Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 9
FRÁBÆR BUXNASNIÐ
FALLEGAR SVARTAR OG DÖKKBLÁAR GALLABUXUR
EINNIG KLASSÍSKAR SVARTAR OG BRÚNAR,
SPARI- OG VINNUBUXUR
MÖRG SNIÐ – 2 SÍDDIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009
EINS og venjulega gerist á haustin hefur umferð um
helstu götur höfuðborgarinnar þyngst á álagstímum. Á
þetta sérstaklega við á morgnana þegar fólk er að halda
til vinnu og í skóla. Ástæðan er fyrst og fremst sú að
háskólar- framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu eru
teknir til starfa eftir sumarleyfi.
Lögreglan hefur sent frá sér tilkynningu þar sem
ökumenn eru beðnir að hafa þetta í huga og gera ráð
fyrir að ferðatími, sérstaklega á morgnana milli klukk-
an átta og níu, kunni að lengjast frá því sem verið hef-
ur. Gott ráð til að komast hjá mestu umferðarösinni sé
að leggja fyrr af stað en ella væri eða síðar eftir atvik-
um.
„Til mikils er því að vinna fyrir vegfarendur að aka
varlega og þá sérstaklega næstu vikur þegar umferðin
kemur til með að aukast mikið og nýir vegfarendur
bætast í hópinn,“ segir í tilkynningunni frá lögreglunni.
Morgunblaðið leitaði eftir upplýsingum hjá umhverf-
is- og samgöngusviði borgarinnar, um fjölda bíla í um-
ferðinni. Borin var saman umferð á tveimur stöðum,
Ártúnsbrekku í vestur og Kringlumýrarbraut í norður,
þriðjudagana 18. og 25. ágúst. Þá kom í ljós sú óvenju-
lega niðurstaða að sólarhringsumferðin í Ártúnsbrekk-
unni var umtalsvert minni seinni þriðjudaginn, eða
86.493 bílar samanborið við 92.301 bíla þriðjudaginn á
undan. Sólarhringsumferðin um Kringlumýrarbraut var
svipuð, eða rúmlega 68 þúsund bílar. 10 mínútna topp-
urinn sl. þriðjudag í Ártúnsbrekku var frá klukkan 7.40,
eða 992 bílar en toppurinn á Kringlumýrarbraut var
klukkan 8.00, eða 885 bílar . sisi@mbl.is
Umferð hefur aukist á
álagstímum í borginni
Sólarhringsumferð í Ártúnsbrekkunni dróst saman
Morgunblaðið/Sverrir
Bíll við bíl Þannig er umhorfs á helstu stofnbrautum
borgarinnar á morgnana, þegar umferðin er þyngst.
EKKI er enn búið að finna fram-
tíðarlausn í skólastjóramálum á
Hvolsvelli. Stöður skólastjóra og
aðstoðarskólastjóra grunnskólans
eru báðar ómannaðar. Búið var að
ráða Friðþjóf Helga Karlsson, að-
stoðarskólastjóra Hjallaskóla í
Kópavogi, í stöðu skólastjóra, en
hann hefur nú hætt við að taka
starfið að sér.
Friðþjófur sagði í samtali við
Morgunblaðið að ástæðan fyrir
þessari ákvörðun væri fyrst og
fremst fjölskylduaðstæður sínar.
Málið hefði komið upp með stutt-
um fyrirvara og þegar á reyndi
hefði þetta ekki gengið upp. Málið
hefði ekki verið endanlega frá-
gengið og hann hefði ekki verið
búinn að segja upp stöðu sinni við
Hjallaskóla.
Fráfarandi skólastjóri fer á eft-
irlaun um næstu mánaðamót og
aðstoðarskólastjóri er í leyfi.
Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofu-
stjóri sveitarstjórnarskrifstofunn-
ar, segir að til standi að tveir
deildarstjórar fari með stjórn skól-
ans á meðan unnið sé að lausn
málsins. Vonast er eftir að lausn
finnist á málinu
á næstu dögum.
Áður en
ákveðið var að
ráða Friðþjóf í
stöðuna höfðu
viðræður farið
fram við Hall-
dóru K. Magnús-
dóttur aðstoðar-
skólastjóra, sem
metin hafði verið
hæfust umsækjenda. Hún setti það
upphaflega sem skilyrði fyrir því
að taka að sér stöðuna að eig-
inmaður hennar, sem er fráfarandi
skólastjóri skólans, yrði ráðinn í
hálfa stjórnunarstöðu við skólann.
Viðræðum við hana var slitið form-
lega áður en Friðþjófi var boðin
staðan.
Hætti við að
taka við stöðunni
Friðþjófur Helgi
Karlsson
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 38-56
Nýjar vörur frá
Enn hægt að gera
góð kaup
á útsöluvörum
Engjateigi 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
Full búð af glæsilegum haustfatnaði
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060 - Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Skór & töskur
www.gabor.is
LAGERSALA 50-70% AFSL.
Max Mara, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
SVEITARSTJÓRN Langanes-
byggðar lýsir yfir miklum vonbrigð-
um með að nýr akvegur um Hólaheiði
og Hófaskarð,
sem sagt var frá í
Morgunblaðinu í
gær, verði ekki
tekinn í notkun í
haust eins og
ráðgert var.
Sveitarstjórnin
hvetur til að
fundin verði
lausn svo klára
megi veginn á til-
settum tíma.
„Vegasamgöngur til og frá Þórs-
höfn og nágrenni hafa sjaldan verið
jafn slæmar og nú sem helgast af lág-
marks viðhaldi á vegi um Melrakka-
sléttu og Öxarfjarðarheiði undanfarin
misseri því taka átti nýja veginn í
notkun í haust.“
Sveitarstjórnin gerir þá kröfu til
Alþingis og ráðamanna þjóðarinnar
að umhverfisráðherra ásamt Vega-
gerðinni beiti sér fyrir því að vegur-
inn yfir Hólaheiði verði kláraður í
haust.
Vilja fá að
keyra nýja
veginn
Melrakkaslétta Við-
hald vega er lítið.