Morgunblaðið - 12.07.2009, Qupperneq 29
Auðlesið efni 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009
Lands-mót Ung-menna-félags
Íslands, hófst á Akureyri
síðast-liðinn fimmtu-dag en
form-leg setning fór fram með
við-höfn á mikilli hátíð á
föstudags-kvöldið.
Þetta er eitt-hundrað ára
afmælis-mót en fyrsta
Lands-mótið var haldið á
Akureyri árið 1909. Skráðir
þátt-takendur að þessu sinni
eru nær tvö þúsund sem gerir
þetta mót eitt stærsta
Lands-mót frá upp-hafi.
Keppt er í mörgum og ólíkum
greinum víða um bæinn og
stendur mótið til sunnudags.
Þá hefur verið opnuð
sögu-sýning UMFÍ í
Amts-bóka-safninu á
Akureyri, þar sem mótin eru
rifjuð upp. Einnig voru
afhjúpaðir fjórir bauta-steinar
við nýja íþrótta-leik-vanginn á
Þórs-svæðinu, einn um hvert
lands-mót sem haldið hefur
verið á Akureyri.
Hundrað ára afmælis-mót UMFÍ
Landsmót UMFÍ. Fyrsti keppnisdagur á Akureyri.
Gömlu erki-fjendurnir Valur og KR
drógust saman í bikar-keppni karla í
knatt-spyrnu, þegar dregið var til átta
liða úrslitanna. Annar
nágranna-slagur verður í Kópavogi
þar sem HK og Breiða-blik mætast.
Keflavík fékk heima-leik gegn FH, og
Fram tekur á móti Fylki. Hjá konunum
drógust saman Breiðablik og Fylkir
annars vegar og Valur og Stjarnan
hins vegar.
„Þetta er athyglis-verður leikur þar
sem liðin hafa eldað grátt silfur
saman í gegnum tíðina, og eflaust
verður engin breyting þar á nú,“ sagði
Logi Ólafsson, þjálfari KR. Atli
Eðvaldsson, ný-ráðinn þjálfari Vals og
fyrr-verandi þjálfari og leik-maður KR,
hlakkar til bikar-leiksins gegn sínu
gamla liði og er bjart-sýnn fyrir hönd
Vals.
Valur og KR mætast
Tón-skáldið Ólafur Arnalds mun
semja tónlist fyrir nýjasta verk
Waynes McGregor, eins um-talaðasta
dans-höfundar heims í dag, en hann
gegnir nú starfi aðal-dans-höfundar
Konunglega ballettsins í Bretlandi.
McGregor er í farar-broddi hvað
ný-sköpun dans-listarinnar varðar.
Ólafur hefur gengið frá samningi um
að hann muni semja tón-listina og
flytja hana undir verkinu sem verður
frum-sýnt í október. Sex sýningar
verða í hinu 2.000 manna Sadlers
Wells-leikhúsi, en verkið var samið
fyrir dans-hóp þess húss. Síðan
verður farið með verkið víða um heim
og verður Ólafur þá með í för.
Semur tónlist fyrir McGregor
Lítil sam-staða er í utan-ríkis-
mála-nefnd Al-þingis um
ESB-ályktunina. Fundir
nefndarinnar um ESB-málið
riðluðust þegar ekki náðist
sam-staða um málið og
út-býtingu skjala á Al-þingi
var af-lýst. Nokkrir
nefndar-menn vildu sjá
ákvæði um tvö-falda
atkvæða-greiðslu inni í
þings-ályktuninni og hleypti
það fyrir-ætlunum
Sam-fylkingarinnar í
upp-nám.
„Ég hef alltaf haft fyrir-vara
á því hvort rétt sé að ganga
til við-ræðna án skýrs
þjóðar-vilja,“ sagði Guð-fríður
Lilja Grétars-dóttir, full-trúi
VG í utan-ríkis-mála-nefnd. Á
fundinum setti minnihlutinn
ýmsa fyrirvara. Guðfríður Lilja
gerði athuga-semdir og taldi
að margt mætti betur fara
áður en hún gæti skrifað
undir sam-eiginlegt álit.
Lítil sam-
staða
Þúsundum manna af þjóðar-
broti Uighur-manna lenti
saman við kín-verska meiri-
hlutann í Xin-jiang héraði í
Kína, 45% íbúa héraðsins
eru Uighur-menn, 40% Han-
Kínverjar. Uighur-menn eru
múslímar og hafa þeir horft
upp á mikinn straum að-
fluttra Han-Kínverja sem eru
nú nærri jafn margir og þeir.
Kína-stjórn reynir mark-visst
að brjóta niður menningu
Uighura. Reynt er að bæla
niður frjálsa trúar-iðkun og
notkun tungu-máls Uighura
er bönnuð í skólum og
Han-Kínverjar fá
áhrifa-mestu störfin. Frá
árinu 1991 hefur öðru
hverju skorist í odda á milli
þeirra en aldrei með jafn
af-drifa-ríkum hætti og nú.
Ungir Uighurar eru farnir að
rísa upp og kín-versk
stjórn-völd líta mót-mælin
alvar-legum augum enda eru
þau ein-hver hin fjöl-
mennustu frá ó-eirðunum á
Torgi hins himneska friðar.
Óeirðir í Kína
Hús-leit var gerð hjá Sjóvá og
í höfuð-stöðvum Milestone
og á heimilum helstu
stjórnenda félaganna
tveggja, á vegum embættis
sér-staks sak-sóknara.
Eftir að Milestone, fyrrum
eigandi Sjóvár, keypti félagið
breyttist það úr hefð-bundnu
vátrygginga-félagi í fjár-
festinga-félag. Milestone
eignaðist Sjóvá að fullu
2006. Það ár tvö-földuðust
eignir félagsins, ekki síst
vegna aukningar fjár-festinga-
eigna sem voru fast-eignir
víðs-vegar um heim. Skuldir
hækkuðu einnig.
Bóta-sjóðurinn stækkaði
hins vegar lítið þannig að
vátrygginga-starf hefur ekki
vaxið mikið. Sama þróun varð
á árinu 2007 og ekki hafa
verið birtir opin-berlega
reikningar fyrir árið 2008.
Sjóvá átti ekki fyrir
vátrygginga-skuld sinni og
leggja þurfti félaginu til fé svo
það gæti staðið undir henni.
Það er helsta ástæða þess
að sér-stakur sak-sóknari
rannsakar nú hvort færsla á
fjár-festinga-eignum úr
móður-félaginu Milestone inn
í Sjóvá á síðast-liðnum
tveimur árum varði við lög um
hluta-félög, lög um starf-semi
trygginga-félaga eða séu
umboðs-svik. Hús-leitir voru
fram-kvæmdar á tíu stöðum.
Hús-leit hjá Sjóvá
Fjórðungur kvenna á Íslandi
hefur verið beittur líkam-legu,
and-legu eða kynferðis-legu
of-beldi af maka. Skýr tengsl
eru á milli of-beldisins og
heilsu-fars-vanda-mála
kvennanna, að því er
niður-stöður rannsóknar
sýna. Brynja Örlygsdóttir,
doktor í hjúkrunar-fræði, og
Erla Kolbrún Svavarsdóttir,
prófessor við hjúkrunar-
fræði-deild Háskóla Íslands,
stóðu að rannsókninni.
Niður-stöðurnar sýna að 11%
kvenna hræðast maka sinn
og rúm-lega þriðjungur segir
spennu ríkja í sam-bandinu.
Í vikunni var karl-maður
dæmdur í átta ára fangelsi
fyrir gróf og ítrekuð kyn-
ferðis-brot gegn fyrrverandi
sambýlis-konu sinni.
Of-beldi
gegn konum