Morgunblaðið - 21.08.2009, Síða 11
Fréttir 11ALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
TEKIST var á um fyrirvarana við Icesave-
frumvarpið, afleiðingar skuldbindinganna, for-
sögu málsins og hverjir bæru ábyrgð á hvernig
komið er fyrir Íslendingum við 2. umræðu um
það á Alþingi í gær. Umræðan hófst kl. 9 og stóð
yfir langt fram á kvöld. Á fjórða tug þingmanna
flutti ræður um málið.
Framsóknarmenn gagnrýna niðurstöðuna
harðlega og leggja til að frumvarpinu verði vísað
frá og samið upp á nýtt við Breta og Hollendinga.
Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaga-
nefndar, sagði við upphaf umræðunnar að fjár-
laganefnd hefði unnið að því að leiða málið til
lykta í sátt. Það væri ábyrgð allra þingmanna að
leita bestu lausna. Deilt var um hvort breyting-
arnar sem meirihluti fjárlaganefndar leggur til
gengju það langt að þær breyttu Icesave-
samningnum eða rúmuðust innan þeirra. Guð-
laugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, vakti
sérstaklega máls á þessu. Guðbjartur svaraði og
sagði að ekki væri verið að hafna samningnum
sem slíkum og Bretar og Hollendingar ættu að
geta fallist á þessa fyrirvara.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, fór ítarlega yfir aðdraganda málsins,
sagði að ríkisstjórnin sem var við völd í banka-
hruninu hefði aldrei lofað ríkisábyrgð vegna Ice-
save-reikninganna. Sagði hann að ef frumvarpið
yrði samþykkt í þessari mynd, þá yrði ríkis-
ábyrgðin hluti af Icesave-samningnum. „Það er
mín sannfæring að ef þetta mál verður klárað
með þessum hætti, þá væri langskynsamlegast
að aðilar málsins kæmu sér saman um að end-
urgera lánasamningana og það stæði síðan rík-
isábyrgð einfaldlega að baki þeim,“ sagði Bjarni.
Hann sagðist líta á þær breytingar sem nú lægju
fyrir sem gagntilboð til Breta og Hollendinga.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
sagði fyrirvarana við frumvarpið um ríkisábyrgð-
ina þess eðlis, að stjórnvöld ættu að geta útskýrt
þá fyrir viðsemjendum sínum og alþjóða-
samfélaginu „þannig að á þá verði fallist“. Sagð-
ist hún sannfærð um að viðsemjendurnir mundu
ekki setja samningana í uppnám, þegar þeir
gerðu sér ljóst að um varnagla væri að ræða.
Sagðist hún hafa rætt við ýmsa forsætisráðherra,
þar á meðal alla forsætisráðherra Norður-
landanna, um stöðu málsins. Þær óformlegu við-
ræður, sem átt hefðu sér stað milli íslenskra,
breskra og hollenskra embættismanna að und-
anförnu, gæfu ekki tilefni til að halda að það
þyrfti að hafa miklar áhyggjur af því að taka
þyrfti samningana upp að nýju.
Sjálfstæðismenn styðja samkomulagið sem
náðist í fjárlaganefnd en lögðu fram minni-
hlutaálit og eru mjög gagnrýnir á hvernig málið
er vaxið. Kristján Þór Júlíusson, einn fulltrúa
flokksins í fjárlaganefnd, sagði að sjálfstæðis-
menn væru ekki hluti af niðurstöðu meirihluta
fjárlaganefndar um fyrirvarana. „Engu að síður
lýstu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í fjár-
laganefnd yfir stuðningi við þessa breyting-
artillögu en áskildu sér þó rétt til þess að leggja
fram eða styðja aðrar tillögur sem væru til þess
fallnar að styrkja málstað Íslands enn frekar.“
Ekki var nógu langt gengið við breytingar á
frumvarpinu að mati framsóknarmanna og upp-
lýsingar vantar enn að mati þeirra. Sagði Hösk-
uldur Þórhallsson, fulltrúi flokksins í fjárlaga-
nefnd, sérstaklega gagnrýnivert að upplýsingar
um eignir þrotabús Landsbankans lægju enn
ekki fyrir hjá nefndinni. Framsóknarmenn
hvöttu stjórnarliða til að koma til móts við sjón-
armið þeirra áður en frumvarpið verður afgreitt
og af máli nokkurra þingmanna má ráða að ekki
er loku fyrir það skotið að skoðaðar verði frekari
breytingar á milli 2. og 3. umræðu.
Árni Þór Sigurðsson, VG, sem sæti á í fjár-
laganefnd, sagði í svari við spurningu Gunnars
Braga Sveinssonar, Framsóknarflokki, að tæki-
færi gæfist til að ræða álitamál í fjárlaganefnd á
milli 2. og 3. umræðu, sem menn vildu ræða frek-
ar og skoða sérstaklega. Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra vék einnig að þessu í máli
sínu. „Nefndin mun skoða málið á milli annarrar
og þriðju umræðu og það voru tilgreind tiltekin
atriði sem á að líta betur á, sem sjálfsagt er bæði
rétt og skylt, en ég skynja það þannig, að í öllum
aðalatriðum sé hin efnislega niðurstaða fengin í
samkomulaginu sem liggur til grundvallar af-
greiðslu fjárlaganefndar.“
Stjórnarliðar staðhæfa að
fallist verði á fyrirvarana
Bjarni Benediktsson segir um gagntilboð að ræða Framsókn vill frávísun
Morgunblaðið/Eggert
Langt fram eftir Alþingismenn tókust á langt fram eftir kvöldi um frumvarp fjármálaráðherra um
ríkisábyrgð vegna Icesave. Sextán voru á mælendaskrá á tólfta tímanum í gær.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagð-
ist við umræðurnar á Alþingi í gær hafa tekið
það sérstaklega upp við Anders Fogh Rasm-
ussen, framkvæmdastjóra NATO, á fundi þeirra í
Reykjavík í gær, að Bretar hafi staðið mjög sér-
kennilega gegn bandalagsþjóð í NATO þegar þeir
beittu hryðjuverkalögum til að frysta íslenskar
eignir í Bretlandi. Þetta geti með engum hætti
samræmst því þegar um bandalagsþjóð væri að
ræða.
Fram kom hjá Jóhönnu, að Fogh Rasmussen
hefði rætt við Gordon Brown, forsætisráðherra
Breta, um Icesave-málið.
Jóhanna sagði að ekki væri hægt að afsaka
það að Bretar skyldu hafa beitt hryðjuverkalög-
unum með þeim hætti sem þeir gerðu. Sagði
hún að íslensk stjórnvöld hefðu ítrekað mót-
mælt þessu og sjálf sagðist hún hafa tekið málið
upp við Gordon Brown í kjölfar þess að bresk
þingnefnd gagnrýndi þarlend stjórnvöld.
„Ég hef ekki fengið skýringu Gordons Brown á
því sem ég tel fullnægjandi,“ sagði Jóhanna.
Ræddi hryðjuverkalög Breta gegn Íslandi við Fogh Rasmussen
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins í
fjárlaganefnd segja að afstaða
þeirra til Icesave-frumvarpsins
helgist af brýnni nauðsyn þess að ná
almennri alhliða sátt um málefni
Landsbanka Íslands hf. og annarra
íslenskra banka er stöðva þurftu
starfsemi í októbermánuði 2008.
Sjálfstæðismenn styðja fyrirvarana
sem samkomulag náðist um meðal
meirihlutans í nefndinni en skila sér-
stöku nefndaráliti, sem lagt var
fram á Alþingi í gær. Telja þeir að
engin lagaleg skylda hvíli á íslenska
ríkinu til að veita ríkisábyrgð vegna
Icesave-deilunnar.
Þá segir í áliti þeirra að Íslend-
ingar verði að fara fram á rannsókn
hið fyrsta á því hvernig það mátti
vera að hægt var að misbeita Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum síðastliðið
haust í þágu þriggja aðildarríkja á
kostnað eins. Framsóknarmenn
lögðu í gær til að frumvarpinu verði
vísað til ríkisstjórnarinnar og henni
falið að taka upp viðræður á nýjan
leik við bresk og hollensk stjórnvöld
á grundvelli Brussel-viðmiðanna.
Leitað verði eftir pólitískum farvegi
til lausnar deilumálinu eða
samningsniðurstöðu á sanngjarnari
forsendum. Höskuldur Þórhallsson,
fulltrúi Framsóknar í nefndinni,
lagði einnig fram varatillögu um
fjölmargar breytingar á fyrirvörum
frumvarpsins sem komi til atkvæða
ef frávísunartillagan verður felld.
Þar er m.a. lagt til að upphafsdagur
vaxta miðist við 27. júlí sl. í stað 1.
janúar. Í nefndaráliti hans segir m.a.
að efnahagslegir fyrirvarar meiri
hluta fjárlaganefndar séu til bóta, en
gangi ekki nægilega langt. Sér-
staklega sé slæmt að viðmið Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins um skuldaþol ís-
lenska þjóðarbúsins sé ekki að finna
í fyrirvörum meiri hlutans.
omfr@mbl.is
Brýn nauðsyn að ná alhliða sátt
Morgunblaðið/Eggert
Lesefni Þrjú álit liggja fyrir þinginu frá fjárlaganefnd, mikil að vöxtum.
Sjálfstæðismenn gagnrýna Icesave-málið í nefndaráliti Segja enga lagalega
skyldu að veita ríkisábyrgð Framsókn vill upphafsdag vaxta frá 27. júlí
Maraþonumræða stóð yfir í allan gærdag og
gærkvöld um Icesave-frumvarpið á Alþingi.
Tekist var á um allar hliðar málsins. Ekki er
loku skotið fyrir að fjárlaganefnd skoði frek-
ari breytingar milli 2. og 3. umræðu.
Orðrétt
frá Alþingi
’Hér er um slíkar breytingar aðræða, ekki síst hvað varðargreiðslur okkar samkvæmt samning-unum, að viðsemjendur okkar verðaað bregðast við því. Með því að setja
ríkisábyrgðinni skorður er löggjafar-
samkundan að senda framkvæmda-
valdinu og raunar viðsemjendunum
einnig, skýr skilaboð [...]“
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON
’Menn eiga ekki að fara þannigmeð fjöregg þjóðarinnar að þaðsé alger óvissa um hvernig Hollending-ar og Bretar munu bregðast við fyrir-vörunum“
HÖSKULDUR ÞÓRHALLSSON
’Þannig hefur taktfastur trommu-sláttur á Austurvelli minnt okkurþingmenn á að vanda okkur. Vakið at-hygli á þeim vilja þjóðarinnar að gættverði hagsmuna Íslendinga. Að tryggð
verði björt framtíð fyrir börnin okkar“
GUÐBJARTUR HANNESSON
’Ég hlýt að gagnrýna að Alþjóða-gjaldeyrissjóðnum sé í raun beittmeð þessum hætti og ég tel að þaðkomi fyllilega til greina að við skoðumþað á vettvangi Alþingis hvort það eigi
að gera einhverjar formlegar athuga-
semdir við þá“
ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON
’Í mínum huga er þetta í sjálfu sérósköp einfalt. Það er engin leið tilnema áfram fyrir Ísland. Það er enginnbakkgír til á þessum bíl. Við ætlumekkert í hann þó hann væri það. Við
verðum að snúa okkur að því af mikl-
um krafti að glíma við erfiðleikana“
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
’Sem formaður utanríkismála-nefndar þá fylgdist ég mjöggrannt með því sem gerðist í kjölfarið.Og það voru skýr skilaboð sem komuinn á borð utanríkismálanefndar frá
samningamönnum Íslands í viðræðun-
um við Breta og Hollendinga. Í stuttu
máli voru skilaboðin þessi. Viðsemj-
endur okkar telja að Íslendingar skuldi
þeim alla fjárhæðina. Þeir ætlast til
þess að hún verði greidd að fullu. Þeir
eru tilbúnir til þess að lána fjárhæðina
en þeir vilja fá vexti og þeir vilja að
upphæðin verði greidd hratt til baka“
BJARNI BENEDIKTSSON
’Það sem vantar á núna er aðkynna þetta mál [...] Mig langarað spyrja hæstvirtan ráðherra hvortþað þurfi ekki að upplýsa þessa vörusem við erum búin að framleiða hér á
Íslandi um alla Evrópu. Hvort það sé
ekki nauðsynlegt að þingmenn fari
sjálfir um alla Evrópu og kynni fyrir fé-
lögum sínum út um allt hvernig þessi
niðurstaða er fengin og hvernig hún
virkar. Hvort það sé ekki rétt að á milli
2. og 3. umræðu þá frestum við þing-
inu í tvær vikur [til] að gera þetta“
PÉTUR H. BLÖNDAL
’Það er nánast eins og með ein-hverjum yfirnáttúrulegum hætti,hafi ráðherrar ríkisstjórnarinnar veriðsettir í þá stöðu að taka ákvörðun umsömu hluti og framkvæmdastjórar
bankanna og bankastjórarnir þurftu
að taka ákvarðanir um á árunum 2006
og 2007. Niðurstaðan liggur fyrir. Ráð-
herrarnir með hæstvirta viðskipta-
ráðherra, fjármálaráðherra og for-
sætisráðherra í broddi fylkingar, svo
ekki sé minnst á hæstvirtan félags-
málaráðherra, vilja fara nákvæmlega
sömu leið og bankarnir – nema bara
að bæta í og leggja meira undir“
SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON
’Við getum ekki látið undan kúg-unartilraunum Alþjóðagjaldeyris-sjóðsins sem telur það vera heilagaskyldu sína að setja sig ofar fullveldiÍslendinga. Við getum ekki látið neyða
þessum skelfilega samningi upp á
okkur. Fyrir alla muni skulum við gera
það heyrinkunnugt að við séum reiðu-
búin að framselja Landsbankaskrílinn í
hendur breskra og hollenskra yfir-
valda og heita Bretum og Hollending-
um allri mögulegri aðstoð til að hafa
upp á hverri krónu í eigu þessa lýðs til
greiðslu á Icesave-innistæðum“
ÞRÁINN BERTELSSON