Morgunblaðið - 18.08.2009, Side 29

Morgunblaðið - 18.08.2009, Side 29
Eftir Dag Gunnarsson dagur@mbl.is HINGAÐ til lands er innan tíðar væntanlegur fjölhæfur listamaður sem er um margt merkilegur, en helsta ástæðan fyrir komu hans til Ís- lands er kvikmyndin Stingray Sam sem hann gerði að beiðni Sundance- kvikmyndahátíðarinnar. Cory Mc- Abee er leikstjóri, handritshöfundur, lagahöfundur og söngvari hljómsveit- anna The Bill Nayer Show og Am- erican Astronaut. Kvikmyndin Stingray Sam er merkileg að mörgu leyti því hún var framleidd sérstaklega fyrir smæstu skjái sem hugsast geta, það er far- símaskjái og því er myndin í sex hlut- um sem geta allir staðið sem sjálf- stæðar stuttmyndir með upphaf, miðju og endi en meiningin er að myndin rati einnig í heild sinni í kvik- myndahús, sjónvarp og að sjálfsögðu í tölvur. Átti ekki farsíma „Það voru alþjóðleg samtök far- símafyrirtækja sem báðu Sundance að skipuleggja gerð nokkurra kvik- mynda sérstaklega fyrir farsíma og ég var fenginn til að gera eina slíka en þegar boðið kom átti ég ekki einu sinni farsíma. Ég hafði áður gert mynd sem heitir Reno sem var tón- listarmynd hugsuð fyrir farsíma en svo sá ég henni varpað á vegg í neð- anjarðarlestarstöð í Barcelóna og þá fékk ég þá hugmynd að gera kvik- mynd sem væri ætluð fyrir allar gerð- ir skjáa. Mynd sem væri hönnuð fyrir smæsta skjáinn en virka í öllum stærðum,“ sagði McAbee í síma- viðtali um komu hans til Íslands. Þeg- ar hann skrifaði handritið og hannaði útlit myndarinnar hafði hann ekki einungis í huga stærð og hlutföll skjásins heldur einnig með hvaða hætti myndinni yrði dreift og að fólk myndi eignast hana og vilja horfa oft- ar en einu sinni. Söngleikur og geim-vestri Stingray Sam tilheyrir fremur óvenjulegum flokki mynda, hún er í senn söngleikur og geim-vestri með gamansömu ívafi og fjallar um aðal- hetjuna Stingray Sam og félaga hans The Quasar Kid sem eru geim- glæpamenn sem eru neyddir til að bjarga lítilli stúlku úr klóm illmennis til að geta um frjálst höfuð strokið. „Ég vildi skrifa sögu sem myndi hylla bandaríska menningu en gagnrýna hana um leið og því sækir myndin í sjóð margra tegunda bandarískra kvikmynda svosem söngleikja, vestra og geimævintýra, en gagnrýnir um leið bandarískan samtíma og tekur fyrir hluti á borð við einkarekin fang- elsi sem hagnast á föngum og lyfjaframleiðslufyrirtæki sem ganga of langt og tóbaksframleiðendur sem þekkja ekki sín mörk í ágengum aug- lýsingum og mengun auðlinda og þetta er síðan allt sett í landslag vís- indaskáldsögunnar,“ segir McAbee. Í myndinni er vondi maðurinn yf- irmaður stórfyrirtækis og hetjurnar eru í raun glæpamenn, þau umskipti eru kannski ekki mjög óvenjuleg en þegar McAbee er spurður út í þau segir hann: „Er ekki öllu snúið á hvolf þessa dagana?“ McAbee segir að nú séu bútar klipptir úr kvikmyndum og settir á netið og dreift á hinar og þessar vef- síður þannig að það sé í raun eðlilegt að búa til mynd sem er pakkað inn á þann hátt að það henti þeim markaði. Filmar fyrir smæsta skjáinn Cory McAbee Í titilhlutverkinu í kvikmyndinni Stingray Sam sem var gerð sérstaklega með farsímaskjái í huga.  Bandaríski leikstjórinn Cory McAbee gerði mynd fyrir farsíma að beiðni Sundance-hátíðarinnar  Verður á RIFF og ráðstefnunni You Are In Control MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009  Ætla má að þorri þjóðar, alltént sá hluti hennar sem er að mestu bú- inn að sletta úr klaufunum (og er ekki með Stöð 2, flakkara o.s.frv.), freistist til að horfa á bíómyndir RÚV á sunnudagskvöldum. Mynd- irnar eru iðulega í takt við grá- myglu þeirra daga og virðist um ritstjórnarákvörðun að ræða. Hvort það er sökum helberrar snilldar eða hreinnar meinfýsi skal ósagt látið, en í öllu falli hljóta hinir 320.000 eigendur stöðvarinnar að vera sáttir með síðustu mynd, hina stórgóðu Anklaget frá Danmörku. Umfjöllunarefnið sifjaspell, nema hvað, en þegar svo listavel er tekið á málum verður þessi „stefna“ RÚV meira en ásættanleg. Hinar mögnuðu sunnudagsmyndir RÚV Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞAÐ voru þeir Björn G. Björnsson, Þórir Baldursson og Troels Bendt- sen sem skipuðu hið feikivinsæla Savannatríó sem fór mikinn á ár- unum 1963-1967. Á þessum árum var vinnsla á hlutum snörp, fjöldi platna kom þá út undir merkjum SG hljómplatna og tríóið spilaði út um land allt og víðar, linnulítið. Sena mun í haust gefa út mynd- arlegan pakka þar sem öllu hljóð- rituðu efni Savannatríósins er rak- að saman. „Það stóð til að gera þetta í fyrra, en þá voru liðin 45 ár frá því að við komum fyrst fram,“ segir Björn. „Margt af þessu hefur aldrei komið út á stafrænu formi áður. Þá hefur Jónatan Garðarsson skráð sögu okkar ýtarlega, og með verða myndir, textar o.fl. Það var gaman að rifja þetta upp og gott ef þetta efni hefur ekki meiri skírskotun nú en oft áður, þessi hreina þjóðlaga- tónlist virðist í nokkurri tísku nú. Annars var þetta ótrúlegur tími, við spiluðum einu sinni 14 tónleika eina vikuna og plöturnar seldust í tugum þúsunda eintaka! Það er því víst að einhverjir munu taka þess- ari útgáfu fagnandi.“ Savannatríóið endurútgefið Savannatríóið Nei, þetta eru ekki Ingó og Veðurguðirnir! Fólk Stingray Sam verður frumsýnd á stórum sem smáum skjám út um allan heim 15. sept- ember næstkomandi. Al- þjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, verður sett 17. september og Cory McAbee verður á nýmiðlunarráðstefn- unni You Are In Control sem haldin er á vegum útflutnings- ráðs 15. og 16. september. Ráðstefnan fjallar um staf- ræna þróun og þar verður að finna fulltrúa farsíma- og út- gáfufyrirtækja, prent- og vef- miðla, tölvuleikjaframleiðanda og tónleikabókara. Hátíð og ráðstefna Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is HLJÓMSVEITIN Skátar er á dánarbeðinum eftir átta ára samstarf. Dánarorsökin var sú að einn stofnfélagi sveitarinnar, Markús Bjarnason, tilkynnti að hann hygð- ist hætta til þess að sinna öðrum tónlistarverkefnum og fjölskyldu sinni. Eftir sveitina liggja þrjár útgáfur sem komu út hjá Grandmother Records, rassvasaútgáfu hljómsveit- arinnar sjálfrar. Þetta er breiðskífan The Ghost Of The Bollocks To Come, þröngskífan Heimsfriður í Chile og sjötomman Goth báðum megin. Sveitin var þekkt fyrir sjálfstæði sitt á tónlistarmark- aðnum og er sögð ítrekað hafa afþakkað útgáfutilboð er- lendra og innlendra fyrirtækja er buðu þó veglegar fyr- irframgreiðslur. „Af því bara,“ svarar Benedikt Reynisson, liðsmaður sveitarinnar, aðspurður um ástæður þess að sveitin sé að hætta. „Okkur fannst ekki rétt að halda áfram þegar kjarnameðlimir hætta. Það er ekki bara Markús því Bjössi er líklega að flytja til Genf í heilt ár. Það er ekkert hægt að halda áfram með öðrum mannskap. Við verðum bara að leggja þetta í salt og sjá hvað setur.“ Skátar kveðja aðdáendur sína á tónleikum á Sódómu á föstudaginn. Þar koma einnig fram Reykjavík! og Sud- den Weather Change. Skátarnir hnýta lokahnútinn á föstudagskvöldið næsta Lggja upp laupana eftir að söngvarinn hætti Morgunblaðið/Jim Smart Skátar Kveðja aðdáendur sína með veglegu skátamóti á Sódómu ásamt Reykjavík! og Sudden Weather Change. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Söngvaseiður (Stóra sviðið) Harry og Heimir (Litla sviðið) Leikferð um landið 13. - 22. september Fim 10/9 kl. 20:00 Fors U Fös 11/9 kl. 20:00 Fors U Lau 12/9 kl. 20:00 Frums U Sun 13/9 kl. 20:00 U Fim 17/9 kl. 20:00 U Fös 18/9 kl. 19:00 U Lau 19/9 kl. 19:00 U Fim 24/9 kl. 20:00 U Fös 4/9 kl. 19:00 U Lau 5/9 kl. 19:00 U Sun 6/9 kl. 19:00 Ö Mið 9/9 kl. 20:00 U Fim 10/9 kl. 19:00 U Fös 11/9 kl. 19:00 Ö Fös 18/9 kl. 19:00 Ö Lau 19/9 kl. 19:00 U Sun 20/9 kl. 14:00 U Lau 26/9 kl. 14:00 U Djúpið (Litla sviðið) Mið 23/9 kl. 20:00 U Sun 27/9 kl. 16:00 Ö Mið 30/9 kl. 20:00 Ö Sun 4/10 kl. 16:00 Opið hús laugardaginn 29. ágúst kl. 13-17 Líf og fjör um allt hús - allir velkomnir Nýtt og glæsilegt leikár kynnt eftir 2 daga Allt að seljast upp - tryggðu þér miða Áskrifendur eiga forkaupsrétt á föstum sætum til fimmtudags. Endurnýjaðu á www.sinfonia.is eða í síma 545 2500

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.