Morgunblaðið - 18.08.2009, Síða 20

Morgunblaðið - 18.08.2009, Síða 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009 ✝ Guðmunda Hall-dóra Ólafsdóttir fæddist í Hafnarfirði 16. janúar 1915. Hún lést á Hrafnistu, Hafn- arfirði, 2. ágúst sl., 94 ára að aldri. Foreldrar hennar voru hjónin Anna Hall- dórsdóttir frá Skeggja- stöðum í Garði, verka- kona, f. 9. júní 1886, d. 11. júní 1967, og Ólafur Guðmundsson frá Hellu í Hafnarfirði, sjó- maður og verkamaður, f. 24. janúar 1887, d. 5. febrúar 1961. Bróðir Guðmundu var Halldór Guðmundur Ólafsson, f. 3. febrúar 1921, d. 28. mars 2001. Eiginkona hans var Steinunn Magnúsdóttir frá Dölum, Fáskrúðsfirði, f. 13. nóv- ember 1916, d. 5. október 1999. Börn þeirra eru 1) Anna Björg, f. 3. maí 1948, hennar sonur er Halldór Steinn, f. 23. febrúar 1983. 2) Halla Sólveig, f. 15. júní 1953, gift Sig- urjóni Högnasyni, f. 2. mars 1954, þeirra börn eru: a) Karl, f. 20. desember 1980, sambýliskona hans er Ines Willerslev Jør- gensen, f. 7. júlí 1987, og b) Freyja, f. 21. október 1988. 3) Magnús Ólafur, f. 18. júní 1956. Guðmunda ólst upp í Hafnarfirði, í Sveinskoti, Hvaleyri, fyrstu tólf árin og svo á Suðurgötu 69. Skólaganga hennar var ekki löng þar sem hún þurfti að hætta námi í Flensborgarskóla vegna veikinda. Hún vann ýmis störf, m.a. við fisk- verkun, saumaskap og við þjón- ustustörf á Hótel Borg. Þar kynntist hún James Suttie Whittaker, f. 15. maí 1906 í Edinborg, Skotlandi, og gengu þau í hjónaband 11. desember 1945. Sonur James af fyrra hjóna- bandi var Brian, d. 2007. James kom hingað til lands í júlí 1942 og tók ást- fóstri við land og þjóð. Hann kom á vegum bresku ríkisstjórnarinnar og starfaði hér sem sérlegur sendi- fulltrúi Breta í rúm þrjú ár og hafði aðsetur á Hótel Borg. Stuttu eftir hjónavígsluna fluttu þau til London og settust þar að. James starfaði þar við bókaútgáfu, meðal annars sem framkvæmda- stjóri útgáfufyrirtækis. Hann var ótrauður baráttumaður í þágu menningarmála og lét ekkert tæki- færi ónotað til þess að greiða fyrir Íslendingum og íslenskum mál- efnum og fyrir störf sín í þágu Ís- lendinga var hann árið 1956 sæmdur Riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu. James varð bráðkvaddur 7. febrúar 1957. James og Guð- mundu varð ekki barna auðið. Guðmunda fluttist til foreldra sinna að Ásbúðartröð 5, Hafnarfirði, árið 1958. Hún vann í miðasölunni í Bæjarbíói í um 23 ár. Hinn 15. sept- ember 2000 fluttist hún á Sólvang í Hafnarfirði og bjó þar til 3. júlí 2002 þegar hún fluttist til Hrafnistu, Hafnarfirði, þar sem hún bjó til dauðadags. Útför Guðmundu fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, þriðju- daginn 18. ágúst, og hefst athöfnin kl. 13. Þegar fólk deyr þá deyr ekki bara fólk með því deyr alheimur af háttalagi, vinnulagi, raddblæ, visku, fávisku. Sérstakur hlátur deyr og bros á sérstökum hraða. Fataskápurinn splundrast líka það er óbætanlegt, því engir tveir eru eins. Hjá þeim sem eru ekki duglegir að henda má lesa sögu sálarinnar af herðatrjánum. Þegar manneskjan deyr þá deyr með henni heil hárgreiðsla og ef það er gömul kona sem dó þá deyr líka kvenveski lúið og handtökin við að opna veskið og róta í því. (Steinunn Sigurðardóttir.) Og þegar háöldruð frænka kveður þetta jarðlíf er sem lokist okkur dyr að löngu liðnum tíma. Tíma, sem lifði í minni hennar, og hún gat veitt okkur sýn inn í, ef rétt var spurt. Föðursystir mín, Guðmunda, ávallt kölluð Munda, fæddist fyrir 94 árum í Sveinskoti á Hvaleyri við Hafnarfjörð. Þá voru nokkur smábýli, þar sem nú er golfvöllur Hafnfirðinga. Hún vann á Hótel Borg og hitti þar tilvonandi eig- inmann sinn, James Whittaker. Þau giftust og fluttu til London. James starfaði við bókaútgáfu og var auk þess virtur fyrir störf sín í fornleifa- og grasafræði. James dó skyndilega 1957, og var það gífurlegt áfall fyrir Mundu, sem flutti heim til Íslands 1958 í hús, sem afi og faðir minn höfðu byggt saman. Umgengni við Mundu var þannig hluti af daglegu lífi okkar systkinanna. Nutum við oft góðs af frábærum myndarskap hennar við sauma og prjónaskap, en handavinna var eitt hennar helsta áhugamál, og hún var sérlega vandvirk við hana eins og við allt, sem hún tók sér fyrir hend- ur. Hún var góðum gáfum gædd og las alla tíð mikið. Einnig naut hún þess að hlusta á sígilda tónlist. Munda vann mjög lengi við miðasölu í Bæjarbíói, og muna eflaust margir Hafnfirðingar eftir henni þaðan. Hún átti góða vini í Englandi frá árunum í London. Hún fór þangað oft, og eins komu vinkonur hennar iðulega til Íslands á sumrin og bjuggu hjá henni. Er hún eltist tók hún virkan þátt í starfi eldri borgara í Hafnarfirði og fór með þeim í ferðir, bæði innanlands og utan. Sumarið 1984 dvaldi hún hjá mér í Lundi í Sví- þjóð og gætti sonar míns ungs. Hún naut þess að vera í sænska sumarveðr- inu, og ég á margar góðar minningar úr skoðunarferðum okkar um Skán. En síðustu árin tók heilsan að gefa sig og eftir mjaðmarbrot dvaldi hún á hjúkrunardeild B-3, Hrafnistu, Hafn- arfirði. Hún var bundin hjólastól síð- ustu árin og virkni hennar fór minnk- andi. Hugurinn var þó skýr fram á síðustu dagana. Það var sárt fyrir hana, þegar hún gat ekki lesið lengur eða stundað handavinnu vegna sjón- depru, en þá komu hljóðbækur og tón- listin í góðar þarfir. Munda hlaut frið- sælt andlát, og var aðdáunarvert, hversu natið starfsfólk deildarinnar var við umönnun hennar. Allir lögðu sig í líma við að gera síðustu daga hennar þjáningarlausa. Gömul kona er dáin og með henni allt háttalag hennar, eins og segir í ljóði Steinunnar að ofan. Hún syrgði í raun James, mann sinn, alla ævi. Ég trúi því að hún hafi verið tilbúin að fara og þakka henni margar góðar sam- verustundir Anna Björg. Ég kynntist Guðmundu Ólafsdóttur (Mundu) fyrir hartnær fjórum áratug- um, þegar ég tók að leggja leið mína í Ásbúðartröð 5 að hitta bróðurdóttur hennar, Höllu. Munda bjó þá á neðri hæð hússins en Halla á efri hæðinni hjá foreldrum sínum. Þrátt fyrir skyldleika íbúa var ólíkur bragur milli hæða. Rammíslenskur á þeirri efri en breskur á þeirri neðri. Þótt Munda hefði mun lengur búið á Íslandi en á Englandi hafði dvölin ytra greinilega mótað hana mjög. Að fara á milli hæða í Ásbúðartröðinni var líkast því að fara yfir landamæri. Er mér næst að halda að það hafi öðru fremur ráðið því að ferðir milli hæða voru ekki tíðar. Í þá tíð réðst fólk ekki í ferðir milli landa nema hafa til þess ærið tilefni. Engu að síður var fullur vinskapur milli skyldmennanna á hæðunum tveimur. Munda bjó löngum ein og fór henni vel bæði einbýlið og breski bragurinn. Hvort tveggja hæfði vel hennar sett- lega fasi. Ekki minnist ég þess að hafa nokkurn tíma heyrt Mundu hallmæla nokkrum manni og dygg var hún vin- um sínum. Munda var góð heim að sækja og tók gjarnan á móti gestum með góðum bolla af tei eða fingurbjörg af sérríi að breskum sið. Þegar heilsu Mundu tók að hraka fyrir sakir elli varð hún að yfirgefa sitt breska heimili í Ásbúðartröðinni. Dvaldi hún um skeið á Sólvangi en síð- ustu árin bjó hún á Hrafnistu. Þótt vel hafi farið um Mundu þar er tilfinning mín sú að hún hafi aldrei litið á Hrafn- istu sem heimili sitt. Alla vega flutti hún ekki breska braginn með sér þangað og var þar á vissan hátt ut- angátta. Kostur var þó að hún þurfti ekki að flytja út fyrir Hafnarfjörð sem ágætastur var íslenskra bæja í augum Mundu. Ég kveð Mundu með hlýjum hug og virðingu. Sigurjón Högnason. Elskuleg vinkona hefur kvatt þetta líf eftir langa, farsæla og viðburðaríka ævi. Guðmunda Ólafsdóttir og móðir mín Ingveldur Gísladóttir voru æsku- vinkonur í Hafnarfirði og alla tíð hélst þeirra trausta vinátta. Móðir mín dó 1996. Ég man vel eftir Mundu frá því að ég var barn. En svo kom stríðið, seinni heimsstyrjöldin. Munda vann á Hótel Borg, ung og falleg blómarós með sitt dökka, þykka, liðaða hár og íhugul, falleg augu. Þetta gat ungur Breti ekki staðist. Hann James Whittaker féll samstund- is fyrir þessari fallegu, gáfuðu stúlku. Munda fann strax að James hafði góð- an mann að geyma og svo var hann líka afskaplega myndarlegur. Þau gift- ust og Munda fluttist til London. Hún hélt alltaf tryggð við Ísland. Þar átti hún foreldra, bróður og hans fjöl- skyldu og gömlu góðu vinina. Ég á gamla mynd frá móður minni sem tekin er í garðinum á Austurgötu 27, Hafnarfirði. Þar bjó Málfríður Gísladóttir (Fríða Gísla) vinkona mömmu og Mundu. Sumarið 1947/8. Munda og mamma báðar í kápum með hatta og veski en húsmóðirin í sum- arkjól. Vinkonurnar voru allar mjög hárprúðar, Munda með dökkt hár, mamma ljóshærð og Fríða með kast- aníubrúnt hár og þykka fléttu fram eftir öllum aldri. Þegar ég var 17 ára fór ég til sum- ardvalar í London á vegum Mundu og James. Ég dvaldi hjá enskum vinum þeirra. Húsbóndinn var samstarfs- maður James. Þetta var yndisleg fjöl- skylda hjón, þrír unglingspiltar og sex ára dóttir. Árið 1951 var ennþá mat- arskömmtun í Englandi. Eitt egg á mann á viku kjöt og jafnvel sælgæti skammtað. Munda og James bjuggu í mjög lítilli íbúð í miðborg Lundúna. Stór stofa og eldhúsið var bara skápur sem opnaður var við matargerð. Hvern miðvikudag sótti Munda mig og tókum við strætó og lest í bæinn. Við skoðuðum söfn og alla helstu staði í borginni og nágrenni. Alltaf enduðu miðvikudagarnir heima hjá þeim í kvöldmat og spjalli um ævintýri dags- ins áður en mér var fylgt heim. Eftir þetta sumar í London hjá þessari góðu, ensku fjölskyldu og óeigin- gjarnri elju og umhyggju Mundu og James að uppfræða mig og njóta sam- vista þeirra, hefur mér ætíð verið hlýtt til þessarar borgar. Fleiri myndir. Smáferð út úr bæn- um áð í laut með nesti í sól og góðu veðri. Munda, Fríða, mamma, faðir minn, Guðmundur Gissurarson, Ólaf- ur faðir Mundu og ég. Eftir fráfall James flutti Munda aft- ur í Hafnarfjörð. Hún hóf störf í Bæj- arbíói. Hafnarfjarðarstrætisvagnarnir voru yfirfullir af bíógestum. Þá var ekki leiðin í Fjörðinn löng. Munda af- greiddi allan þennan fjölda með stó- ískri ró myndugleik og hlýju. Seinasta heimsókn mín til Mundu minnar var 4. júlí, sagðist koma og kveðja 10. ág. áður en ég héldi úr landi. Við sátum saman í matsalnum. Munda mataðist sjálf. Alltaf settleg og snyrti- leg og nú var dökka hárið silfurgrátt. Hún hélt sinni reisn. Ég sagðist enn muna símanúmerið hennar í London, Terminal 6194. Hún var mér svo mik- ilvæg þar, mitt lífsakkeri. Við hlógum. Hún var sko enn klár í kollinum hún Munda mín. Ég strauk yfir fallega hárið hennar og kvaddi. Vertu ætíð Guði falin, elsku vinkona. Guðrún Ág. Guðmundsdóttir. Guðmunda H. Ólafsdóttir Whittaker ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru dóttur og systurdóttur, SÆRÚNAR HANNESDÓTTUR, Strandgötu 23, Akureyri. Sérstakar þakkir fær starfsfólk heilbrigðisstofnana sem annaðist Særúnu í veikindum hennar. Friðrika Sæþórsdóttir, Helga Sæþórsdóttir. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG GEORGSDÓTTIR, Bakkagerði 4, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 15. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Árni Magnússon, Sigfríður Þórisdóttir, Björg Árnadóttir, Markús H. Guðmundsson, Magnús Árnason, Rannveig Sigfúsdóttir, Arnar Gauti, Guðmundur Fannar, Árni Snær, Björg Margrét. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÓSKAR FRANK GUÐMUNDSSON skipasmíðameistari, áður til heimilis á Grundarvegi 13, Njarðvík, verður jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Kálfatjarnarkirkju. Kristín Dagbjört Þórðardóttir, Hörður Óskarsson, Margrét Óskarsdóttir, Rúnar R. Woods, Guðmundur Óskarsson, Hrafnhildur Svavarsdóttir, Þórður Óskarsson, Auður Óskarsdóttir, Sverrir Sverrisson og barnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, bróður og afa, JÓNASAR GUÐLAUGSSONAR fyrrv. rafveitustjóra, frá Guðnastöðum, Austur-Landeyjum, Reykjavíkurvegi 52b, Hafnarfirði. Dóróthea Stefánsdóttir, Stefán Jónasson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Guðlaugur Jónasson, Erla Bragadóttir, Guðmundur Jónasson, Ágústa Ólafsdóttir, Ragnar Guðlaugsson, Ingibjörg Jóna Guðnadóttir og barnabörn. Útför ástkærs föður okkar, sonar og bróður, ÓSKARS INGÓLFSSONAR, verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Zen á Íslandi - Nátthaga, reikningsnúmer 111-26-491199, kt. 491199-2539. Fyrir hönd ættingja og vina, Mikhael Aaron Óskarsson, Aron Ingi Óskarsson, Anna Dóra Ágústsdóttir, Ingólfur Halldórsson, Jóna Ingólfsdóttir, Ólöf María Ingólfsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.