Morgunblaðið - 18.08.2009, Qupperneq 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009
✝ Rannveig EddaHálfdánardóttir
fæddist á Akranesi 6.
janúar 1936. Hún lést
á Sjúkrahúsi Akra-
ness föstudaginn 7.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Dóróthea Er-
lendsdóttir, f. 1.9.
1910, d. 15.1 1983, og
Hálfdán Sveinsson, f.
7.5. 1907, d. 18.11.
1970.
Rannveig Edda var
næstelst fjögurra
systkina, bræður hennar eru Hilmar
Snær, f. 24.2. 1934, Sveinn Gunnar,
f. 23.7. 1939, og Helgi Víðir, f. 1.4.
1944, d. 30.4. 2008.
Rannveig Edda giftist 30.12. 1959
Kristjáni Emil Friðrikssyni, f. 9.11.
1931. Foreldrar hans voru Alda
skólanum þar. Á Akranesi bjó hún
líka og starfaði allan sinn aldur.
Hún hóf starfsferil sinn á skrifstofu
Kaupfélags Suður-Borgfirðinga, því
næst starfaði hún lengi á skrifstofu
Akranesbæjar og að síðustu sem
móttökuritari á Sjúkrahúsi Akra-
ness. Því starfi sinnti hún í um það
bil tuttugu og fimm ár, eða þar til
hún lét af störfum vegna aldurs, í
árslok 2005. Rannveig Edda starfaði
mikið innan Alþýðuflokksins. Hún
var fulltrúi á framboðlistum, bæði
til bæjarstjórnar á Akranesi og til
Alþingis í Vesturlandskjördæmi. Þá
var hún um skeið m.a. formaður fé-
lagsmálaráðs Akranesbæjar og sat í
stjórn Dvalarheimilisins Höfða. Hún
var í mörg ár félagi í Oddfellowregl-
unni á Akranesi.
Útför Rannveigar Eddu verður
gerð frá Akraneskirkju í dag, 18.
ágúst, og hefst athöfnin kl. 14.
Valdemarsdóttir, f.
1.7. 1911, d. 2.2. 1970,
og Jakob Emil Vil-
helm Frederiksen, f.
27.7. 1902, d. 15.9.
1994. Börn Rann-
veigar Eddu og Krist-
jáns eru: 1) Dóróthea
Alda, f. 24.9. 1954,
maki Jörgen Elsted
Madsen, börn hennar
eru Kristján Emil og
Allan Elsted. 2) Hálf-
dán, f. 29.7. 1959,
maki Ragnhildur
Jónsdóttir, börn
þeirra eru Svanhildur Jóna, Jakob
Emil og Dagur. 3) Rannveig, f. 26.6.
1962, dóttir hennar er Bylgja. Dótt-
ursonur þeirra, Kristján Emil, ólst
upp hjá ömmu sinni og afa.
Rannveig Edda ólst upp á Akra-
nesi. Hún lauk prófi frá Gagnfræða-
Að eiga góðan vin er dýrmætt. Að
eiga móður sem sinn besta vin eru
forréttindi. Ég er stolt af því að hafa
átt þig að, ekki bara sem móður held-
ur líka sem minn besta vin. Með
þessu ljóði kveð ég þig með miklum
söknuði en jafnframt með þakklæti
fyrir allt það sem við áttum saman.
Til mömmu:
Ég sendi þér vina mitt ljúfasta ljóð
þú ert langbesta mamman í heimi.
Þú hefur verið mér vinkona góð,
sá vinur sem aldrei ég gleymi.
Þú gafst mér það eina sem áttir þú til:
Þig alla – að trúnaðarvini.
Með kærleik í hjarta ég knúsa þig vil
og kyssa í þakklætisskyni.
Ef munum við vel það sem meistarinn
kvað
og mestu í rauninni skiptir:
Að kærleikur sannur, þú kenndir mér það,
er kraftur sem fjöllunum lyftir.
Þú hefur verið mér vinkona slík
að vandi er spor þín að fylla.
Von mín er sú að ég verði þér lík
og veginn þinn fái að gylla.
(L.Æ.)
Þín dóttir,
Rannveig.
Þá er lokið um það bil tveggja ára
glímu Eddu systur minnar við þann
illvíga sjúkdóm sem krabbameinið er
allt of oft. Hún og Helgi bróðir okkar
háðu um skeið hvort sína baráttu
svipaðs eðlis. Nú hafa þau bæði fallið
frá. Við í fjölskyldunni stöndum eftir
hnípin og er harmur okkar mikill.
Mér verður hugsað til uppvaxtarára
okkar systkina í Þórshamri við Vest-
urgötu á Akranesi og síðar á Sunnu-
brautinni. Þar áttum við heima frá
árinu 1945 og allar götur þar til við
flugum úr hreiðrinu, eins og stund-
um er sagt er. Og þar bjuggu for-
eldrar okkar síðan til æviloka og þar
var okkar miðpunktur. Við systkinin
ólumst upp í mjög félagslegu um-
hverfi. Báðir foreldrar okkar á kafi í
ýmiskonar félagsmálum. Móðirin í
slysavarnamálum og í Kvenfélagi Al-
þýðuflokksins. Faðirinn á kafi í
verkalýðsmálum, sveitarstjórnar-
málum, landsmálapólitík o.m.fl. Það
er því kannski ekki óeðlilegt að við
systkinin höfum öll mótast hvert á
sinn hátt af þessu félagsmálavafstri
foreldranna. Edda, eins og hún var
yfirleitt kölluð, sinnti þessu kalli
mest á æskuslóðunum. Edda starf-
aði áratugum saman að framgangi
jafnaðarstefnunnar innan Alþýðu-
flokksins. Var fulltrúi á framboðlist-
um, bæði til bæjarstjórnar á Akra-
nesi og til Alþingis í
Vesturlandskjördæmi. Hún var
varabæjarfulltrúi í 12 ár. Mest lét
hún sig þó varða félags- og velferð-
armál á málasviði Akranesbæjar.
Var m.a. um skeið formaður félags-
málaráðs og sat í stjórn Dvalarheim-
ilisins Höfða. Á yngri árum starfaði
Edda talsvert mikið innan Skátafé-
lags Akraness. Og í mörg ár var hún
félagi í Oddfellowreglunni á Akra-
nesi. Ung að árum hóf Edda búskap
með Kristjáni Friðrikssyni. Þau
gengu síðan í hjónaband 30. desem-
ber 1959 og hefðu því átt 50 ára brúð-
kaupsafmæli í lok þessa árs. Mestan
hluta þess tíma bjuggu þau að Esju-
braut 20. Þeim varð þriggja barna
auðið, elst er Dóróthea Alda, búsett í
Danmörku, síðan Hálfdán, einnig
búsettur í Danmörku og yngst er
Rannveig, búsett í Reykjavík.
Ömmubörnin eru nú orðin tólf. Edda
og Stjáni voru ólík um margt en
stóðu vel saman, sem kannski kom
best í ljós á erfiðleikatímum. Hjálp-
semi, greiðasemi og höfðingsskapur
einkenndi allan þeirra búskap. Það
þakka ég þeim báðum, ekki síður
Stjána mági mínum. Samheldni okk-
ar systkina var alla tíð mikil. Við töl-
uðum mikið saman í síma og bjugg-
um oft til tilefni til að hittast. Bæði í
gamni og alvöru töluðum við um að
við værum félagsmenn í Bræðra-
félagi. Edda var þar sjálfkjörin for-
maður ævilangt. Þessu félagi stjórn-
aði hún af festu eins og við bræður
sögðum í léttum tóni. Mörg sumur
skipulagði hún helgarferðir fyrir fé-
lagsmenn og maka. Og skötuveislur
Eddu og Stjána eru eftirminnilegar.
Edda var góð systir, hún var góð eig-
inkona og móðir, amma og
langamma. Hún var umfram allt góð
manneskja, sem öllum vildi vel. Hún
var hetja í lokabaráttunni. Ég kveð
hana með söknuði og bið guð að
blessa minningu hennar. Ég bið líka
guð að styrkja og styðja Stjána,
börnin, tengdabörnin og ömmubörn-
in í sorg þeirra. Farðu í friði, kæra
systir.
Sveinn.
Við frænkurnar viljum minnast
Eddu föðursystur okkar með nokkr-
um orðum og þakka fyrir að hafa átt
hana að alla okkar ævi. Við erum rík-
ari fyrir vikið.
Edda var glæsileg kona, með
sterkan persónuleika og hafði hjart-
að svo sannarlega á réttum stað.
Segja má að hún hafi verið höfuð fjöl-
skyldunnar. Sem formaður „Bræðra-
félagsins“ stjórnaði hún bræðrum
sínum og þeirra mökum og hélt
systkinahópnum þétt saman. Hún
var ættrækin og lét sér afar annt um
fólkið sitt og var ávallt fyrst til að
hringja á afmælisdögum og syngja
afmælissönginn. Það var gaman að
vera með henni á ættarmótum, hvort
sem það var hjá Bræðrafélaginu eða
á Gromsaramótum. Nú eða helgina
ógleymanlegu sem við áttum saman
á Flateyri fyrir nokkrum árum þar
sem við gerðumst boðflennur á ætt-
armóti hjá fólki okkur alls óskyldu.
Þá eiga þau Stjáni heiður af árlegum
skötuveislum fjölskyldunnar sem að
okkar mati er ómissandi upphaf á
jólahaldinu.
Edda var skemmtileg kona og góð-
ur félagi. Hún kunni að njóta augna-
bliksins og var í essinu sínu í góðra
vina hópi. Oft var kátt á hjalla á Esju-
brautinni og áttum við þar ótal gleði-
stundir. Minnisstætt er þegar Edda
og æskuvinkonur hennar voru þar
samankomnar. Þá var mikið sungið
og eru þau ófá lögin sem við lærðum
af þeim stöllum. Þau hjónin voru
miklir matgæðingar og höfðu þau
yndi af því að bjóða fólki góðgæti sem
þau töfruðu fram. Ósjaldan var svo
matarpakka gaukað að gestum þeg-
ar haldið var heim.
Það er huggun nú á erfiðum tímum
að vita að Edda, okkar frábæra
frænka, mun lifa með okkur um
ókomna tíð. Elsku Stjáni, Rannveig,
Dóra, Hálfdán og fjölskyldur, megi
guð veita ykkur styrk á þessum erf-
iðu tímum.
Drífa Hilmarsdóttir og
Hólmfríður Sveinsdóttir.
Rannveig Edda Hálfdánardóttir
✝ Eygló Mark-úsdóttir fæddist á
Borgareyrum, V-
Eyjafjöllum 10. júlí
1933. Hún andaðist á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi 2.
ágúst 2009. Foreldrar
hennar voru Sigríður
Magnúsdóttir frá
Álfhólahjáleigu í
Vestur-Landeyjum í
Rangárvallasýslu, f.
30.4. 1905, d. 11.2.
1997, og Markús
Jónsson söðlasmiður
frá Borgareyrum, f. 6.3. 1905, d.
28.7. 1988. Systkini Eyglóar eru
Hulda, f. 24.2. 1930, d. 12.10. 1987,
Hrefna, f. 23.5. 1931, Magnús Sig-
urður, f. 26.4. 1932, d. 25.7. 1991,
Erla, f. 21.11. 1936, Ester, f. 2.2.
1940, d. 10.3. 1945, Grímur Bjarni, f.
21.5. 1942, Ester, f. 18.7. 1944, Þor-
steinn Ólafur, f. 31.1. 1946, og Erna,
f. 9.8. 1947.
Eygló giftist 27. desember 1952
Sveinbirni Ingimundarsyni frá Ysta-
Bæli, Austur-Eyjafjöllum, f. 1.9.
1926. Þau eignuðust átta börn, þau
eru: 1) Örn, f. 30.9. 1951, maki Guð-
rún Ólöf Guðmundsdóttir, f. 10.3.
þeirra Ronja Margrét, f. 11.5. 2009.
B) Sigrún, f. 14.3. 1989. C) Hrefna, f.
15.7. 1990. 4) Markús Gunnar, f.
6.12. 1956, maki Selma Filipp-
usdóttir, f. 10.9. 1961, synir þeirra
Fannar Freyr, f. 21.8. 1985, Ísak, f.
8.11. 1995, og Ívar, f. 8.11. 1995. 5)
Ingimundur, f. 4.1. 1960. Börn hans
og Guðrúnar le Sage de Fontenay, f.
18.9. 1962, eru Guðrún Birna, f. 3.12.
1981, Jóhann Jean, f. 20.4. 1988, og
Ólöf Sesselja, f. 13.8. 1994. 6) Hrafn,
f. 22.12. 1961, kona hans Anna Dóra
Pálsdóttir, f. 7.7. 1964, börn þeirra
Leó Páll, f. 9.4. 1985, Þórhildur Mar-
grét, f. 15.11. 1990, og Eygló Ýr, f.
5.10. 1992. 7) Ester, f. 9.9. 1963. Syn-
ir hennar og Óskars Jónssonar, f.
4.6. 1960, d. 19.2. 1990, eru: Markús,
f. 15.9. 1986, og Jón Sveinbjörn, f.
22.2. 1990. Sambýlismaður Magnús
Sigurðsson, f. 4.11. 1964, sonur
þeirra Bjarki Snær, f. 8.1. 1999. 8)
Helga Sif, f. 7.3. 1972, maki Haukur
Örn Jónsson, f. 27.5. 1972, synir
þeirra Davíð Þór, f. 18.4. 1996, Ás-
mundur Helgi, f. 13.6. 2000, Arnar
Pétur, f. 10.3. 2003, og Björn Egg-
ert, f. 17.12. 2004.
Eygló var bóndi í Ysta-Bæli, A-
Eyjafjöllum í 44 ár og var síðast bú-
sett í Hafnarfirði.
Útför Eyglóar fer fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju í dag, 18. ágúst og
hefst athöfnin kl. 15.
Meira: mbl.is/minningar
1954. Börn þeirra eru:
A) Björk, f. 30.11.
1977, maki Jónas
Bergmann Magnússon,
f. 21.11. 1975. Börn
þeirra Magnús Berg-
mann, f. 9.10. 1998,
Birgitta Saga, f. 12.8.
2002, og Örn Vikar, f.
5.6. 2007, og B) Hrönn,
f. 30.3. 1984, sambýlis-
maður Haukur Ísfeld
Ragnarsson, f. 20.8.
1984. 2) Óskírður son-
ur, f. 3.4. 1953, d. 4.4.
1953. 3) Sigurður Ingi,
f. 9.4. 1954. Börn hans og Heiðu
Bjargar Scheving, f. 20.6. 1960, eru:
A) Hrund, f. 12.2. 1978, maki Jón
Helgi Sveinsson, f. 28.3. 1979, börn
þeirra Selma Rún, f. 8.9. 2004, og
Magnús Heiðar, f. 29.5. 2007, B)
Eygló, f. 4.11. 1983, dóttir hennar og
Kjartans Arnald Hlöðverssonar, f.
12.2. 1980, er Sveinbjörg Júlía, f.
11.7. 2004. Dætur Sigurðar Inga og
Katrínar Guðjónsdóttur, f. 7.7. 1964,
eru A) Sunna, f. 26.5. 1987. Sonur
hennar og Davíðs Þórs Vilhjálms-
sonar, f. 5.8. 1985, er Þór, f. 7.6.
2005. Sambýlismaður Þórarinn
Ágúst Pálsson, f. 3.3. 1983, dóttir
Við fráfall mömmu lít ég til baka
með þakklæti í huga og upp koma fal-
legar minningar. Mamma orti mikið,
eftirfarandi ljóð var flutt í brúðkaupi
Bjarkar, sonardóttur hennar, og Jón-
asar Bergmann við Skógafoss í ágúst
2005,
Göngum til brúðkaups og guðina
biðjum
brúðhjónin leysa frá hversdagsins
viðjum.
Gestirnir fagna því gleðin er djúp
gróður í bakgrunn í fossúðans djúp.
Himins salurinn húsi er betri,
hefur nú létt af sér kulda og vetri.
Vítt er til veggja og festingin há,
voldug er byggingin guðunum hjá.
Skyldi hér gnægði af goðum að sjá
gengna úr jöklunum fjöllunum á,
guðirnir allir að ástinni hlynni.
Að endingum kneyfum hér brúðhjóna
mynni.
(Eygló Markúsdóttir.)
Mamma var vitur manneskja og
hjálpsöm þeim mönnum og málleys-
ingjum sem þurftu hennar skjól. Eitt
sinn kom ég heim að Yzta-Bæli eftir
að ég fluttist að heiman og var hún þá
að hjálpa kind sem gat ekki borið, hún
heilsaði mér og setti mig strax í hlut-
verk við burðinn. „Komdu hérna,
Maggi minn, og haltu hérna við
kindina, ég þarf að snúa lambinu.“
Þegar lambið var fætt var gengið í
bæinn og hellt upp á kaffi.
Mamma hafði einstakt lag á því að
finna hvernig líðan fólksins var og
fann ætíð leið til að létta því lífið.
Mamma var einstaklega úrræðagóð
og laghent. Þegar haldin voru grímu-
böll í skólanum mínum voru ekki
sömu fjárráð og í dag, það stöðvaði
hana ekki. Saumavélin var tekin fram
og grímubúningar saumaðir og límdir
saman svo sem fljúgandi furðuhlutur,
kafarabúningur úr súrmjólkurpokum
og beinagrindarbúningur úr hveiti-
pokum. Hún kenndi okkur systkinun-
um líka að prjóna og sauma. Ég var
orðinn unglingur þegar ég áttaði mig
á að það kunnu ekki allir karlmenn að
prjóna sokka.
Takk fyrir allt sem þú gafst mér og
mínum, Guð geymi þig.
Markús.
Þín augu mild mér brosa
á myrkri stund
og minning þín rís hægt
úr tímans djúpi
sem hönd er strýkur mjúk
um föla kinn
þín minning björt.
(Ingibjörg Haraldsdóttir)
Þegar litið er yfir lífshlaupið er
kletturinn í lífinu móðirin sem gaf
mér líf og hvatti mig til þess að vera
trú sjálfri mér, því hún kenndi mér að
ekki er hægt að vera svo öllum líki.
Við veljum okkur vegferð og fylgjum
henni, stefnum að því sem við viljum í
hjarta okkar. Þetta er í mínum huga
sannleikur sem er lykillinn að því að
öðlast hugarró. Hún kenndi mér að
meta gildi vináttunnar, sem er ágæt í
meðbyr en ómetanleg í mótlæti. Hún
gaf mér svo oft bros í einni svipan, en
minningin um það geymist ævilangt,
því það var ávallt stutt í hlátur, glettni
og hárfína ádeilu á breyskleika mann-
legs eðlis. Hún var afar úrræðagóð og
hafði einstaka hugkvæmni sem má
glöggt sjá í eftirfarandi: Markúsi mín-
um sem er með dyslexíu gekk illa að
lesa Egilssögu í skólanum. Mömmu
fannst innihald Íslendingasagna vera
einfalt og þyrfti ekki að hafa mörg orð
um það. Því gerði hún Egilssögu
styttri fyrir Markús svo hann væri
með inntakið á hreinu:
Egill sló og Egill hjó
Egill vó í hvelli.
Egill hló og Egill bjó
Egill dó úr elli.
Hún kenndi mér að yfirburðir okk-
ar felast ekki í því að sigra aðra, held-
ur að sameinast öðrum við leik og
störf. Gæti verið sannleikur falinn í
því að það sem við eigum í vasanum er
ekki mikilsvert, heldur einungis það
sem þú átt í hjarta þínu? Að í raun sé
lífið engin hraðbraut milli vöggu og
grafar, heldur staður til að fá sér sæti
í sólskininu, að hamingjan sé stöðugt
ferðalag en ekki einhver áfangastað-
ur sem hægt er að dvelja á löngum
stundum. Ekkert í lífinu fæst án fyr-
irhafnar og okkur ber að þakka það
sem okkur er trúað fyrir og þann
þroska sem við öðlumst á lífsleiðinni.
Innilegustu samúðarkveðjur mínar til
ykkar allra sem bera sorg í hjarta.
Minningin lifir um góða konu sem gaf
okkur svo mörgum mikið.
Ester Sveinbjarnardóttir.
Það var erfið kveðjustund sem ég
átti með Eygló, áður en ég lagði af
stað í ferðalag erlendis með alla fjöl-
skylduna, örfáum dögum áður en hún
lést. Eygló hefur barist hetjulegri
baráttu við krabbamein og var orðin
mjög veik á þessum tíma. Sú von
bærðist í brjósti mér að ég fengi að
hitta hana þegar heim væri komið, en
svo var ekki. Ég er afar þakklát fyrir
þann tíma sem ég átti með henni síð-
ustu vikurnar og við gátum veitt hvor
annarri styrk.
Það var fyrir 35 árum að leiðir okk-
ar Eyglóar lágu saman. Mér var boðið
í heimsókn í gamla bæinn í Yzta-Bæli
á afmælisdegi hennar. Strax við
fyrstu kynni var mér ljóst að ég hafði
kynnst einstakri konu með stórbrot-
inn persónuleika. Kynni okkar urðu
Eygló Markúsdóttir
Í dag kveðjum við Eygló í
Yzta-Bæli. Frábæra konu
sem ég hef þekkt frá því ég
man eftir mér.
Hlý og góð, brosandi út að
eyrum, vildi öllum allt það
besta.
Það eru ótal minningar
sem koma upp í hugann á
þessum tímamótum bæði hjá
mér og Jökli, þær viljum við
þakka.
Blessuð sé og verði minn-
ing Eyglóar.
Kæri Sveinbjörn frændi,
börn og fjölskyldur. Inni-
legar samúðarkveðjur.
Kristín Hlíf, Jökull og börn.
HINSTA KVEÐJA
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800