Morgunblaðið - 27.08.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÞÆR undu sér vel innan um litfögur blóm þessar
tvær sem spjölluðu saman í gær á Austurvelli.
Ekki er seinna vænna að njóta sumarsins þar
sem haustið er handan við hornið með kólnandi
vindum og vaxandi myrkri. Margir fagna þessari
árstíð því myrkrið getur verið mjúkt og notalegt
og það kallar á að tendruð séu kertaljós og þá er
stutt í að rómantíkin láti á sér kræla. Kannski
hafa skáldleg orð flogið á milli vinkvennanna.
SPJALLAÐ Á BEKKNUM Í BLÍÐUNNI
Morgunblaðið/Heiddi
SAMNÝTTUM bílum, þ.e. bílum
með tveimur eða fleiri farþegum,
verður snemma á næsta ári veittur
forgangur í nýrri tilraun á vegum
samgöngustjóra. Tilraunin felst í að
stýra umferð sem liggja mun á
morgnana á virkum dögum í átt að
nýju húsnæði Háskólans í Reykjavík
í Öskjuhlíð en markmiðið er að stuðla
að vistvænni ferðamáta til og frá
skóla og vinnu en tíðkast hefur.
Að sögn Þorbjargar Helgu Vigfús-
dóttur, formanns umhverfis- og sam-
gönguráðs, á enn eftir að útfæra
framkvæmd tilraunarinnar í samráði
við lögreglu. Hugsanlega verði not-
ast við myndavélar og sektir rétt
eins og þegar fylgst er með hrað-
akstri. Farþegar sem ferðast einir í
bíl munu eins og áður geta ekið um
Flugvallarveg. jmv@mbl.is
Samnýttir bílar
njóti forgangs
Morgunblaðið/Kristinn
Á ferð Margir ferðast einir í bílum
sínum til og frá vinnu og skóla.
Stuðlað að vist-
vænni ferðamáta
ÓLAFUR Magn-
ússon, aðaleig-
andi Mjólku og
framkvæmda-
stjóri fyrirtæk-
isins, segir við-
ræður um
aðkomu nýrra
hluthafa að fyrir-
tækinu vera á
lokastigi.
Ólafur staðfestir að Kaupfélag
Skagfirðinga sé meðal þeirra sem
hafa sýnt því áhuga að eignast hlut í
fyrirtækinu. „Viðræður við ýmsa að-
ila hafa staðið í nokkurn tíma og við
erum að vinna að því að taka skyn-
samlega ákvörðun um framtíð fyr-
irtækisins, þ.e. hvernig eignarhaldi
verður háttað. Kaupfélag Skagfirð-
inga hefur sýnt fyrirtækinu mikinn
áhuga og reyndar fleiri aðilar.“ Ekki
liggur ljóst fyrir hversu mikið nýir
eigendur munu eiga í félaginu, að
sögn Ólafs.
Rekstur Mjólku hefur verið þung-
ur að sögn Ólafs, þótt sala á vörum
sé góð. Áætlanir hafi þó staðist og
vöruþróun sé framar vonum. „Þetta
er ungt fyrirtæki sem var fyrstu tvö
árin að finna sér tilverugrundvöll.
Frá stofnun, í febrúar 2005, höfum
við verið að þróa vörurnar og gengið
afar vel að selja þær. Háir vextir og
almenn, erfið, ytri skilyrði eru hjá
okkar fyrirtæki alveg eins og öllum
öðrum fyrirtækjum á Íslandi. Við
höfum verið að berjast við það.“
magnush@mbl.is
Mjólka að
fá nýja
hluthafa
Ólafur Magnússon
Kaupfélag Skagfirð-
inga sýnt áhuga
LÍTIL merki um efnahagshrunið
sem reið yfir Ísland eru sjáanleg
þegar gengið er um götur Reykja-
víkur, skrifar Robert Wade, prófess-
or við London School of Economics, í
aðsendri grein sem birtist á vef Fin-
ancial Times í gærkvöldi.
Það geti hins vegar breyst á næst-
unni þegar ferðamennirnir halda
heim, lánafrystingu lýkur og at-
vinnuleysi eykst á ný. Wade segir
ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri
grænna hafa farið hægt af stað eftir
kosningarnar en nú hafi ræst þar úr,
m.a. með Icesave-samkomulaginu og
fjármögnun bankanna.
Lítil merki
um hrunið
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
„MÉR finnst Alþingi hafa sýnt
styrk sinn í þessu máli. Nefndar-
vinnan í fjárlaganefnd hefur gjör-
breytt málinu og skapað betri sátt
um það, svo ekki sé talað um mik-
ilvægi fyrirvaranna sem settir eru
við ríkisábyrgðina,“ segir Ragnar H.
Hall hrl. um breytingartillögurnar
sem fjárlaganefnd hefur samþykkt
vegna frumvarps fjármálaráðherra
um ríkisábyrgð Tryggingarsjóðs
innstæðueigenda vegna Icesave-
skulda Landsbankans.
Ragnar segir samstöðuna meðal
allra flokka, nema Framsóknar-
flokks, hafa skipt miklu máli. „Mér
finnst hún [samstaðan, innsk. blm.]
vera mesti sigurinn.“
Grundvallarbreyting á málinu
Frá því að samningurinn um ríkis-
ábyrgð tryggingarsjóðsins var und-
irritaður, í júní á þessu ári, er mikið
vatn runnið til sjávar. Breytingartil-
lögur fjárlaganefndar hafa sett skýr
skilyrði um með hvaða hætti ís-
lenska ríkið getur tekið á sig rík-
isábyrgðina. Óljóst er enn hversu
mikið mun falla á Ísland, þar sem
óvissa um virði eigna Landsbank-
ans, sem ganga upp í þá skuld sem
ríkið tekur á sig, er enn mikil. Í
versta falli geta hundruð milljarða
fallið á íslenska ríkið vegna ríkis-
ábyrgðarinnar.
Helstu fyrirvararnir sem sátt náð-
ist um meðal fulltrúa fjögurra flokka
í fjárlaganefnd eru þeir að hagvöxt-
ur stýri því hversu mikið er greitt af
lánunum frá Hollendingum og Bret-
um. Þá var því bætt við, á milli 2. og
3. umræðu í nefndinni, að ríkis-
ábyrgðin nái aðeins til ársins 2024.
Samkvæmt samningnum byrja end-
urgreiðslur á lánum eftir sjö ár, eða
árið 2016, og því mun endurgreiðslu-
tímabilið standa í átta ár. Sam-
kvæmt breytingartillögunum er
einnig gert ráð fyrir að ef enginn
hagvöxtur verður á tilteknu tímabili
verði ekki greitt af lánunum á þeim
tíma. Þá er einnig tryggt að ríkis-
ábyrgðin getur ekki tekið gildi nema
Bretar og Hollendingar samþykki
þá fyrirvara sem meirihluti fjárlaga-
nefndar hefur samþykkt. Með því er
tryggt að ríkisábyrgðin verði ekki of
íþyngjandi fyrir íslenskan efnahag.
Samstaða mesti sigurinn
Líklegt er að ríkisábyrgð vegna Icesave-skulda Landsbankans verði samþykkt
á Alþingi í dag Alþingi sýndi styrk og gjörbreytti málinu segir Ragnar H. Hall
» Ríkisábyrgð tryggingarsjóðsins gildir til 2024
» Fyrirvarar gjörbreyta stöðu fyrir Ísland
» Staða efnahagsmála stýrir endurgreiðslum
» Algjör óvissa um eignasafn Landsbankans
Í NEFNDARÁLITI fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í fjárlaganefnd,
Kristjáns Þórs Júlíussonar, Ein-
ars K. Guðfinnssonar, í fjarveru
Ólafar Nordal, og Ásbjörns Ótt-
arssonar, kemur fram að frum-
varpinu hafi í raun verið koll-
varpað og það bætt, vegna þess
að meirihluti hafi ekki verið fyr-
ir því. „Þær breytingar á frum-
varpinu sem unnar hafa verið í
fjárlaganefnd varpa ljósi á
hversu forkastanleg vinnubrögð
ríkisstjórnarinnar hafa verið í
þessu máli,“ segir m.a. í áliti
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Þá er gagnrýnt að ríkis-
stjórnin hafi ætlað að keyra
málið í gegnum þingið án þess
að sýna öll gögn.
Fyrirvararnir við ríkisábyrgð-
ina, sem sjálfstæðismenn
styðja, hafi gjörbreytt eðli máls-
ins og gert það þess vert að
styðja það.
Mikil breyting