Morgunblaðið - 18.08.2009, Side 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
! "#$
%&' ()*)
+++,-$ , Dýrahald
Am. Cocker Spaniel
Tilb. til afhendingar, með ættbók frá
HRFÍ. Undan framúrskarandi foreldr-
um. S. 770-4241, www.eldhuga.com
Garðar
GRÓÐURMOLD
Úrvals gróðurmold, hellusandur og
göngustígaefni afgr. á bíla og kerrur.
Kambur ehf., Geirlandi v/Suðurlands-
braut, sími 892 0111 / 554 3922,
kamburehf@simnet.is
Tómstundir
Öflugir, fjarstýrðir rafmagns- og
bensínbílar í úrvali.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600,
www.tomstundahusid.is
Veiði
Gæsaveiðilendur til leigu
í Hornafirði.
Bleikir akrar og slegin tún.
Gistimöguleikar.
Upplýsingar í síma 478 1830 e. kl. 19.
Bílaþjónusta
Viðgerðir
Bilhusid.is - bilhusid@bilhusid.is
Kerrur
Thule 2350TB iðnaðarkerra
Innanmál: 350 x 153 x 40 cm. Heildar-
þyngd 3000 kg. Burðargeta 2450 kg.
Dekk 14“. Tilboð: 480.000 kr.
Lyfta.is – Njarðarbraut 3
Reykjanesbær – Sími 421 4037
www.lyfta.is
Óska eftir
KAUPUM GULL
Kaupum gull til að smíða úr. Spörum
gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins
í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og
Óskar - jonogoskar.is - s. 552-4910.
Smáauglýsingar
augl@mbl.is
Farðu inn á mbl.is/smaaugl
um ráðum og skemmtilegum fé-
lagsskap.
Stórfjölskyldan virðist eiga það
öðru fremur sameiginlegt að hafa átt
Grétar sem sinn nánasta aðstand-
anda. Var það ekki að ástæðulausu
þar sem Grétar virtist hafa stærsta
hjarta í heimi. Aldrei kom hann
öðruvísi í boð en að faðma alla, segja
hlýleg orð og gera sér far um að láta
hverjum og einum líða vel. Slíkt er
mikill mannkostur og okkur sem eft-
ir stöndum til eftirbreytni. Grétar
átti einnig gott samneyti við tengda-
fjölskyldu sína rétt eins og þau væru
hans eigið hold og blóð.
Grétar stóð aldrei einn. Bak við
hann var Dóra. Sú glæsilega kona
sem í hógværð sinni er samt sem áð-
ur mikilvægasti hlekkurinn. Hún
gerði Grétari kleift að verða að þeim
mikla manni sem hann varð. Studdi
hann með ráðum og dáð, efldi kosti
hans og barði í brestina. Virðingin
sem þau báru hvort fyrir öðru var
svo djúp að hún var nánast áþreif-
anleg þeim sem nutu félagsskapar
þeirra. Dætur þeirra eru ávextir
þeirra ásta og hafa þær fengið í
vöggugjöf bestu kosti foreldra sinna.
Eru gáfaðar og fallegar án þess þó
nokkru sinni að stæra sig af því, hafi
þær þó ríkt tilefni til. Það er erfitt að
lýsa því með orðum hvað ég er stolt-
ur af þessum frænkum mínum.
Elsku Grétar, föðurmissir er ung-
lingi ákaflega erfiður, en sá missir
var mér viðráðanlegri vegna hand-
leiðslu þinnar, heilræða og einstakr-
ar hlýju. Í vanmætti mínum skortir
mig orð til að lýsa því hvað mér
fannst mikið til þín koma. Þú varst
lærimeistari, föðurímynd og sannur
vinur, hvers orðstír lifir.
Ég votta Dóru, Möggu Mæju,
Hildi Gyðu og Kristínu Birnu mína
dýpstu samúð.
Hugur okkar er hjá ykkur á þess-
um erfiðu tímum.
Kári Ólafsson.
Grétar Már Sigurðsson ráðuneyt-
isstjóri var um árabil einn af snjöll-
ustu og öflugustu mönnum utanrík-
isþjónustunnar. Allir sem kynntust
honum í starfi báru virðingu fyrir
honum sökum dugnaðar og vits-
muna, og ylja sér nú við minningar
úr leik og starfi. Hann var ráðagóð-
ur, fljótur að sjá óvæntar lausnir á
flóknum vandamálum, og hafði sér-
stakan hæfileika til að hugsa út fyrir
hinn hefðbundna ramma. Slíkir
menn eru dýrmætir fyrir litla þjóð
þegar kemur að erfiðum og flóknum
samningum við aðrar þjóðir. Hann
var þar að auki hlýr og skemmtileg-
ur maður, fullur af orku og kappsam-
ur svo af bar. Kostum Grétars Más
kynntist ég vel á löngum þingmanns-
ferli, þar sem þrautaráð í erfiðum
málum var einatt að leita til Grétars.
Sími hans og dyr stóðu öllum opin,
hvort sem þeir tilheyrðu stjórn eða
stjórnarandstöðu. Öllum veitti hann
af örlætisbrunni þekkingar og ráð-
snilldar. Hann var einfaldlega þeirr-
ar gerðar að hvar í flokki sem menn
stóðu var gjarnan til hans leitað.
Víðtæk þekking hans á Evrópu-
málum reyndist mér sem ráðherra,
og fyrri ráðherrum sem með honum
unnu, einstaklega vel. Grétar Már
var framsýnn embættismaður, og
var fyrir löngu búinn að sjá þá mögu-
leika sem fyrir Íslandi liggja í nánara
samstarfi við Evrópu. Ég hika ekki
við að segja, að innsæi hans á sviði til
að mynda sjávarútvegsmála opnaði
nýja sýn á möguleika Íslands í sam-
skiptum við Evrópusambandið. Það
var ekki síst á því sviði sem þurfti
frjóa hugsun og óvænta leiki, og í því
braut Grétar Már í blað. Ég hygg að
fáir eigi jafn ríkan þátt og hann í
undirbúningnum að Evrópuleið-
angrinum sem við Íslendingar höf-
um nú lagt í. Sjálfur naut ég bæði
þekkingar hans og víðtæks tengsla-
nets í Evrópu eftir að ég kom í utan-
ríkisráðuneytið, en síðasta hlutverk
hans var að vera sérstakur Evrópu-
ráðgjafi minn. Þótt Grétar væri þá
orðinn alvarlega veikur dáðist ég oft
að þeim leiftrum snilldar sem gusu
eins og lítil eldgos úr samtölum þeg-
ar hann hleypti vökru. Fyrir okkar
góða samstarf í gegnum árin þakka
ég honum við leiðarlok af einlægum
huga.
Missir utanríkisþjónustunnar er
að sönnu mikill því skarðið sem Grét-
ar Már skilur eftir verður vandfyllt.
Mestur er þó missir fjölskyldu hans
og vina. Grétar var ástríkur faðir og
eiginmaður, vinmargur og vinfastur,
og skildi það öðrum betur að í hröð-
um erli þess lífs sem er hlutskipti al-
þjóðlegs diplómats í fremstu víglínu
skipti það öllu að rækta garðinn sinn
heima. Fyrir hönd utanríkisráðu-
neytisins alls færi ég eiginkonu hans,
fjölskyldu og vinum mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur og bið Guð að
blessa minningu góðs drengs.
Össur Skarphéðinsson,
utanríkisráðherra.
Þau voru full trega tíðindin sem
færa þurfti starfsfólki utanríkisþjón-
ustunnar, heima og erlendis, að
Grétar Már Sigurðsson, vinur okkar
og náinn samstarfsmaður, væri allur
langt um aldur fram. Alla setti hljóða
en hver og einn hafði sögu að segja
um þennan góða dreng. Hjá sendi-
ráðunum var viðkvæðið að hafa
þyrfti samband við lykilmenn í
stjórnsýslu viðkomandi ríkja sem
hann þekkti. Þannig markaði líf
Grétars Más djúp spor hvar sem
hann fór og engan skildi hann eftir
ósnortinn. Enn einu sinni varð mér
ljóst hversu drjúgu dagsverki hann
hafði náð á sinni alltof stuttri ævi.
Vits er þörf þess er víða ratar.
Enginn þekkir störf manns betur en
sá sem tekur við af honum. Eftir ára-
langa starfsdvöl erlendis naut ég
þeirra forréttinda að vera staðgeng-
ill Grétars Más og í kjölfar veikinda
hans tók ég við starfi hans sem ráðu-
neytisstjóri. Allir höfðu vænst að
hans nyti aftur við í því starfi en allt
kom fyrir ekki. Það var á stundum
erfitt verk að fylla skarð hans en um
leið gefandi að njóta verka hans og
þess góða bús og vandlega vörðuðu
spora sem hann skildi eftir sig. Hon-
um tókst það sem fáum er gefið, að
kunna vel til verka sem diplómat og
góður lögfræðingur, en halda í hug-
myndaflugið og feta ekki alltaf
troðnar slóðir þegar betur fór á því
að hugsa utan reita.
Grétar Már Sigurðsson var hrifinn
burt af sviðinu einmitt þegar óska-
stund hans í starfi var runnin upp og
Alþingi hafði samþykkt að Ísland
skyldi sækja um aðild að Evrópu-
sambandinu. Hann var ekki aðeins
einlægur Evrópusinni, heldur einn
okkar reyndustu diplómata á því
sviði með áralanga reynslu að baki
bæði af störfum sínum á vettvangi
sendiráðs Íslands í Brussel og auk
þess ómetanlega reynslu þeirra ára
sem hann starfaði sem aðstoðar-
framkvæmdastjóri EFTA í Genf.
Það var einmitt á þeim árum sem ég
naut hvað mest hans ómetanlegu
ráða í erfiðum samningaviðræðum
EFTA-ríkjanna við önnur ríki, ráða
sem einatt stuðluðu að farsælli nið-
urstöðu og framgangi hagsmuna Ís-
lands sem og annarra EFTA-ríkja.
Það var að miklum verðleikum að
Grétar Már var skipaður sendiherra
í utanríkisþjónustu Íslands eftir
heimkomuna frá Genf 2001. Við tók
fimm ára starf sem skrifstofustjóri
viðskiptaskrifstofu sem jók enn á
þekkingu hans og reynslu. Eftir afar
farsælan starfsferil frá árinu 1987
fékk hann hina endanlegu yfirsýn
sem ráðuneytisstjóri 2006.
Að leiðarlokum er margs að minn-
ast og margt að þakka. Grétar Már
Sigurðsson lifir í verkum sínum og í
minningum okkar allra sem bárum
gæfu til að kynnast honum í leik og
starfi. Við minnumst með hlýju,
þakklæti og virðingu drengskapar-
mannsins og dugnaðarforksins, hins
ráðagóða samstarfsmanns og vinar.
Ekki síst minnumst við hugrekkis
hans og æðruleysis í baráttu við ill-
vígt mein sem hann að lokum laut í
lægra haldi fyrir. Hugur okkar allra
er hjá ekkju hans, Dóru Guðrúnu
Þorvarðardóttur, dætrunum þremur
og augasteinum þeirra beggja, þeim
Margréti Maríu, Hildi Gyðu og
Kristínu Birnu. Dóra var honum ein-
stakur lífsförunautur og okkur í ut-
anríkisþjónustunni ómetanlegur lið-
styrkur. Við sameinumst í innilegri
samúð með henni og dætrunum á
þessari sorgar- og kveðjustund og
biðjum um Guðs styrk þeim til handa
og blessun hans yfir minningu Grét-
ars Más Sigurðssonar.
Benedikt Jónsson
ráðuneytisstjóri.
Fulltrúar erlendra ríkja á Íslandi
kveðja með miklum söknuði fyrrv.
ráðuneytisstjóra í utanríkisráðu-
neytinu, Grétar Má Sigurðsson
sendiherra. Grétar var ekki einungis
mikils virtur starfsmaður utanríkis-
ráðuneytisins heldur einnig góður
félagi og persónulegur vinur okkar.
Þegar ég kom til starfa á Íslandi
fyrir nokkrum árum naut ég þeirra
forréttinda að eiga samskipti við
hann, sem skrifstofustjóra viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Frá fyrri störfum sínum í Brussel
hafði Grétar Már mikla þekkingu
hvað varðar stefnumótunarmál í
milliríkjaviðskiptum, sem skiptir
meginmáli fyrir mörg lönd og þá
ekki síst Ísland. Grétar Már boðaði
fulltrúa erlendra ríkja hérlendis
reglulega til funda í ráðuneytinu, til
þess að bæta skilning þeirra á sjón-
armiðum Íslands hvað varðar við-
skiptahagsmuni landsins – frum-
kvæði, sem við mátum mikils.
Yfirburðareynsla Grétars Más af
störfum innan utanríkisþjónustunn-
ar gerði hann sérlega hæfan til að
taka við starfi ráðuneytisstjóra utan-
ríkisráðuneytisins árið 2006. Mikil
og góð reynsla hans sem skrifstofu-
stjóri varnarmálaskrifstofu utanrík-
isráðuneytisins veitti honum mikla
þekkingu á þessum málaflokki og
kom að góðu gagni við breytta stöðu
Íslands innan Nato eftir að banda-
ríkjaher yfirgaf landið. Á starfstíma
Grétars Más jókst umræðan um
þátttöku Íslands í Evrópusamband-
inu og þegar það varð ljóst að Ísland
ætlaði sér að sækja um aðild var í
reyndinni sjálfgefið að Grétar Már
skildi valinn sérlegur ráðgjafi utan-
ríkisráðherra hvað Evrópumálin
varðaði, staða sem hann hafði ein-
staka reynslu til að sinna.
Grétar Már hafði til að bera marg-
víslega hæfileika, sem gerði hann að
frábærum fulltrúa landsins. Þrátt
fyrir annasaman vinnudag var hann
alltaf aðgengilegur. Hann var opin-
skár, kom sér að efninu, vingjarn-
legur og tillitssamur, hlustaði ávallt
á málstað viðmælanda og skýrði síð-
an, á sinn kurteislega hátt, frá sjón-
arhorni Íslands og tryggði þannig að
málstaður landsins hefði komist rétt-
ur til skila. Oft tók hann einnig til
umræðu önnur mál á þessum fund-
um. Ég minnist margra áhugaverðra
og uppbyggilegra samtala, sem
dýpkuðu skilning minn á hinum
ýmsu málum og fylgdu mér í fram-
haldi funda með honum.
Grétar Már var heillandi persónu-
leiki. Þegar komið var á fund eða
samkomu fann maður fljótt fyrir
nærveru hans og brátt var hann far-
inn að skemmta öllum með frásögn-
um og gamanmálum, er höfðu í för
með sér að öllum leið vel í návist
hans.
Fráfall Grétars Más er okkur öll-
um mikið áfall, en missir Dóru og
dætra þeirra þriggja þó mestur.
Hugur okkar og samúð er hjá ykkur.
Megi minningar um góðan dreng,
Grétar Má, og sá fjársjóður er þeim
fylgir létta sorg ykkar.
Lasse Reimann,
sendiherra Danmerkur.
Aldursforseti fulltrúa
erlendra ríkja á Íslandi.
Kæri vinur.
Það er óhætt að segja að þú hafir
sem vinur markað dýpri spor í lífs-
hlaup mitt en aðrir. Þitt litakort var
með skæra liti og því sáust pensilför
þín hvert sem þú fórst. Þú varst há-
vær, þú varst glaðvær, þú varst með
skoðanir. Það fór aldrei á milli mála
þegar þú mættir. Mikill lífskúnstner
sem smitaðir aðra svo um munaði.
Lífshlaup okkar var samofið um
langa hríð m.a. í gegnum uppvaxt-
arárin í Kópavogi, Menntaskólann í
Kópavogi, sameiginlega vinnustaði
eins og Húsasmiðjuna og utanríkis-
þjónustuna. Þú varst alltaf skrefinu
á undan, enda tveimur árum eldri en
ég, og fannst hjá þér ríka þörf að
miðla af eigin reynslu hvort sem hún
var jákvæð eða neikvæð. Betri vin
var ekki hægt að eignast. Það var svo
margt sem við brölluðum saman sem
mun ylja og kalla fram bros um
langa framtíð. Hvað höfum við ekki
skoðað, stúderað og smakkað. Antík,
vín, mat, myndlist og veiði, svo fátt
eitt sé nefnt, ásamt því að rökræða
endalaust um pólitík.
Þinn stíll var að ganga hreint til
verks. Það var einn af mörgum eig-
inleikum þínum sem gerði það að
verkum að þú fékkst stöðugt meiri
ábyrgð og traust hvert sem vegir
þínir lágu. Þú sagðir alltaf hug þinn
allan – nokkuð sem gat á stundum
verið óþægilegt fyrir suma en sýndi
vel þinn innri mann. Þú varst heil-
steyptur, óeigingjarn og ráðagóður.
Þú varst baráttumaður og mikill
mannvinur. Þú hikaðir ekki við að
taka slaginn og ganga fram þar sem
réttlætis var þörf. Þann eiginleika
skynjuðu margir og fundu hjá þér
skjól.
Það er ekki hægt að gera upp líf
þitt í fáum orðum, jafn stórbrotinn
persónuleiki sem þú varst. Reyndar
hefðir þú aldrei komist hálfa leið án
Dóru þinnar. Hún var þitt akkeri.
Hún var þín höfn. Erfiðast er að þú
hverfir svona fljótt frá fjölskyldu
þinni sem var þér svo kær. Það var
erfitt samtal sem við áttum þegar þú
óttaðist að þú fengir ekki að fylgja
dætrum þínum lengra.
Það er þungbært að hugsa til þess
að þú munir ekki framar miðla þín-
um hæfileikum og ást til þeirra sem
þarfnast.
Við Sirrý biðjum góðan Guð að
styrkja fjölskyldu þína og sérstak-
lega Dóru og dæturnar þínar þrjár,
Margréti Maríu, Hildi Gyðu og
Kristínu Birnu. Minningin um góðan
dreng mun lifa.
Jóhann R. Benediktsson.
Grétar Már Sigurðsson
Fleiri minningargreinar um Grét-
ar Má Sigurðsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
GRÓA BJARNADÓTTIR,
Skipalóni 8,
áður Hringbraut 50,
Hafnarfirði,
sem lést sunnudaginn 9. ágúst, verður jarðsungin
frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 19. ágúst
kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð KFUM og KFUK.
Sigurður Guðjónsson,
Bjarni Sigurðsson, Rut Sigurðardóttir,
Guðjón Sigurðsson, Herborg Friðriksdóttir,
Elín Sigurðardóttir, Steingrímur Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.