Morgunblaðið - 21.08.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009
„VIÐ leggjum áherslu á að verktakinn verði með
þessar merkingar í lagi í þeim verkefnum sem
eru framundan,“ segir Bjarni Stefánsson hjá
Vegagerðinni. Merkingar á Suðurlandsvegi, nið-
ur við gatnamót Vesturlandsvegar, vegna mal-
biksframkvæmda á Breiðholtsbraut þykja ófull-
nægjandi og ekki í samræmi við nýjar reglur um
hvernig staðið skuli að merkingum á fram-
kvæmdastað. Talsmenn Vegagerðarinnar stað-
festa að betur hefði mátt standa að merkingum
enda hafi nokkrir óánægðir vegfarendur haft
samband vegna þessa. Framkvæmdum á Breið-
holtsbraut sé hins vegar að ljúka og því verði
ekki mikið gert í málinu héðan af nema draga
lærdóm af því sem miður fór.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
ÓLJÓSAR MERKINGAR Á SUÐURLANDSVEGI
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
MIKILL vilji er hjá ráðherrum
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs að tryggja opinbert eign-
arhald á orkufyrirtækjum. Þeim er
þó ljóst að breiða samstöðu þarf
innan ríkisstjórnarinnar til að það
verði að veruleika. Fulltrúar fjár-
mála- og iðnaðarráðuneytis, sem
heyrir undir Katrínu Júlíusdóttur
frá Samfylkingu, funduðu um málið
í gær til að ákveða næstu skref.
Vilja nýta forkaupsrétt
Geysir Green Energy (GGE)
keypti fyrir skemmstu 34,7 prósent
eignarhlut Reykjanesbæjar í HS
Orku á um 13 milljarða króna.
Hluti af samkomulaginu var að
Magma Energy fengi að kaupa um
þriðjung af þessum eignarhluta.
Samkvæmt samþykktum HS Orku
eiga aðrir eigendur fyrirtækisins
forkaupsrétt á öllum viðskiptum
með eignarhluti í því, svo lengi sem
þeir eru tilbúnir að greiða sama
verð fyrir.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að sá forkaupsréttur standi til 24.
september næstkomandi og að fjár-
málaráðuneytinu sé fullkunnugt um
að hægt væri að láta OR nýta sér
hann til að koma þessum eignar-
hlutum í opinbera eigu.
Það gæti átt sér stað með þeim
hætti að OR keypti hlutina en
framseldi þá síðan til annarra op-
inberra aðila: ríkisins, sveitarfélaga
eða opinberra fyrirtækja. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
þykir áhrifafólki innan Vinstri
grænna ástæða til þess að gerð
verði úttekt á þeim viðskiptum með
eignarhluti, lönd og auðlindanýt-
ingu innan HS Orku sem átt hafa
sér stað frá síðustu áramótum.
Full ástæða til að skoða málið
Í viðskiptunum með eignarhlut
Reykjanesbæjar í HS Orku var
meðal annars samið um að bærinn
keypti löndin sem auðlindirnar til-
heyra en leigði HS Orku þær aftur
gegn leigugjaldi til allt að 130 ára
sem vinstri grænum þykir ótrúlega
lágt. Full ástæða sé til þess að
skoða málin, jafnvel taka til endur-
skoðunar ef tilefni er til.
VG vill tryggja
opinbert eignarhald
Ræða um leiðir til að koma í veg fyrir einkavæðingu
„ÞAÐ er upplifun bókaútgefanda að sala á bók-
um hafi gengið mjög vel í sumar,“ segir Kristján
B. Jónasson, formaður félags bókaútgefanda.
Hann segir flesta sammála um að sala á kiljum
hafi gengið sérstaklega vel og einnig sala á inn-
lendum ferðabókum. „Það eru eflaust nokkrar
ástæður fyrir þessu. Á gamla Íslandinu keypti
fólk gjarnan bækur í útlöndum og þá var alltaf
rífandi sala í Leifsstöð. Salan þar hefur dregist
saman og meira selst í bókabúðunum. Aðal-
ástæðan fyrir góðri sölu er þó sú að bækur eru í
raun hræbillegar. Bækur hafa nánast ekki
hækkað í verði, í krónum talið, síðan árið 2000.“
Hagstæðir samningar um prentun erlendis hafi
ráðið mestu um lækkað verð. Nú þegar allar
bækur eru prentaðar hér heima þá sé óhjá-
kvæmilegt að bókaverð hækki eitthvað á næst-
unni. „Bókaútgefendur hafa undanfarið tekið á
sig allar hækkanir og framlegð að sama skapi
minnkað. Pappír og prentun hefur hins vegar
hækkað mikið og því ljóst að um einhverjar en þó
hóflegar hækkanir verður að ræða“
Erlendar bækur ekki keyptar
„Við erum sæl og glöð með söluna,“ segir Jón
Geir Jónsson, aðstoðarverslunarstjóri hjá bóka-
verslun Eymundsson í Kringlunni. „Sumarið er
vitaskuld kiljutíminn en við merkjum almennt
aukna sölu í íslenskum bókum. Enda hefur út-
gáfan verið mjög skemmtileg og fjölbreytt í sum-
ar. Þá rokseljast auðvitað kreppu- og hrunbæk-
urnar, enda eins og bestu reyfarar.“ Jón Geir
segir sölu á erlendum bókum hins vegar hafa
dregist saman enda sé lítið sem ekkert keypt inn
af nýjum erlendum bókum. „Innkaupaverðið er
svo gríðarlega hátt og þar að auki er ekki til
gjaldeyrir til að kaupa nýjar bækur. Þannig að
íslenska bókin blífur.“ svanbjorg@mbl.is
Bækur rokseljast í kreppunni
Kiljur seljast eins og heitar lummur Áður keypti fólk oftar bækur í
útlöndum Aðalástæðan fyrir góðri sölu sú að „bækur eru hræbillegar“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Úrval Kiljurnar eru vinsælar í sumar enda
margir ferðast innanlands þetta árið.
15-70%
af öllum
ljósum
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
0
9
Ljósadagar
13. ágúst - 23. ágúst
Sevilla. Borðlampi
m/plíseruðum skerm. H 45 cm.
Verð 19.900,- NÚ 9.950,-
Endurútgáfa bókarinnar Matur
og drykkur eftir Helgu Sigurð-
ardóttur hefur verið í efsta sæti
metsölulistans hjá Eymunds-
son/Pennanum tvær vikur í röð.
„Við erum búin að selja tvö
þúsund eintök og bókin verður
endurprentuð eins fljótt og auð-
ið er,“ segir Sigurður Svav-
arsson hjá bókaútgáfunni Opnu.
Sigurður telur að rekja megi
vinsældir bókarinnar til þess að
nú séu menn að horfa á gömlu
gildin, rækta sjálfir og frum-
vinna. ,,Þá leita þeir í grunn-
uppskriftirnar.“
ingibjorg@mbl.is
Matur og drykkur
söluhæst í 2 vikur
FORSETI Ís-
lands, Ólafur
Ragnar Gríms-
son, sem axlar-
brotnaði í útreið-
artúr í Húna-
vatnssýslu í
fyrrakvöld, ligg-
ur enn á Land-
spítala, þar sem
hann gekkst í
gær undir rann-
sóknir sérfræðinga. „Eðlilega hefur
þetta áhrif á dagskrá forseta en
hann mun eftir sem áður ganga til
sinna starfa,“ segir Örnólfur Thors-
son forsetaritari. Forsetinn brotn-
aði á vinstri öxl, eins og fyrir tíu ár-
um þegar hann féll af hestbaki á
Leirubakka í Landsveit.
Forseti í rannsókn
eftir axlarbrotið
Ólafur Ragnar
Grímsson
JÓN Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, hefur skip-
að vinnuhóp sem fær það hlutvert
að endurskoða jarða- og ábúðar-
lög.
Vinnuhópinn skipa þingmenn-
irnir Atli Gíslason og Ásmundur
Einar Daðason og frá Bændasam-
tökum Íslands Jóhannes Sigfússon,
bóndi á Gunnarsstöðum, Eiríkur
Blöndal framkvæmdastjóri og
Erna Bjarnadóttir sviðsstjóri.
Með þeim munu starfa fyrir
hönd ráðuneytisins þeir Sigurður
Þráinsson skrifstofustjóri og Arn-
ór Snæbjörnsson lögfræðingur.
Jarða- og ábúðalög
endurskoðuð