Morgunblaðið - 12.07.2009, Page 39
Menning 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009
Það er sjaldgæf en ánægju-leg upplifun þegar bíó-mynd tekur mann föstumtökum á fyrstu augna-
blikunum og sleppir ekki fyrr en
löngu eftir að henni er lokið, mað-
ur er hreint dasaður af spennu.
The Hurt Locker segir frá harð-
vítugum og stórhættulegum störf-
um sprengjudeildarinnar Delta, í
bandaríska hernum í Íraksstríð-
inu. Bigelow varpar okkur inn í
hjarta átakanna í Bagdad þar sem
Delta-deildin er send á vettvang
til að gera sprengju óvirka. Borg-
in og umhverfi hennar morar af
stórhættulegum jarðsprengjum,
sannkölluðum vítisvélum með
tímastillum sem tikka uns þær
sprengja menn og umhverfi í tætl-
ur. Thompson liðþjálfi (Pearce) er
sérfræðingur í að vinna slík
hættuverk og minnir meira á
geimfara þar sem hann rambar
um um váleg og stríðshrjáð stræti
Bagdad þar sem innfæddir fylgj-
ast óræðir með í hæfilegri fjar-
lægð, enginn veit hvort þeir eru
vinveittir setuliðinu eða varasamir
fjendur. Aðstoðarmenn hans eru
Sanborn liðþjálfi (Mackie), reynd-
ur og yfirvegaður stríðsmaður
sem telur dagana uns hann losnar
úr prísundinni og getur snúið aft-
ur til borgaralegs lífs. Eða svo
segir hann. Þriðji Delta-liðinn
sem kemur mikið við sögu er sér-
fræðingurinn Eldridge (Ge-
raghty), sá stressaði og spennti.
Aðgerðin endar með því að
Thompson er sprengdur í loft upp
og liðþjálfinn James (Renner)
kemur í hans stað. Ósvikið, þögult
hörkutól sem virðist ganga til
móts við dauðann með ákefð og
sigurvilja hólmgöngumanns,
áhættufíkill með óvirkt tauga-
kerfi, sem er ekki fullkomlega
rétt, hann sýnir önnur viðbrögð
þegar hann finnur „Beckham“,
ungan, íraskan vin sinn og svarta-
markaðsbraskara, myrtan með tif-
andi sprengju sem er búið að
troða og sauma inn í innyfli hans.
Bigelow sannar að hún er einn
besti spennumyndasmiður sem völ
er á í dag, þrátt fyrir misjafnar
myndir að undanförnu.
saebjorn@heimsnet.is
Smárabíó, Regnboginn
The Hurt Locker
bbbbm
Leikstjóri: Kathryn Bigelow. Aðalleik-
arar: Jeremy Renner, Anthony Mackie,
Brian Geraghty, Ralph Fiennes, Guy Pe-
arce. 120 mín. Bandaríkin. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
The Hurt Locker „Það er sjaldgæf en ánægjuleg upplifun þegar bíómynd
tekur mann föstum tökum á fyrstu augnablikunum og sleppir ekki fyrr en
löngu eftir að henni er lokið.“
Dauðinn við hvert fótmál
Allt síðan á Sturlungaöld
höfum við Íslendingar verið
hófsamir í vopnabrölti og
vígaferlum. Engu að síður
eigum við færa og flinka
sprengjudeild, sem er undir
hatti Landhelgisgæslunnar.
Hún hefur sem betur fer lít-
ið komið nálægt beinum
stríðsátökum en hefur engu
að síður ærinn starfa og
hættulegan við að aftengja
og eyða ýmiss konar
sprengjum og skotfærum
sem enn liggja eins og hrá-
viði á gömlum æfingasvæð-
um setuliðsins frá tímum síð-
ari heimsstyrjaldarinnar.
Eins er deildin oft í fréttum
í sambandi við eyðingu tund-
urdufla frá sömu tímum, en
þau eru ekki óalgengur vá-
gestur í veiðarfærum fiski-
skipaflotans, einkum togar-
anna.
Íslenska
sprengjudeildin
Allt A 40-80%
afslAEtti
OpiD:
laugardag: 10-17 - sunnudag: 13-17 - VIRKA DAGA 10-18:30
BANDARÍSKA söngstjarnan Lady
Gaga segist vera algerlega aura-
laus. Þrátt fyrir að vera ein vinsæl-
asta poppstjarna samtímans segist
hún ekki eiga bót fyrir boruna á
sér. „Ég eyði öllum þeim peningum
sem ég eignast í búninga og dót til
að nota á sviði,“ segir Lady Gaga
og viðurkennir að hún hafi orðið
gjaldþrota fjórum sinnum.
„Umboðsmaðurinn minn er sko
ekki ánægður með mig!“
Lady Gaga segist vera einhleyp
en það komi ekki í veg fyrir að hún
stundi kynlíf reglulega. „Ég sef
bara sjá strákunum í hljómsveitinni
minni, það er langþægilegast,“ seg-
ir poppdívan.
Lady Gjaldþrota
Lady Gaga Eyðir öllum pening-
unum sínum í búninga.