Morgunblaðið - 18.08.2009, Síða 27
Aflagrandi 40 | Vinnust. opnuð kl. 9-16.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, smíði/
útskurður kl. 9-16.30, leikfimi kl. 9,
boccia kl. 9.45. Púttvöllurinn opinn.
Bólstaðarhlíð 43 | Vetrarstarfsemin
hefst þriðjud. 1. sept. Skráning á nám-
skeiðin er hafin. Uppl. í síma 535-2760.
Handavinna, kaffi/dagblöð, hárgreiðsla,
fótaaðgerð.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, leiðbeinandi við til kl.
17, matur og kaffi.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd-
listahópur kl. 9.30, ganga kl. 10, matur.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Matur og kaffi í Jónshúsi, myndlistarsýn-
ing Höllu Har.
Félagsstarf Gerðubergi | Létt ganga kl.
10.30. Ferðakynning frá Úrval-Útsýn
verður mánud. 14. ágúst kl. 13.30, um-
sjón hefur Kjartan Trausti Sigurðsson og
Lilja Jónsdóttir. Eldri borgarar frá Garða-
sókn koma í heimsókn 25. ágúst, umsjón
Nanna G. Zoëga. Fræðsla og kynnisferð
um borgina 26. ágúst, skráning hafin.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9-14.
Sumarferð á morgun um Árnessýslu.
Nánari uppl. og skráning staðnum eða í
síma 411-2730.
Hvassaleiti 56-58 | Böðun fyrir hádegi,
matur, helgistund kl. 14, prestur sr. Ólaf-
ur Jóhannsson. Blöðin liggja frammi,
fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Laufey og Selma leið-
beina í listasmiðju, Stefánsganga kl.
9.10. Hjördís Geirs verður 20. ágúst.
Ferð til Ólafs í Forsæti 26. ágúst kl.
12.30. Skráning hafin í s. 411-2790.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 9-15.30 Handavinna kl.
9-15.30, matur, videó/spurt og spjallað
og spilað kl. 13,veitingar. Hárgreiðsla og
fótaaðgerðir kl. 9-16.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, félagsvist kl. 14. Hár-
greiðslu og fótaaðgerðarstofan opnuð.
Velvakandi 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ARMANDO,
GAFFALLINN
ER SKÍTUGUR
AFSAKAÐU,
HERRA MINN
ÉG SKAL REKA HANN
Í HJARTA MITT OG NÁ
Í NÝJAN HANDA ÞÉR
ÉG DÁIST AÐ ÞVÍ
HVAÐ HANN TEKUR
STARFIÐ ALVARLEGA
OG KALD-
HÆÐNINNI
VOFF!
VOFF!
VOFF!
VOFF!
VOFF!
VOFF!
VOFF!
HEYRIR ÞÚ
ÞETTA? ÆTLI
HANN HAFI
SÉÐ ÞJÓF?
NEI, ÞÁ
GELTIR
HANN EKKI
SVONA
VOFF!
VOFF!
VOFF!
VOFF!
VOFF!
VOFF!
VOFF!
SVONA GELTIR HANN
ÞEGAR HANN LANGAR
TIL AÐ GELTA
HVAÐ ER
Í GANGI? EKKERT
ENNÞÁ...
„ENNÞÁ“? MAÐUR
VEIT ALDREI.
ÞAÐ GÆTI
EITTHVAÐ
GERST Í DAG
KANNSKI ÆTTI
ÉG AÐ FÁ MÉR
SVONA BÚNING
OG EF EITTHVAÐ GERIST
ÆTLA ÉG AÐ VERA VIÐ
ÖLLU REIÐUBÚINN
HVERT ERTU
AÐ FARA?
ÉG ER AÐ FARA Á FUND
HJÁ FÉLAGI LANDKÖNNUÐA
VELKOMNIR Á ÞENNAN
FUND, STRÁKAR. Í DAG
ÆTLUM VIÐ AÐ KANNA
ÞAÐ SEM SKOTLAND
HEFUR UPP Á AÐ BJÓÐA
ÞESS VEGNA ÆTLUM VIÐ AÐ KANNA
INNIHALDIÐ Í ÞESSARI SKOSKU
VISKÍFLÖSKU SEM ÉG ER MEÐ HÉRNA
VIÐ ÞURFUM AÐ
KAUPA ÞETTA
VERKJALYF SEM
MAÐUR GETUR
BORIÐ BEINT Á
HÖFUÐIÐ Á SÉR
AF
HVERJU?
ÉG ER
MEÐ
HÖFUÐVERK
HVAÐ
KEMUR
TIL?
ÉG HORFÐI
Á ÞESSA
VERKJALYFJA-
AUGLÝSINGU
EINUM OF OFT
ER NÝJA STELPAN
Í MÓTTÖKUNNI
BYRJUÐ?
JÁ HVERNIG
STENDUR
HÚN SIG?
NOKKUÐ VEL...
HÚN VINNUR
HÖRÐUM
HÖNDUM....
VIÐ
BLOGGIÐ
SITT
HÉRNA ER ÉG
Í ENN EINU
TILGANGSLAUSU
STARFI
ÉG VEIT AÐ ÞÚ ÁTT Í
ÁSTARSAMBANDI VIÐ
KÓNGULÓARMANNINN
ÉG GET EKKI SAGT
HONUM AÐ PETER SÉ
KÓNGULÓARMAÐURINN
HVAÐ GET
ÉG GERT?
HÖFUÐIÐ
Á MÉR
VONANDI KEM ÉG
EKKI OF SEINT
ÞÚ FÆRÐ SVARIÐ FYRR
EN ÞIG GRUNAR, M.J...
Fyrir framan 10/11 í Laugalæk rakst ljósmyndari Morgunblaðsins á vin-
konurnar Guðríði, Ingibjörgu, Hrefnu og Stefaníu. Þær voru með tombólu
og ætluðu að gefa Rauða krossinum ágóðann.
Morgunblaðið/Eggert
Hlutavelta og hlaupahjól
Flugsafn Íslands á
Akureyri
MÉR finnst ástæða til
að vekja athygli þeirra
sem ferðast um landið
og koma við á Akureyri
á Flugsafninu sem nú
er í nýju 2200 fermetra
stoðalausu sýning-
arhúsi við Akureyr-
arflugvöll. Upplýsingar
um Flugsafnið eru á
www.flugsafn.is en við
þær má bæta að að-
gangseyrir er einungis
500 kr. fyrir fullorðna.
Að Flugsafninu á
Akureyri standa ekki
neinir viðvaningar. Samt kom mér á
óvart hve vel og skipulega hefur ver-
ið staðið að uppbyggingu þess og
sagnfræðilegum þætti flugsögunnar
í máli og myndum. Þar mikill fróð-
leikur settur fram á greinargóðan og
skýran hátt, ekki síst með miklu og
góðu safni ljósmynda. Á Flugsafninu
eru flugvélar af ýmsum gerðum og
stærðum, frá furðulegum fisum til
Fokker F-50 og Puma-þyrlu. Þarna
má skoða frægar vélar frá upphafi
sjúkraflugs og síldarleitar; farþega-
vélar frá upphafi áætlunarflugs á
vegum Akureyringa og stjórnklefa
fyrstu farþegaþotu okkar, Gullfaxa,
svo nokkuð sé nefnt. Þetta mynd-
arlega menningarsafn á maður eftir
að skoða aftur og aftur.
Leó M. Jónsson.
Ríkisfjölmiðlar
ÚTVARPSSTJÓRINN rekur upp
harmakvein í Morgunblaðinu í vik-
unni, yfir því hve dýrt
væri að koma upp
íþróttarás, og nefnir
100 milljónir. Hann
hefur nú 1,4 milljónir
rúmlega á mánuði.
Svo kemur hann
kvöld eftir kvöld og les
fréttir í sjónvarpi.
Hann heyrist aldrei
lesa fréttir í útvarpinu,
þó búið sé að sameina
stofnanirnar. Mér
finnst svo ósmekklegt
að úrvarpsstjóri skuli
koma og lesa og ég veit
um fjölmarga sem eru
óánægðir með starf
hans. Hann hefur sagt
upp mörgum fréttamönnum og ekki
ráðið í þeirra stað, kannski heldur
hann að fólki finnist svo gaman að
horfa á hann. Ég horfi aldrei á frétt-
ir þegar hann les. Mér finnst að
hann ætti ekki að láta sjá sig. Fólk
var ekki ánægt þegar hann var ráð-
inn á sínum tíma til starfa.
Mér finnst að greiðendur nýja
gjaldsins eigi heimtingu á að vita
hvað hann fær fyrir sinn snúð. Hann
ætti að skammast sín. Ég vil út-
varpsstjóra burt af skerminum.
Jenný Þóra Skarphéðinsdóttir.
Armbandsúr tapaðist
KVENMANNSGULLÚR tapaðist í
Kópavogi 8. – 10.ágúst. Finnandi
vinsamlega hringi í síma 863-6290.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara