Morgunblaðið - 12.07.2009, Page 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Okkar ástkæri og yndislegi eiginmaður, faðir, sonur,
tengdasonur, bróðir, mágur og vinur,
HAFÞÓR HAFSTEINSSON
flugmaður,
Skrúðási 9,
Garðabæ,
lést af slysförum fimmtudaginn 2. júlí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
13. júlí og hefst athöfnin kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík.
Hjördís Líney Pétursdóttir,
Andri Pétur Hafþórsson,
Arnar Hugi Hafþórsson,
Elsa Smith,
Hafsteinn Sigurðsson,
Sigrún Jónatansdóttir, Pétur Jóhannsson,
Íris Mjöll Hafsteinsdóttir, Ríkarður Sigmundsson,
Hjördís Baldursdóttir, Þorleifur Björnsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskulegur sonur okkar, barnabarn, bróðir, mágur
og frændi,
BOGI SIGURÐUR EGGERTSSON,
lést mánudaginn 29. júní.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum fyrir allan stuðning frá vinum og vanda-
mönnum.
Guð blessi ykkur öll.
Þórhildur Kristjánsdóttir, Eggert Bogason,
Sigurlaug Eggertsdóttir,
Kristín G. Friðbjörnsdóttir, Grétar Magnússon,
Þorvarður Friðbjörnsson, Ragnhildur Sigurðardóttir
og systkinabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GÍSLÍNA HLÍF GÍSLADÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík, mánudaginn
6. júlí.
Útförin mun fara fram frá Dalvíkurkirkju fimmtu-
daginn 16. júlí kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á reikning
sem stofnaður hefur verið í hennar minningu í Sparisjóði Svarfdæla,
1177-05-404537, kt. 081271-3999, til styrktar uppbyggingu á starfsemi
B-deildar Dalbæjar.
Jóhann Daníelsson,
Yngvi Örn Stefánsson, Ragnheiður Elín Ragnarsdóttir,
Anna Guðlaug Jóhannsdóttir,
Gísli Már Jóhannsson,
Aðalbjörg Kristín Jóhannsdóttir, Rúnar Dýrmundur Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elskulegur bróðir, mágur og frændi,
GUÐJÓN JÓNSSON
frá Mörk,
Efstalandi 6,
Reykjavík,
lést mánudaginn 6. júlí.
Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 15. júlí kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Geðhjálp.
Bergdís Jónsdóttir,
Þóra Karítas Árnadóttir
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg systir okkar,
ÁRÓRA BJÖRNSDÓTTIR STEPHANS,
lést á heimili sínu í San Diego, Bandaríkjunum
þriðjudaginn 7. júlí.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Birna Á. Björnsdóttir,
Jónína Björnsdóttir,
Ástráður Björnsson,
Björn H. Björnsson.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FLOSI BJARNASON,
lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi þriðju-
daginn 7. júlí.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju þriðjudaginn
14. júlí kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalar-
heimili aldraðra, Borgarnesi.
Erla Flosadóttir,
Sigríður Flosadóttir,
Þórður Flosason,
tengdabörn, afa- og langafabörn.
✝ Ragnhildur Stein-grímsdóttir fædd-
ist á Akureyri 11. júní
1927. Hún andaðist á
Kristnesspítala 25.
júní síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Steingrímur Þor-
steinsson, f. 30.12.
1881, d. 27.11. 1962,
og Tómasína Tóm-
asdóttir, f. 27.4. 1884,
d. 25.1.1971. Ragn-
hildur var yngst af 6
systkinum sem voru:
Þórhildur, f. 31. 3.
1908, d. 12.9. 2002, Tómas, f. 6.11.
1909, d. 1.7. 1996, Margrét, f. 27.3.
1912, d. 8.7. 1995, Ingibjörg, f. 8.10.
1916, d. 29.9. 1969, Brynhildur, f.
18.9. 1919, d. 20.1. 1996.
Ragnhildur giftist eftirlifandi
manni sínum, Sigurði Karlssyni, 9.
mars 1971 í Vestmannaeyjum, á
fertugsafmælisdegi hans.
Ragnhildur ólst upp á Akureyri
hjá foreldrum sínum. Hún nam leik-
list og leikstjórn, fyrst í Leiklistar-
skóla Lárusar Pálssonar og síðar í
Danmörku og Sví-
þjóð. Hún kom að fjöl-
mörgum leik-
húsverkum bæði sem
leikari og leikstjóri,
framan af mest hjá
Leikfélagi Akureyrar
en einnig hjá Leik-
félagi Reykjavíkur og
í Þjóðleikhúsinu. Síð-
ar starfaði hún mjög
mikið sem leikstjóri
með fjölmörgum leik-
félögum víða um land.
Ragnhildur og Sig-
urður stofnuðu heim-
ili sitt á Akureyti en fluttust fljót-
lega til Vestmannaeyja þar sem
Sigurður stóð að rekstri Hótels
Bergs með móður sinni. Eftir gos
fluttust þau til Hveragerðis og
bjuggu þar í mörg ár, fluttust síðan
til Ólafsvíkur þar sem Ragnhildur
leikstýrði nokkrum leikritum. Árið
1994 fluttust þau til Akureyrar þar
sem þau áttu sín síðustu ár saman.
Útför Ragnhildar fór fram í kyrr-
þey að viðstöddum ættingjum og
venslafólki.
Sjá dagar koma, ár og aldir líða,
og enginn stöðvar tímans þunga nið …
Þessar línur Davíðs koma upp í
hugann þegar það gerist um svipað
leyti að elsta barnabarnið okkar
gengur í hjónaband, fréttir berast af
væntanlegu barnabarnabarni, og síð-
asta systkini móður minnar fellur frá.
Ef hinn þungi niður tímans er eins og
niður árinnar, hinnar lygnu móðu,
eru stöku sinnum flúðir, eins og
gengur.
Ragnhildur Steingrímsdóttir var
systir móður minnar, Þórhildar, 19
árum yngri. Þegar ég man fyrst eftir
mér var hún ásamt foreldrum sínum
enn búandi í Hrafnagilsstræti 6 á Ak-
ureyri, í húsi foreldra minna, eini
unglingurinn í húsinu. Eins og ég
dáðist hún að framgöngu systur sinn-
ar Brynhildar á fjölum leikhússins.
Ég giska á að það hafi orðið til þess að
hún lagði þá listgrein fyrir sig. Hún
tók þátt í fjölmörgum leikverkum
bæði á Akureyri og í Reykjavík, en
tiltölulega snemma á sínum ferli fór
hún að snúa sér að leikstjórn. Mun
hún vera í hópi fyrstu kvenna í leik-
arastétt sem fóru þá leið. Gæti ég trú-
að að það verkefni hafi hentað henni
afar vel. Hún hafði hæfileika á ýms-
um sviðum, gat teiknað andlit fjöl-
skyldufólks með skemmtilegum
hætti og tónlist var henni í blóð borin.
Auk þess þykist ég vita að þekking
hennar á leikhúsfræðum hafi verið
haldgóð en hún stundaði nám á Ís-
landi, í Danmörku og í Svíþjóð. Það
varð hennar hlutskipti um margra
ára skeið að annast leikstjórn í
áhugaleikhúsum víða um land, sum-
staðar oft, og var það mjög gefandi
starf.
Síðustu 15 árin bjó Ragnhildur á
Akureyri ásamt manni sínum Sigurði
Karlssyni. Þau ár voru ekki alltaf
auðveld, ekki síst þegar systkinin
féllu frá eitt af öðru. Alltaf tóku þau
hjón vel og rausnarlega á móti ætt-
fólki sínu, börnunum þótti gott að
koma til Sigga og Diddu.
Þegar móðir mín bjó einsömul í
Víðilundi á Akureyri voru þau hjónin
Ragnhildur og Sigurður óþreytandi
við að hjálpa, bjóða í mat og fara í bíl-
túr í eðalvagni Sigurðar. Fyrir það
þakka ég af heilum hug.
Við hjónin sendum Sigurði okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Stefán Hermannsson.
Þær voru kallaðar Steingrímssyst-
ur, og settu lengi svip sinn á Akur-
eyri. Nú hefur sú síðasta kvatt, Ragn-
hildur, leikkona og leikstjóri, sem
andaðist þann 25. júní sl., 82ja ára að
aldri.
Systurnar voru fimm, Þórhildur
íþróttakennari elst, móðir mín Mar-
grét saumakona, Ingibjörg söng-
kona, Brynhildur, sem annaðist
heimilið, og Ragnhildur yngst. Bróð-
irinn, Tómas, stórkaupmaður, var sá
þriðji í röð systkinanna.
Heimili afa míns og ömmu, þar sem
fjórar systranna bjuggu lengst af eða
áttu sem heimahöfn, var hlýr heimur.
Allt heimilisfólkið var tónelskt og
hafði hlotið tilsögn í tónlist þótt Ingi-
björg bæri þar af mikilli hæversku
höfuð og herðar yfir aðra. Ingibjörg,
Margrét, Ragnhildur og amma sungu
sópran, Brynhildur og Þórhildur
millirödd, en afi bassa. Á jólum var
hápunkturinn án nokkurs efa „Í dag
er glatt í döprum hjörtum“, sem mér
fannst og finnst enn innleiða fagnað-
arhátíð frelsarans, hvar svo sem sá
óperusöngur er fluttur.
Ragnhildur hlaut menntun í leik og
leikstjórn í Reykjavík og síðar í Dan-
mörku og í Svíþjóð. Framan af ævi
helgaði hún starfkrafta sína leikhús-
lífi og starfaði einkum víða um landið
við uppsetningu leikhúsverka með
áhugamannaleikhúsum. Eru mér
minnisstæð mörg þeirra verka, en
efst stendur þó uppsetning hennar á
Íslandsklukku Halldórs Laxness á
Akureyri árið 1959/60.
Ragnhildur kynntist eftirlifandi
eiginmanni sínum, Sigurði Karlssyni,
árið 1971. Þau tengdust mjög nánum
böndum og stóðu saman í blíðu og
stríðu.
Og ekki verður því neitað að þeim
var ekki hlíft við erfiðleikum. Sigurð-
ur er Vestmannaeyingur, rak þar
hótel með móður sinni og hafði gert
upp gamla sjóbúð þar sem þau Ragn-
hildur gerðu sér hlýtt og gott heimili.
Hvort tveggja, hótel og heimili,
brann í Vestmannaeyjagosinu.
Þau áttu síðan heimili í Hveragerði
og síðan í Ólafsvík og byggði Sigurð-
ur yfir þau hjónin eða breytti og
bætti eldri hús, enda er hann mikill
hæfileikamaður á sviði hönnunar og
verkmenntunar, þótt hann verði að
teljast að mestu sjálfmenntaður á
báðum sviðum. Hvar sem þau
bjuggu, gerðu þau sér hlýlegt og
smekklegt heimili, sem bar vott um
natni Ragnhildar og verklagni Sig-
urðar. Þótt á ýmsu gengi hjá þeim
hjónum, þá var bjartsýnin óbilandi.
Þegar syrti í álinn, var leitað nýrra
tækifæra.
Síðustu árin bar skugga heilsuleys-
is á líf þeirra Ragnhildar og Sigurðar.
Þau lögðu á það mikla áherslu að fá
að dvelja á eigin heimili eins lengi og
frekast var unnt, og nutu umönnunar
heimilisþjónustu Akureyrarbæjar.
Barnabörn Tómasar, bróður Ragn-
hildar, veittu þeim hjónum mikla að-
stoð alla tíð. Margrét Tómasdóttir,
frænka Ragnhildar, sýndi þeim hjón-
um mikla natni og veitti þeim aðstoð
síðustu árin. Þá áttu þau Sigurður og
Ragnhildur á vísan að róa, þar sem
voru bræðurnir Stefán og Birgir
Hermannssynir og fjölskyldur
þeirra.
Vini mínum Sigurði Karlssyni
sendi ég samúðarkveðjur okkar
hjóna frá Frakklandi, og fjölskyld-
unnar, sem dreifist nú víða um heim.
Tómas Ingi Olrich.
Ragnhildur
Steingrímsdóttir