 til 16 stig,
hlýjast inn til landsins.
, ,
Jæja. Nú hefur verið „pönkast“ á Davíð Oddssyni
í tæpa viku, svo leitað sé í hinn „smekklega“ orða-
forða Litla ritsóðans á DV, fyrir margt af því sem
Davíð sagði í viðtali við mig hér í Mogganum um
Icesave-samninginn síðasta sunnudag.
Er það ekki merkilegt, hversu margir ætla
beinlínis að ganga af göflunum í hvert sinn sem
Davíð Oddsson segir eitthvað? Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra taldi að fæst væri svo
sem svaravert í orðum Davíðs, en honum var
greinilega misboðið að Davíð leyfði sér að hafa
skoðanir á málinu, því hann hélt að Davíð væri
hættur í pólitík.
Er þetta ekki fullmikið af því góða?
Á fjármálaráðherra að ráða því hver má tjá sig
og hver ekki?
Vissulega á Steingrímur mikla og djúpa samúð
skilda í þessu skelfilega Icesave-klúðri. Hann er
stjórnmálamaður sem aldrei verður sakaður um
að bera ábyrgð á tilurð Icesave, en situr uppi með
það, að berjast með kjafti og klóm fyrir því að Al-
þingi samþykki ríkisábyrgð á Icesave-lánaskuld-
bindingunum og verði samningurinn samþykktur
situr fjármálaráðherrann uppi með ábyrgðina á
því að hafa komið óskapnaðinum í gegnum þingið.
Líkast til liggur pólitískt líf hans
við.
Það er með ólíkindum
hversu einn Steingrímur hef-
ur verið í þessu máli. Ekki
heyrist múkk frá samstarfs-
flokki VG í ríkisstjórn, Sam-
fylkingunni. Þau eru bara
öll stikkfrí – Jóhanna Sig-
urðardóttir, Björgvin G. Sig-
urðsson, Össur Skarphéð-
insson og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir.
Það er stað-
reynd að Icesave
varð að skrímsli
á vakt Samfylk-
ingarinnar og
Sjálfstæð-
isflokksins. Að
vísu eru báðir
formenn
stjórnarflokk-
anna, sem voru,
hættir í pólitík,
en það breytir
Guðfríður Lilja Líklega
er Guðfríður Lilja, þing-
flokksformaður VG,
fremur þreytt á yfirgangi
Samfylkingarinnar.
engu um það, að Björgvin G. Sigurðsson var
bankaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar. Hann er bara mállaus um þessar
mundir – ekki múkk frá honum um það hvers
vegna undirstofnun hans, Fjármálaeftirlitið,
steinsvaf á verðinum og skrímslið stækkaði bara
og stækkaði á hans vakt, allt á kostnað íslensks
almennings. Hvar er Jóhanna? Ekkert heyrist frá
henni, annað en að hún vill ólm komast til Brussel
þann 27. júlí, með aðildarumsókn í vasanum.
Samfylkingarþingmenn vilja fyrir alla muni
djöfla aðildarumsókninni að Evrópusambandinu í
gegn á methraða, en þeir sjá ekki sóma sinn í því
að veita fjármálaráðherranum, sem virðist að nið-
urlotum kominn, eins og agnarlítinn stuðning í
hinu erfiða Icesave-máli. Þar fyrir utan djöflast
þau á þingmönnum VG lon og don eins og þau sé
um það bil að verða stórsvikarar.
Það var kannski engin furða að Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, formaður þingflokks VG, reyndi
örlítið að streða á fundi utanríkismálanefndar á
miðvikudagskvöldið, þegar hún hleypti Samfylk-
ingunni í þvílíkt tilfinningalegt uppnám, með því
einu að óska eftir frekari upplýsingum um kostn-
að sem myndi falla á ríkissjóð vegna aðild-
arumsóknar.
Samfylkingin ætlaði að hrökkva hjörunum og
Guðfríður Lilja var sökuð um það að ætla að
brjóta gegn stjórnarsáttmála VG og Samfylk-
ingar. Getur Samfylkingin krafist þess að VG, yf-
irlýstir andstæðingar ESB-aðildar, setji sig í
stellingar og beiti sér af krafti í ESB-aðild-
arumsókn, á sama tíma og Samfylkingin sefur
Þyrnirósarsvefni í gegnum átökin um Icesave?
Að undanförnu finnst mér sem undiralda og
reiði hafi magnast í samfélaginu og að mörgu
leyti er það vel skiljanlegt. En reiðin hefur því
miður tekið á sig ýmsar og misljótar myndir. Það
er mannskemmandi að lesa í bloggheimum, þar
sem mannorðsmorð og svívirðingar í skjóli nafn-
leyndar eru daglegt brauð. Einhverjir hafa fengið
útrás fyrir lágar hvatir, með því að ráðast að
heimilum nafngreindra manna í skjóli nætur og
ata hús þeirra málningu. Aðrir hafa boðað að ef
samið verði um skuldaniðurfellingu ákveðinna
manna, brjótist hér út borgarastyrjöld. Hvernig
leyfa menn sér að tala með svo óábyrgum hætti?
Þeir eru beinlínis að hvetja til óeirða með slíku
óábyrgu tali. Vitanlega á að sækja þá fjármuni
sem þjóðin hefur verið rænd. Um það er krafan.
En sú sókn verður að fara fram innan ramma
laga og reglu, í réttarríki.
Aðrir hafa gengið enn lengra í lágkúrunni og
ráðist gegn nafngreindum einstaklingi með því að
dreifa miðum með grófum ásökunum um kynferð-
isbrot. Slíkum miðum hefur verið dreift í miðborg
Reykjavíkur. Það hef ég fengið staðfest. Hér er
ekki um neitt annað að ræða en mannorðsmorð í
skjóli nafnleyndar heigulsins. Viðkomandi ein-
staklingar sem ráðist er á, í skugga nætur, eiga
fjölskyldur. Þeir eiga líka börn, sem standa ber-
skjölduð frammi fyrir rógburði sem þessum og
geta í engu varist.
Hvað gengur mönnum til, sem
haga sér svona? Er það virki-
lega svona samfélag sem við
viljum á Íslandi? Samfélag þar
sem rætnar tungur, Gróur á
Leiti, skemmdarvargar,
mannorðsmorðingjar
og nafnlausir
aumingjar taka
völdin í sínar
hendur, dóms-
valdið líka.
Ætlum við að
líða það að
menn séu
teknir af
lífi án
dóms og
laga?
Ég
segi nei.
Hvað segir
þú lesandi
góður?
agnes@mbl.is
Agnes segir…
Viljum við svona samfélag?
Björgvin G. SigurðssonÖssur Skarphéðinsson
Steingrímur J Fjár-
málaráðherra virðist
örþreyttur á meðan
Samfylkingin sefur
Þyrnirósarsvefni
í gegnum átökin
um Icesave.
ER HAFIN
GARÐ
ÚTSAL
AN