Morgunblaðið - 18.08.2009, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009
„DAZZLINGLY WELL MADE...“
VARIETY - 90/100
„HÚN VAR FRÁBÆR!“
NEW YORK MAGAZINE – 90/100
STÆRSTA BÍÓOPNUN Í ÁR!
YFIR 47.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
HHHHH
– Empire
HHHHH
– Film Threat
„kvikmynda dýnamít“
- Rolling StoneFRÁ LEIKSTJÓRA
„THE MUMMY“
KEMUR EIN FLOTTASTA
STÓRMYND SUMARSINS
HASAR OG TÆKNIBRELLUR
SEM ALDREI HAFA SÉST ÁÐUR
HHHH
„POTTER HEFUR ALDREI VERIÐ FYNDNARI, MANNLEGRI,
ÁHRIFARÍKARI EÐA SKEMMTILEGRI. KLÁRLEGA BESTA MYND SEM
ÉG HEF SÉÐ ALLT SUMARIÐ.”
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
VIN
SÆL
AST
A M
YND
IN
Á ÍS
LAN
DI Í
DAG
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI
/ ÁLFABAKKA
G.I. JOE kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 12 THE PROPOSAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:30 L
PUBLIC ENEMIES kl. 5 - 8D - 10:50D 16 DIGTAL HARRY POTTER 6 kl. 2 - 5 - 8 - 10:10 10
PUBLIC ENEMIES kl. 2 - 8 - 10:50 LÚXUS VIP HARRY POTTER 6 kl. 5 LÚXUS VIP
G-FORCE m. ísl. tali kl. 23D- 43D - 63D L DIGTAL 3D BRÜNO kl. 11 14
G-FORCE m. ísl. tali kl. 3 L HANGOVER kl. 8 12
/ KRINGLUNNI
PUBLIC ENEMIES kl. 8:20D - 11D 16 DIGITAL
G-FORCE m. ísl. tali kl. 23D - 43D - 63D L DIGITAL 3D
G-FORCE m. ensku tali kl. 63D L DIGITAL 3D
THE PROPOSAL kl. 1:30D - 3:40D - 8:20D - 10:40D L DIGITAL
HARRY POTTER 6 kl. 2 - 5 - 8 10
BRÜNO kl. 11 14
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
FYRIR nokkrum vikum síðan var allt útlit
fyrir að ekkert yrði af árlegum stór-
tónleikum Rásar 2 á Menningarnótt. Hug-
myndir um að dreifa mannhafinu betur urðu
til þess að ákveðið var að slaufa tónleikum á
Miklatúni og setja þess í stað upp þrjú svið
miðsvæðis. Eitt þessara sviða verður innst í
Hljómskálagarðinum í suðurhorni garðsins
sem liggur næst Hringbrautinni þar sem m.a.
er að finna leiksvæði barna. Í gegnum röð at-
burða var Rás 2 svo boðið að sjá um dagskrá
þess sviðs og er hún nú niðurnegld og menn
til í slaginn. Þar koma fram Páll Óskar,
Þursaflokkurinn, Paparnir, Lights on the
Highway og Ingó & Veðurguðirnir. Tónleik-
arnir hefjast kl. 19:30 á laugardagskvöldið
og standa yfir í þrjá tíma.
„Þetta er mini-tónleikahátíð í borginni.
Þarna verður hægt að vera allt kvöldið.
Þarna ætla sveitirnar að taka sín bestu lög,“
segir Ólafur Páll Gunnarsson hjá Rás 2. „Það
verða líka tónleikar á Ingólfstorgi og Skóla-
vörðustíg. Exton, sem heldur tónleikana,
hafði samband við okkur og okkur tókst á
ótrúlega skömmum tíma að gera þetta svipað
og hefur verið. Við ætlum að tjalda öllu til.
Kannski verður þetta framtíðarstaður fyrir
tónleika Rásar 2 á Menningarnótt? Við höf-
um áhuga á að halda þessu áfram því þetta
hefur svínvirkað. Það eiga víst að komast
þarna auðveldlega fyrir um 15 þúsund manns
og við viljum auðvitað fylla túnið.“
Sem fyrr verður öllu tjaldað til, risaskjám
og stærsta hljóðkerfi landsins. Tónleikarnir
verða líka í beinni útsendingu á Rás 2.
Stórtónleikum bjargað
Rás 2 stendur fyrir tónleikum í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt
Hugsanlegur framtíðarstaður tónleikanna, segir Ólafur Páll Gunnarsson
Morgunblaðið/Ómar
Páll Óskar Lýkur stórtónleikunum í Hljóm-
skálagarði á Menningarnótt.
Tökum lokið
á Sumarlandinu
Feðgin Á ferð á bíl fjölskyldufyrirtækisins. Stilla úr sjálfri myndinni.
UM helgina lauk tökum á gamanmynd-
inni Sumarlandið, sem er fyrsta kvik-
myndin í fullri lengd sem Grímur Há-
konarson leikstýrir. Meðfylgjandi
myndir voru teknar við það tilefni, en
staðsetningin er gamla iðnaðarsvæðið á
Kársnesi, Kópavogi.
Það eru þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir
og Kjartan Guðjónsson sem eru í aðal-
hlutverkum en það var hinn kunni kvik-
myndagerðarmaður Ari Kristinsson sem
sá um kvikmyndatökuna. Myndin gerist
að mestu leyti í Kópavogi og fjallar um
fjölskyldu sem rekur nýaldarsetur og
miðilsþjónustu þar í bæ. Togstreita kem-
ur upp þegar þýskur auðkýfingur býðst
til að bjarga þeim úr fjárhagslegum
kröggum með því að kaupa álfastein sem
er á lóð þeirra hjóna.
Grímur hefur getið sér gott orð fyrir
stuttmyndir sínar, t.d. myndina Bræðra-
byltu. Hann lætur sér ekki nægja leik-
stjórastólinn því hann samdi jafnframt
handritið að Sumarlandinu.
Uppi Menn príla upp á lífshættulega
stillansa fyrir kvikmyndagyðjuna.
Léttir Aron Bergmann og Snorri Engilbertsson losa um
spennuna sem fylgir því að gera heila kvikmynd.
Íbygginn Grímur Hákonarson fer yfir afrakstur dagsins.
19.30 Lights on the Highway
20.00 Hinn íslenzki Þursaflokkur
20.50 Paparnir
21.35 Ingó & Veðurguðirnir
22.10 Páll Óskar
Dagskráin