Morgunblaðið - 18.08.2009, Síða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009
Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við
fótsvepp (tinea pedis).Ekki má nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni
lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil
Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Lamisil Once.
Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að
bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel
þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki
sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi:
Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Drepur fótsveppinn
- þarf aðeins að bera á einu sinni
½½
Notaðu alla Lamisil
Once® túpuna á báða
fæturna til að forðast
að sýkingin taki sig
upp á ný
Berðu Lamisil
Once® á:
á milli tánna, bæði undir
þær og ofan á
bæði á iljar og jarka
24h
Til að ná sem bestum
árangri skal ekki þvo
fæturna í sólarhring
1 32
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 12 skúrir Lúxemborg 25 léttskýjað Algarve 29 léttskýjað
Bolungarvík 13 skýjað Brussel 23 léttskýjað Madríd 36 heiðskírt
Akureyri 12 skýjað Dublin 19 léttskýjað Barcelona 29 léttskýjað
Egilsstaðir 12 léttskýjað Glasgow 19 léttskýjað Mallorca 31 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 10 rigning London 23 skýjað Róm 35 léttskýjað
Nuuk 12 heiðskírt París 27 heiðskírt Aþena 30 heiðskírt
Þórshöfn 12 léttskýjað Amsterdam 21 léttskýjað Winnipeg 14 alskýjað
Ósló 18 þrumuveður Hamborg 21 skýjað Montreal 28 skýjað
Kaupmannahöfn 20 skýjað Berlín 27 heiðskírt New York 32 heiðskírt
Stokkhólmur 20 léttskýjað Vín 31 léttskýjað Chicago 24 skýjað
Helsinki 17 skýjað Moskva 21 alskýjað Orlando 32 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
18. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.31 3,3 10.42 0,8 16.55 3,9 23.20 0,6 5:30 21:35
ÍSAFJÖRÐUR 0.44 0,5 6.44 1,9 12.49 0,4 18.57 2,4 5:22 21:52
SIGLUFJÖRÐUR 2.46 0,4 9.12 1,2 14.54 0,5 21.11 1,4 5:04 21:35
DJÚPIVOGUR 1.33 1,7 7.38 0,5 14.11 2,1 20.29 0,6 4:56 21:07
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag
Austlæg átt, 8-13 m/s og rign-
ing á N-verðu landinu, en hæg-
viðri og smá skúrir syðra. Hiti
10 til 16 stig.
Á fimmtudag
Gengur í norðan 8-13 m/s með
rigningu víða um land, en hæg-
ara og úrkomulítið SA-til. Kóln-
ar dálítið í veðri.
Á föstudag
Fremur hæg vestlæg átt og
súld S- og V-lands, en annars
þurrt. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast
SA-lands.
Á laugardag
Suðlæg átt með dálítilli vætu,
en bjart NA-til. Milt veður.
Á sunnudag og mánudag
Útlit fyrir austanátt með rign-
ingu um land allt. Áfram milt í
veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Gengur í austan 8-13 metra á
sekúndu með rigningu sunn-
anlands, en mun hvassara úti
við ströndina. Hægara og þurrt
fyrir norðan, en hvessir í kvöld,
rignir sums staðar. Hiti 10 til 16
stig.
RÍKISKAUP fagna 60 ára afmæli á
árinu. Af því tilefni hefur stofnunin
gert samstarfssamning við fjórar
deildir Háskóla Íslands um ritgerð-
arsamkeppni og verða fjórar verð-
launaritgerðir á meistarastigi skóla-
árið 2009-2010 styrktar.
Samningurinn er við viðskipta-
fræði-, laga-, hagfræði- og stjórn-
máladeild HÍ og er tilgangurinn að
stuðla að aukinni þekkingu á op-
inberum innkaupum. Allir skráðir
meistaranemar í fyrrnefndum deild-
um geta tekið þátt í samkeppninni,
en efni ritgerðanna þarf að tengjast
opinberum innkaupum hérlendis og
hafa möguleika á að stuðla að fram-
förum.
Samkeppnin hefst 20. ágúst og
verður hægt að skila inn tillögum til
og með 20. október, en dómnefnd
velur tillögur sem keppa til úrslita.
Styrkir ritgerðir á sviði opinberra innkaupa
Ríkiskaup á tímamótum og gera
samstarfssamning við fjórar deildir HÍ
Morgunblaðið/Eggert
Styrkur Frá undirritun samstarfssamnings Ríkiskaupa og deilda HÍ.
Það virðist meiri eftirspurn enframboð af fólki sem biðst af-
sökunar á því sem aflaga fór í
bankahruninu. Nokkrir hafa þegar
riðið á vaðið, en þeir eru teljandi á
fingrum annarrar handar.
Steingrímur J.Sigfússon
fjármálaráð-
herra velktist
ekki í neinum
vafa um það á
Hólahátíð hverjir
skulduðu helst
afsökunarbeiðni.
Og auðvitað er
það rétt hjá
Steingrími að
fleiri mættu stíga fram og biðjast
afsökunar af þeim sem hafa valdið
þjóðinni ómældu tjóni og sálarang-
ist undanfarin misseri.
En hafa ber í huga að þótt hruniðhafi átt sér stað á skömmum
tíma, þá átti það sér langan að-
draganda smárra og stórra ákvarð-
ana. Þar verður ekkert undan skil-
ið, eins og Steingrímur veit
mætavel.
Steingrímur sagði í ræðunni aðhann hefði oft „nefnt fjölmiðla í
þessum efnum og það hvernig þeir
einnig brugðust okkur, spiluðu
með og sinntu ekki sinni gagn-
rýnis- og aðhaldsskyldu, – ekki það
að ég sé sérstakur talsmaður þess
að fjölmiðlar flytji eingöngu nei-
kvæðar fréttir og rífi niður, en
málefnaleg gagnrýni og aðhald
þarf alltaf að vera til staðar.“
En hver var afstaða Steingríms tilfjölmiðlalaganna, sem ætlað
var að sporna við eignarhaldi auð-
hringa á fjölmiðlum og tryggja að
fjölbreytt sjónarmið fengju að
njóta sín?
Ætti Steingrímur kannski aðbiðjast afsökunar á að hafa
greitt atkvæði gegn fjölmiðlalög-
unum?
Steingrímur J.
Sigfússon
Þjóðin, afsakanir og bankahrun