Morgunblaðið - 21.08.2009, Side 2

Morgunblaðið - 21.08.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is LANDSBANKINN auglýsti sér- staklega, bæði á vefsíðum og í bréf- um til viðskiptavina, að innstæður á Icesave-reikningum Landsbankans væru tryggðar með bæði íslenska og breska innstæðutryggingakerf- inu. Þá ítrekuðu bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árna- son og Halldór J. Kristjánsson, í bréfi til Fjármálaeftirlitsins (FME) og hollenska seðlabankans (DNB) að þeir hefðu „vitneskju um við- brögð við kröfu um útskýringar [um stöðu innstæðutrygginga, innsk. blm.] frá breska fjármálaráðuneyt- inu um stuðning stjórnvalda við ís- lenska innstæðutryggingakerfið, ís- lensk stjórnvöld hafa sent frá sér bréf þar sem hlutverk þeirra í fjár- mögnun íslenska kerfisins er út- skýrt og skuldbindingar þeirra í samræmi við ESB-tilskipunina ítrekaðar. Að okkar mati er þetta mikið framfaraspor og ætti að fara langleiðina með að létta á áhyggjum varðandi innstæðutryggingakerfið“. Bréfið var skrifað 23. september í fyrra, en þá hafði hollenski seðla- bankinn efasemdir um að íslenska bankakerfið myndi lifa þrengingar á alþjóðamörkuðum af og einnig að Tryggingasjóður innstæðueigenda gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar vegna Icesave. Í bréfinu ítreka Halldór og Sigur- jón að ekkert bendi til þess að ís- lenskur efnahagur sé á leið að lenda í vanda. Kjartan Gunnarsson, fyrr- verandi varaformaður bankaráðs Landsbankans, hefur haldið því fram í aðsendum greinum í Morg- unblaðinu að forsvarsmenn Lands- bankans hafi aldrei haldið því fram að bankinn starfaði á grundvelli rík- isábyrgðar. Ljóst er þó að skrif Halldórs og Sigurjóns í fyrrnefndu bréfi benda til þess að þeir telji að íslenska ríkið myndi taka á sig skuldbindingar vegna innstæðutryggingakerfisins. Þær skuldbindingar yrðu óhjá- kvæmilega á grundvelli ábyrgðar ríkisins, hvort sem yrði vegna lán- töku sjóðsins fyrir útgreiðslu til sparifjáreigenda eða annarra að- gerða til þess að liðka fyrir því að sjóðurinn stæði við sitt. Stjórnvöld að baki sjóði Bankastjórar Landsbankans sögðu hollenskum yfirvöldum að íslensk stjórnvöld myndu styðja við íslenska innstæðutryggingakerfið ef á því þyrfti að halda Margir sóttu krúserakvöld klúbbs áhugamanna um klassíska bíla í gær. Þar voru flottustu trylli- tækin sýnd og þar mátti sjá króm, leður og blæj- ur og undir ómaði blúsinn. Það var ekki síst ung- viðið sem var áhugasamt, enda kraumar bíladellan í blóði margra ungmenna. MEÐ KRAUMANDI BÍLADELLU Morgunblaðið/Kristinn HALLI af rekstri Orkuveitu Reykjavíkur á fyrri helmingi ársins var 10,6 milljarðar króna. Það ræðst að mestu af veikri stöðu krónunnar en hún hefur gríðarleg áhrif á skuldastöðu fyrirtækisins. Um áramót 2007/2008 voru heild- arskuldir Orkuveitunnar, sem eru í erlendri mynt, 102 milljarðar króna. Þær eru nú tæplega 230 milljarðar. Um 80 prósent af tekjum fyrir- tækisins eru í íslenskum krónum og því hefur veiking krónunnar mikil áhrif á efnahagsreikninginn. Eigin- fjárhlutfall fyrirtækisins er nú 14,1 prósent. Í tilkynningu frá OR segir að „vaxandi tekjur fyrirtækisins í er- lendri mynt geri því kleift að standa undir greiðslum af erlendum lántök- um þrátt fyrir miklar gengissveifl- ur“. Helsta ástæða þess að erlendar tekjur duga til að greiða niður lán er lágt vaxtastig á erlendum myntum víðast hvar í heiminum en seðlabank- ar erlendis hafa víðast hvar lækkað vexti niður í 1-2 prósent. magnush@mbl.is 10,6 milljarða halli Orkuveitu Morgunblaðið/Ómar OR Veiking krónunnar hefur skað- að efnahag OR mikið. Veik króna er OR erfið sem stendur Landsbankinn og Íslandsbanki eru einu kröfu- hafarnir í þrotabú Lang- flugs ehf., fjár- festingafélags Finns Ingólfs- sonar, fyrrver- andi iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, og fjárfestingafélagsins Giftar. Það var stofnað utan um eignir Samvinnutrygginga um mitt ár 2007, og var eigið fé félagsins þegar best lét rúmlega 30 millj- arðar króna. Langflug var stofnað árið 2006 og var það fyrst og fremst um hlut í Icelandair Group. Með tímanum varð félagið þó umsvifameira á hlutabréfamarkaði. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í maí þá leysti Landsbankinn til sín 23,84 prósent hlut Langflugs í Icelandair eftir að ljóst var að félagið gat ekki staðið við lánasamninga, sem voru í erlendri mynt, við bankann. Eignasafn Langflugs er í dag nánast ekkert og eru því lítil sem engin verðmæti í þrotabúi félags- ins. Lán Landsbankans upp á um átta milljarða og Íslandsbanka upp á fimm eru því töpuð. Samstarfi Finns og hins gjaldþrota Giftar er því lokið. magnush@mbl.is Skuldir langt um- fram eignir Finnur Ingólfsson 14 milljarða kröfur í þrotabú Langflugs LÖGREGLA vinnur af fullum krafti að rannsókn á tildrögum þess, að ungur maður fannst látinn í iðn- aðarhúsnæði í Hafnarfirði aðfara- nótt þriðjudags. Maður um þrítugt sem grunaður er um að hafa orðið manninum að bana, hefur verið úr- skurðaður í gæsluvarðhald fram til 1. september næstkomandi. „Rannsókn málsins gengur vel,“ sagði Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld. Verið væri að vinna úr þeim gögnum sem tæknideild lögreglunnar aflaði á vettvangi og þá væru skýrslutökur af þeim, sem ástæða þótti að ræða við, langt komnar. sbs@mbl.is Skýrslutökur langt komnar vegna morðs- ins í Hafnarfirði Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hafa bankastjórar Landsbankans ekki viljað líta svo á, að bréf þeirra til FME og hollenska seðlabankans hafi fal- ið í sér að þeir teldu að ríkið myndi ábyrgjast innstæðu- tryggingakerfið. Aðeins hafi verið vísað til þess að stjórnvöld myndu styðja við innstæðu- tryggingakerfið við eðlilegar að- stæður. Ekki hafi verið átt við að ríkisábyrgð yrði á innstæðu- tryggingakerfinu við hrun bankakerfisins. Ekki ábyrgð á hruni TIL stendur að stofna félag kaupmanna í miðborginni og færa til þess ýmsa samstarfs- samninga borg- arinnar og fé- lagsins Mið- borgar Reykja- víkur. Félagið var stofnað fyrir um tveimur árum en hefur, að sögn Áslaugar Friðriksdóttur, formanns þess, ekki náð að virka sem skyldi þar sem kaupmenn eiga sjálfir ekki sitt eigið félag eða málsvara. Mál þetta var rætt á fundi borg- arráðs í gær þar sem fulltrúar Samfylkingar bókuðu að þessi breyting vitnaði um vandræða- gang. Það viðhorf telur Áslaug frá- leitt. Sú tilraun sem gerð var hafi ekki virkað sem skyldi og út- gjaldalaust sé því að fara nýjar leiðir ef þær reynist betur. sbs@mbl.is Stofna nýtt miðborgarfélag Áslaug Friðriksdóttir fyrir alla sem www.gottimatinn.is gerður fyrir mat! – 5x5x5 cm kubbur af rjómaosti gjörbreytir sósunni. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 -1 0 9 7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.