Morgunblaðið - 18.08.2009, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
KONUNGLEGA breska stjörnu-
skoðunarstöðin hefur tilnefnt Örv-
ar Atla Þorgeirsson áhugaljós-
myndara, ljósmyndara ársins 2009.
Er hann tilnefndur til verðlaun-
anna fyrir tvær mynda sinna, en ell-
efu ljósmyndarar eru tilnefndir fyr-
ir þrettán myndir. Allar myndir
sem bárust í keppnina verða til sýn-
is í húsakynnum stjörnuskoð-
unarstöðvarinnar í London frá tí-
unda september, en sigurvegarinn
hlýtur þúsund pund að launum,
jafnvirði 210.000 íslenskra króna.
Úrslitin verða kynnt níunda sept-
ember
„Það er náttúrulega heiður að
vera tilnefndur,“ segir Örvar og er
að vonum ánægður með tilnefn-
inguna. Hann kveðst ekki hafa átt
von á að verða tilnefndur og þaðan
af síður hafi hann búist við að vera
tilnefndur fyrir tvær myndir.
Norðurljósin veita forskot
„Það sem við Íslendingar höfum
fram yfir aðrar þjóðir er að við
sjáum norðurljósin,“ segir Örvar og
telur ekki útilokað að það hafi veitt
honum forskot á keppendur annars
staðar frá. Ljósin eru í aðalhlut-
verki á báðum myndunum sem Örv-
ar er tilnefndur fyrir.
Stjörnuskoðunarstöðin óskaði
eftir myndum af stjarnfræðilegum
fyrirbærum eða öðru tengdu him-
ingeimnum á Flickr-myndavefnum
og eru 844 félagar í hópi hennar á
síðunni. Hver ljósmyndari mátti
senda tíu myndir og er því ljóst að
myndir hans voru valdar úr breið-
um hópi, en Örvar telur að á sjö-
unda hundrað manns hafa tekið
þátt í keppninni.
Norðurljósin til London
Konunglega breska stjörnuskoðunarstöðin í Greenwich tilnefnir íslenskan
áhugaljósmyndara sem ljósmyndara ársins 2009 fyrir tvær ljósmyndir sínar
Ljósmynd/Örvar Atli Þorgeirsson
Áhorfandi Önnur hinna tilnefndu mynda Örvars sýnir stórbrotið sjónarspil norðurljósanna yfir Mosfellsheiði.
SIGURGEIR Jónsson,
hagfræðingur og fyrr-
verandi ráðuneytis-
stjóri, lést á líknardeild
Landspítalans í Kópa-
vogi á sunnudag, 75 ára
að aldri.
Hann fæddist í Vík í
Mýrdal 23. janúar 1934
og ólst þar upp. Voru
foreldrar hans Jón Þor-
varðsson, sóknarprest-
ur í Vík og síðar
Reykjavík og eiginkona
hans, Laufey Eiríks-
dóttir húsmóðir.
Sigurgeir varð stúd-
ent frá Menntaskólanum í Reykjavík
1954, lauk prófi í viðskiptafræði við
Háskóla Íslands 1957 og M.A. prófi í
hagfræði við Stanford-háskóla í
Kaliforníu 1960. Hann var hagfræð-
ingur Seðlabankans 1963-1968 og
varafulltrúi Norðurlanda í stjórn Al-
þjóðagjaldeyrissjóðs-
ins 1968-1972.
Árið 1972 varð hann
aðstoðarbankastjóri
Seðlabankans. 1986
tók hann við embætti
ráðuneytisstjóra í fjár-
málaráðuneytinu sem
hann gegndi til 1990
þegar hann varð for-
stjóri Lánasýslu rík-
isins. Hann lét af störf-
um 1999.
Sigurgeir ritaði mik-
ið um peninga- og
gengismál í Fjármála-
tíðindi. Hann var fyrsti
formaður stjórnar Verðbréfaþings
og sat um árabil í stjórn Flugleiða.
Eftirlifandi eiginkona Sigurgeirs er
Ingibjörg Júnía Gísladóttir, fyrrver-
andi skrifstofumaður, og eignuðust
þau þrjú börn, Guðbjörgu, Jón Þor-
varð og Gísla.
Andlát
Sigurgeir Jónsson VERÐ á fötum
var 29,5% hærra
í júlí miðað við
sama mánuð í
fyrra þótt sum-
arútsölur hafi
staðið yfir, að því
er kemur fram í
tilkynningu frá
Rannsóknasetri
verslunarinnar.
Verð á fötum
lækkaði um 7,7% í júlí frá mán-
uðinum á undan. Fataverslun var
11,4% minni í júlí á föstu verðlagi
miðað við í júlí í fyrra en jókst um
14,7% á breytilegu verði á sama
tímabili. Sala áfengis jókst um 2,1%
í júlí miðað við júlí í fyrra á föstu
verðlagi og um 40,2% á breytilegu
verðlagi. Verð á áfengi var 37,2%
hærra í júlí síðastliðnum en í júlí í
fyrra. Velta í húsgagnaverslun
minnkaði um 45,4% á föstu verðlagi
og sala á raftækjum dróst saman
um 33,7% á föstu verðlagi.
Föt 30 prósentum
dýrari en í fyrra
Dýrt Hærra verð
þrátt fyrir útsölur.
HALLDÓRU Magnúsdóttur, að-
stoðarskólastjóra Hvolsskóla um
margra ára skeið, var ekki boðin
staða skólastjóra
þrátt fyrir að hafa
verið metin hæf-
ust umsækjenda.
Á fundi sveit-
arstjórnar Rang-
árþings vestra á
fimmtudag var
ákveðið að slíta
viðræðum við
Halldóru , um-
sækjanda um
skólastjórastöðu. Staðan var auglýst
til umsóknar í vor og sóttu fjórir um
stöðuna og voru tveir metnir hæf-
astir. Halldóra þótti hafa meiri
stjórnunarreynslu, þekkingu og
reynslu af skólastarfi og 23. júlí sl.
var ákveðið að ganga til viðræðna við
hana. Í síðustu viku var þeim við-
ræðum slitið og að sögn Elvars Ey-
vindssonar, sveitarstjóra Rang-
árþings eystra, er líklegt að sá
umsækjandi sem einnig hafi verið
metinn mjög hæfur verði ráðinn til
starfans. Skólastarf hefst eftir rúma
viku.
Hlaut menntaverðlaunin 2008
Hvolsskóli þykir hafa verið fram-
arlega í nýsköpun í skólastarfi og
hlaut Íslensku menntaverðlaunin
2008.
Málið er viðkvæmt og ljóst er að
Halldóra er ekki sátt við stöðu mála.
Þegar umræður um ráðningu skóla-
stjóra hófust var fundinum lokað.
Elvar segir að um persónulegt og
viðkvæmt mál hafi verið að ræða og í
slíkum tilvikum sé ekkert óeðlilegt
við það að loka fundi. Ljóst er að
fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks voru ekki sáttir við
Halldóru en fulltrúi K-lista mælti
með ráðningu hennar en Halldóra
hefur komið nálægt starfi K-listans.
Ólafur Eggertsson, oddviti sveit-
arstjórnarinnar og fulltrúi K-listans,
segir að sér finnist viðsnúningur full-
trúa Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks óskiljanlegur. Það hafi alltaf
ríkt einhugur um skólastarfið. Hall-
dóra hafi verið með ákveðnar hug-
myndir sem ekki hafi verið sátt um.
Hún hafi fallið frá þeim hugmyndum
og hugðist starfa eftir því skipulagi
sem skólinn hefur fylgt að und-
anförnu. „Það hefur verið unnið sér-
staklega gott starf í Hvolsskóla.
Frumkvæði og nýsköpun í skóla-
starfi þar hefur leitt til þess að skóla-
fólk víða að hefur leitað í brunn þekk-
ingar og reynslu sem þar er. Þetta er
óskiljanlegt.“ svanbjorg@mbl.is
Metin
hæfust en
ekki boðin
staðan
Elvar Eyvindsson
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
FRÍÐA Regína Höskuldsdóttir, sem í fyrrakvöld
var sagt upp starfi skólastjóra Landakotsskóla
með bréfi sem boðsent var heim til hennar, hefur
snúið sér til lögmanns Kennarasambands Íslands,
KÍ, vegna uppsagnarinnar.
„Það stóð í bréfinu að mér væri sagt upp í hag-
ræðingarskyni. Það er ekki hægt að hagræða í
skólastarfi með því að segja upp skólastjóra. Þá
verður að leggja skólann niður. Þetta er ólögleg
uppsögn að mínu mati,“ segir Fríða Regína.
Aðhaldsaðgerðir í gangi
Páll Baldvin Baldvinsson, sem situr í nýrri
stjórn Landakotsskóla, segir litið til allra liða í
hagræðingarskyni. Nokkrum starfskröftum hafi
verið sagt upp fyrir síðustu mánaðamót og starfs-
hlutfall annarra minnkað. „Það eru aðhaldsað-
gerðir í gangi við skólann. Við vitum ekki hvert
framlag borgarinnar til skólans verður á næsta ári
en kostnaðarhækkanir voru verulegar á síðasta
ári. Það var litið yfir allan launakostnað í skól-
anum og ákvörðunin var tekin með heildina í huga.
Það er skýrt í lögum um grunnskóla að hægt er að
segja skólastjóra upp í hagræðingarskyni.“
Að sögn Páls Baldvins gegnir aðstoðarskóla-
stjóri, Sigríður Hjálmarsdóttir, skyldum skóla-
stjóra tímabundið. Spurður um mögulegan sparn-
að með uppsögn skólastjóra og ráðningu nýs segir
hann: „Við erum að skoða hvernig yfirstjórn skól-
ans verður komið fyrir.“
Sér ekki forsendurnar
Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands
Íslands, segir skýrt í kjarasamningum og reglum
sem gilda um grunnskóla, hvort sem þeir eru op-
inberir eða sjálfstætt reknir, hvaða forsendur
þurfi að vera fyrir hendi áður en til uppsagnar
kemur. „Ég sé þær ekki í þessu máli.“
Eiríkur getur þess að tafarlaus brottvikning sé
ekki réttlætanleg nema viðkomandi hafi brotið
mjög alvarlega af sér í starfi. Ekki skapist réttur
til þess að segja mönnum upp nema þeir hafi feng-
ið áminningu og ekki bætt ráð sitt. „Að mínu viti er
hvorugu til að dreifa í þessu tilviki. Það er skýrt í
lögum að í hverjum grunnskóla skuli vera skóla-
stjóri. Ég veit ekki á hvaða grein Páll Baldvin
byggir þá skoðun sína að hægt sé að segja upp
skólastjóra í hagræðingarskyni.“
Telur uppsögn sína ólöglega
Skólastjóra Landakotsskóla sagt upp að kvöldlagi með boðsendu bréfi
Talsmaður stjórnar skólans segir löglegt að segja upp skólastjóra í hagræðingarskyni
Í HNOTSKURN
»Kaþólska kirkjan hætti fyrir nokkrumárum rekstri Landakotsskóla.
»Stofnað var sjálfstætt félag um rekst-urinn, sjálfseignarstofnunin Landakots-
skóli ses.
»Skólinn fær fjárframlög frá Reykjavík-urborg auk þess sem foreldrar greiða
20 þúsund kr. á mánuði vegna skólavistar
barna sinna.