Morgunblaðið - 12.07.2009, Síða 9
Fréttir 9VIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009
HS Veitur hf Brekkustíg 36 260 Reykjanesbæ
Sími 4225200 www.hs.is hs@hs.is
KÖRFUBÍLL TIL SÖLU – TILBOÐ ÓSKAST
HS Veitur hf óska eftir tilboðum í Mercedes Benz körfubíl
með Ruthmann körfubúnaði. Bifreiðin er árgerð 1988, ekinn
um 140.000 km og selst í núverandi ástandi.
Bifreiðin er staðsett í Reykjanesbæ og þeir sem hafa áhuga
á að skoða hana geta haft samband við Geir Sigurðsson í
síma: 860 5260.
Fyrirliggjandi eru nýjar skoðunarskýrslur frá Bílaumboðinu
Öskju hf og Vinnueftirlitinu og er unnt að nálgast þær hjá
Geir.
Tilboð skal senda undirrituðum eigi síðar en þriðjudaginn
28. júlí 2009 kl. 16.00. Tilboð má senda í tölvupósti.
HS Veitur hf áskilja sér rétt til þess að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
HS Veitur hf
Guðmundur Björnsson, innkaupastjóri
Brekkustíg 36, 260 Reykjanesbæ
Sími: 422 5200
Netfang: gudmund@hs.is
BARACK Obama Bandaríkjaforseti sagði í kosningabaráttunni að hann myndi binda
enda á þann sið að skipa pólitíska vini og velunnara í sendiherrastöður. Samkvæmt Der
Spiegel beið Hillary Clinton utanríkisráðherra sinn sársaukafyllsta ósigur í þeim efnum.
Hún lagði fram lista með nöfnum reyndra diplómata og sérfræðinga um viðkomandi lönd.
Til dæmis átti að senda William Drozdiak, sem af langri reynslu þekkir vel til Þýskalands,
til Berlínar. Hún lagði til að Joseph Nye, höfundur kenninga um hið mjúka vald í utanrík-
ismálum, færi til Tókýó. Tekið var við listanum, en flestum tillögunum hafnað. Louis Susm-
an, fyrrverandi varaforstjóri Citigroup, fer til London. Hann er svo duglegur að safna fé
handa Obama að dagblaðið Chicago Tribune kallaði hann ryksuguna. Charles Rivkin, fyrr-
verandi yfirmaður brellumyndafyrirtækis, fer til Frakklands og bílasalinn Donald Beyer til
Sviss. Phil Murphy, fyrrverandi yfirmaður fjárfestingabankans Goldman Sachs í Evrópu.
Tillögur Clinton um nýja sendiherra fengu lítinn hljómgrunn
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
M
argir töldu að Barack Obama
væri að taka talsverða áhættu
þegar hann bauð Hillary Clin-
ton embætti utanríkis-
ráðherra. Obama og Clinton
börðust harkalega um útnefningu demókrata til
forsetaframboðs og hvassasta gagnrýni hennar
var á skoðanir hans í utanríkismálum. Veltu
menn fyrir sér hvort Clinton myndi nota hið
mikilvæga og valdamikla embætti til að sækja í
sviðsljósið og jafnvel reyna að skáka Obama og í
framhaldi hvernig forsetinn myndi fara að því
að hafa taumhald á sínum gamla andstæðingi.
Raunin hefur hins vegar verið sú að Hillary
hefur fremur haldið sig til hlés. Fjölmiðlar fjöll-
uðu meira um það þegar hún olnbogabrotnaði,
en þeir hafa gert um hin ýmsu embættisverk
hennar. En hvernig ber að túlka það hversu lítið
ber á Clinton? Hefur Obama tekist að væng-
stýfa hana með því að takmarka hlutverk henn-
ar og tryggja þannig að hún geti ekki notað ut-
anríkisráðuneytið sem stökkpall til frekari
metorða? Eða hefur Clinton ákveðið að henni
muni farnast best með því að vera fullkomlega
samstíga yfirboðara sínum?
Í fréttaskýringu í nýjasta tölublaði vikurits-
ins Der Spiegel er því haldið fram að iðulega
eigi utanríkisráðuneytið engan þátt í að móta
utanríkisstefnu stjórnarinnar.
Utanríkisráðherra án alvöru verkefna
Blaðið tekur sem dæmi að þegar brottflutn-
ingur bandarískra hermanna í Írak hófst fyrir
rúmri viku var Clinton ekki send á staðinn held-
ur Joe Biden varaforseti. Þetta vakti furðu, en í
ljós kom að varaforsetinn á að vera háttsettur
tengiliður við írösku stjórnina.
Þetta er ekki eina dæmið um að Obama snið-
gangi utanríkisráðuneytið. Richard Holbrook er
sérlegur sendiherra í málefnum Pakistans og
Afganistans. George Mitchell á að miðla málum
milli Ísraels og Palestínu. Dennis Ross ber
ábyrgð á málefnum Persaflóa og Suðvestur-
Asíu. Hann er reyndar í utanríkisráðuneytinu,
en mun vera á leið í Hvíta húsið.
Í tímaritinu er það metið svo að Clinton reyni
að ber sig vel. Þegar Obama tali um utanrík-
ismál sitji hún í fremstu röð, og klappi hæfilega
lengi þar sem við eigi.
Sérlega vandræðalegt hafi verið þegar
George Stephanopoulos, sem komst til metorða
þegar eiginmaður Clinton, Bill, var forseti, fékk
hana í sjónvarpsþáttinn sinn og spurði hvert
hlutverk hennar væri eiginlega í stjórninni. Hún
svaraði að forsetinn hefði beðið sig að huga að
fæðuöryggi í heiminum og bætti svo við eftir
nokkra umhugsun að hún ætti einnig að ein-
beita sér að Haítí. Samkvæmt Spiegel segja vin-
ir Clinton að sorglegt sé hvernig komið sé fyrir
henni, en andstæðingar að þetta sé allt út-
hugsað. Lýkur greininni á orðunum: „Sennilega
hafa báðir rétt fyrir sér.“
Í dálkinum Lexington í tímaritinu The Eco-
nomist var skömmu fyrir mánaðamót lagt allt
annað mat á stöðu Clinton. Þar fær Clinton hrós
fyrir frammistöðu sína. Hún hafi hikstalaust
framfylgt stefnu Obama jafnvel í þeim málum,
sem hún gagnrýndi hann hvað mest fyrir í kosn-
ingabaráttunni. Þegar þingmaður úr röðum
repúblikana minnti hana á harðlínustefnu henn-
ar úr kosningabaráttunni svaraði hún hvössum
rómi: „Obama forseti sigraði í kosningunum.
Hann vann mig í forkosningum þar sem hann
setti fram aðra stefnu.“ Lexington bendir á að
Clinton njóti mestra vinsælda af stjórnarliðum
og fái meira að segja hrós frá andstæðingum.
Repúblikani einn kallaði hana „ofurstjörnu
stjórnarinnar“.
Eins og kemur fram í dálkinum er nú allt
annað andrúmsloft í samskiptum milli forseta-
embættisins, utanríkisráðuneytisins og varn-
armálaráðuneytisins en þegar George W. Bush
og Donald Rumsfeld voru við völd. Clinton
hagnist á því að nú sé sem fargi sé létt af ráðu-
neytunum.
Himnasending fyrir stjórn Obama
„Hinn nýuppgötvaði vingjarnlegi stíll Clinton
og stjórnunarhæfni hennar eru himnasending
fyrir stjórn Obama á tímamótum – og lykil-
ástæða fyrir því að landið hefur ekki þurft að
ganga í gegnum ein af hinum „erfiðu valdaskipt-
um“ sem Steinberg [sem er annar tveggja að-
stoðarutanríkisráðherra Clinton] hefur skrifað
um bók,“ skrifar Lexington. „Einu vonbrigðin
frá sjónarhóli hennar eru að hún skyldi ekki
hafa notað sömu hæfileika til að takast á við
Obama fyrir ári og hún beitir nú til að þjóna
honum. Hefði hún gert það væri Obama ef til
vill nú að læra að spila á aðra fiðlu.“
Nú er bara spurningin hvor greiningin á
stöðu Clinton er nær raunveruleikanum.
Reuters
Ofurstjarna eða aukapersóna?
Er Clinton lykilpersóna í
stjórn Obama eða er bara
vopnahlé á milli þeirra?
Klappað fyrir Obama Hillary Clin-
ton klappaði fyrir Barack Obama í
ræðustóli er hann flutti stefnuræðu
sína um „nýtt upphaf“ í sam-
skiptum Bandaríkjamanna við
múslímaheiminn í Kaíró-háskóla.
Hér gæti brotist út borgarastyrjöld.
Vilhjálmur Bjarnason, formaður Félags
fjárfesta, um þann möguleika að Kaupþing
samþykkti tilboð feðganna.
Ég hef alltaf haft fyrirvara á því hvort
rétt sé að ganga til viðræðna [um ESB]
án skýrs þjóðarvilja, það er ekkert nýtt
af minni hálfu.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, fulltrúi
Vinstri grænna í utanríkismálanefnd.
Ég er alltaf eins og krakki í dótabúð
þegar kemur að því að setja saman
hljómsveitirnar fyrir tónleikaferðalögin.
Björk gaf í vikunni út safnið Voltaïc, þar
sem hún gerir upp tveggja ára ferli í
tengslum við plötuna Volta.
Skeejby-sjúkrahúsið á einkaleyfið en ég
fæ kannski nafnið mitt greypt í hringinn.
Önundur Jónasson, nýútskrifaður véltækni-
fræðingur, fékk dönsk verkfræðiverðlaun
fyrir hönnun á hjartalokuhring.
Það er satt að G8 geta ekki ein síns liðs
leyst öll þau vandamál heimsins sem
þarf að leysa. Á tímum þeirra efnahags-
og fjármálaþrenginga sem hófust á síð-
asta ári þurfum við á framlagi Indlands,
Kína og Brasilíu að halda.
Taro Aso, forsætisráðherra Japans, á leið-
togafundi G8-ríkjanna á Ítalíu.
Ummæli
Leiðtogar Aðgerðarsinnar stilltu
sér upp í Róm með grímur helstu
leiðtoga heims þegar leiðtoga-
fundur G-8 ríkjanna var haldin
í borginni L’Aquila á Ítalíu.
F.v. Silvio Berlusconi, Dmitry
Medvedev, Nicolas Sarkozy,
Barack Obama, Angela Mer-
kel, Gordon Brown, Stephen Har-
per og Taro Aso.
’
Þeir sem setja sig inn í
málið af alvöru sjá það
að þetta er einhver
barnaskapur sem nær
bara engri átt.
Steingrímur J. Sigfússon,
fjármálaráðherra um af-
stöðu Davíðs Oddssonar,
fyrrverandi seðlabankastjóra, í Icesave-
málinu.
Mig langar líka með þessu að segja við
þá sem eru atvinnulausir að það er allt
hægt og það má ekki gefast upp.
Inga Jessen, viðskiptafræðingur, bjó til
ferðasíðu eftir að hún missti vinnuna í
október.
Það væri nú kjánalegt að vera ekki svo-
lítið kvíðinn.
Jón Gunnar Benjamínsson, er lamaður fyr-
ir neðan mitti, en fer yfir hálendið á fjór-
hjóli.
Draumur æsku minnar hefur nú ræst
með samningi mínum við Real Madrid.
Cristiano Ronaldo, dýrasti knatt-
spyrnumaður heims.
En kraftaverkin gerast og með þriðja
hjartanu kom kærastan mín, hún Sunn-
eva, og svo dóttirin. Hjarta mitt slær í
gleðitakti alla daga.
Helgi Einar Harðarson, sem tvisvar hefur
gengist undir hjartaígræðslu.
Við erum bara leitarþolar, ekki sakborn-
ingar, eins og staðan er í dag.
Þór Sigfússon, formaður Samtaka at-
vinnulífsins, sætti húsleit vegna stöðu
sinnar sem fyrrverandi forstjóri Sjóvár.
Ég tel að það sé alveg einsýnt að aðild-
arumsókn [ESB] verði ekki tekin alvar-
lega og það sé einfaldlega óraunhæft
að leggja fram umsókn á meðan Ice-
save-málið er óafgreitt.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins.
En burtséð frá því hver á í hlut verða all-
ir að sitja við sama borð.
Þórður B. Sigurðsson, formaður Hags-
munasamtaka heimilanna, í kjölfar fréttar
um að Björgólfsfeðgar hefðu gert Kaup-
þingi tilboð um greiðslu 40-50% af 6 millj-
arða skuld sinni við bankann.