Morgunblaðið - 21.08.2009, Side 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
„ALLAR gagnrýnar raddir, stofn-
ana og einstaklinga, eru gerðar
tortryggilegar og sú litla fjöl-
miðlaumfjöllun sem farið hefur
fram hefur verið með fádæmum
einsleit og hlutdræg með starf-
semi Orfs. Í dag hefur þetta
[ræktunar]leyfi verið afturkallað.“
Svo hljóðar brot úr tölvubréfi
sem Illgresi, áður óþekkt samtök,
sendu fjölmiðlum vegna hermd-
arverka sem unnin voru á
tilraunaræktun Orf líftækni hf. á
erfðabreyttu byggi. Í bréfinu segir
að „eftirlitsaðilar“ Illgresis hafi
jafnað tilraunareitinn við jörðu.
Að sögn Bjarnar Lárusar Örvars,
forstjóra Orf Líftækni hf., var all-
ur reiturinn eyðilagður, plönturn-
ar rifnar upp og traðkað á þeim.
„Þetta hefur verið gert milli
eftirlitsferða hjá okkur,“ segir
Björn og kveður eftirlitið hafa
verið í samræmi við ræktunarleyfi
Umhverfisstofnunar. Eftirlitsferð-
irnar kveður Björn þó ekki tíðar
þar sem byggið hafi ekki verið
farið að þroskast og í raun sé eft-
irlitinu og öðrum öryggisráðstöf-
unum ekki beint að fólki. Þeim sé
ætlað að halda fuglum og hvers-
kyns búfénaði frá plöntunum og
tryggja aðskilnað erfðabreytta
byggsins frá villtri náttúrunni.
Staðsetningin
var trúnaðarmál
„Við skiljum ekki hvernig menn
gátu fundið staðsetningu reitsins,
þetta eru innan við hundrað fer-
metrar á tólf þúsund hekturum,“
segir Björn. Staðsetningin var
trúnaðarmál til þess að koma í veg
fyrir skemmdarverk en Björn seg-
ir að tilraunareitir af þessu tagi
séu gjarna eyðilagðir erlendis. Var
staðurinn að hans sögn aðeins
kunnur völdum starfsmönnum
Orfs og Umhverfisstofnunar auk
meðlima ráðgjafarnefndar um
erfðabreyttar lífverur sem fjallaði
um leyfi Orfs til ræktunarinnar.
„Við erum að vonast til að lög-
reglan leysi þetta mál, finni þá
sem voru að verki,“ segir Björn.
Lögreglan á Hvolsvelli fer með
rannsókn málsins. Þar á bæ sögðu
menn að ekki væri tímabært að
segja nokkuð um málið.
Illgresið í vígahug
Í tilkynningunni frá Illgresi
segir að ræktun erfðabreytts
byggs hefði rutt veginn fyrir frek-
ari uppgangi erfðabreyttra lífvera.
Segir í henni að þær séu hættu-
legar umhverfi og lífríki. Þetta
mun þó vera með öllu ósannað
þótt neikvæð áhrif hafi ekki verið
útilokuð enn. Rök andstæðinga
erfðabreyttra lífvera hafa yfirleitt
verið á þá leið að rétt sé að láta
náttúruna njóta vafans.
„Héðan í frá munu erfðabreyt-
ingar ekki fara fram á [Í]slandi án
okkar íhlutunar,“ segir ennfremur
í tölvubréfi Illgresis. Það er því
ljóst að samtökin hyggja á frekari
aðgerðir verði tilraunum með
erfðabreyttar lífverur haldið
áfram. Bréfinu lýkur á orðunum
„Lifi Ísland“.
Reynt var með öllum ráðum að
ná tali af forsvarsfólki eða með-
limum Illgresis vegna umfjöllunar-
innar en án árangurs.
Ljósmynd/Helgi Jóhann Hauksson
Skemmdarverk Í tölvubréfi segir m.a. að „eftirlitsaðilar“ Illgresis hafi jafnað tilraunareitinn við jörðu.
Umhverfisvá ástæða
hermdarverkanna
Samtökin Illgresi hafa gengist við eyðileggingu tilraunareits
Milljónaskemmdarverk hafa verið
unnin á tilraunaræktun á erfða-
breyttu byggi í Gunnarsholti.
Spilling, umhverfisógn og ónóg
lýðræðisleg umræða eru ástæður
verknaðarins segja gerendur.
Að öllum líkindum voru skemmdirnar unnar síðdegis á föstudag. Eftir-
litsmenn Orfs fóru um svæðið um daginn og hafði reitnum ekki verið
spillt þá.
Síðdegis á sunnudag tók Helgi J. Hauksson kennari myndir af reitnum,
sem þá hafði verið var eyðilagður. „Ég tel útilokað að það hafi verið
minna en tveir dagar síðan þetta var gert þegar ég var þarna,“ segir
Helgi og rökstyður það með hve gulnuð og þurr sár stráanna voru og hve
þurr moldin á endum upprifinna plantnanna var. Kveðst hann hafa fundið
reitinn með því að spyrja íbúa í nágrenninu til vegar. „Það þarf enga töfra
til að finna þetta.“
Skemmdirnar líklega unnar á föstudag
25%
AFSLÁTTUR
Af viðarvörn
og útimálningu
Skráning á www.songlist.is / umsókn
eða á songlist@borgarleikhus.is
Kennsla í Borgartúni 1, hefst 7. september.
Kennsla í Borgarleikhúsinu hefst 14. september.
Gleði - uppbygging - fagmennska - framfarir
KJARADEILU Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna við ríki og sveitarfélög hefur
verið vísað til ríkissáttasemjara.
Sama er uppi á tengingnum í deilu
Landssambands lögreglumanna og
launanefndar ríkisins. Bæði þessi
stéttarfélög hafa fellt nýgerða kjara-
samninga.
„Það er gott að fá hlutlausan aðila
til að stýra viðræðum,“ segir Steinar
Adolfsson, framkvæmdastjóri
Landssambands lögreglumanna í
samtali við Morgunblaðið.
Á fundi Tollvarðafélags Íslands
með samninganefnd ríkisins í gær
var farið yfir ýmsar hugmyndir og
ákveðið að hittast aftur í næstu
viku og meta stöðuna. Tollverðir
felldu í liðinni viku kjarasamning
við ríkið, en kurr er í félagsmönn-
um vegna yfirvinnubanns og ann-
arra skerðinga sem geta í vissum
tilvikum þýtt allt að 30% kjara-
skerðingu meðal tollvarða.
sbs@mbl.is
Kjaradeilur komnar
til ríkissáttasemjara
Fáðu úrslitin
send í símann þinn